Morgunblaðið - 13.02.1979, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979
27
Góður árangur hjá
þeim yngstu
á Selfossi
MEISTARAMÓT íslands í frjálsum íþróttum fyrir yngstu aldurflökk-
ana fór fram í hina nýja og glæsilega íþróttahúsi á Selfossi 4. febrúar.
Keppt var í langstökki án atrennu og hástökki í flokkum telpna,
stelpna, pilta og stráka. Keppendur voru 211 frá 10 félögum og
samböndum og náðist hin besti árangur á mótinu.
Hástökk strákar:
1. Jón B. Guðmundss. HSK
2. Sigfinnur Viggóss. ÚÍA
3. Kjartan Valdimarss. Afture.
4. Hrafn Leifsson ÍR
5. Helgi F. Kristinsson FH
6. Þór Marteinsson USAH
Langstökk án atr. stráka:
1. Jón B. Guðmundss. HSK
2. Kjartan Valdimarss. Afture.
3. Ingvi Ingólfsson UBK
4. Ásmundur Jónsson HSK
5. Sigfinnur Viggósson ÚÍA
6. Baldur Benediktss. USAH
Piltar langstökk án atr.
1. Jóhann Nikuláss. HSK
2. Ármann Einarss. ÚÍA
3. Þorbjörn Guöjónss. UMSB
4. Ari Thorarensen HSK
5. Böðvar Kristóferss. Ví.
6. Gísli Arnarss. FH
Piltar hástökk:
1. Ármann Einarss. ÚÍA
2. Þorbjörn Guðjónss. UMSB
3. Agnar Guðnason USAH
4. Böðvar Kristóferss. Vík.
5. Valdimar Halldórss. UMSB
6. -7. Magnús Svavarss. HSK
6,-7, Magnús Steinþórss. ÚÍA
Meðfylgjandi myndir eru a/ 3 flokkum Víkings í karla og kvenna-
flokki í handboita, en þessir hópar unnu í sínum fiokkum í
Reykjavíkurmótinu íhandbolta fyrr í vetur.
m. Langstökk án atr. telpna:
1,35 1. Lilja Stefánsd. Umf. Vík. 2,51
1,30 2. Jóna Björg Grétarsd. Árm. 2,43
1,30 3. Bryndís Hólm ÍR 2,29
1,30 4. Bryndís Sigmundsd. HSK 2,26
1,25 5. Ingveldur Ingibergsd. UMSB 2,26
1,25 6. Auður Guðmundsd. Árm. Hástökk telpna: 2,23
2,31 1. Bryndís Hólm ÍR 1,45
2,27 2. Lilja Stefánsd. Umf. Vík. 1,45
2,21 3. Ingveldur Ingibergsd. UMSB 1,35
2,21 4. Guðrún Einarsd. USAH 1,35
2,10 5.-6. Bryndís Sigmundsd. HSK 1,30
2,09 5.-6. Helga Gunnarsd. UBK Þrjár aðrar stukku 1,30. 1,30
2,67 Ilástökk stelpna:
2,59 1. Þórunn Óskarsd. HSK 1,30
2,48 2. Vigdís Hrafnkelsd. ÚÍA 1,25
2,44 3. Linda Loftsd. FH 1,20
2,33 4.-5. Margrét B. Guðnad. HSK 1,20
2,31 4.-5. Sigrún Ó. Jóhannsd. FH 1,20
6. Sigrún Markúsd. Afture. 1,15
1,60 Langstökk án atr. stelpna:
1,50 1. Vigdís Hrafnkelsd. ÚÍA 2,27
1,45 2. Björg Kjartansd. Árm. 2,20
1,40 3. Unnur Oskarsd. HSK 2,19
1,40 4. Þórunn Óskarsd. HSK 2,15
1,35 5. Linda B. Guðmundsd. ÍR 2,13
1,35 6. Elín Árnad. UBK 2,10
'MM'
.. ... " ■/?",
Mynd úr leik stjörnuiiðs Charltons og íslensks úrvalsliðs. Guðmundi Þorbjörnssyni hefur tekist að
senda boltan í netið hjá Stepney markverði. Vonandi verður létt hjá landsliðinu að finna leiðina í
markið í leikjum þeim sem framundan eru í sumar og eru fjölmargir. íslendingar eiga nú góða
möguleika á að stilla upp sterku knattspyrnulandsliði næsta sumar ef allir atvinnumennirnir verða
notaðir.
