Morgunblaðið - 10.05.1979, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAÍ1979
Átök í Kaliforníu
þegar bensínskömmtun hófet
Loh AngeleH. 9. maí. AP. Reuter.
BENSÍNSKÖMMTUN var tekin
upp í Kalifurníu frá og með
deginum í dag, og er það f fyrsta
skipti frá þvf Arabaríkin settu
olíusölubann á Bandarfkin árið
1974 að ríki í Bandarfkjunum
tekur upp skömmtun.
Mikill bensínskortur hefur ríkt í
Kaliforníu undanfarna daga, og
hafa myndast langar biðraðir við
flesta sölustaði. Greip Edmund
Brown ríkisstjóri því til þess ráðs
að skammta bensínið með laga-
setningu. Er skömmtunin í því
fólgin að bifreiðar með skrá-
setningarmúmer sem enda á odda-
tölu fá afgreitt bensín þá
mánaðardaga, sem enda á odda-
tölu, en bifreiðar með jafnar tölur
fá afgreiðslu á jöfnum dagsetning-
um.
Áður en bensínskömmtunin
hófst á miðnætti á þriðjudag í
30 fórust
í árekstri
Nýju Dehlí. 9. maí. AP.
AÐ MINNSTA kosti 30 farþegar
fórust þegar hraðlest ók á rútubif-
reið þar sem járnbrautarteinar
skáru þjóðveg einn í grennd við
bæinn Cochin í suðurhluta Ind-
lands í dag. Barst rútan með
lestinni í um einn kílómetra og við
áreksturinn kom upp eldur í bif-
reiðinni. Nokkrir farþega sluppu
lifandi en hættulega særðir.
I öðru slysi, sem varð í austur-
hluta landsins, fórust um 70
manns er bát, sem þeir voru í,
hvolfdi þar sem mætast árnar
Ganges og Pun Pun í Bihar-fylki.
Slysstaðurinn er í um 480 kíló-
metra fjarlægð frá Kalkutta. Tíu
manns björguðust á sundi.
Kaliforníu ríkti ringulreið við
bensínstöðvar vegna þess að flest-
ir vildu fylla bíltanka sína eða
reyna að hamstra fyrir skömmt-
un. Kom víða til átaka, og beittu
menn jafnvel hnífum og skotvopn-
um til að tryggja sér dropa á
tankinn.
Á einni bensínstöðinni í
Hollywood ógnaði ökumaður
biðröð bifreiða með skammbyssu
meðan hann fyllti á tankinn hjá
sér eftir að hafa skotizt fram fyrir
50 bíla biðröð.
Margir bensínafgreiðslumenn
vopnuðust kylfum og byssum sér
til varnar. Margir ökumenn leit-
uðu lækna eftir að hafa verið
stungnir eða barðir þegar þeir
reyndu að skjótast framfyrir aðra
í biðröðum, og nokkuð var um það
að reiðir ökumenn ækju utan í
bíla, sem reynt var að aka fram úr
þeim.
Bensínbrúsar og læst bensínlok
seldust víða upp, og í San Diego
leituðu 40 manns hjálpar í sjúkra-
húsum eftir að hafa gleypt bensín
þegar þeir voru að reyna að tappa
bensíni af bílum. I Santa Ana var
sjö manna fjölskylda flutt í
sjúkrahús með slæm brunasár
eftir að sprenging varð í bensín-
birgðum, sem geymdar voru í
bílskúrnum.
íbúar Kaliforníu eru um 22
milljónir, og þar eru 16 milljónir
bíla.
Eftir að skömmtunin hófst í
morgun mynduðust enn langar
biðraðir við bensínsölustaði, en
þar fór þó allt friðsamlega fram
miðað við það sem á undan var
gengið. Ástæðan fyrir því að
Kalifornía er verr sett en önnur
ríki varðandi bensínbirgðir er sú,
að notkun hefur aukizt meir í
Kaliforníu en öðrum ríkjum
undanfarið ár.
Hermenn í E1 Salvador gera árás á dómkirkjuna í miðborg Han saivador og nota nærliggjandi
bifreiðar til að skýla sér fyrir kúlnahríð hryðjuverkamanna sem hafast við í kirkjunni. Miðborg San
Salvador er afgirt og geisa bardagar þar enn, annan daginn í röð.
S-Líbanon:
Vaxandi spenna
við landamærin
Beirút, Tel Avív, 9. maí. Reuter.
