Morgunblaðið - 13.02.1979, Blaðsíða 18
1 g MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979
Þingfréttir í stuttu máli — Þingfréttir í stuttu máli — Þingfréttir í stuttu
„Við höfum sigrað” hrópuðu
æstir fylgismenn Khomeinis
69 landgönguliðar og
6 þyrlur til Tyrklands
Teheran. 12. febrúar. Reuter. AP
FIMM vikna gömul stjórn dr.
Shapur Bakhtiars hrökkiaðist frá
völdum í gærkvöldi eftir tveggja
daga blóðuga götubardaga sem
kostuðu mörg hundruð mannslíf.
Skömmu áður hafði íranski herinn
skipað hermönnum að fara til búða
sinna. Þar með komst höfuðborgin
Teheran á vald sigri hrósandi
stuðningsmanna trúarleiðtogans
Ayatoilah Khomeini.
Útvarpið í íran, sem nú kallar
sig „útvarp byltingarinnar". sagði
frá sögusögnm um að dr. Bakhtiar
hefði svipt sig lífi. Manoucher
Kazimi landbúnaðarráðherra, sem
fyrstur tilkynnti opinberlega að
dr. Bakhtiar hefði sagt af sér,
hvaðst ekki vita hverjum hann
hefði sent lausnarbeiðni sína.
Ilann sagðist hafa reynt að ná tali
af Bakhtiar allan daginn. en hann
vissi ekki hvert hann hefði farið.
„Sigurinn okkar“
Áður en Bakhtiar sagði af sér
hafði Khomeini sagt stuðnings-
mönnum sínum: „Sigurinn er í
sjónmáli." Þá höfðu staðið blóðugar
óeirðir á götum Teheran í rúma 40
klukkutíma milli hermanna úr
keisaravarðliði hersins, sem eru
ofstækisfullir stuðningsmenn
keisarans, og þúsunda stuðnings-
manna Khomeinis. Bardagarnir í
Teheran í gær voru hápunktur
bardaga sem blossuðu upp á föstu-
dagskvöld þegar foringjaefni úr
flughernum og tæknifræðingar
gengu í lið með stuðningsmönnum
Khomeinis.
Snemma í gærmorgun hörðnuðu
átökin í miðborg Teherans þegar
herlið kallaði skriðdreka á vettvang
til að hrekja flugliða á brott.
Þúsundir uppreisnarmanna sóttu út
á göturnar þegar bardagarnir
hörðnuðu og eyðilögðu að minnsta
kosti fjóra þunga skriðdreka og
lögðu undir sig nokkrar löreglu-
stöðvar.
Þegar bardagarnir höfðu geisað í
margar klukkustundir lýsti land-
herinn yfir hlutleysi með áhrifa-
miklum hætti. Hermönnum var
sagt að hverfa af götunum og fara
aftur til búða sinna „til að forðast
meira ofbeldi og blóðbað" að því er
sagði í yfirlýsingu hersins.
Geysimikill mannfjöldi fór þá
þegar að hrópa: „Við höfum sigrað.
Við höfum sigrað“, en bardagar
héldu áfram í marga klukkutíma
eftir að yfirlýsingin var lesin í
útvarpi í hlutum höfuðborgarinnar.
Nokkrir örvæntingarfullir
hermenn úr lífverði keisarans
veittu enn viðnám í gærkvöldi, en
ríkisútvarpið sagði frá því að yfir-
maður þeirra hefði sent frá sér
stuðningsyfirlýsingu við hlutleysis-
yfirlýsingu landhersins.
Veifuðu rifflum
Þúsundir manna sem veifuðu
rifflum og vélbyssum voru á verði
við götuvirki á aðalgötunum vegna
möguleika á nýjum árásum keisara-
lífvarðarins. Kveikt var í þrennum
stórum herbúðum eftir umsátur
götuóeirðamanna um þær og út-
varpið varaði við því að miklar
sprengingar gætu átt sér stað ef
eldur kæmist í vopnabúr innan
þeirra.
