Morgunblaðið - 10.05.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1979
13
Dögimtíma-
skeiðs upp-
ljómunar
á íslandi
— eftir Jón Halldór Hannesson,
kennara í innhverfri íhugun
ÁSTAND MINNSTRAR ÖRVUNAR
GRUNNSVIÐ NÁTTÚRULÖGMÁLANNA
Svirt
Kfnishcimurinn mikillnr iirvunar
Athafnir
FínucrO
liiií vfnis
<>K orku
Túmasvirtið
lluusun
Astand minnstrar iirvunar
(irunnsvið allra
liiíímála náttúrunnar
SviO minnstrar
iirvunar vitundar
Tómasviðið. scm or óhiindlanlejít innihi'ldur Ta r vitund. scm ('inni« or óhiindlanh'K cr
iill náttúruliitímálin scm stjórna starfscmi uppruni allrar hunsunar o>í athafna o«
allra náttúrufyrirhæra. innihcldur liimnálin scni stjórna.
iillum huusanlctrum formum athafna.
að losa streitu og hækka vitund-
atstig einstaklinga, væri dögun
betri tíma þegar hafin. Vandamál,
þjáningar og ófriður hefðu þegar
náð hámarki og væru nú á und-
anhaldi. Þegar fréttamenn spurðu
hann hvernig hægt væri að
sannprófa fullyrðingu hans svar-
aði hann á þá leið að þeir sjálfir
myndu skýra frá dögun tíma-
skeiðs uppljómunar, þ.e. frétta-
menn myndu smám saman hafa
frá fleiru jákvæðu að segja en
færru neikvæðu. Þær innlendu
fréttir, sem ég hef tínt upp úr
blöðum að undanförnu, benda
vissulega til batnandi þjóðlífs á
Islandi og staðfesta þessi ummæli.
Nú munu etv. einhverjir telja að
tilviljun gæti ráðið því að straum-
ar tímans skuli batna samhliða
því sem fjöldi iðkenda innhverfrar
íhugunar eykst. Orsakasamhengi
er þó milli þessara tveggja hluta,
því eins og að ofan sagði er
vitundin óbundinn grundvöllur
efnis, orku og hugar og iðkendur
skapa samstillandi bæringu frá
þessu sviði, sem lífgar alla þætti
mannlífsins og skapar jafnvægi í
náttúrunni. Nú þegar hefur t.d.
komið í ljós í rúmlega 2000
borgum víða um heim að afbrota-
tíðni minnkar þegar 1% íbúanna
iðkar innhverfa íhugun.
Aðrir telja etv. að gæði lífsins
hafi ekki batnað. Vissulega er enn
langt frá því að neikvæðir við-
burðir, slys og ólán séu horfin.
Fjölmiðlar eru jafnframt vanir
því að fjalla meira um neikvæða
hluti einfaldlega vegna þess að
fram að þessu hafa neikvæðu
hliðarnar verið fleiri en þær
jákvæðu. Þess vegna tel ég að
mæla þyrfti gæði lífsins með
hlutlægum, vísindalegum hætti.
Vísindamenn við Maharishi Euro-
pean Research University hafa
unnið að gerð kvarða til að mæla
gæði lífs á ákveðnu svæði. Ná-
kvæma lýsingu á þessum mæli-
kvarða er að fá frá MERU, 6446
Seelisberg, Swiss, en í stuttu máli
sagt tekur kvarðinn mið af opin-
berum tölfræðilegum athugunum
á afbrotatíðni, slysatíðni, veik-
indatíðni, framleiðslu og öðru þess
háttar, auk athugana á sköpun-
arhæfni, námsárang1-' og umsögn-
um fólks og fjölmi i á gæðum
lífsins. Með þessum nætti mætti
mæla gæði lífsins t.d. mánaðar-
lega og birta opinberlega. í borg
einni á Nýja-Sjálandi fara þessar
mælingar fram reglulega og er
niðurstaðan færð inn á stóran
„mæli“ sem komið hefur verið
fyrir á aðaltorgi bæjarins. Þetta
ættum við að taka okkur til
fyrirmyndar og koma upp slíkum
lífsgæðamæli við t.d. Lækjartorg
eða Austurvöll svo almenningur
geti fylgst með og fagnað því
jafnóðum er lífsgæðin aukast.
