Morgunblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.02.1979, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. FEBRUAR 1979 Vilhjálmur Hjálmarsson: Traust menntun kennara er' mikilvæg. Uppeldi kynslóðanna hvílir í vaxandi mæli á þeirra herðum. Og miklum fjármunum er varið til skólamála. Þetta er hafið yfir efa og þarf ekki að ræða. Hitt kann að orka tvímælis, hvort valdhafar og annað fólk skilur þetta í raun og veru. Og eitt er víst: ef svo er, þá hafa menn ekki ætíð sýnt þann skilning í verki. Fyrir nokkrum árum urðu allnokkrar sviptingar í menntunarmálum kennara hér á landi. Síðan hefur verið unnið á þeim grundvelli sem þá var lög- festur. Síðustu daga hafa þessi mál orðið að umræðuefni. Ætla ég að leyfa mér að leggja þar orð í belg. Aðhald má ekki fara út í öfgar I Kennaraháskóla íslands eru nú um 400 nemendur, en voru nokkru færri í fyrra. Næstu árin á undan voru nemendur um 330. A þessum misserum verður breyting á kennsluháttum, sem krefst aukins mannafla. Skólinn hefur að undanförnu m.a. haft í þjónustu sinni bóka- safnsfræðing, ársráðinn og æfingastjóra. Nú hafa þessir aðil- ar verið felldir út af launaskrá fyrirvaralaust. Ég hafði á sínum tíma kynnt mér þessi stöðumál eftir föngum. Tel ég þessar aðgerðir fráleitar eins og á stendur. Erfiðlega hefur gengið að fá heimildir fyrir nýjum stöðum, sem stjórn skólans hefur talið nánast óhjákvæmilegt að stofna til. Hér er aðhald nauð- synlegt, því ásókn er mikil í allri átt. Ohjákvæmilegt er þó að vita málavöxtu, og forðast öfgar, einnig í aðhaldsaðgerðum. Þröng fyrir dyrum Húsnæði Kennaraháskóla íslands er ekki ennþá byggt að hálfu miðað við upphaflega áætlun. Þó eru í skólanum miklu fleiri nemendur en áætlað var í byrjun. Þetta veldur ómældum erfiðleikum í starfi. Á síðasta kjörtímabili var af hálfu ríkisstjórnarinnar leitast við að hægja á opinberum fram- kvæmdum vegna vaxandi þenslu og verðbólgu. Heildarfjárveitingar til skólabygginga reiknaðar á föstu verðlagi lækkuðu. Einkum var tregt um fjárveitingar til að hefja ný verk. Hér varð því að velja og hafna. Ég kaus að beita mér sérstaklega fyrir auknum framlögum til skólabygginga á þremur sviðum. Eitt þeirra var kennaramenntunin. Það væri brák fyrir mig að reyna að kenna það, að smátt var skammtað, vondu fólki í hagsýslu, fjárveitinganefnd, þingflokkum eða ríkisstjórn, t.d. þáverandi fjármálaráðherra! Stjórnarliðið bar sameiginlega ábyrgð á afgreiðslu fjárlaga, menntamála- ráðherra rétt eins og aðrir á meðan hann rótaði sér ekki (úr stólnum!). Við fjárlagagerð fyrir árin 1975 og 1976 varð lítil hreyfing að þessu leyti. En 1977 var veitt fé til nýbygginga við tvo kennaraskóla og því fram haldið á fjárlögum 1978. Það urðu mér mikil vonbrigði, að ekki reyndist unnt að hefja framkvæmdir við nýbyggingu Kennaraháskóla íslands á sl. ári, því þá stóð ekki á fjárveitingu. En „kerfið" er stundum þungt í vöfum og upp komu ýmis skipulagsleg vafaatriði, sem tafsamt reyndist að leysa úr. Nú sé ég á prenti, að ekki er fyrirhugað að bjóða út nýbyggingu Kennaraháskólans fyrr en seint á þessu ári og skil ég ekki hverju sætir. Núverandi ríkis- stjórn skar að vísu niður fjárveit- inguna 1978 um helming, úr 50 m. kr. í 25 m. kr. og Alþingi hækkaði Vilhjálmur Hjálmarsson ekki í krónum talið fjárveitingu 1979. Ég tel þó tvímælalaust rétt að bjóða út nú þegar og nota það fé, sem fyrir hendi er, í