Útvarpið útvarpaði einnig
stuðningsyfirlýsingu við byltinguna
frá Hussein Rabii hershöfðingja,
yfirmanni flughersins, sem
skipaður er 100.000 mönnum. Þar
með hafa andstæðingar keisarans á
valdi sínu, að minnsta kosti í orði
kveðnu, 460 herflugvélar, þar á
meðal einhverjar fullkomnustu
orrustuþotur heimsins.
Mehdi Bazargan, sem Ayatollah
Khomeini skipaði forsætisráðherra
til bráðabirgða á mánudaginn, skor-
Washington, 12. febrúar. AP.
Bandaríska landvarnarráðu-
neytið hefur sent sveit 69 banda-
rískra landgönguliða frá Banda-
ríkjunum til Tyrklands þar sem
þeir verða hafðir til taks ef nauð-
synlegt reynist að styrkja varnir
bandarfska sendiráðsins í íran að
sögn starfsmanna ráðuneytisins í
dag.
Jafnframt verða sex þyrlur flug-
hersins sendar til Tyrkiands þar
sem þær verö- ’ '*~r til taks ef
nauðsynlegt . reynist að flytja
Bandarikjamenn frá Teheran.
Cyrus Vance utanríkisráðherra
ræddi í gærkvöldi ástandið í Iran við
Carter forseta í Camp David með
hliðsjón af fréttum um að dr. Shapur
Bakhtiar hefði sagt af sér. Vance
kom aftur til Washington ásamt
Carter í forsetaþyrlunni en fór frá
Hvíta húsinu án þess að tala við
fréttamenn.
Öryggi tryggt
Talsmaður utanríkisráðuneytisins,
Kenneth Brown, sagði að öryggi
7.000 Bandaríkjamanna í íran væri
tryggt að því er bezt væri vitað.
Sendifulltrúi írans í Washington,
Assad Houmayoun, sagði að hann
hefði tekið við yfirstjórn sendiráðs-
ins vegna brottferðar Ardeshir
Zaheji sendiherra, náins vinar írans-
keisara. Myndir af trúarleiðtoganum
Khomeini hanga nú á veggjum
sendiráðsins.
Flutningur iandgönguiiðanna og
þyrlanna er fyrsta mikilvæga merki
nokkurra óvenjulegra bandarískra
hernaðarráðstafana síðan hið lang-
vinna umrót í Iran hófst. Hingað til
hefur verið reynt að láta líta út fyrir
að Bandaríkjamenn reyni ekki að
flýta sér að komast frá Iran.
Engin árás
Góðar heimildir herma að land-
gönguliðarnir og þyrlurnar hafi
verið send til Irncilik, Tyrklandi, en
það fékkst ekki staðfest. Talsmaður
landvarnaráðuneytisins sagði að
múgur hefði enn ekki gert nokkra
árás á bandaríska sendiráðið í
Teheran.
Flestir hinna 7.000 Bandaríkja-
manna í íran eru starfsmenn banda-
rískra verktaka, konur þeirra og
börn.
Landgönguliðarnir voru sendir frá
Camp Lajeune, North Carolina, en
þyrlurnar frá stöðvum í Englandi.
Þær eru af gerðinni HH-53 og taka
50 farþega. Enn bendir ekkert til
þess að flutningaflugvélar af gerðun-
um C-5 og C-141 séu í viðbragðs-
stöðu. Sagt er að 82. falihlífaherfylk-
ið í Fort Bragg, Norh Carolina, sé
ekki í viðbragðsstöðu, en yfirleitt er
hluti þess ávallt viðbúinn.
A það er lögð áherzia að aðeins sé
um varúðarráðstöfun að ræða og
ekki séu enn uppi ráðagerðir um að
beita jiyrlunum eða landgönguliðun-
um í Iran.
aði á hina ungu götubardagamenn
að eyðileggja ekki hernaðarmann-
virki eða opinberar byggingar.
Hann skoraði jafnframt í útvarps-
og sjónvarpsávarpi á þúsundir
unglinga sem hafa sópað fyrr-
verandi stjórn í burtu á degi
blóðugrar byltingar að koma fram
við hermennina eins og bræður.
