Morgunblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1979 Samtök áhugamanna um áfengisvandamálið: Velta um 300 milljónum, 30 manns í vinnu, 50 sjúkrarúm, 1200 manns í meðferð 1978 Rætt við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson framkvæmdastjóra S.Á.A. S.A.Á. — Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið — eru ný samtök, en eigi að síður eru þau á allra vörum. Margir telja að tilkoma þessara samtaka hafi gerbreytt viðhorfi fólks til þeirra sem eiga við áfengisvandamál að stríða. Skilningur hefur vaknað á því að alkóhólismi er sjúkdómur sem ber að meðhöndlast sem slíkur. Alkóhólismi er nú viður- kenndur sem sjúkdómur hér á landi, alkóhólistinn er nú viðurkenndur sjúkur maður. — Þessi hugarfars- breyting hefur orðið þess valdandi að unnt er að takast á við vandamálið með nýjum aðferðum. I timariti S.A.A., sem kom út á síðasta ári, er meðal annars grein eftir stjórn samtakanna, þar sem segir meðal annars: Þegar heil þjóð tekur sig til Það er ekki svo ýkjalangt síðan — rúm þrjú ár — að ekkert raunhæft var gert fyrir alkóhól- ista á Islandi. Islendingar voru um það bil tuttugu ár á eftir tímanum og umheiminum, — alkóhólistinn var bara réttur og sléttur raefill og róni, og þjóðin hristi höfuðið yfir aumingjaskap hans að þola ekki að drekka nokkra drykki áfengis. Það var fátt gert nema að þurrka menn upp með þvi að dengja í þá pillum af öllum hugs- anlegum tegundum, sem er álíká gáfulegt og hið fræga læknisráð Hippókratesar við helti; en Hippó- krates gamli vildi laga helti sem orsakaðist af fótbroti með því að brjóta hinn fótinn líka! Sem betur fer voru samt nokkrir ljósir punktar í svartnættinu. AA-samtökin unnu mikið og óeig- ingjarnt starf, en að mestu í kyrrþey. Nokkrir aðilar höfðu þó barist opinberlega fyrir því að alkóhólismi væri viðurkenndur sem sjúkdómur — einn reyndar meira en aðrir — og það höfðu þeir gert fyrir daufum eyrum í um það bil aldarfjórðung. — En á árunum 1975 og 1976 skeði undrið mikla. Afstaða ráðamanna fór að breytast og farið var að berjast við áfengisvandamálið á raunhæfan hátt. Og hvað skyldi nú hafa valdið þessari skyndilegu kúvendingu? Það var ekkert annað en það að viðhorf alls almennings til alkóhólisma höfðu breyst, og sú staðreynd varð til þess að sjúk- dómurinn var loks viðurkenndur sem slíkur hér á landi. Og til að gera langa sögu stutta, er nú svo komið, á því herrans ári 1978 erum við íslendingar óðum að vinna upp þetta tuttugu ára bil. A sumum sviðum stöndum við fylli- lega jafnfætis umheiminum, og á öðrum drögum við hratt á hann. Stjórn SÁÁ og starfsfólk vill því nota þetta tækifæri til að þakka þér, lesandi góður, sem og lands- mönnum öllum fyrir það risastóra skref sem Islendingar hafa stigið í baráttunni við áfengisvandamálið. Það hefur verið lyft grettistaki, nokkur slík eru enn eftir, en þegar heil þjóð tekur sig til, þá stenst ekkert fyrir. Um 1200 manns í meðferð hjá S.Á.Á. í fyrra Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson lög- fræðingur tók nýlega við starfi framkvæmdastjóra hjá S.Á.Á., og leitaði Morgunblaðið til hans til að fá upplýsingar um starfsemi sam- takanna. Vilhjálmur sagði, að umfang starfseminnar væri mun meira en fólk almennt gerði sér grein fyrir, og sjálfur hefði hann ekki haft hugmynd um hve umfangsmikil starfsemin væri orðin fyrr en hann tók að kynna sér samtökin er til tals kom að hann hæfi þar störf. Sem dæmi um umfang starf- seminnar sagði Vilhjálmur, að á skrifstofu S.