Morgunblaðið - 10.05.1979, Page 20

Morgunblaðið - 10.05.1979, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAÍ1979 Á fundi bankaráðs Seðlabankans, sem haldinn var nú í morgun, voru reikningar bankans fyrir árið 1978 staðfestir af viðskiptaráðherra. Þá lagði bankastjórn- in fram á fundinum ársskýrslu bankans fyrir liðið ár, sem birt verður í dag. Auk reikninga bankans hefur skýrslan að geyma margvíslegar upplýsingar um þróun enfahagsmála og starfsemi Seðla- bankans á síðastliðnu ári. Koma þar fram nýjustu upplýsingar, sem fyrir liggja um þróun þjóðarbúskaparins á árinu 1978, en þar er þó, svo sem eðlilegt er, öðru fremur fjallað um þá þætti efnahagsmála, er tengjast starfssviði bankans, svo sem peninga- og lánsfjár- mál, greiðslujöfnuð og gjaldeyrismál. Eg mun nú fyrir hönd bankastjórnarinnar gera nokkra grein fyrir efnahagsþróun- inni á síðastliðnu ári, en fjalla síðan um nokkur þeirra vandamála, sem viö er að fást í stjórn efnahagsrriála, eins og nú horfir. Varðandi starfsemi bankans að öðru leyti vil ég vísa til þess sem þar um segir í skýrslu bankans og fram hefur komið í ávarpi formanns bankaráðs hér á undan. Blómleg efnahags- starfsemi 1978 og illkynjuð verðbólga Mjög skipti í tvö horn í þjóðarbúskap íslendinga á árinu 1978. Annars vegar má sjá blómlega efnahagsstarfsemi, sem lýsti sér í viðunandi hagvexti og nægum gjaldeyristekjum til þess að skila umtalsverðum afgangi í viðskiptum MORGUNBLAÐIÐ foirtir hér ræðu dr. Jóhannesar Nordals, seölabanka- stjóra, formanns banka- stjórnar Seðlabankans, er hann flutti í gær í tilefni ársfundar bank- ans. í bessu blaði birtist fyrri hluti ræðunnar. Þess skal getið, að milli- fyrirsagnir eru settar inn af Morgunblaðínu. hagstæðrar þróunar viðskiptakjara. Þótt árið 1978 skilaði þannig minni aukningu ráðstöfunartekna þjóðarbúsins en árið á undan, var það þó í þessu efni nálægt meðaltali þessa áratugs. Framleiðsluaukningu síðasta árs má að mjög stórum hluta rekja til hag- stæðra framleiðsluskilyrða í sjávarút- vegi, en verðmætisaukning sjávarvöru- framleiðslunnar varð um 5% á árinu miðað við fast verðlag. Ennþá meiri aukning varð þó í heildarfiskafla lands- manna í tonnum talið, en heildarfiskafl- inn náði 1560 þús. tonnum, sem var um 14% meiri afli en á fyrra ári. Þann skugga ber þó óneitanlega á þetta metár í aflabrögðum, að fiskifræðingar eru þeirrar skoðunar, að fulllangt hafi verið gengið í sókn bæði í þorsk- og loðnu- lækkun fjármunamyndunar hefur á þessu tímabili lagt mikið af mörkum til þess stórfellda bata, sem orðið hefur í viðskiptajöfnuði, en hún hefur einnig, og þá sérstaklega á síðastliðnu ári, skapað svigrúm til þess að auka rauntekjur launþega og einkaneyzlu án þess að það kæmi niður á viðskiptajöfnuðinum við útlönd. Á árinu 1978 jókst einkaneyzla þannig um 6% eða um 2% meira en þjóðar- tekjur. Reiknað sem hlutfall af verð- mætaráðstöfun þjóðarbúsins í heild nam einkaneyzlan á síðastliðnu ári 63,6%. Hefur það hlutfall ekki verið jafnhátt síðan á árinu 1972, en eftir það lækkaði hlutdeild einkaneyzlu verulega og var aðeins um 59% af verðmætaráðstöfun á árunum 1974 og 1975. Á árinu 1978 jókst BLÓMLEG EFNA- HAGSSTARFSEMI EN HjLKYNJUÐ verðbólg a þjóðarbúsins við útlönd í fyrsta skipti síðan árið 1970. Hins vegar blasir við illkynjuð verðbólguþróun, sem líklega hefur aldrei komizt á hærra stig hér á landi, án þess að orsakirnar mætti rekja að verulegum hluta til utanaðkomandi truflana, svo sem erlendra verðsveiflna eða breyttra afkomuskilyrða íslenzkra atvinnuvega. Það er ástæða til þess að hafa þessar andstæður í huga, þegar fjallað er um þróun síðastliðins árs, ef vera kynni að unnt sé að varpa nokkru ljósi á það, hvað miður hafi farið og hvað betur í stjórn efnahagsmála að undan- förnu. Þessar