Bazargan virðist nú vera traustur
í sessi og hann þakkaði yfirmönnum
hersins sem hefðu „lýst yfir
stuðningi við málstað alþýðunnar“
með því að ákveða að lýsa yfir
hlutleysi.
Afdrif Bakhtiars
Öngþveiti og glundroði hefur
fylgt í kjölfar bardaganna, og sam-
starfsmenn Bakhtiars reyna að nú
ganga úr skugga um afdrif hans.
Frú Dariush Forouhar, kona náins
bandamanns Bakhtiars, kvað sig og
mann sinn hafa heyrt sögusagnir
um að dr. Bakhtiar hefði fyrirfarið
sér. „Ég frétti að hann hefði reynt
að svipta sig lífi tvívegis og að hann
væri látinn.“ sagði hún en bætti því
við, að hún vissi ekki um sannleiks-
gildi fréttarinnar.
Hrun Bakhtiar-stjórnarinnar
virðist tákna að útlegð keisarans
verði varanleg. Meðal valdamanna
sem voru handteknir í dag var
Mehdi Rahmini hershöfðingi,
herstjórinn í höfuðborginni, og
aðstoðarmenn Khomeinis segja, að
hann verði leiddur fyrir rétt
ákærður fyrir morð samkvæmt
lögum islams.
Endalok hersins?
Hershöfðinginn var að því
spurður í fangelsinu hvort hand-
taka hans táknaði endalok herafl-
ans. Hershöfðinginn svaraði: „Nei,
það held ég ekki,“ en hann kvaðst
ekki búast við því að herinn bjarg-
aði honum. „Það getur verið að þeir
viti ekki að ég er hér,“ bætti hann
við.
I götubardögunum virtust aðeins
menn úr lífverðinum og lögreglunni
taka þátt í bardögunum við
stuðningsmenn Khomeinis. Líf-
vörðurinn varð að láta undan síga
fyrir þúsundum stuðningsmanna
Khomeinis og hörfaði úr sumum
stöðvum sínum. Eftir stóðu götur
þaktar hálfbrennandi götuvígjum
úr brennandi bifreiðum, upprifnum
trjám og járnhliðum.
Þegar leið á kvöldið fóru vopnaðir
borgarar að skjóta í allar áttir til að
halda upp á sigur sinn.
Ástandið var óljóst úti á landi, en
útvarpið sagði að 34 hefðu beðið
bana og rúmlega 300 særzt í Shiraz
í bardögum hermanna og óbreyttra
borgara. Útvarpið sagði að
hermennirnir hefðu „gengið í lið
með fólkinu".
Þingmenn hætta
Útvarpið sagði að allir þingmenn
neðri deildar, 268 talsins, hefðu sagt
af sér og þinghúsið var meðal
opinberra bygginga sem stuðnings-
menn Khomeinis væru að leggja
undir sig. í yfirlýsingu frá
Khomeini sem var útvarpað var
skorað á fólk að ráðast ekki á erlend
sendiráð eða valda óþarfa tjóni. En
fólkinu var sagt að verjast öllum
hermönnum sem hefðu að engu
hlutleysisyfirlýsingu yfirmanna
landhersins.
Skömmu eftir miðnætti varð
mikil sprenging sem heyrðist um
alla borgina frá herbúðum og staf-
aði frá eldsvoða að sögn útvarpsins.
Sprengingin kom af stað ótal sögu-
sögnum um orrustu skriðdreka og
stórskotaliðs, en líklega varð
sprengingin í skotfærageymslu. Út-
varpið bað slökkviliðsmenn að fara
á staðinn og varaði íbúa nálægt
búðunum við því að þeir kynnu að
þurfa að yfirgefa heimili sín.
Vopnaðir íran.skir uppreisnarmenn hjá bandarískum fána sem þeir
festu iifugan með byssustingjum á tré í setuliðsbænum Sultanabad
norðaustur af Teheran. Setuiiðsbærinn var miðstöð bandariskra
herráðunauta. en engir Bandarikjamenn voru í bænum þegar
uppreisnarmenn lögðu hann undir sig.