Morgunblaðið - 10.05.1979, Síða 3
-----------------------------------------
MORGUNBLAÐIÐÍ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1979 3
Erling Blöndal
einleikari med
Sinf óníuhlj óm-
s veitinni í k völd
Tjónið í Y tri-HIíð
umsex mifljónir kr.
EKKERT lát er á sinubrunum í höfuðborginni og
nágrenni og í gær var Slökkvilið Reykjavíkur kallað
sjö sinnum út vegna sinubruna. Síðdegis í gær var
slökkviliðið kallað upp í Víðidal en þar logaði í sinu á
allstóru svæði. Myndin er tekin úr lofti yfir svæðinu
og sér yfir Elliðavatn. L»Ó8m-Mbl- Kris‘ián.
Ær láta lömbum í Vopnafirdi:
30 þús. manns
hafa séð
Superman
GOÐ aðsókn hefur verið að
hinni margumtöluðu kvik-
mynd Superman, sem nú er
sýnd í Háskólabíói. Frið-
finnur Olafsson forstjóri
tjáði Mbl. aö tæplega 30
þúsund manns hefðu komið
á myndina og sagði Frið-
finnur að hann byggist við
því að myndin yrði sýnd
lengi enn.
Tregt hjá
kolmunna-
skipum við
Færeyjar
ÍSLENZKU skipin sem eru á
kolmunnaveiðum suður af
Færeyjum höfðu lítið aflað í
gærkvöldi. Bjarni ólafsson,
Akranesi. Víkingur, Akranesi,
Eldborgin, Hafnarfirði og Jón
Kjartansson, Eskifirði, voru þá á
miðunum, en Huginn frá Vest-
mannaeyjum var inni í Færeyjum
vegna bilunar.
Að sögn Þorsteins Kristjáns-
sonar skipstjóra á Jóni Kjartans-
syni höfðu islenzku skipin lítið
aflað, en hann hafði þó ekki fréttir
af Bjarna Ólafssyni sem kynni að
hafa fengið eitthvað í fyrradag.
Hann sagði að á þessum slóðum,
suðvestur af Færeyjum, skammt
frá miðlínu, væru mörg skip að
veiðum. Auk þeirra íslenzku skipa
frá Færeyjum, Danmörku,
Bretlandi og Noregi og hefðu
norsku skipin, sem væru stærri og
með stærri troll, fengið einhvern
afla.
íslenzku skipin munu væntan-
lega landa afla sínum í Danmörku
meðan kolmunninn er svo sunnar-
lega og þá væntanlega í Hirtshals,
Skagen eða Esbjerg.
Misjafnt verð
- misjöfn gæði
ÞRJÚ fiskiskip seldu afla sinn
erlendis í gær og fengu þau mjög
misjafnt verð fyrir aflann, enda
gæði fisksins mjög misjöfn.
Jón Þórðarson seldi 74 tonn í
Hull fyrir 15 milljónir króna,
meðalverð um 200 krónur. Rán
seldi 146 tonn í Hull fyrir 58
milljónir króna, meðalverð 395
krónur. Þórður Jónasson seldi 91
tonn í Fleetwood fyrir 39,2
milljónir króna, meðalverð 431
króna.
Um eitt hundruð ær Vals
bónda Guðmundssonar í
Ytri-Hlíð í Vopnafirði hafa
látið lömbum í ókennileg-
um sjúkdómi nú í vor og
síðla vetrar, og er tjónið
metið að minnsta kosti á
fimm til sex milljónir
króna.
Valur sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi, að farið
hefði að bera á því að ærnar létu
lömbum um mánaðamótin febrú-
ar-mars og allt þar til nú. Valur
sagðist ekki hafa orðið var við
þetta fyrr en í lok sauðburðar í
fyrravor, en þá létu nokkrar ær
hans lömbum. Sauðburður er nú
hafinn í Ytri-Hlíð, og sagði Valur
vera farið að fæðast talsvert af
lifandi lömbum, en af 305 ám hans
sagði hann um 100 látið lömbum.
Hann sagði menn standa ráð-
þrota gagnvart sjúkdómi þessum,
bæði Rannsóknastofnun landbún-
aðarins að Keldum og héraðsdýra-
læknirinn fyrir austan. Ekki væri
vitað um upphaf eða orsakir sjúk-
dómsins, en hann virtist vera
einskorðaður við fóstrin ein, því
ærnar eru ekki veikar svo merkj-
anlegt væri. Flestallar þær ær
sem hafa látið hafa verið tví-
lembdar. Valur sagði menn telja
að orsakir lambalátsins núna vera
smiti um að kenna, en sem fyrr
sagði væri upphafið óþekkt.