Jarðvegur
árangurs skapaður
Ekki má gera lítið úr viðleitni
ráðamanna og leiðandi fólks til að
bæta mannlífið. í öllum samfélög-
um hefur verið til fólk sem
einlæglega og stöðugt vinnur að
því að leysa vandamál og bæta
mannlífið. Viðleitnin er virðingar-
verð og nauðsynleg og hefur nú
náð takmarki sínu í dögun tíma-
skeiðs uppljómunar. Þegar sam-
stilling í samvitund þjóðanna er
aukin skapast góður jarðvegur
fyrir þessa viðleitni til að bera
traustan ávöxt, en án þess að
hækka samvitundina eru allar
lausnir vandamála þess eðlis að
önnur vandamál koma fljótlega
upp í staðinn og baráttan við þau
heldur áfram. Þess vegna segir
Maharishi Mahesh Yogi að ríkis-
stjórnir séu „saklaus spegill þjóð-
arinnar". Ef óreiða ríkir meðal
einstaklinganna munu athafnir
stjórnvalda að sama skapi ein-
kennast af ringulreið. Ef einstak-
lingar landanna eru hins vegar
streitulausir, skapandi, hamingju-
samir og fullnýta möguleika sína
verða gerðir og • árangur
stjórnvalda að sama skapi árang-
ursríkari.
Þær jákvæðu hneigðir sem fram
eru komnar hérlendis og reyndar
víða annars staðar eru aðeins
dögunin, byrjunin á því timaskeiði
þar sem þjáningar hverfa og sá
skilningur að lífið sé barátta og að
mistök séu mannleg mun veröa
úreltur. Með vaxandi fjölda iðk-
enda tækninnar innhverf íhugun
mun dögunin senn verða að björt-
um degi tímaskeiðs uppljómunar
og þær jákvæðu hneigðir, sem
þegar eru farnar að koma fram,
ná fyllingu sinni.
Fríttabréí um hcilbri«Aismál. mars 1978:
★ 1978: íslendingar í fyrsta sinn
með hæstu lífslíkur í hcimi.
MorxunblaAiA. sunnudaK 31. desombor 1978:
★ Fækkun dauðaslysa í umferð-
inni miðað við 1977 34%.
★ Fækkun dauðaslysa á íslandi
almennt miðað við 1977 11.5%.
Vísir. 3. janúar 1979:
★ „Umtalsverð fækkun útkalla
slökkviliðsins í Reykjavík“ (og
færri stórbrunar).
ÞjMviljinn. fimmtudaic i. janúar 1979:
★ „Breytt afstaða ncmcnda til
reykinga“.
Jón SÍKurAsxon. haKrannsóknarstjóri.
MorKunhlaAinu 31.12. '78:
★ Vöxtur þjóðartckna árið 1978
3-3'/2%.
★ Vöxtur rauntekna 4 —5%.
Frrttatilkynninx frá Seúlabankanum.
janúar 1979:
■* Viðskiptajöfnuðurinn í fyrra
hagstæður um 9 milljarða
króna.
Gunnar Guábjartsson íorm. Stéttar-
sambands ha nda í Tímanum 4. jan.
ok Morxunbl. 31. des. 1978:
★ „Mcr er minnisstæðust sór-
staklega stöðug og kyrr veðr-
átta. Það má segja að árið hafi
verið landhúnaðinum hag-
stætt. ákaflega gott tíðarfar,
mikil framleiðsla og allt gekk
í haginn eftir því sem við var
að búast.“
★ Aukning mjólkurframleiðslu
7%.
★ Met gróðurhúsaframleiðsla og
met grænmetisframleiðsla.
★ Met laxveiðiár.
Kristján RaKnarsson. form. l.íi
MorKunbl. 31. des. 1978:
★ „Þetta ár vcrður mesta aflaár
sem um getur. Ileildaraflinn
verður va'ntanlega um 1555
þús. lestir eða 13% meiri en
hann hefur áður orðið. en það
var á árinu 1977“. (Og við
vitum að framhald hefur orðið
á þessum góðu aflahrögðum
nú á þessu ári).
Grótar Norúíjörð. löKreKluflokksstjóri.
Morgunhl. 18. mars 1979:
★ Fækkun innbrota í Reykjavík:
„Arið 1976 var að jafnaði
tilkynnt um 50 innbrot á
mánuði; 42 á mánuði árið 1977
en 39 að jafnaði fyrstu sex
mánuði ársins 1978.
Snorri Jónsson. forsoti ASl.
MorKunbl. 31. des. 1978:
★ „Þegar yfir árið 1978 er litið
má þannig segja að ári mikilla
athurða hafi lokið betur en á
horfðist í upphafi þess.
Vísir 28. aprfl 1979:
★ „Gjaldeyrisstaða bankanna
hefur ekki verið jafn hagsta“ð
nú (í aprfl) siðan á árinu
1974.“
Maharishi Mahesh Yogi: „Iðkendur innhverfrar íhugunar skapa sér
ekki aðeins sérlífsfyllingu heldur hækka þeir og samvitundina með
iðkun sinni.“
BORÐSTOFUBORÐ
OG STÓLAR
r
Borð: Mismunandi stæróir. Ath. hægt er að
panta hvaöa stærð sem er með
gler- eða viðarplötu.
Stólar: Áklæói
að vali kaupenda.
«1^ llllS«|S14|IKlkllMl
SÍÐUMÚLA 2 - SÍMI 39555
FRAMLEIÐANDi:
STÁLHÚSGAGNAGERÐ STEINARS