andstæður í efnahagsþróuninni hér á landi eru ekki síður athyglisverðar, ef höfð er í huga framvinda efnahags- mála í umheiminum. Eins og margar aðrar þjóðir áttu íslendingar við alvar- legan greiðslujafnaðar- og verðbólguvanda að etja á árunum 1974 og 1975, en hina miklu efnahags- erfiðleika þessara ára mátti jöfnum höndum rekja til ofþenslu áranna á undan og stórfelldrar hækkunar olíuverðlags. Afturbati efnahagsctarf- seminnar í heiminum eftir þessi áföll hefur reynzt hægari og skrykkjóttari en vonir stóðu til. Við þrálátt misvægi hefur verið að etja í greiðsluviðskiptum milli landa og þar af leiðandi sveiflur í gengi helztu viðskiptamynta heimsins. Fáum þjóðum hefur á þessu tímabili tekizt að ná samtímis þeim markmiðum, sem þær hafa keppt að, þ.e.a.s. viðunandi hagvexti og atvinnustigi samfara minnkandi verðbólgu og jafnvægi í utanríkis- viðskiptum. Sum lönd, en þar eru Banda- ríkin lang mikilvægust, hafa búið við sæmilegan hagvöxt og minnkandi atvinnuleysi síðustu árin, en sá árangur hefur verið samfara miklum viðskipta- halla, sem veikt hefur gengi dollarans, jafnframt því sem minna hefur dregið úr verðbólgu en æskilegt hefði verið. I öðrum löndum hefur náðst umtalsverður árangur í báráttunni við verðbólgu og viðskiptahalla, eins og til dæmis í Bretlandi og sumum Norðurlandanna, en sá árangur hefur þá m.a. náðst með eftirspurnaraðhaldi, sem valdið hefur stöðvun hagvaxtar og auknu atvinnuleysi, a.m.k. um tíma. Þenslumerki eftir samningana 1977 Hér á landi náði verðbólga og viðskiptahalli við útiönd hvort tveggja hámarki á árinu 1975, þegar verðbólgan fór yfir 50%) og viðskiptahallinn við útlönd varð um 11,5% af þjóðarfram- leiðslu. Þessari þróun tókst þó að snúa við með áhrifamiklum hætti þegar á árinu 1976, og um tíma virtist efnahags- þróunin hafa tekið þá heillavænlegu stefnu, að saman færi batnandi greiðslu- jöfnuður við útlönd, minnkandi verð- bólga og gott atvinnuástand. Því miður stóð það ekki lengi. Þenslumerki fóru að j koma fram, einkum vegna aukinna útflutningstekna, þegar síðla árs 1976, en eftir launasamningana um mitt ár 1977, þegar samið var bæði um stórfellda grunnkaupshækkun og mun afdráttar- lausari verðbótaákvæði í kjarasamning- um en áður höfðu tíðkazt, tók verðbólgs- þróunin nýja og óheillavænlegri stefnu. Má með nokkrum sanni segja, að stjórn efanhagsmála hafi æ síðan einkennzt af þrotlausu stríði við afleiðingar þeirrar stórfelldu verðlags- og tekjuröskunar, sem launabreytingarnar 1977 höfðu í för með sér. Á hinn bóginn hafa ytri skilyrði þjóðarbúskaparins verið hin ákjósanleg- ustu á þessu tímabili, markaðsaðstæður erlendis yfirleitt verið hagstæðar og viðskiptakjör óvenjulega stöðug, þangað til fór að gæta hinna nýju hækkana olíuverðlags nú allra síðustu mánuðina. Er það vafalaust að verulegu leyti þessum stöðugleika ytri skilyrða að þakka, að tekizt hefur að viðhalda blómlegri atvinnustarfsemi og hagstæð- um viðskiptajöfnuði, þrátt fyrir þær truflanir, óróa og óvissu, sem hinni illvígu verðbólguþróun síðastliðins árs hlaut að verða samferða. En áður en ég kem að því að ræða frekar einstaka þætti í stjórn efnahagsmála á síðastliðnu ári, mun ég rekja stuttlega nýjustu upp- lýsingar, sem fyrir liggja um breytingar helztu þjóðhagsstærða á árinu. Metár í aflabrögðum Samkvæmt áætlunum Þjóðhags- stofnunar jókst þjóðarframleiðslan á árinu 1978 um 4,8%. Viðskiptakjör þjóðarbúsins við útlönd héldust svo til óbreytt miðað við fyrra ár, þegar á heildina er litið, og varð því aukning þjóðartekna hin sama og þjóðarfam- leiðslu, þ.e.a.s. 4,1%, en árið áður höfðu þjóðartekjur aukizt allmiklu meira en þjóðarframleiðsla, eða um 7,9% vegna stofninn. Verði því að beita strangri aflatakmörkunum en ella bæði í ár og á næstu árum, ef forða á