Morgunblaðið - 13.02.1979, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979
21
Heimsmet
RÚMENSKA stúlkan Nata-
lía Marasescu setti um helg-
ina nýtt heimsmet í 1500
metra hlaupi innanhúss.
Hljóp hún vegalengdina á
tímanum 4:04 mínútum.
Sjálf átti hún fyrra metið og
setti það á móti í Búdapest'
síðasta ári. Þá hljóp hún á
4:05 mínútum.
Þá setti Sovétmaðurinn
Gennady Valyukevich nýtt
heimsmet í þrístökki, á móti
nokkru I Minsk. Stökk
kappinn 17.18 metra, sem er
tveim sentimertrum betra
heldur en gamla metið hans
Viktor Sanejev.
Öruggt
hjá Tý
TVEIR leikir voru háðir i 3.
deiid íslandsmótsins í hand-
knattleik um helgina. Sá
merkilegri fór fram í Eyj-
um, þar sem Týrarar,
ósigraðir í deildinni mættu
efsta liðinu UMFA. Týr
vann örugglega í baráttu-
leik. þar scm skapið fór illa
með ýmsa, svo sem Sigurlás
Þorleifsson, sem sparkaði í
sitjandann á leikmanni
UMFA. Týrvann 21-15.
Þá fór fram einn leikur
suður í Keflavfk. Þar vann
lið ÍBK lið Njarðvíkur með
19 mörkum gegn 16 í
jöfnum leik.
Sigursælir
Júgóslavar
Júóslavneska landsliðið í
handbolta har sigur úr být-
um f 3-landa keppni sem
fram fór í Barcelona á
Spáni. Spánverjar og Frakk-
ar voru hinar þjóðirnar sem
kepptu.
Bæði Júgóslavar og Spán-
verjar sigruðu Frakka,
Spánverjar 25-20 og
Júgóslavar 25-14. Júgósiav-
ar og Spánver jar léku því til
úrslita í mótinu og unnu
Júgóslavar 18-16, eftir að
staðan i hálfleik hafði verið
10-6 fyrir Júgósiava.
Reka út af fyr-
ir annarra brot
Argentínumenn hafa tek-
ið upp nýjung í sambandi
við knattspyrnureglur sem
er ætiað að draga úr líkams-
meiðingum leikmanna og
mun ekki veita af.
Nýjung þessi virðist snjöll
á pappfrnum og verði hún
það í reynd, er ekki óifklegt,
að hún verði tekin upp víð-
ar. Ilin nýja regla er í því
fóigin, að nú getur dómari
bókað allt Iiðið í einu, geri
einn leikmaður þess sig sek-
an um alvarlegt brot, eink-
um þó það sem erlendis er
kallað „profcssional fouú,
eða þegar leikmaður heíur
hrist af sér síðasta varnar-
manninn og þeysir óhindrað
að marki andstæðinganna.
Þá er vinsælt að höggva
lcikmanninn gróflega niður,
þó að enginn möguieiki sé
að ná f boltann.
Brjóti leikmaður þannig
af sér og dómarinn sýnir
öllum leikmönnum gula
spjaldið. má vísa afbrota-
manninum út af brjóti ein-
hver félaga hans illa af sér
síðar í leiknum. Þetta hafa
dómarar í Argentínu óspart
gert og virðist heppnast vel.
Oli Ben hefur
varíð 15 víti
ólafur Benediktsson gerði sér lítið fyrir og varði 5 vítaköst í
leiknum gegn FH á sunnudagskvöldið. Það reyndist vera 5 af 7
skotum sem kappinn varði allt kvöldið. ólafur varði nefnilega
lítið í byrjun og kom þá Brynjar inn á og varði eins og herforingi.
Valsmenn og FH hafa nú leikið tvo leiki í röð og í þeim fyrri
varði óli Ben 4 víti, eða samtals 9 vítaköst í tveimur lcikjum.
Hefur Ólafur þá varið samtals 15 vítaköst í 9 leikjum Valsmanna.
Valsmenn eru að vísu með 10 leiki skrifaða, en Ólafur varði
auðvitað ekkert víti í HK-leiknum fræga, sem ekki fór fram.