íslendingar eru
frekar aftarlega
3. flokkur karla. sitjandi f.v.: Ragnar Rögnvaldsson, Guðmundur
Ingason, Hallur Magnússon (fyrirliði), Jón B. Guðmundsson og Birgir
Guðmundsson. Standandi f.v.: Óskar Þorsteinsson, Jóhann Þorvarðar:
son, Agnar Árnason, Hörður Ríkharðsson og Björn Bjartmarz. Á
myndina vantar Jóhannes M. Sævarsson, Stefán Þórisson, Aðalstein
Aðalsteinsson og Einar Magnússon.
3. flokkur kvenna. standandi f.v.: Bodan Kowalczyk (þjálfari), Sigrún
E. Jónsdóttir, Nanna Guðmundsdóttir, Jóhanna H. Marteinsdóttir
(fyrirliði), Herdís Jónsdóttir. Hrund Sigurðardóttir. Thelma Sigurðar-
dóttir, Svava Ólafsdóttir, Hildur Gunnlaugsdóttir, Jóhanna Jóhannes-
dóttir (þjálfari) og Þorsteinn Jóhannesson (þjálfari). Sitjandi f.v.
Helga Sveinsdóttir, Sigríður Bergsdóttir, Bryndís Ilólm, Inga L.
Þórisdóttir, Ilerdís Sigurðardóttir, Elva Elvarsdóttir, Sólveig
Baldursdóttir og María I). Þórarinsdöttir.
Ljósm. Mbl. Emilía.
ÁRLEGA birtir breska mánaðar-
ritið World Soccer töflu yfir
frammistöðu landsliða víðs vegar
í heiminum, þar sem liðum er
skipað í sæti eftir því hve háu
stigahlutfalli þau hafa náð úr
leikjafjölda sínum. íslenskir les-
endur hafa jafnan gaman af því
að sjá hverju sinni hversu mörg-
um sætum frá botni ísland er. Og
hvaða þjóðir eru fyrir neðan
okkur, jafnar okkur, eða rétt
fyrir ofan. Má að nokkru leyti af
því sjá, gegn hvaða þjóðum land-
inn kynni að eiga möguleika í
leik. Ólíkt þeim töflum. sem
oftast eru birtar, er hér um að
ræða landslið af öllum heims-
hornum, ekki einungis frá
Evrópu.
ísland er í 3. sæti neðan frá, en
við getum huggað okkur við það,
að 8 þjóðir eru ekki á listanum
vegna þess að engin þeirra lék 4
landsleiki eða fleiri á síðasta ári.
Þessar 8 þjóðir eru ísrael, Luxem-
burg, Kýpur, Malta, Paraguay,
Chile, Kólombía og Bólivía. ísland
fékk 2 stig í sínum 5 landsleikjum,
eða 20% nýtingu. Stigin komu úr
markalausum jafnteflum gegn
Dönum og Bandaríkjamönnum, en
hinum 3 leikjunum töpuðu Islend-
ingar, fyrir Pólverjum í Laugardal
0—2, og á útivölium fyrir Hollandi
og Austur-Þýskalandi, 0—3 og
1—3. Lakari en landinn í prósentu-
tölu eru íranir og Tyrkir, en
jafnfætis okkur með sömu pró-
sentutölu eru engir aðrir en Sviss-
lendingar, mótherjar okkar i
Evrópukeppni landsliða í maí
næstkomandi. Eini sigurinn sem
Svisslendingar gátu kreist fram
var gegn sama bandaríska liðinu
og gerði markalaust jafntefli í
Reykjavík.
Sum landsliðanna geta vart tal-
ist eiga skilið að vera í þeim
hásætum sem þau eru í, t.d.
