Morgunblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
38. tbl. 66. árg.
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Teheran, 14. febrúar. AP — Reuter
MEIRI HÁTTAR bardagar hafa blossað upp í írönsku borginni Tabriz í norðvesturhluta landsins miili
hersveita, sem hliðhollar eru keisaranum, og stuðningsmanna hinna nýju valdhafa. Segja íranskir fréttamenn
að mörghundruð manns hafi fallið í þessum átökum. Khomeini trúarleiðtogi skoraði í dag á íbúa borgarinnar að
hrinda þegar af höndum sér öllum stuðningsmönnum keisarans. Barizt hefur verið víða í Tabriz og m.a. hafa
orðið mikil átök um útvarpsstöðina í
Ríkisstjórn Bazargans forsætis-
ráðherra kom saman til fyrsta
fundar síns í dag, og fór mestur
fundartíminn í að fjalla um árás
skæruliða á bandaríska sendiráðið í
Teheran.
Khomeini trúarleiðtogi hét á alla
landsmenn í dag að snúa aftur til
vinnu sinnar á laugardag, að lokn-
um helgidögum múhameðstrúar-
manna, því verkföll þeirra hefðu
borginni.
þegar borið árangur og bæri nú
hverjum og einum að snúa aftur til
vinnu sinnar.
I kvöld var ráðist á sjónvarpsstöð
hinna nýju valdhafa í Teheran, en
árásinni var hrundið eftir 45
mínútur þegar stórir hópar vopn-
aðra stuðningsmanna Khomeinis
komu á vettvang og skárust í
leikinn. Árésin á stöðina var gerð að
loknu ávarpi Bazargans forsætis-
ráðherra til þjóðarinnar. Tilkynnti
þulur, að barizt væri um sjónvarps-
stöðina og bað um hjáip. Skömmu
síðar hættu útsendingar. Ekki hefur
komið fram hverjir það voru sem
hugðust taka stöðina á sitt vald.
Skæruliðahreyfing marxista í
íran, Fedayeen, sem fram til þessa
hefur farið huldu höfði, tilkynnti í
dag, að hún myndi ekki grípa til
vopna gegn stjórn Khomeinis, þrátt
fyrir mismunandi viðhorf til fram-
tíðarstjórnarfars í landinu.
Harðir bardagar í
norðvesturhluta íran
London, 14. febrúar. Reuter. AP.
STJÓRN brezka verkaman.ia-
flokksins skýrði frá því í dag, að
hún hefði náð samkomulagi við
brezka alþýðusambandið um að
draga úr ólgu á vinnumarkaðn-
um og minnka verðbólguna í
Bretlandi niður í fimm af hundr-
aði á næstu þremur árum. í
samkomulaginu er fjallað um
nýjar aðferðir sem viðhafðar
skuli í launasamningum í fram-
tíðinni og framkvæmd verkfalla.
Samkomulag þetta hefur engin
áhrif á þau verkföll, sem nú
standa yfir í Bretlandi.
Callaghan forsætisráðherra
sagði í neðri málstofu brezka
þingsins í dag, að samkomulagið
væri mikilvægt skref í rétta átt, en
Margaret Thatcher leiðtogi íhalds-
flokksins gagnrýndi stjórnina fyr-
ir að hafa ekki sett lög um að
takmarka völd verkalýðsfélag-
anna. Sagði frú Thatcher að sam-
komulagið nú væri einskis virði og
ætti eftir að verða fótum troðið af
verkalýðsfélögum, ef þeim þætti
það henta.
Ekki sér fyrir endann á verkfalli
opinberra starfsmanna og hundr-
uð skóla eru lokaðir, vegna þess að
húsverðir neita að opna þá. Margir
spítalar tóku aðeins á móti sjúkl-
ingum í neyðartilfellum í dag og
sorp hélt áfram að hrannast upp á
götum og gangstéttum. Á hinn
bóginn sneru 19 þúsund starfs-
menn Leyland-bílaverksmiðjanna
aftur til vinnu í dag eftir að hafa
verið í vikulöngu verkfalli.
(Símamynd AP).
William Sullivan, sendiherra Bandaríkjanna í Teheran, í hópi
stuðningsmanna Ayatollah Khomeini. eftir að þeir höfðu náð
bandaríska sendiráðinu í borginni úr höndum árásarmanna.
Bandaríkjameim fluttir brott frá
íran eftir árásina á sendiráðið
Tehcran, Washington, 14. febrúar. AP. Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN hefur ákveðið að hefjast handa um brottflutning fimm þúsund af þeim sjö þúsund
Bandaríkjamönnum, sem enn eru í íran. Um 1700 manns eru tilbúnir til brottfarar jafnskjótt og flugvöllurinn í
Teheran verður opnaður, en gert er ráð fyrir að það verði á laugardag. Akvörðun þessi er tekin í kjölfar árásar
skæruliða á bandaríska sendiráðið í Teheran í morgun, en í árásinni voru um 100 Bandaríkjamenn, þeirra á meðal
sendiherrann, teknir fastir og hafðir í haldi um tíma.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
sagði í kvöld að skæruliðar þeir sem
réðust á sendiráðið í morgun með
skotárás og lögðu síðan byggingar
þess undir sig, hafi tilheyrt hópi
vinstrisinna í nánum tengslum við
kommúnistaflokkinn í Iran. Segir
ráðuneytið að hópur þessi sé andvíg-
ur áformum Khomeinis um stofnun
lýðveldis í anda hreinræktaðrar
múhameðstrúar í Iran.