loðnustofninum frá ofveiði og byggja þorskstofninn upp að nýju í eðlilega stærð. Um framleiðsluþróun annarra at- vinnuvega er það helzt að segja, að síðasta ár var einnig óvenjulega hag- stætt til búskapar, og mun framleiðsla landbúnaðarafurða hafa aukizt um a.m.k. 4%. á árinu. Neyzla landbúnaðar- afurða hélzt hins vegar ekki í hendur við aukna framleiðslu, svo að veruleg birgða- söfnun átti sér stað. I almennum iðnaði virðist framleiðsla aðeins hafa aukizt um 2% á síðastliðnu ári, sem er mun minni vöxtur en á undanförnum árum. Virðist hin öra hækkun framleiðslukostnaðar hafa komið allhart niður á afkomu iðnaðarins og hann því staðið verr að vígi í harðnandi samkeppni við innfluttar iðnaðarvörur. Loks dró á árinu nokkuð úr byggingastarfsemi, en verulega dró úr fjármunamyndun á árinu, eins og brátt mun að vikið. Aukning einka- neyzlu 2% meiri en þjóðartekjur Ef við lítum hins vegar á þjóðarútgjöld á síðasta ári, kemur í ljós, að þau jukust aðeins um tæp 2%, þrátt fyrir hina miklu verðbólgu, sem geisaði á árinu, og eru þá birgðabreytingar frá taldar. Vegna mikillar lækkunar útflutnings- vörubirgða lét nærri, að verðmætaráð- stöfun þjóðarbúsins í heild stæði í stað frá fyrra ári. Leiddi þetta til þess, að öll aukning þjóðarframleiðslu nýttist til þess að bæta viðskiptajöfnuðinn við útlönd. Hina litlu aukningu þjóðarútgjalda má algerlega þakka því, að fjármunamyndun minnkaði á árinu um 7,5%, og er það þriðja árið í röð, sem fjármunamyndunin lækkar í hlutfalli við þjóðarframleiðslu. Hlutfallslega naæði fjármunamyndunin hámarki á árinu 1975, þegar hún nam 34%. af þjóðarframleiðslu, en síðan hefur hún lækkað stig af stigi, þar til á síðasta ári, þegar hún nam 26% af verðmæti þjóðarframleiðslunnar. Hlutfallsleg samneyzlan um 2%. eða helmingi hægar en þjóðartekjur, en svipuð þróun hafði einnig átt sér stað árið áður. Aukningu þjóðarút- gjalda haldið í skefjum Þær tölur, sem nú hafa verið raktar um framleiðsluaukningu og helztu þætti þjóðarútgjalda á árinu 1978, sýna, að þrátt fyrir verðbólgu og efnahagslegan óróa tókst að halda aukningu þjóðarút- gjalda svo í skefjum, að verulegur bati gat átt sér stað í viðskiptajöfnuði. I hlutfalli við þjóðarframleiðslu reyndist viðskiptajöfnuður á árinu hagstæður um l, 5%, en árið áður hafði viðskiptahallinn numið 2,6% af þjóðarframleiðslu. Þótt verulegur hluti þessa bata hafi stafað að lækkun útflutningsvörubirgða, er hér vissulega um þakkarverðan árangur að ræða eftir langvarandi tímabil viðskipta- halla og versnandi stöðu þjóðarbúsins út á við. Mun ég nú víkja nokkru nánar að helztu þáttum í þróun greiðslujafnaðar á árinu 1978. Heildarverðmæti útflutnings nam 176 milljörðum króna á síðasta ári, en það samsvaraði 21,5% verðmætisaukningu miðað við árið 1977, ef reiknað er til sama meðalgengis bæði árin. Mestu munar hér um verðmætisaukningu út- fluttra sjávarafurða, sem nam 26% á árinu, og lagðist þar allt á eitt, 5% aukning framleiöslumagns, 4% hækkun erlends verðlags og mjög veruleg lækkun útflutningsvörubirgða, en á árinu tókst m. a. að selja miklar skreiðarbirgðir, sem legið höfðu óseldar frá árunum 1976 og 1977. Útflutningur á áli jókst á árinu um 11%, einkum vegna hækkandi verðlags, en verðmætisaukning annars iðnaðarút- flutnings nam aðeins 6% frá fyrra ári. Verðmæti vöruinnflutnings jókst mun minna en útflutningur á árinu, eða aðeins um 5,2%, reiknað á sama meðal- gengi bæði árin. Innflutningur sérstakra fjárfestingarvara, einkum skipa, dróst verulega saman á árinu, en einnig varð nokkur lækkun á olíuinnflutningi. Verð- mæti annars innflutnings jókst hins vegar um 13,7%, en sé tekið tillit til hækkunar innflutningsverðlags í erlend- um gjaldeyri, hefur magnaukning al-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.