Morgunblaðið - 10.05.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.05.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1979 Skipulagðri leit hætt að mönn- unum fimm SKIPULAGÐRI leit hefur nú verið hætt að mönnun- um fimm, sem saknað var af vélbátnum Ilrönn SII 149. Báturinn fórst yzt í Reyðarfirði að kvöldi 30. apríl og mennirnir eru nú taldir af. Fjörur verða áfram gengnar til að fylgjast með hvort eitt- hvað reki á fjörur. Illutir úr bátnum fundust kvöldið. sem slysið var og da^inn eftir. Þá fannst einni^ lík eins skipverj- ans, Stefáns V. Guðmundssonar. Þeir sem fórust með Hrönn SH 149 voru: Jóhannes Steinsson skip- stjóri, 43 ára, lætur eftir sig eiginkonu og 2 börn. Eiríkur Sævar Bjarnason vélstjóri, 37 ára, lætur eftir sig eiginkonu og 2 börn. Stefán V. Guðmundsson stýrimaður, 51 árs, ókvæntur en lætur eftir sig aldraða móður. Gunnar Hafdal Tngvars- son 50 ára, ókvæntur. Kjartan Grétar Ólafsson, 31 árs ókvæntur, en á foreldra á lífi. Sveinn Guðni Eiríksson, 36 ára, ókvæntur, en á foreldra á lífi. EIÐI í EYÐI — Býlið Eiði, áður í Reykjavík, en nú í Seltjarnarneskaupstað verður að víkja fyrir nýjum miðbæ Seltjarnarness. í gær var húsið brennt og var þá myndin tekin. Um langt árabil bjó þarna Meyvant Sigurðsson bifreiðastjóri, þekktur borgari í Reykjavík. Ljósm. Kri8tinn. Botnfiskaflinn 60 þús. lestum meiri en í fyrra Jóh.nmx Stílnwton Gunn.r II. Inirv.riiHon Elríkv S. BJutmmmi KJ.rt.n G. Ol.fHHun Strfán V. GuðnundHmn Svrlnn G. ElrfkHHon HEILDARAFLINN fyrstu fjóra mánuði þessa árs nam samkvæmt bráða- birgðatölum Fiskifélags íslands liðlega 789 þúsund lestum, en á sama tima í fyrra var heildaraflinn 673 þúsund lestir. Þessi munur á milli ára er fyrst og fremst vegna meiri loðnuveiði í ár, en hann varð 521.800 lestir á nýlið- inni vetrarvertíð, en 457.711 í fyrra. Botnfiskaflinn var í aprílmán- uði 72.257 tonn, en í sama mánuði í fyrra 75.720. I þessum saman- burði er rétt að hafa í huga að páskastoppið í ár var í aprílmán- uði, en í fyrra voru páskar í lok marzmánaðar. Botnfiskaflinn var um mánaðamót orðinn 251.825 tonn, en 190.313 tonn í fyrra. Bátaaflinn' var 149.711 frá ára- mótum, en 111.602 lestir á sama tíma í fyrra og munar því tölu- verðu á aflabrögðum bátanna á milli ára. Togaraafli í aprílmánuði var 26.797 tonn í apríl s.l. en 24.399 í apríl í fyrra. Enneitt hlustunardufl finnst, nú í Húnaflóa: Átta rússnesk njósnadufl hafa fundist við landið RÚSSNESKT njósnadufl fannst rekið á Þingeyrarsandi í Húna- firði s.I. sunnudag. nánar tiltek- ið milli Húnaóss og Bjargáróss. Er þetta áttunda rússneska hlustunarduflið sem finnst hér við land á nokkrum árum, samkvæmt upplýsingum Ber- ents Sveinssonar. yfirloft- skeytamanns Landhelgisgæzl- unnar. en Gæzlan heldur skrár yfir fund slfkra dufla. Ekki hefur verið ákveðið hvað gert verður við þetta nýjasta dufl. Samkvæmt upplýsingum Ber- ents Sveinssonar hafa duflin átta fundist sem hér segir: 1972: Sigurfari VE fann dufl á reki við Vestmannaeyjar 28. október. 1975: Tvö dufl fundust rekin sama dag, 22. febrúar, annað við Stokksnes og hitt á Landeyjar- sandi. 2. apríl fannst dufl rekið á Fossafjöru á Síðu og 3. apríl fannst annað dufl rekið á fjöru í Ófeigsfirði á Ströndum. 20. júní fannst dufl á reki útafKrísuvík- urbjargi. 