Árásin á bandaríska sendiráðið
var gerð i morgun og hófst með því
að leyniskyttur í nærliggjandi hús-
um hófu skothríð á byggingar þess
og skæruliðar klifruðu yfir veggi til
að komast inn í sendiráðið. Land-
gönguliðar flotans, sem til varnar
voru í sendiráðinu, reyndu að hrinda
árásinni með því að grípa til vopna
sinna og kasta táragassprengjum, en
eftir nokkur vopnaviðskipti fyrir-
skipaði William Sullivan sendiherra
mönnum sínum að leggja niður vopn.
Tveir landgönguliðar voru þá lítil-
lega særðir. Tóku skæruliðarnir
sendiráðið á sitt vald og fóru um allt
og rótuðu til í leit að vopnum og
skjölum. Sendiráðsmenn höfðu
brennt miklu af skjölum áður en
gefizt var upp og jafnframt var
fjarskiptamiðstöð sendiráðsins eyði-
lögð áður en hún féll skæruliðum
í hendur.
Menn úr liðssveitum Ayatollah
Khomeinis komu fljótlega á vettvang
og hröktu skæruliðana á brott og
náðu bandaríska sendiráðsfólkinu
óhultu úr greipum þeirra. Bazargan
forsætisráðherra og Karim Sanjabi
utanríkisráðherra Irans hafa báðir
fullvissað Bandaríkjastjórn um að
öryggis bandaríska sendiráðsins og
bandarískra þegna verði vandlega
gætt eftir atburðina í morgun. Jafn-
framt hefur hin nýja stjórn heitið
Bandaríkjamönnum aðstoð sinni við
að koma þeim Bandaríkjamönnum
sem þess óska úr landi. Áður en
óeirðir hófust i Iran fyrir alvöru sl.
sumar voru um 45 þúsund Banda-
ríkjamenn í landinu.
Nýja íranska stjórnin sakaði í dag
óvini ríkisins um að hafa staðið að
árásinni á bandaríska sendiráðið
með það fyrir augum að reyna að
telja umheiminum trú um að upp-
lausn ríki í landinu.
Callaghan semur við
verkalýðshreyfmguna
Afganistan:
Sendiherra Banda-
ríkjanna myrtur
Kabul. Nýju Delhi, 14. febrúar. AP. Reuter.
SENDIHERRA Bandaríkjanna í Afganistan, Adolph Dubs, var í dag
skotinn til bana í átökum milli ræningja, sem höfðu hann á valdi sínu,
og lögrcglu. Mannræningjarnir, fjórir talsins, réðust á bíl sendiherr-
ans, þegar hann var á leið til vinnu sinnar í morgun, og höfðu
sendiherrann með valdi með sér í nærliggjandi hótel.
Kröfðust þeir þess að þrír
múhameðstrúarklerkar, sem hin
nýja vinstri stjórn í Afganistan
lét handtaka, væru látnir lausir í
skiptum fyrir sendiherrann.
Stjórnin hafnaði kröfum ræningj-
anna og fyrirskipaði lögreglu-
sveitum að gera árás á hótelið.
Sendiherrann var látinn þegar að
honum var komið og sömuleiðis
allir mannræningjarnir.
Bandaríkjastjórn hefur harð-
lega gagnrýnt stjórnina í Afgan-
istan fyrir að hafa látið gera árás
á hótelið þegar í stað. ,
Utvarpið í
Kabul, höfuðborg Afganistans,
sagði í dag að mannræningjarnir
hefðu verið hægri sinnaðir of-
stækismenn, sem hefðu viljað
grafa undan samskiptum Banda-
ríkjanna og Afganistan.
Adolph Duhs, sendiherra Banda-
ríkjanna í Afganistan, sem mann-
ræningjar myrtu í garmorgun.
„Kominn til að
hlusta og læra”
sagði Carter við komuna til Mexíkó
Mexíkóborg, 14. febrúar — AP — Reuter
CARTER BANDARÍKJAFORSETI kom í dag í þriggja daga opinbera
heimsókn til Mexíkó og var tekið á móti honum á flugvellinum við
Mexíkóborg með miklum virktum. Carter sagði við komuna að hann hygðist
-hlýða á og læra af“ gestgjöfum sínum. en ýmis vandamál hafa verið í
samskiptum Bandarikjamanna og Mexíkó að undanförnu.
Lopez Portillo forseti Mexíkó tók á
móti Carter á flugvellinum og hófu
þeir formlegar viðræður þegar að
lokinni móttökuathöfn. Gert er ráð
fyrir að mikill tími fari i heimsókn-
inni i einkaviðræður forsetanna, en
sagt er að Carter vonist til að geta
náð langtímasamningi við Mexíkana
um sölu oliu til Bandaríkjanna tii að
minnka innflutning þeirra frá Mið-
austurlöndum. Einnig er búizt við að
forsetarnir ræði um önnur viðskipti
landanna og einnig mexíkanska inn-
flytjendur í Bandaríkjunum, sem
flutzt hafa til landsins með ólögleg-
um hætti.
Við borð lá, að Carter hætti við för
sína til Mexíkó í dag þegar honum
bárust fréttirnar um að ráðist hefði
verið á sendiráð Bandaríkjanna í
Teheran, en eftir að ljóst varð að
Bandaríkjamennirnir þar voru heilir
á húfi var ákveðið að hann færi í
heimsóknina og Vanee utanríkisráð-
herra með honum eins og ráðgert
hafði verið.