Morgunblaðið - 10.05.1979, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAI1979
23
kerfinu. Tveir fulltrúar gamla
kerfisins, Ólafur Jóhannesson og
Lúðvík Jósepsson, hefðu ráðið
sköpulagi stjórnarinnar. Okkar
samningamenn stóðu þessum
kerfisköllum ekki á sporði. Fyrir
það líður allt þjóðfélagið í dag.
Þess vegna varð þessi ríkisstjórn
ekki upphaf nýs tíma, heldur
síðasta stjórn gömlu haftakarl-
anna.
VG sagði slagorðið „Samningar
í gildi“ hafa verið óraunhæft frá
upphafi. Stefnumið sú, sem
Svavar Gestsson viðskiptaráð-
herra viðri í Þjóðviljanum (3%
grunnlaunahækkun, vísitöluþak,
uppskurð á tilteknum samning-
um) sé sú sama og Geir
Hallgrímsson hafi reynt að fylgja
fram í febrúar-maílögum 1978.
Þangað hafi SvG teymt kosninga-
loforð Alþýðubandalagsins og
þannig hafi GH fengið skoðana-
bróður úr óvæntri átt. Þessi leið
hafi hins vegar reynzt ófær 1978
og svo muni enn verða.
Átta punktar Lúð-
víks Jósepssonar
Geir Hallgrímsson (S) svaraði
ýmsum atriðum, sem fram höfðu
komið í umræðunni. Hann minnti
á, að niðurgreiðslur á nauðsynj-
um, sem draga eigi verulega úr í
ár og næsta ár, skv. fjárlögum og
yfirlýsingum, hafi verið fjár-
magnaðar með aukinni skatt-
heimtu á almenning. Fólk hafi
verið látið greiða niður vísitölu, og
þar með eigið kaup, í hærri skött-
um. .Niðurgreiðslurnar hafi vegið
þungt í vísitölu, en skattarnir
ekkert. Ríkisstjórnin hafi nú sjálf
ákveðið að tína af sér þessa
niðurgreiðslu-skrautfjöður.
Þá minnti GH á 8 punkta LJó í
Kjartan: Kauphækkunarkapp-
hlaup hættulegt.
Þjóðviljanum í dag, sem sýndi
klögumálin og samstöðuna á
stjórnarheimilinu. í fyrsta punkti
væri þaklyftingin færð í reikning
fjármálaráðherra. I öðrum pk. er
sagt að þaklyfting launa hafi
þegar verið í drögum forsætisráð-
herra að efnahagsfrumvarpi.
Þessum drögum hafi Alþýðu-
flokkurinn viljað fylgja eftir
óbreyttum (3 p.). Fjármálaráð-
herra hafi básúnað „í krafti þessa
dæmalausa kjaradóms", að lyfta
ætti þakinu af öllum opinberum
starfsmönnum, eins og LJó, orði
það (6. p). Forsætis- og dómsmála-
ráðherra Framsóknarfl. hafi ekki
séð ástæðu til að vísa þessum
dæmalausa úrskurði undir æðri
dómstól (7. p.). Þaklyfting í
borgarstjórn hafi hins vegar verið
gerð áður en efnahagslögin voru
sett, svo sú gerð hafi ekki brotið
gegn neinum lögum (9. p.)!
GH vék að því, að forsætisráð-
herra sagði, að stefnan í launa-
málum væri óbreytt. Skv. upphaf-
legri stefnu hafi þó ekki átt að
krukka í grunnlaun, eins og falist
hefði í samkomulagi við BSRB,
sem nú hafi verið fellt. Þá megi og
minna á, að umsamin grunnlaun
bankamanna o.fl. hafi verið tekin
af í löggjöf, og fáist ekki aftur, að
Fundahöldum ber að fagna
sögn ráðherra, nema með nýjum
samningum. Öll stefna ríkis-
stjórnarinnar frá því kaup var
hækkað í september sl. hafi við
það miðast, að ná því aftur niður,
með margvíslegum hætti, sbr.
vísitölusjónspilið. Ég legg ekki
dóm á, hvort þessar aðgerðir hafi í
öllum tilfellum verið rangar, sýni
aðeins fram á tvískinnunginn og
hræsnina, þegar borið er saman
við þau loforð, sem gefin voru
fyrir kosningar, og þær stað-
hæfingar þá, að launaþróun hefði
ekki áhrif á verðlagsþróun í land-
inu.