Sovétmenn, sem léku 3 af sigur-
leikjum sínum gegn landsliði Jap-
ana, einn gegn íran, annan gegn
Marokkó, aðra gegn Grikklandi,
Tyrklandi og Finnlandi. En þegar
á reyndi, töpuðu Rússar gegn
Vestur-Þjóðverjum og EM-leikn-
um gegn Ungverjum. Wales er
einnig í villandi stöðu. Þeirra lið
lék 5 af 6 leikjum sínum á heima-
velli, yfirleitt gegn lakari liðum.
M.a. átti liðið í miklu basli með að
sigra lið Tyrkja 1—0. Portúgalir
hafa verið á uppleið, en gaman
hefði verið að sjá prósentutölu
þeirra ef þeir hefðu leikið fleiri
landsleiki en 5, eða jafnmarga og
Islendingar.
Grikkir eru einnig
ofar á listanum. Því veldur eink-
um, að tveir af 5 sigurleikjum
þeirra voru gegn landsliði Ástral-
íumanna. Ýmislegt annað vekur
nokkra athygli á listanum, t.d. eru
Danir ofar á blaði en Svíar og
enska landsliðið, sem verið hefur í
öldudal um margra ára skeið, er
ofar á blaði en þjóðir eins og
Brasilía, Pólland, Holland, bæði
þýsku liðin, Ítalía, Skotland,
Tékkóslóvakía o.fl. Enska liðið
hefur verið í mikilli sókn síðustu
mánuðina undir stjórn Ron Green-
woods.
Ekkert er líklegra en að íslenska
landsliðið bæti stöðu sína á kom-
andi keppnistímabili. Margir erf-
iðir leikir eru framundan, en
nokkrir þeirra gefa vonir um eitt
eða fleiri stig, t.d. leika íslending-
ar tvo landsleiki við Sviss á árinu,
bæði heima og heiman. Þá gefa
heimaleikir ávallt von um a.m.k.
jafntefli, hver man ekki leikina við
Frakka og Austur-þjóðverja hér
um árið, þegar íslenska liðið gerði
hvort tveggja að gera jafntefli og
vinna þessar sterku þjóðir í
Laugardalnum með nokkurra daga
millibili.
Þjóðlöndin L. V. J. T. Mörk Arangur %
Argentína 15 11 2 2 31.10 86.6
Rússland 11 9 0 2 30.9 81.8
England 9 6 2 1 17.9 77.7
Brasilía 12 7 4 1 17.5 75.0
Wales 6 4 1 1 12.4 75.0
Pólland 14 10 1 3 23.10 75.0
Frakkland 11 7 2 2 20.11 72.7
Holland 14 9 2 3 32.15 71.4
Portúgal 5 3 ■ 1 1 5.4 70.0
Spánn 12 7 2 3 17.6 66.6
Ítalía 14 7 3 4 15.13 60.7
V.-Þýzkaland 13 5 5 3 21.14 57.7
A-Þýzkaland 7 3 2 2 10.9 57.1
Grikkland 11 5 1 5 21.19 50.0
Austurríki 13 6 1 6 15.17 50.0
Rúmenía 8 3 2 3 8.8 50.0
Belgía 5 1 3 1 3.3 50.0
Uruguay 4 1 2 1 2.3 50.0
Skotland 10 3 3 4 14.16 45.0
Danmörk 8 2 3 3 13.15 43.7
írland 7 1 4 2 9.12 42.0
N-írland 6 2 1 3 5.4 41.6
Júgóslavía 5 1 2 2 7.6 40.0
Tékkóslóvakía 10 3 2 5 12.12 40.0
Svíþjóð 9 2 3 4 9.11 38.8
Perú 11 3 2 6 11.21 36.3
Finnland 7 2 1 4 9.22 35.7
Mexíkó 9 3 0 6 12.20 33.3
Ungverjaland 10 2 2 6 12.21 30.0
Búlgaría 13 1 5 7 11.21 26.9
Túnis 8 1 2 5 5.12 25.0
Noregur 7 0 3 4 5.12 21.4
Sviss 5 1 0 4 4.9 20.0
ísland 5 0 2 3 1.8 20.0
íran 7 0 2 5 3.12 14.2
Tyrkland 6 0 1 5 4.12 8.3