YFIR 400 manna lið ísrealskra hermanna og libanskra hægri sinna þusti í dag inn í
þorðið Shaqra í S-Líbanon með 40 skriðdreka og tók þar herskildi. Engar sögur fara
af mannfalli og ekki mun hafa skorist í odda., en árásarliðið sneri aftur til
bækistöðva sinna ísraelsmegin landamæranna, eftir að hafa leitað skæruliða í
þorpinu. Hér er um að ræða mestu innrás í S-Líbanon frá því í mars í fyrra, en þá náði
20 þúsund manna ísraelskt herlið stórum svæðum í S-Libanon á sitt vald.
Málflutningur hafinn
gegn Jeremy Thorpe
London, 9. maí. AP — Reuter.
í DAG HÓFST í Old Bailey-dómsalnum í London málflutningur
saksóknara í máli hins opinbera gegn Jeremy Thorpe fyrrum
formanni Frjálslynda flokksins brezka, en Thorpe og þrír menn aðrir
eru ákærðir fyrir að hafa ætlað sér að myrða Norman Scott fyrir tíu
árum. Því er haldið fram að Scott og Jeremy Thorpe hafi um skeið
verið elskendur, og að homosexual-samband þeirra hafi verið Thorpe
hættulegt á stjórnmálasviðinu.
Thorpe var fyrst kjörinn á þing
fyrir réttum 20 árum, og hélt
þingsæti sínu þar til hann tapaði
því nú í kosningunum í fyrri viku.
Saksóknari hélt því fram í dag að
þeir Thorpe og Scott hefðu kynnzt
árið 1961, þegar Thorpe var 32 ára,
en Scott 21. Báðir voru ókvæntir.
Skömmu síðar hófst kynferðislegt
samband þeirra, að sögn saksókn-
ara, og stóð það í tvö ár.
Eftir því sem Thorpe komst
hærra í metorðastiganum, varð
þetta fyrrum samband hans við
Scott honum hættulegra, því að
Scott leitaði oft til hans um
aðstoð, og fór ekki leynt með
samband þeirra á mannamótum.
Varð það til þess að Thorpe áleit
eina bjargráðið að koma Scott
burt úr þessum heimi, að sögn
saksóknara. Reyndi hann að fá þá
David Holmes fyrrum varagjald-
kera Frjálslynda flokksins, sem er
nú einn hinna ákærðu, og Peter
Bessei þáverandi þingmenn, sem
nú er eitt af vitnum saksóknara,
til liðs við sig. Telur saksóknari að
David Holmes hafi látið sannfær-
ast, enda þekkti hann þá hina
mennina tvo, sem nú standa
ákærðir, en þeir heita John le
Mesurier og George Deakin. Segir
saksóknari að þessir fjórir menn
hafi svo ráðið flugmann nokkurn,
Andrew Newton, til að myrða
Scott, og fékk Newton Scott til að
hitta sig á afviknum stað. í stað
þess að myrða Scott skaut Newton
tíkina hans, sem kölluð var Rinka.
Fyrir tiltækið greiddi le Mesurier
honum síðar fimm þúsund
Sterlingspund.
Mennirnir fjórir, sem ákærðir
eru, halda allir fram sakleysi sínu.
Réttarhöldum verður fram haldið
á morgun, og er talið að þau geti
staðið yfir í allt að þrjá mánuði.
Árásin nú kom í kjölfar skæru-
liðaárásar á samyrkjubú í Galíleu
í morgun, en þar var beitt eld-
flaugum og hriðskotabyssum.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að engin meiðsl hafi
orðið á íbúum samyrkjubúsins, en
hins vegar hafi einn af fjórum
skæruliðum Palestínuaraba náðst
á flótta. Talsmaður PLFP, harð-
snúnasta arms skæruliðasamtaka
Palestínuaraba, segir hins vegar
að tveir skæruliðar hafi fallið í
hörðum bardögum skammt frá
samyrkjubúinu.
Israelsmenn hafa gert loftárásir
á skæruliðastöðvar í S-Líbanon
þrjá undanfarna daga, og eru þær
liður í yfirlýstum áformum
ísraelsstjórnar um að flæma
palestinska skæruliða frá
S-Líbanon og leggja bækistöðvar
þeirra þar í eyði.
Mikil spenna ríkir við landa-
mærin og fer hún vaxandi, en
Yasser Arafat leiðtogi PLO hótaði
því í gær að stórlega yrði hert á
skæruhernaði innan landamæra
ísraels í hefndarskyni fyrir árásir
undanfarinna daga.