GH rakti fjölmörg önnur dæmi,
bæði um tvískinnung stjórnar-
flokkanna í launamálum og inn-
byrðis átök þeirra, sem og
sameiginlegan árangur, sem bezt
hafi verið lýst í ræðu stjórnar-
þingmannsins Vilmundar Gylfa-
sonar. Sagði hann það tónskáld
enn ófundið, sem gæti samið það
tónverk, þann göngumars, er fengi
stjórnarflokkana til að ganga í
takt í nauðsynlegum aðgerðum í
þjóðfélaginu.
Öskurþingmennska
Svavar Gestssonviðskiptaráð-
herra sagði GH mega vera vissan
um, að til hans yrði ekki leitað um
að sveifla tónsprota fyrir
stjórnarliðið. Til þess hefði hljóm-
sveitarstjórn hans verið of
neikvæð í tíð fyrri stjórnar. Hann
sagðist og ósammála í öllum
meginatriðum staðhæfingum
Vilmundar Gylfasonar um orsakir
þess, hvers vegna BSRB-sam-
komulagið var fellt. Nefna mætti
þær orsakir: 1) Stríð það, sem
staðið hafi milli stjórnarflokk-
anna, og m.a. hafi komið fram í
öskurþingmennsku, hafi ekki orð-
ið til að styrkja ríkisstjórnina út á
við, 2) flugmannasamninga, sem
spillt hafi samstöðu um launa-
stefnu, 3) stórir hópar
BSRB-manna hafi ekki trú á því
að verkfallsréttur styrki
samningsaðstöðu þeirra, 4) Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi beitt áhrif-
um sínum innan BSRB, flokkspóli-
tískt, þó ekki vilji hann eyrna-
marka of marga BSRB-menn
undir þann flokk. Orsökin sé ekki
sú, eins og VG gefi í skyn, að
samráðið við launamenn hafi
ibrugðizt, heldur, að það hafi ekki
verið nógu náið.
SvG sagði VG reyna að fleyta
kerlingar á lítilli þekkingu í flókn-
um málum, sem leiddi til þess, að
hann setti sig í skipsrúm með Geir
Hallgrímssyni á ráðstöfunarskútu
febrúar-maí-ráðstafana 1978.
Þetta væri alrangt, byggt á rang-
túlkun eða misskilningi. VG
minnti sig, í málflutningi og
afstöðu til ýmissa áhrifahópa í
landinu, á Margaret Thatcher,
hina brezku.
Fundi var frestað síðdegis en
reiknað með kvöldfundi.
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi svar frá BSRB til
birtingar í blaðinu:
Fram hefur komið í blöðum hjá
Pétri Péturssyni fordæming á
fundahöldum BSRB úti á landi. í
tilefni af þessu er rétt að upplýsa
eftirfarandi.
Þann 8. mars eða tveim vikum
áður en samkomulagið við fjár-
málaráðherra, er gert samþykki
stjórnar BSRB að efnt yrði til
almennra kynninga- og umræðu-
funda víðsvegar um land fyrir
félagsmenn í samtökunum. Hafa
slíkir fundir verið haldnir talsvert
reglulega allt frá árinu 1970.
Um þetta segir í ákvörðun
bandalagsstjórnar frá 8. mars: „A
þessum fundum verði m.a. kynnt
samningsréttarmálið, umsögn
stjórnar BSRB um efnahagsfrum-
varpið, kjaramálin, svo sem 3%
hækkun 1. apríl, uppsögn samn-
inga og viðhorf til kröfugerðar. —
Leitað verði samstarfs við aðildar-
félög bandalagsins um fundahöld
á þeirra vegum af sama tilefni."
Var öllum bandalagsfélögum
skrifað strax daginn eftir um
fundahöldin og frá þeim er skýrt í
Ásgarði, blaði BSRB, sem fór í
prentun 26. mars s.l. Eftir gerð
samkomulagsins 23. mars varð
það vitanlega brýnasta fundaefnið
á kynningafundunum.
Ræðumenn á fundum voru eins
og jafnan áður úr stjórn BSRB og
samninganefnd. Var samninga-
nefndarmönnum, sem voru and-
stæðir samkomulagi við fjármála-
ráðuneytið eða sátu hjá við af-
greiðslu málsins, gefinn kostur á
að taka þátt í kynningu málsins
úti á landi sem framsögumenn.