Eini markvörðurinn, sem ógnar Ólafi á þessu sviði, er hinn
bráðefnilegi Jón Gunnarsson hjá Fylki, en hann hefur varið 10
vítaköst í leikjum liðsins í vetur.
— gg.
Nýtt
Olym-
píumerki
NÚ ERU 18 mánuðir þar til
Olympíuleikarnir í Moskvu
hefjast. Allur undirbúningur
er f fullum gangi. Búið er að
hanna nýtt Olympíumerki, og
var það teiknarinn Victor
Chizhikov sem það gerði.
Merkið sést hér til hliðar.
Vonandi verður andinn á
leikunum jafn hýr og
skemmtilegur og svipur rúss-
neska bangsans. — þr.
MHIjón á
Hólmavík
Á laugardag var frestað 3 leikjum í 1. deildinni ensku og varð að
grípa til teningsins enn einu sinni. Enn sem fyrr er teningurinn
mjög andsnúinn Liverpool og ekki er Nottingham Forest í náðinni,
svo að vinningsröðin varð þessi: X21 — 2X1 — X22 — XIX.
Þátttakandi á Hólmavík var einn með 11 rétta og varð vinningur
hans kr. 1.040.500.- en með 10 rétta voru 7 raðir og vinningur fyrir
hverja kr. 63.700.-
JtlorjjunXiIntíiíi
s
Framsigur við \
Eldborgargil '
A-sveit skíðadeildar Fram
vann skíðagöngumótið sem
fram fór neðan við Eldborgar-
gil í Bláfjöllum um helgina. 6
sveitir, tvær frá Fram, aðrar
tvær frá Hrönn og tvær frá
Skfðafélagi Reykjavíkur, tóku
þátt í keppninni. Sem fyrr
segir, varð A-sveit Fram í
fyrsta sæti, hlaut hún tímann
87,47 mínútur, en gengið var
3x7 kílómetra. Röð og tími
næstu sveita var sem hér segir:
2) A-sveit Skíðafélags Reykja-
víkur 94,39 mín.
3) A-sveit Hrannar 100,33 mín.
4) B-sveit Fram 108,04 mín.
5) B-sveit SR 115,00 min.
6) B-sveit Hrannar 120,39 mín.
Færi var þungt, en eigi að
síður fengu þeir með bestu
brautartímana ágætan tíma.
Halldór Matthíasson, Fram,
fékk besta tímann, 25,13 mínút-
ur. Næst besta tímann fékk
Sveinn Guðmundsson, SR, 28,27
mín. Páll Guðbjörnsson, sem
kominn er fjári nærri fimmt-
ugu, fékk þriðja besta brautar-
tímann, 28,47 mínútur.
Sigursveit Fram skipuðu
Halldór Matthíasson, Páll Guð-
björnsson og Örn Jónsson.
Skíðadeild Fram fór með
mótsstjórn, en hana skipuðu
Grétar Sigurðsson, Magnús
Guðjónsson, Bragi Eggertsson
og Dúi Sigurjónsson, sem jafn-
framt var brautatstjóri.
s
• Sigurvegararnir í Skjaldarglímu Ármanns, Hjálmur Sigurðs-
son skjaldarhati • er í miðjunni, honum á hægri hönd er
Guðmundur Freyr Halldórsson og Hjálmi á vinstri hönd er
Sigurjón Leifsson. Ljósm. Mbl. GB.
Ólafur H.
með á Spáni
Nú er ljóst að þeir ólafur H.
Jónsson og Axel Axelsson leika
með fslenska landsliðinu í hand-
knattleik á Spáni. Fari hins
vegar svo að ísland komist áfram
f keppninni eins og allar lfkur
eru nú á, geta þeir ekki klárað
keppnina heldur þurfa að fara
heim til V-Þýskalands og leika
með liði sínu Dankersen þann 3. m
mars gegn Kiel. Geta þeir því
ekki leikið siðasta leik fslands V
sem væntanlega verður 3. mars. k
Staða Dankersen er frekar slæm í J
1. deildarkeppninni þýsku um ^
þessar mundir og því mega þeir ^
ekki við því að missa þessa sterku ^
leikmenn. — þr
i