Morgunblaðið - 18.04.1979, Blaðsíða 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAÖUR 18. APRÍL 1979
+ Móöir okkar og fósturmóöir, JÓHANNA FOSSBERG lézt f Landakotsspítala 13. apríl s.l. Jóhanna Thortacius, Helga Fosaberg, Ragna Fossberg, Cyril Edward Hobtyn.
+ LÁRA JÓN8DÓTTIR, fyrrverandi hjúkrunarkona Nóatúni 24, lést í öldrunarlæknadeild Landspítalans 14. apríl. Fjöiskytdumar.
+ HREFNA INGIMARSDÓTTIR, frá Litla-Hóli Eyjafirói, andaöist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík, laugardaginn 14. apríl s.l. Sigrún Ingimarsdóttir.
+ Bróöir minn, SIGURÐUR GUÐJÓNSSON, verzlunarskólakennari, er látinn. Stefanfa Guójónsdóttir.
+ Eiginmaöur minn, ÞORSTEINN SIGURDSSON, válstjóri, frá Akureyri lést í Landakotspítala aðfaranótt páskadags. Fyrir hönd vandamanna. Margrát Jónsdóttir.
+ Bróöir okkar, GUDBJÖRN HELGI RÍKARDSSON, er látinn. Hefdfs Rfkarósdóttir, Ríkey Rfkarósdóttir, Guðrún Rfkarósdóttir, Anna Rfkarósdóttir.
+ Eiginmaöur minn og faöir okkar, JÓN GUÐBJARTSSON, Sasbraut 18, Seftjamamesi, lézt aö heimili sínu þann 16. apríl síöastliöinn. Unnur Þóróardóttir og bðm.
+ Maöurinn minn og faöir okkar, , Dr. MAGNÚS GÍSLASON, skólastjóri norræna lýöháskólans í Kungðlv lést aö morgnl 2. páskadags. Britta Gfslason og bórnin.
+ Útför konu minnar, GUDNÝJAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Hjaróarhaga 32, fer fram frá Fossvogskirkju f dag, miövikudag 18. apríl kl. 3. Halldór Sveinsson.
Guðný Þorsteinsdótt-
ir — Minningarorð
Meðal fyrstu minninga frá
bernsku minni og æsku er raf-
ljósadýrðin í Búðakaupstað og
móttökurnar frá Guðnýju frænku
á Sævarenda, þegar göngulúnir
ferðalangar kvöddu þar dyra.
Á þeim tíma var leiðin um
Stöðvarskarð, milli Stöðvarfjarðar
og Fáskrúðsfjarðar, allfjölfarin af
þeim sem komast þurftu milli
byggða á Suðurfjörðum Aust-
fjarða og þá var fyrsti bærinn sem
komið var að Fáskrúðsfjarðarmeg-
in Sævarendi.
En þegar vegfarandi kom upp í
Stöðvarskarð sunnanfrá, þá birtu
var tekið að bregða, blöstu við
rafljósin í Búðakaupstað, minntu
þau gjarnan á ævintýraheiminn,
sem áður var aðeins kunnur úr
sögum um álfa og engla.
Á lengri vegferð en um Stöðvar-
skarð hefir minningin um rafljós-
in í Búðakaupstað hlotið þann kost
að minnka í samanburði við hlið-
stæð undur veraldar, en minningin
um húsfreyjuna og heimkomuna
að Sævarenda hefir haldist full-
skýr.
Guðný Þorsteinsdóttir sem hefir
nú slitið skónum sínum á þeim
vegi, sem við öll göngum mislengi
og misfótsár, var í föðurætt ættuð
úr Austur-Skaftafellssýslu, en
móðir frá Grímsstöðum í Meðal-
landi. Fluttust foreldrar hennar,
eins og margir Skaftfellingar,
austur á bóginn um síðustu alda-
mót þegar byggð og atvinnuhættir
efldust við sjávarsíðuna á Aust-
fjörðum, en þar naut atorka og
óvenju seigla margra Skaftfellinga
sín vel, hert í harðræði aldanna,
undir jöklanna brúnum, við hafn-
lausa strönd.
Ung að árum sýndi Guðný Þor-
steinsdóttir fljótt hvað í henni bjó,
ekki aðeins með óvenjulegum
dugnaði og fjölhæfum gáfum,
heldur með einstæðum mannkost-
um samfara persónuþokka og
glaðsinni — var hún hvers manns
hugljúfi.
Hún giftist ung fyrri manni
sínum, Valdimar Þórarinssyni að
Kirkjubólsseli í Stöðvarfirði.
Fór þar saman á bæ gjörvileiki
hinna ungu hjóna, sem ég heyrði
oft minnst, og farsæld í búi, en þar
bar brátt að þann harm, að Valdi-
mar lést af völdum berklaveiki
langt um aldur fram, eftir ör-
skamma sambúð.
Síðar giftist Guðný eftirlifandi
manni sínum, Halldóri Sveinssyni
bónda að Sævarenda í Fáskrúðs-
firði, en að Sævarenda bjuggu þau
hjón við ráðdeild og risnu um
áratugi, og við þann stað munu
þau lengst verða kennd.