Um 6 þúsund manna gæzlulið á
vegum Sameinuðu þjóðanna er í
S-Líbanon, en árásin á Shaqra var
gerð er vaktaskipti fóru fram hjá
írska gæzluliðinu er hefur umsjón
með þorpinu, og var fáliðað er
ísraelsmenn náðu því á sitt vald.
Gæzluliðið má sín lítils gegn
stríðandi öflum á þessum slóðum,
enda því aðeins heimilt að grípa
til vopna í sjálfsvörn.
Ungbarnadauðinn ræðst af fátækt
fjölskyldu en ekki af þjóðartekjum
Wa.shinKton. 9. maí. AP.
UNGBARNADAUÐI er tíðari
moðal íátækra fjölskyldna en
rfkra og skiptir þá litlu máli
hvort þjóðartekjur lands eru
háar eða lágar, að þvf er fram
kemur 1 athugun stofnunar í
Bandarfkjunum er lætur til sfn
taka vandamál fátækra þjóða.
„Ungbarnadauði í fátækra-
hverfum í bandarískum stór-
borgum er tvöfalt meiri fyrir
eins árs aldur en meðal barna í
hverfum ríkra i útjaðri New
York, Chicago eða Los Angeles.
Ungbarnadauði í Bandaríkjun-
um er 15 börn á hver þúsund sem
fæðast, en þá er átt við börn sem
deyja áður en þau verða eins árs.
Samsvarandi taia fyrir ísland er
átta börn af hverjum þúsund og
er það með því lægsta sem
þekkist.
Venjulega er samband á milli
þjóðartekna, tekna fjölskyldna
og barnadauða. Þó að þjóðar-
tekjur séu hærri á íbúa í Banda-
ríkjunum en á íslandi er barna-
dauði tíðari í Bandaríkjunum
þar sem fátækt eins og hún
gerist mest þar fyrirfinnst ekki
á Islandi og á íslandi er bil milli
ríkra og fátækra talsvert minna
en í Bandaríkjunum.
Barnadauði í Venezuela er 49
börn á hver þúsund börn, en þar
eru þjóðartekjur um 2.750
Bandaríkjadalir á íbúa. Barna-
dauði er óvenju lítill í Sri Lanka,
þar sem þjóðartekjurnar eru
aðeins 200 dalir á íbúa, eða 49 á
þúsund börn. í Afghanistan, þar
sem þjóðartekjur eru svipaðar
og á Sri Lanka, eða 160 dollarar
á íbúa, er barnadauðinn hins
vegar 190 börn af hverjum
þúsund sem fæðast.
Sambandið á milli þjóðar-
tekna og barnadauða er einnig
óljóst þegar aðstæður í Brasilíu
og Formósu eru bornar saman.
Þjóðartekjurnar eru svo til þær
sömu í þessum löndum, en á
Formósu er barnadauði aðeins
25 börn af hverju þúsundi miðað
við 109 börn í Brasiliu. Þjóðar-
tekjur eru einnig ámóta í Ghana
og Suður-Kóreu, en í S-Kóreu er
barnadauði 47 börn á hvert
þúsund, en 165 börn í Ghana.
Veður
víöa um heim
Akureyri
Amsterdam
Apene
Barcelona
Berlín
BrUasel
Chicago
Frankfurt
Gent
Heleinki
+2 léttskýjað
14 léttskýiað
27 heiðakírt
13 alskýjað
20 léttskýjað
20 léttskýjað
30 haiðskfrt
19 léttskýiað
15 skýjað
9 heiðskírt
Jerúsalem 26
Jóhannesarb. 11
Kaupmannahðtn 11
Lissabon
London
Los Angeles
Madrid
Malaga
Mallorca
Míami
Moskva
Naw York
Moskva
Naw York
óslð
París
Reykjavík
Rio Oa Janeiro
Rómaborg
Stokkhólmur
Tal Aviv
Tókýé
Vancouvar
Vínarborg
19
17
18
20
19
19
31
14
27
14
27
9
19
5
32
20
10
25
26
15
16
haiðskfrt
skýjað
lóttskýjaö
léttskýjað
léttskýjað
haiðskfrt
léttskýjað
alskýjað
alskýjað
skýjað
skýjað
heiðskírt
skýjað
haiðskírt
léttskýjað
léttskýjað
léttskýjað
skýjað
haiðskfrt
skýjað
haiðskfrt
lóttskýjað
léttskýjað
skýjað