Samtökin Andóf ‘79 munu ekki
hafa verið stofnuð fyrr en 14.
apríl, og frá þeim var ekki skýrt í
blöðum fyrr en eftir að fyrstu
fundir BSRB voru búnir og allir
aðrir tilkynntir opinberlega með
ræðumönnum. — Engin tilmæli
komu til BSRB frá neinum aðilum
um viðbótarframsögumenn á
fundunum, en þeir voru opnir
öllum félagsmönnum í BSRB með
fullu málfrelsi og m.a. kom Pétur
Pétursson á nokkra fundi, sem
boðað var til af BSRB eða banda-
lagsfélögum.
Sleggjudómar um, að framsögu-
menn hafi sýnt „einhliða kynn-
ingu“, „skoruðu á félagsmenn að
samþykkja þetta, kæfðu allar and-
ófsraddir sem heyrðust" eru alger-
lega ósannir og geta þeir best um
það svarað, sem hlýddu á mál-
flutninginn á fundunum. Á fjöl-
mörgum fundum lýstu nefnilega
þeir, sem annars voru andstæðir
samkomulaginu því yfir í lok
fundanna, að kynningin af hálfu
BSRB hafi verið mjög málefnaleg.
Fundahöldum um málefni
samtakanna ber að fagna og sam-
tök eins og BSRB mega ekki draga
úr slíku starfi í framtíðinni.
Á undanförnum árum hefur oft
verið deilt á stéttarfélög fyrir að
hafa of lítið samband við félags-
menn.
Nú er deilt á BSRB fyrir að
Svar frá BSRB
vegna skrifa
um fundi á
vegum BSRB
halda fundi. í því sambandi er þá
rétt að fram komi, að á fundum á
undanförnum árum víðsvegar um
land hefur komið fram almenn
ánægja með þessi fundahöld.
Auðvitað kosta fundahöld mikla
sjálfboðavinnu forustumanna
BSRB, bæði stjórnarmanna og
samninganefndarmanna og einnig
kosta þau peninga, en þar er um
að ræða greiðslur fyrir auglýsing-
ar og ferðakostnað. Ekki þýðir að
boða til funda án þess að auglýsa
þá. Ferðir vegna funda til að
kynna samkomulagið hafa kostað
6—700 þúsund krónur. Þessi
fundahöld voru eingöngu auglýst í
Ríkisútvarpinu og með
veggspjöldum á vinnustöðum.
Kostnaðurinn vegna auglýsing-
anna er 1.118.000 krónur.
Allir félagsmenn BSRB, sem til
þekkja, vita, að einmitt hinir
almennu fundir og félagsmála-
námskeið á undanförnum árum,
hafa gert samtökin að lifandi og
virkum stéttasamtökum.
Önundur Ásgeirsson:
Orkubúskapur á íslandi
I erindi, sem birt var í Morgun-
blaðinu 24. marz s.l., var fjallað
nokkuð um ofangreint efni.
Upplýsingar, sem þar voru gefnar
um notkun innlendrar orku hér á
landi, voru teknar eftir hagtölum
útgefnum af BP. Komið hefir í ljós,
að þessar upplýsingar voru ekki
réttar, og með því að jafnan ber að
hafa það er sannara reynist, eru
neðangreindar leiðréttingar gerð-
ar:
Jafnframt hefir Orkustofnun nú
breytt reiknisaðferðum sínum við
útreikning á orkunotkun í hita-
veitum, þannig að orka er nú
aðeins reiknuö í nettó-magni, eins
og hún kemur fram i endanlegri
notkun. Er tekið tillit til þessara
breyttu aðferða einnig í tölum
þeim, sem gefnar eru hér að neðan.
Samanburðurinn er í gigawatts-
stundum (GWH) á ári og jafngildi
þeirra í þúsundum olíutonna jafn-
gilda tólf gigawattsstundum
(GWH)áári.