1976: Annað dufl finnst á reki útaf Krísuvíkurbjargi nálega ári seinna eða 22. júní. 1979: Dufl finnst á Þingeyjar- sandi í Húnafirði 6. maí. Aðspurður sagði Berent Sveinsson að ýtarlegar rann- sóknir hefðu farið fram á dufl- unum. Landhelgisgæzlan kann- aði tvö þeirra, varnarliðið á Keflavíkurflugvelli fékk eitt duflanna og Raunvísindadeild Háskóla íslands eitt dufl, m.a. í þeim tilgangi að athuga hvort eitthvað mætti nýta í þeim. Berent sagði að athuganir hefðu leitt í ljós að duflin væru sovézk og væri hlutverk þeirra að nema hljóð í sjónum. Væru þau hluti enn meiri búnaðar og væri aug- sýnilegt á gerð þeirra, að þeim væri ætlað að vera á miklu dýpi. Rússnesk njósnadufl, sams konar og það sem fannst rekið i Húnafirði á sunnudaginn. Þessi dufl fundust rekin á suðurströnd- inni árið 1975. HEILDAHAFLINN ( APRÍL 1979 og 1978 A p r í 1 (lestir ósl.) Jan. /Apríl (lestir ósl.) BráðabirgÖa- tðlurl979 Endanlegar tölur 1978 Bráðabirgða tölur 1979 Endanlegar tðlur 1978 I. BOTNFBKAFLI: 72257 7 5720 251825 190313 • ) Bátaafll 45460 51321 149711 111602 Veatpn. /Stykldah. 33628 35740 102043 70732 Veatfirðir 3139 4990 15528 14920 Norðurland 3125 3320 12287 11242 Austfirðir 5047 7023 17320 13804 T.andað erlendla 521 249 2533 90 5 _ _ 26797 24399 102114 7871 1 Veatm. /Styktdsh. 12214 9200 38010 29818 Veatflrðir 3977 4798 18393 14406 Norðurland 51 24 5637 24835 19820 Austfirðir 3755 4474 12113 12828 Landað erlendis 1727 290 8763 1838 II. LOÐNUAFLI: 0 19 521800 457711 ni. SlLDARAFLI: 0 0 0 0 IV. R«KJUAFLI: 0 746 3503 4460 V. HUMARAFLI: 0 0 0 0 VI. HÖRPUDISKUR: 374 387 2218 2509 VII.KOLMUNNI: 0 0 0 0 Vm. ANNAR AFLI: (Sparl.o.fl.) 9551 15746 9813 18022 HEILDARAFLINN ALLS: 82182 92618 789159 673015 Vorið loksins komió á Raufarhöfn: Þurfti að halda í land til að sækja fleiri tunnur Raufarhöfn. 9. maf. í FYRSTA skipti í háa herrans tíð má segja að í dag hafi verið eðlilegt líf við höfnina hér og þá um leið almennt í bænum. Bátar komust á sjó í gær og í dag hefur verið hér suðvestan hægviðri og glaðasólskin. mikil sólbráð, en þó enn frost í forsælu. Frú Palme stödd hér NORRÆN sálfræðingaráðstefna stendur nú yfir í Reykjavík. Meðal fyrirlesara er Lisbet Palme, eigin- kona Olafs Palme, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar. Beiðnir um 20 ný bankaútibú SEÐLABANKINN liggur nú með beiðnir um opnum 20 nýrra bankaútibúa víðs vegar um land. Þetta kom fram í gær f ræðu Jóns Skaftasonar, formanns banka- ráðs Seðlabankans, er hann hélt f tiiefni ársfundar bankans. Jón kvað bankann þurfa að fara að taka afstöðu til þessara um- sókna og sagði að nú væru í landinu 100 afgreiðslur banka og 45 afgreiðslur sparisjóða. Einn grásleppukarlanna lagði ný net í gær og kom að í kvöld með 6 tunnur af hrognum. Hann reiknaði alls ekki með svo góðum afla og varð tunnulaus á miðun- um, en sótti þær í land og hélt út á ný til að ljúka aðgerð. Einn bátanna héðan missti botnstykki í ísjaka fyrir rúmri viku síðan, en þó ísinn hafi ekki hrjáð okkur verulega síðustu vikuna, þá komst báturinn ekki til Akureyrar fyrr en í fyrradag vegna veðurs. Hér hefur verið sannkallað vetrar- veður og bátar ekki komist á sjó. Þorsteinn GK 15, sem er gerður út héðan, kom í dag með 30 tonn af fiski og Þórshafnarbátinn Fagra- nes í togi. Fæðidæla að olíuverki aðalvélar hafði gefið sig í Fagra- nesinu og varð því að fá aðstoð. Varahlutir fundust á Litla Ár- skógssandi og var þeim komið með bíl fyrir flug til Þórshafnar. Það- an átti síðan að fá varahlutina með fiskbílum, sem væntanlegir voru hingað í kvöld. Bílarnir áttu að flytja 14—15 tonn af fiski til Þórshafnar, sem Fagranesið, Langanes og Faldur frá Þórshöfn lönduðu hér. Enn er talsverður ís á Þistilfirði og höfnin á Þórshöfn enn lokuð. Einn Þórshafnarbát- anna, Litlanesið, missti net sín undir ísinn í morgun, en nokkurt rek var á ísnum í dag. — Helgi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.