vor og sumar á heppilegasta tíma ársins. Á meðan beðið er eftir nýju húsnæði verður vitanlega að leysa málin til bráðabirgða eins og þurft hefur að gera mörg undanfarin ár. Eigi skal höggva Þegar þessar línur er skrifaðar hef ég nýlega heyrt og raunar lesið í blöðum, að komið hafi til tals að leggja niður Æfinga- og tilrauna- skóla Kennaraháskólans. Mér fór líkt og Njáli forðum og lét segja mér „þrim sinnum". En þegar ég hafði náð tali af mönnum í ráðu- neyti, skóla og borgarstjórn, hlaut ég að trúa, því þeir staðfestu allir, að þetta hefði komið til tals. Nú hefir þessi hugmynd verið bréfuð. Háskóli hefur tvöfaldri skyldu að gegna. Honum ber að veita skólaþegnum fræðslu og þróa þær greinar, sem kenndar eru með rannsóknum og tilraunum. Háskóli íslands leitast við að veita kennurum sem við hann vinna aðstöðu til vísinda- og rann- sóknastarfa á eigin vegum og á rannsóknarstofnunum, sem aðrir reka. í Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraháskólans eru gerðar skipulegar og samfelldar tilraunir með nýtt námsefni, námsgögn og kennsluaðferðir. Eins og gefur að skilja, er þessi starfsemi ekki skammtímavinna, heldur í raun ævarandi þáttur kennara- menntunar á háskólastigi. En ef rétt er sem sagt er, að gætt hafi kyrrstöðu í skólamálum okkar og enda hlotist af námsleiði, þá eru slík verkefni sérstaklega brýn einmitt nú. Þessi starfsemi verður ekki stunduð að gagni nema sem sam- ræmd heild undir forystu kunnáttumanns og í allstórum skóla, sem beinlínis starfar á vegum Kennaraháskólans sjálfs. Að sundra nú þeirri starfsemi, sem fram hefur farið í Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraháskóla íslands að undanförnu, væri slíkt glapræði að engu tali tekur. Þvert á móti þarf að styðja við bakið á henni betur en okkur hefur tekist til þessa, m.a. með því að búa henni betri starfskilyrði og tengja hana enn betur en nú Skólarann- sóknadeild menntamálaráðu- Menntun kennara — KennaraháskóU íslands Takmörkun rækjuveiða á Húnaflóa: Þýðir 30 tonna afla- skerðingu á hvem bát ÞESSI hornaprúði hrútur heitir Bóndi og á lögheimili í ólafsvík, en hefir nú í tvo vetur dvalið að Mávahlíð í Fróðárhreppi. Sú gestrisni veitist ekki hvaða hrút sem er, enda 15 — 20 tiginbornir verðlaunahrútar þar á bæ og Mávahlíðarærnar rómaðar fyrir fegurð og vænleika. Er hrúturinn Bóndi keyptur frá formanni Stéttarsambands bænda, Gunnari Guðbjartssyni á Hjarðarfelli, og hefir auk þess að vera mikilla ætta fengið heiðursverðlaun og á margt afkomenda á Snæfellsnesi. Ekki spilla hornin, svona hrútshorn þóttu hin mesta gersemi í gamla daga. — Helgi. Ljósm. Leifur Ágústsson. Vill kynnast islenskum myndlistarmönnum — ÞESSI takmörkun á kvóta okkar við Húnaflóann kemur okkur að ýmsu leyti spánskt fyrir sjónir, sagði Friðrik Friðriksson, einn af rækjusjómönnum á Hvammstanga, í samtali við Mbl. — Þar sem kvótinn er minnkaður úr 2.500 tonnum í 1.800 er ljóst að við verðum búnir með hann eftir svo sem viku til tíu daga, því flestir bátanna eiga ekki eftir ncma 7—8 tonn. Friðrik Friðriksson taldi að oft hefðu áður komið tímabil þar sem rækjan virtist smá og nú væri hún smá vegna þess að hún hefði losað sig við hrognin og virtist því fremur smá, en sú rækja er væri VATN í Gvendarbrunnum í Reykjavík hefur aldrei verið minna en um þessar mundir að því er Þóroddur Th. Sigurðsson vatnsveitustjóri upplýsti og sagði .hann að