Morgunblaðið - 15.02.1979, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. FEBRUAR 1979
21
Guðmundur Örn Ragnarsson og Gunnar Böðvarsson, báöir stjórnar-
menn söngsveitarinnar Fílharmóníu.
fellssveit tvisvar í viku, en þetta
leggja menn á sig m.a. til að
kynnast þessum tónverkum, því
það er mun fróðlegra að kynnast
þeim svona innan frá.
í stjórn söngsveitarinnar Fíl-
harmóníu sitja m.a. Guðmundur
Örn Ragnarsson, sem er formaður,
og Gunnar Böðvarsson varamaður
og skipa þeir svokallaða fjölmiðla-
nefnd ásamt Kristjáni Inga
Einarssyni. Guðmundur hefur
starfað með kórnum í 6 ár og
syngur tenór og Gunnar verið 4 ár
í bassa. Þeir voru fyrst spurðir
hvernig fram færi verkefnaval
kórsins:
— Stjórnandi kórsins leggur
sínar tillögur eða hugmyndir fyrir
verkefnavalsnefnd Sinfóníuhljóm-
sveit íslands, en kórinn starfar í
nánum tengslum við S.í. Marteinn
Hunger Friðriksson gerði tillögu
um að Sköpunin yrði tekin til
flutnings og var það samþykkt og
jafnframt bað verkefnavalsnefnd-
in um að 9. sinfónía Beethovens
yrði tekin til meðferðar og eru þeir
tónleikar ráðgerðir í júní í sumar,
og endar starfsár okkar á því.
Venjulega hefst starfið í septem-
ber-október og lýkur í apríl eða
maí þannig að við erum óvenju-
lengi að í ár, en við fylgjum
nokkurn veginn skólaárinu.
— Söngsveitina skipa nú um
100 manns og höfum við alltaf haft
fyrirtaks aðstöðu í Melaskóla. Nú
eftir að þessu verkefni lýkur þarf
að fjölga í kórnum og þyrfti hann
að hafa um 150 félögum á að skipa
til flutnings 9. sinfóníunnar og
erum við einmitt að auglýsa eftir
fólki um þessar mundir.
Þeir voru spurðir hvort mikið
væri um fólk í kórnum er hefði
einhverja tónlistarmenntun:
— Það er bæði og, allir sem í
krónum eru starfa af áhuga og
allir eru ólaunaðir. Kórfélagar eru
bæði mikið og lítið menntaðir í
tónlistargreinum, þ.e. bæði mennt-
að tónlistarfólk og aðrir sem rétt
lesa nótur, en aðalatriðið finnst
okkur vera að fólkið hafi áhugann
og „eyrað“. Þeir sem hafa áhuga á
þessu læra síðan smám saman að
lesa nótur og Gunnar bætti því við,
að hann hefði sem krakki lært að
lesa nótur, en verið búinn að týna
þeirri þekkingu, sem síðan
rifjaðist upp fyrir honum þegar
hann tók til við sönginn í
Fílharmóníunni.
— Æfingum er þannig háttað
að reglulegar æfingar eru tvisvar í
,viku og oftar þegar nær dregur
hljómleikum og nú síðustu daga
fara fram æfingar með hljóm-
sveitinni og einsöngvurum og
verður allt verkið sungið í gegn á
miðvikudag. Síðasta æfing er síð-
an á fimmtudag og þá á allt að
bera tilbúið til hljómleikanna um
kvöldið.
Að lokum sögðust þeir félagar
hafa gælt við þá hugmynd að
söngsveitin færi í ferð út á land, en
slíkt væri víst of mikið fyrirtæki
og kostnaðarsamt auk þess sem
ekki væri víst að neitt hljómleika-
hús gæti tekið við svo stórum kór.
I samantekt sem kórinn hefur
gefið út um verkið segir svo:
Haydn samdi Sköpunina á árun-
um 1795—1798 eftir að hafa kynn-
st tónverkum Hándels á Lundúna-
árum sínum. Sköpunin er í hefð-
bundnum óratóríustíl samin fyrir
fjögurra radda kór, þrjá einsöng-
vara og hljómsveit. Þar skiptast á
yndislegar aríur, resitativ og kórar
og lýsir Haydn á skemmtilegan og
listrænan hátt fjölbreytni og dýrð
sköpunarverksins. Verkið verður
sungið á þýzku og tekur um 105
mínútur í flutningi. Einsöngvarar
eru Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
Halldór Vilhelmsson og Sigurður
Björnsson.
Logi Guðbrandsson.
rekstrarkostnað Landspítala eru
fengnar með viðmiðun við fjárveit-
ingu í fjárlögum. En hvenær hefur
fjárveiting nægt Landspítala?
Hver verður hinn raunverulegi
rekstrarkostnaður? Eða hvenær
hafa daggjöld verið bending um
rekstrarkostnað? Daggjöld
Borgarspítala og Landakotsspítala
eru í engum tengslum við raun-
verulegan rekstrarkostnað. Svo að
ekki sé nú talað um þá aðferð að
reikna út frá daggjaldi, „að við-
lögðu jöfnunardaggjaldi" eins og
gert er í greinargerðinni, en
jöfnunardaggjald er greiðsla á
halla liðins tíma og er í engum
tengslum við rekstrardaggjald.
