Morgunblaðið - 22.05.1979, Page 5

Morgunblaðið - 22.05.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1979 Þú fænð 40% launahækkun á þessu ári! 107% veröbólga Laun allra landsmanna hækka um 40% á þessu ári. Því miður er það ekki vegna hærri tekna þjóðarinnar, heldur vegna verðbólgunnar, og kjarabótin því engin! Ef gengið verður að einum þriðja hluta af kröfum yfirmanna á farskipum, og aðrir launþegar fá sambærilega hækkun, verður verðbólgan 107% í maí á næsta ári. Tuttugu á viku Lágar tölur um skráð atvinnuleysi segja okkur ekki allan sann- leikann um ástandið í landinu. Landflótti fullhraustra manna og kvenna segir líka sína sögu. Tuttugu íslendingar flytjast í hverri viku til útlanda umfram aðflutta. Þetta jafngildir því, að allir íbúar á Höfn í Hornafirði flyttust á brott á rúmlega einu ári. Engin tekjuaukning Aukning á tekjum þjóðarinnar í fyrra var aðeins 3%, en samkvæmt spá Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu verður tekjuaukning þjóðar- innar aðeins 1,5%, sem er minna en í nokkru öðru landi, sem stofn- unin fylgist með. Því miður bendir margt til þess að tekjuaukning verði alls engin. Ríkið hiröir helminginn Það er Ijóst að launafólk hefur ekkert gagn af launahækkunum, sem eru jafnharðan teknar af þeim aftur. Slíkt leiðir aðeins til aukinnar verðbólgu. Laun geta ekki hækkað meira en tekjur þjóðarinnar í heild, og allra síst þegar ríkið sjálft tekur til sín næstum helming þeirra. Ekki bætir það úr skák að nýleg hækkun á innkaupsverði olíu mun kosta 30 þúsund milljónir á ári. Hvaö getum við gert? Við viljum stöðva verðbólguna, efla heilbrigt atvinnulíf, og auka tekjur þjóðarinnar svo að grunnlaun geti hækkað. Þess vegna þurfa allir landsmenn að taka höndum saman um stöðugleika í atvinnulífinu, - annars dragast þjóðartekjurnar saman og lífskjör okkar allra halda áfram að versna. Á síðastliðnu ári hækkuðu erlendar skuldir íslendinga um 11 milljónir á hverri klukkustund. Á meðan þú last þessa auglýsingu jukust því erlendar skuldir um 400 þúsund krónur!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.