ORKUBOSKAPUR 1977 GWH Jafngildi olíutonna JL
Raf magnsno tkun 2.602 217.000 22.3
Hitaveitunotkun ca. 2.000 166.000 17.0
Alls: Innlend orka 4.602 383.000 39.3
Olíunotkun 7.104 S92.000 60.7
11.706 975.000 100.0
ORKUBOSKAPUR 1978 Rafmagnsnotkun 2.673 223.000 22.1
Hitaveitunotkun ca. 2.200 183.000 18.1
Alls: Innlend orka 4.873 406.000 40.2
Olíunotkun 7.236 603.000 59.8
12.109 1009.000 100.0
Til samanburðar er birt hér að neðan tafla, er sýnir olíunotkun á
íbúa í nokkrum löndum og olíunotkun sem hlutfall af heildarorku-
notkun:
Orkunotkun alls
I mil.lónum tonna Olíunotkun Milj. olíu- tonn 1977
1000 íbúar tonn Olíu- tonn 1977 Tonn p.a./ íbúa Tonn/ íbúa Olía/ helld %
ísland 1977 220 0.592 2.69 0.975 4.43 ■ 60.7
Island 1978 220 0.603 2.74 1.009 4.59 59-8
Danmörk 5.088 16.6 3.26 20.5 4.02 81.1
Noregur 4.042 8.8 2.17 28.7 7.10 30.5
Svíþjóð 8.255 28.2 3.41 51.1 6.19 55.0
Holland 13.853 37.6 2.71 74.4 5.37 50.4
Bretland 55.852 92.3 1.65 212.2 3.79 43.5
V-Þýzkaland 61.396 137.1 2.23 260.4 4.24 52.6
Bandaríkin 216.817 867.3 4.00 1853.3 8.54 46.8
Portúgal 9.753 7.1 0.72 10.2 1.04 69.2
Sovétríkin 258.932 395.0 1.52 1070.0 4.13 36.8
Áætlað er, að miðað við íbúafjölda á íslandi hafi neðangreindur
hluti þjóðarinnar notið hitaveitu: Árið 1977: 61% — 1978:65%
Má frá þessum tölum og raunverulegri notkun til húsakyndingar
á þessum árum reikna olíusparnað hitaveitunnar í landinu þannig:
Til húsakyndingar Hitaveitur Tll hitunar
raunvantleK nptlcun .lafnglldl oliu Alls
Tonn j Tonn t Tonn %
1977 106.100 39 166.000 6l 272.100 100
1978 97-000 35 180.100 65 277.100 100
Nú má reikna olíusparnað hitaveitnanna eftir því einingarverði
pr. tonn, sem menn kunna að óska sér.
Barn á siúkrahúsi
Hjúkrunarskóli íslands
gengst fyrir ráðstefnu n.k.
laugardag um „Barn á sjúkra-
húsi“. Fjallað verður um við-
íangsefnið: „Hvernig má auka
vellíðan og flýta fyrir bata
barns á sjúkrahúsi“. I fréttatil-
kynningu frá Hjúkrunarskóla
íslands segir svo um ráðstefn-
una:
„Þetta viðfangsefni hefur ver-
ið í brennidepli víða um lönd að
undanförnu, en lítið verið um
það fjallað hér á landi.
Undirbúningsnefnd ráðstefn-
unnar taldi það mjög knýjandi
að hefja umræðu um þetta mál-
efni og þannig vekja athygli
fólks á, að huga ber raunhæft að
andlegri velferð barnsins á
sjúkrahúsinu. Ráðstefnan er
haldin í Hjúkrunarskóla íslands
og hefst kl. 9.00 f.h. með því að
Hertha W. Jónsdóttir hjúkrun-
arkennari, formaður undirbún-
ingsnefndar, setur ráðstefnuna.
María Finnsdóttir hjúkrunar-
fræðingur heldur fyrirlestur um
„Barn á sjúkrahúsi". Hörður
Bergsteinsson barnalæknir talar
um „Samband foreldra og barna-
læknis“ — Sigríður Björnsdóttir
myndlistarmaður heldur fyrir-
lestur um „Gildi skapandi starfs
fyrir sjúka barnið" (Creative
therapy), og síðan mun Grétar
Marínósson sálfræðingur tala
um „Áhrif sjúkrahúsvistar á
hegðun og námsárangur barna“.
Eftir hádegi munu foreldrar
segja frá eigin reynslu af sjúkra-
húsvist barna sinna. Starfað
verður í starfshópum og verða
niðurstöður lagðar fram og
ræddar í lok ráðstefnunnar.
Fundarstjóri verður Aldís
Friðriksdóttir hjúkrunarkenn-
ari.
12. maí er alþjóðlegur dagur
hjúkrunarfræðinga og hafa al-
þjóðleg samtök hjúkrunarfræð-
inga (I.C.N.) beint þeim tilmæl-
um til hjúkrunarfræðinga um
heim allan að þeir vinni opinber-
lega að verkefni tengdu barnaár-
inu og er þessi ráðstefna fram-
lag Hjúkrunarskóla íslands til
þess.“