Valur sagði að ekki hefði borið á
sjúkdómnum í nágrenninu, en
veikin hefði hins vegar stungið sér
niður á öðrum bæ, talsvert langt í
burtu. Hann sagði það alveg
ókannað enn, hvort tjónið yrði að
DANSK-íslenzki sellósnill-
ingurinn Erling Blön-
dal-Bengtsson verður ein-
leikari á síðustu áskriftar-
tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar (slands í Iláskóla-
bíói í kvöld klukkan 20.30.
Stjórnandi á tónleikunum
verður Páll P. Pálsson
aðalstjórnandi
Sinfóníunnar.
Á tónleikunum í kvöld mun
Erling Blöndal-Bengtsson leika
sellókonsert eftir Lutoslavski og
verður þetta í 30. skipti, sem hann
leikur þennan konsert.
Auk sellókonsertsins eru á efn-
isskránni Oberon-forleikurinn
eftir Weber, Rokokotilbrigði
Tchaikovskys og Sinfónía númer 7
eftir Gunnar Bucht.
einhverju bætt, en það væri ekki
undir fimm til sex milljónum
króna. Valur er eingöngu með
sauðfjárbúskap.
Tíðarfarið í Vopnafirði sagði
Valur hafa verið slæmt í vor,
ruddatíðarfar og hörkufrost. Út-
séð væri um það að fé yrði að vera
á gjöf fram yfir mánaðamót, en
bót væri þó í máli að bændur á
þessum slóðum væru yfirleitt vel
birgðir að heyjum.
Erling Blöndal —Bengtsson.
Sáratregur
steinbíts-
afli
LÍNUBÁTAR frá Vest-
fjörðum, sem undanfarið
hafa verið á steinbíts-
veiðum, hafa fengið
sáralítinn afla. Hefur
nánast verið um ördeyðu
að ræða. Er þetta annað
árið í röð, sem steinbíts-
afli bregst aö langmestu
leyti. Er mönnum það
nokkur ráðgáta vestra
hvað geti valdið því að
steinbíturinn er nú
hættur að ganga á miðin
í líkingu við það, sem
áöur var._____
“AUGLÝSING
Netasalan h.f.:
Verðlækkun á japönskum þorskanetum
Netasalan h.f. kynnir nýja gerð girnisneta frá Hirata verksmiðjunum
í Japan. Fellismöskvinn jafnframt styrktur vegna aukins slits við
notkun blýteina.
Nú á tímum sífelldra olíu-
hækkana er ótrúlegt að hægt
sé að bjóða verðlækkun á
vöru, sem unnin er úr olí-
unni. Hið ótrúlega hefur þó
gerst. Netasalan hf hefur
nýverið lokið samningum um
verð á HIRATA þorska-
netunum frá Japan fyrir
næstu vertíð og verðin hafa
ekki hækkað, eins og víðast
mun vera, heldur lækkað
Daníel Þórarinsson sölustjóri Netasölunnar.
nokkuð. Auk eingirnisneta
og neta úr snúnu girni (í
daglegu tali nefnd krafta-
verkanet) býður HIRATA nú
í fyrsta sinn á íslandi girnis-
net þar sem reynt er að ná
fram kostum beggja áður-
nefndra neta, þ.e. mýkt
snúna girnisins og gegnsæi
eingirnisnetanna.
Netasalan hefur í vetur
fylgst náið með reynslu af
notkun NELSON blýtein-
anna, sem fyrirtækið selur.
Hafa margir skipstjórar
bent á aukið slit niður við
tein. Þetta er eðlilegt, þar
sem netin liggja nú alveg í
botni og nuddast því meira
en áður. Til að ráða bót á
þessu hefur Netasalan
ákveðið að auka verulega
styrkleika neðri fellimöskv-
anna. Vonandi tekst þannig
að auka endingu netanna og
ná fram verulegum sparnaði
í netakostnaði.
Vedur fer
hægt hlýnandi
— segir Páll Bergþórsson veðurfræðingur
„ÉG ER að ala á svolítilli bjartsýni mcð að veður íari nú hægt
hlýnandi." sagði Páll Berjíþórsson veðurfræðingur í samtali við
Morgunblaðið í !?œrkvöldi. er hann var spurður um veðurútlit.
„Ég byggi það ú því, að loftvog er hægt sígandi yfir Bretlandseyjum,
og dálítið hallandi hér vesturundan," sagði Páll ennfremur, „og allt er
það í rétta átt. Svo eru vindar í efri loftlögum að gera sig líklega til að
verða suðlægari eftir spám að dæma.“
Páll sagði þó að þessi breyting væri hæg, og varla væri við því að
búast að mikið færi að hlýna fyrr en í næstu viku í fyrsta lagi, alla
vega yrði varla um að ræða neina vorveðráttu að marki um helgina.