Þar fæddust þeim dæturnar
tvær, Valdís, gift Gunnari Egg-
ertssyni stórkaupmanni í Reykja-
vík, og Hjördís, gift Eiði Magnús-
syni bónda að Ormskoti í Fljóts-
hlíð. Fósturdóttur Þóru H. Jóns-
dóttur, ólu þau upp frá unga aldri.
I þessum fáu orðum verður þess
ekki kostur að gefa ókunnum
lesanda hugmynd við hæfi um
Guðnýju á Sævarenda, eins og hún
virtist þeim og birtist sem best
þekktu hana, en til örlítillar
glöggvunar má þess geta, að þessi
fágæta, síglaða kona, uppalin við
nauman kost aldamótaára, lét sig
ekki muna um að sauma fatnað á
allt heimilisfólkið og nokkra ná-
granna, og taka á móti börnum, ef
með þurfti.
Þannig verður henni fundið sæti
í hópi bestu fulltrúa okkar far-
inna, margreyndu mæðra og fáar
þeirra munu hafa miðlað lífsgleð-
inni jafn örlátlega gestum og
gangandi við hlaðin borð.
Mælir sá er þetta ritar hér um
af langri og ríkri reynslu.
Þeir sem leggja að nýju leið sína
um afskekkta staði, sem svo eru
taldir, en hafa áður kynnst þeim
og metið öðruvísi með fólkinu sem
þar bjó, kunna að finna til þess að
staðurinn sé ekki orðinn sá sami.
Eitt sinn mælti austfirsk
sæmdarkona þegar háttsettur
embættismaður í Reykjavík
kallaði sveit hennar útkjálka:
„Útkjálka. — Hefirðu komið í
Breiðadal?“ og lét þar með viðtali
lokið.
Guðný á Sævarenda hefði ef til
vill ekki mælt þessum orðum. En
báðár þessar konur eiga það
sameiginlegt, að tilfinningin fyrir
byggð og umhverfi þeirra er svo
rík, að hún stækkar þær og skerpir
kosti og yfirbragð umhverfisins,
sem þær setja svip sinn á ósjálf-
rátt.
Hvort sem Guðný gekk um beina
milli búrs og stofu eða beindi för
um breiðgötu borgarsamfélags, þá
færði hún ekki með sér hugblæ
útkjálkahugtaksins, eða lítillar
umkomu. Átti hún þar og styrk í
samfylgd síns fjölmenntaða eigin-
manns og vel gefnu barna.
Mér er ekki fullljóst hversu
svipur Sævarenda og umhverfis
stenst samanburðinn við ljóshafið
í Búðakaupstað meðal þeirra er í
kvöld eiga leið um Stöðvarskarð,
en þeir sem lengra muna hljóta að
geyma einna gleggst í huga
myndina af húsbændunum á
Sævarenda, og finnast þeir ennþá
standa í varpa og laða gesti.
Minnast húsmóðurinnar og fjöl-
skyldunnar, sem svo var búin
atgervi að móta hlaut bæ og byggð
og prýða í minningu þeirra er sjá
máttu.
I v^nheilsu síðustu ára átti
Guðný því láni að fagna að njóta
umhyggju þeirra er henni voru
kærastir, eiginmanns, tengdasona,
dætra og fósturdóttur og barna-
barna.
Þökk sé henni fyrir samferðalag
til leiðarloka og þeim öllum fyrir
umhyggju.
+ Móöir okkar og amma.
MARGRÉT ÁRNADÓTTIR,
frá Kálfatjörn,
sem lézt 6. þ.m. veröur jarösungin frá Dómkirkjunni í dag, miövikudaginn 18.
apríl kl. 14:00. Ámi Egilsaon, Ingi Valur Egilsson, örnólfur Árnason.
+
Utför
8IGURVEIGAR EINARSDÓTTUR,
Barðavogi 44, Raykiavfk,
ferö fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 20. apríl kl. 3 síðdegis.
Bogi Stefánsaon,
Stafán Bogaaon, Guörún Sigurgeirsdóttir,
Björg Bogadóttir, Ámi Benodiktsson
og barnabörn.
+
EIRÍKUR BENJAMÍNSSON,
frá Hesteyri,
Laugavegi 49 a,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju í dag, miövikudag kl. 13.30.
Aðstandendur.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og fósturfaöir,
GARDAR ÞORSTEINSSON,
fyrrverandi prófastur,
veröur jarösunginn frá Hafnarfjaröarkirkju, laugardaginn 21. aprfl kl. 2.
Svoinbjörg Helgadóttir,
Aöalbjðrg Garöarsdóttir,
Þorsteinn Garóarsson,
Friórik Garóarsaon,
Hrafnhildur Kristinadóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför systur
minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
LOVÍSU GÍSLADÓTTUR
frá Búastöóum, Vestmannaeyjum.
Eyjólfur Gfslason,
Ingibjörg Bryngeirsdóttir,
Torfi Bryngeirsson,
Gfsli Bryngeirsson,
Bryngeróur Bryngeirsdóttir,
Jón Bryngeirsson,
og barnabörn.
Alfreð Sveinbjórnsaon,
Jóhanna Pátursdóttir,
Gráta Þorsteinsdóttir,
Ásbjórn Bergsteinsson,
Hrafnhildur Heigadóttir
Pétur Þorsteinsson.