nokkrum erfiðleikum hefði það valdið. — Mikið hefur verið um sírennsli í nýbyggingum og öðrum vinnustöðum og í gömlum húsum þar sem talin er hætta á frostskemmdum í leiðslum, sagði Þóroddur og hefur því vatnsnotkun verið með hrogn flokkaðist í hærri verðflokk þótt hún væri ekki neitt betri sem slík. Að öðru leyti kvaðst Friðrik ekki vita neitt að ráði um þessi mál, tilkynning hefði borizt í gærdag en hann bjóst þó við að þessi ákvörðun kynni að verða endurskoðuð. SAMTÖK áhugamanna um kvik- myndagerð standa fyrir kvik- mjög mikil að undanförnu og borinn sem nú er að störfum við Laugardal, hefur tekið milli 1.500 og 2.500 rúmmetra vatns á sólarhring. Þessi vatnsskortur stafar líka af því, að nú hefur ekki rignt um langa tíma og grunnvatn því lítið enda náðist ekki að safna nema í hálfan tank af tveimur við Gvendarbrunna nú yfir síðustu helgi. Ástæða er því til að minna Reykvík- inga á að takmarka nokkuð vatnsnotkun sína. — Þessi takmörkun þýðir um það bil 30 tonna aflaskerðingu á bát sem er yfir 6 milljónir króna og gera má ráð fyrir að þarna sé um að ræða mánaðarvinnu bæði á sjónum og í rækjustöðinni hérna, sagði Friðrik Friðriksson að lok- um. myndahátið 24. og 25. febrúar n.k. í Tjarnarbíói. Þar verða sýndar kvikmyndir sem gerðar eru af áhugamönnum, en það er skilyrði að framleiðandi myndar- innar geri hana af áhuga einum saman, fjárhagsstuðningur frá opinberum aðilum eða fyrirtækj- um í auglýsingarskyni má ekki hafa komið til. Allir sem áhuga hafa á að sýna kvikmyndir sínar eru hvattir til að taka þátt í hátíðinni. Dómnefnd verður skipuð og velur hún bestu myndirnar og verður framleiðend- um þeirra veitt viðurkenning. Þetta er fyrsta kvikmyndahátíð SÁK og er það von Samtakanna að fólk taki nýbreytni þessari vel og sæki hátíðina, en hún er öllum opin og ókeypis aðgangur en börn- um þó aðeins í fylgd með fullorðn- um. Þeir sem ætla að sýna kvikmynd eða kvikmyndir á hátíðinni eru beðnir að hafa samband við stjórn Samtakanna. Stjórn Samtaka áhugamanna um kvikmyndagerð er skipuð: Karl Jeppesen, s. 10663, Marteinn Sigurgeirsson, s. 40056 og Kristberg Óskarsson, s. 33970. NORRÆNA húsið hefur boðið Lars Brandstrup forstjóra sýningarsala í Moss til þess að kynnast nánar íslenzkri mynd- list. Lars Brandstrup kom á fót Galleri F-15 í Moss og hefur rekið það árum saman, en Moss liggur ckki langt frá Osló. Gallerí F-15 cr til húsa í gömlu sveitasetri, sem Lars Brandstrup hefur breytt í sýningarsali. Þar hefur hann staðið fyrir norrænum og alþjóðlegum myndlistar- sýningum, en Lars Brandstrup hefur oft tekist að draga úr kostnaðinum við þær sýningar m.a. með því að fara sjálfur með sinn cigin flutningabíl og sækja sýningarnar, og fara með þær aftur á sama hátt. Auk þessarar sýningarstarfsemi gefur hann út tímaritið F-15 Kontakt. Lars Brandstrup hefur tekið að sér að vera Norræna húsinu innan handar við að senda íslenzka grafiksýningu um Norðurlöndin í haust, og er dvöl hans hér nú að nokkru af því tilefni. En hann vill einnig komast í samband við einhverja þá, sem gætu tekið að sér að skrifa reglulega um íslenzka myndlist í timarit hans og ennfremur kynnast íslenzkum myndlistarmönnum með það í huga, að þeir haldi einhvern tíma sýningu í Gallerí F-15. Lars Brandstrup dvelst hér á landi 5.—11. febrúar. Vatnsskortur í Reykjavík Kvikmyndahátíð áhugamanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.