Á.Á. í Reykjavík ynnu níu manns. í Reykjadal í Mosfells- sveit eru samtökin með aðstöðu fyrir 24 sjúklinga í einu. Að Sogni í Ölfusi eru samtökin með aðstöðu fyrir 26 sjúklinga. í Reykjadal starfa 15 manns, en í Sogni 7 til 8 manns. Á síðasta ári, það er 1978, nutu um 1200 manns meðferðar á vegum samtakanna. Um 8 þúsund félagsmenn Vilhjálmur sagði að samtökin hefðu verið stofnuð hinn 1. október 1977, og væri tala félagsmanna nú um átta þúsund. Um tilgang sam- takanna sagði Vilhjálmur, að svo segði meðal annars í lögum þeirra, þar sem grundvöllurinn að starf- inu væri afmarkaður: 1. Að útrýma hindurvitnum, van- þekkingu og fordómum á áfeng- isvandamálinu á öfgalausan hátt og hafa áhrif á almenn- ingsálitið með markvissri fræðslu um eðli sjúkdómsins alkoholisma. 2. Að leggja jafn mikla áherslu á fræðslu og fyrirbyggjandi aðgerðir, sem og endurhæfingu hinna sjúku. 3. Að afla óg koma á framfæri til almennings upplýsingum um skaðsemi áfengis, byggðum á staðreyndum. 4. Framangreindum tilgangi hyggst félagið ná með því að sameina leika sem lærða til baráttu er byggð sé á stað- reyndum. S.Á.Á. sem slíkt er ekki bindindisfélag og vill forð- ast boð og bönn og hvers konar sleggjudóma. Sjúkrastöð og endurhæfingar- og fræðsluheimili Sjúklingar sem koma til endur- hæfingar hjá samtökunum eru yfirleitt fyrst í eina viku á sjúkra- stöð samtakanna fyrir alkóhólista, sem er eins og fyrr segir rekin með Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson framkvæmdastjóri S.Á.Á. 24 sjúkrarúmum í Reykjadal í Mosfellssveit. Sjúkrastöðin tók til starfa hinn 7. desember 1977. Þá sagði Vilhjálmúr að sjúkling- arnir færu yfirleitt til fjögurra vikna dvalar í Sogni í Ölfusi, á endurhæfingar- og fræðsluheimili samtakanna þar. Þar eru 26 rúm, en heimilið tók til starfa þann 14. ágúst síðast liðinn. Vilhjálmur sagði, að í Sogni væri megináherslan lögð á fyrir- lestra, umræðufundi og hópfundi, þar sem sjúklingarnir lærðu að þekkja eigin vanda. Engin lyf sagði Vilhjálmur vera notuð á vegum S.Á.Á., aðeins vítamín. Að sögn Vilhjálms er óvíst hversu lengi samtökin geta verið með aðstöðu sína á fyrrgreindum stöðum, og er því nú verið að kanna hvort unnt verði að fá varanlegt framtíðarhúsnæði fyrir starfsemina. Hefðu augu manna einkum beinst að skólanum í Krýsuvík í því sambandi, en margt væri þó óljóst í því máli enn. Menntamálaráðherra og félags- málaráðherra hefðu þó tekið mala- leitan samtakanna vel, og væri málið nú í athugun, en ljóst væri þó að þar stæði á fjármagni til innréttinga á húsnæðinu. — Þetta sagði Vilhjálmur að væri einn þeirra möguleika sem nú væri verið að kanna, en fleira kæmi til greina, svo sem að festa kaup á húsnæðinu í Reykjadal, sem nú er í eigu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, en er til sölu. Velta ársins 1979 áætluð um 300 milljónir Vilhjálmur sagði, að gífurlegir fjármunir færu í gegn hjá samtök- veröur regluleg Samkvæmisdrykkja___----------• SK p ___________________ .. K,-. manst ekki Minnisleysi (Black-out) •Girra sem aw*- -------- _ ZT---------------------------- . hi'i manst ekki aUt sem Missir stjórn s KSKr- ,.,n. . vatrna'. tl0,.urr8^| fþjéiltogároar meö m varlr *>»«;“SSSw*®*'' Úr tímariti S.Á.Á.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.