Þetta gjald nam kr. 1.900 til
Landakots á þessum tíma og er
umtalsverð tala í þessu sambandi.
Enginn dómur skal hér lagður á
þann málstað sem Læknaráð
Landspítala telur sig vera að
berjast fyrir með útgáfu greinar-
gerðarinnar.
Hins vegar verður ekki séð, að
sá samanburður sem fram kemur í
greinargerðinni og hér hefur verið
um fjallað, þjóni þeim málstað að
neinu leyti.
Við á Landakoti höfum reyndar
ekkert á móti samanburði og það
enda þótt hann kynni að verða
okkur óhagstæður.
Það er hins vegar lágmarks-
krafa að tölur sem notaðar eru fari
einhvers staðar nærri hinu rétta.
SKIPAUTGCRB RÍKISINS
m/s Esja
fer frá Reykjavi'k föstudaginn
23. þ.m. vestur um land til
Akureyrar og tekur vörur á
eftirtaldar hafnir: Patreksfjörö,
(Tálknafjörð og Bíldudal um
Patreksfjörð), ísafjörð,
(Flateyri, Súgandafjörð og
Bolungarvík um ísafjörð),
Siglufjörð, Akureyri og Noröur-
fjörð.
Móttaka alla virka daga nema
laugardag til 22. þ.m.
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
AÓstoÓum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
PARKER @ HANNIFIN
Char-Lynn
Öryggisiokar
Stjórnlokar
Vökvatjakkar
= héðinn =
VÉLAVER2LUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA
voss
ELDAVÉLAR - OFNAR - HELLUR
ELDHÚSVIFTUR
Eldavélar: 4 hraðhellur, klukka, hita-
skúffa, stór sjálfhreinsandi ofn með
Ijósi og fullkomnum grillbúnaði.
Hvítar, gulbrúnar, grænar, brúnar.
Innbyggingarofnar: Sjálfhreínsandi
með Ijósi, fullkomnum grillbúnaði og
viftu. sem m.a. hindrar ofhitun inn-
réttingarinnar.
Helluborð: Ryðfrítt stál, 2 eða 4
hellur, alls 3 gerðir, auk skurðar-
brettis og pottaplötu, sem raða má
saman að vild.
Eldhúsviftur: Útblástur eð hringrás,
geysileg soggeta, stiglaus hraðastill-
ing, Ijós, varanleg fitusía. 4 lltir.
Afbragðs dönsk framleiðsla: Yfir-
gnæfandi markaðshlutur í Danmörku
og staðfest vörulýsing (varefakta)
gefa vísbendingu um gæðin.
/FQniX
HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420
óskar eftir
blaðburðarfólki
Stjórnunarfélag íslands Ék*
Efnahagsmál
Dagana 19., 20. og 21. febrúar efnir Stjórnunarfélag
íslands til námskeiðs um efnahagsmál. Námskeiðið
verður haldið að Hótel Esju og stendur frá kl. 15—19
dag hvern.
Á námskeiöinu verður
gefiö yfirlit yfir helstu
þjóöhagsstærðir. Fjallaö
veröur um samhengi
hinna ýmsu stæröa,
áhrif opinberra
aögeröa og einnig
veröa skilgreind
helstu þjóöhagfræöi-
hugtök. Meðal máms-
gagna er bókin „Efna-
hagsmál" sem nýlega
kom út hjá A.B.
Leíðbeinendur verða Ásmundur Stefánsson hagfræðingur og dr.
Þráinn Eggertsson hagfræðingur, en eins og kunnugt er önnuðust
peir gerð sjónvarpspátta um efnahagsmál sem sýndir voru á
liðnum vetri.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélags íslands, Skipholti 37, sími
82930.
Nauðungaruppboð
Samkvæmt kröfu skattheimtu ríkissjóös í Kópa-
vogi, Sveins H. Valdimarssonar, hrl., skattheimtu
ríkissjóös í Hafnarfiröi, Hafsteins Sigurössonar,
hrl., Kristins Björnssonar, hdl., Axels Kristjáns-
sonar, hrl,, og Bæjarsjóös Kópavogs, veröa
eftirtaldir lausafjármunir seldir á nauöungarupp-
boöi, sem sett verður á skrifstofu minni aö
Auöbrekku 57, fimmtudaginn 22. febrúar 1979 kl.
14.00.
Verður uppboöi síöan framhaldiö á öörum
stööum, þar sem munir eru:
1. Húsgögn og heimilistæki:
Innskotsborö, kommóöa, sófasett, sófaborö,
frystikista, 2 ísskápar, saumavéi, stól meö skemli,
þvottavél.
2. Dráttarvél, 3 Wafíos réttingarvélar, Schatter
suðuvélasamstæöa, Edwards vélsax, Rober
Withney beygjuvél og Lockformer lásavél.
3. Leikmunir.
4. Olíublöndunarstöö.
5. Óskilahestur ca. 6 vetra.
6. Salernisskál, gallaö baöker og ýmiskonar
efnisafgangar af innréttingarverkstæöi.
Uppboösskilmálar liggja frammi á skrifstofu
uppboöshaldara.
Greiösla fari fram viö hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.