Morgunblaðið - 22.05.1979, Page 11

Morgunblaðið - 22.05.1979, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI1979 11 Júpiter Elliða, sem fórst laugarda|rin io. febrúar 1962. Bjarni á sér merkilega reynslu af fyrirbærum, sem hann getur ekki skýrt og hefur aldrei í hámæli, og eru þó sum þeirra næsta furðuleg. Bjarni var þá kominn á Júpiter (ex Gerpi) og slóaði út af Jökli í foráttuveðri. Það er nú fyrst fremur einkennilegt að sú var venja Bjarna að slóa sjaldan lengi á sama stað, heldur reyna að færa sig undan veðrinu og leita fyrir sér á slóð þar sem veður væri hægara, veiðiveður. I þetta skipti var hann búinn að slóa án þess að koma út veiðarfæri í tvo sólar- hringa. Svo var það síðara hluta laugardagsins 10. febrúar, að hann hafði verið uppí brú og var að fara inn til sín í skipstjóraherbergið. Loftskeytamaðurinn hafði lagt sig en skilið útvarpstækið eftir í gangi inni í klefa sínum lokuðum. Við dyrnar á herbergi skipstjór- ans var hátalari, ef hann vildi hlusta á útvarpið. Hátalarinn hafði verið lokaður, barnatími í útvarpinu og Bjarni hafði enga löngun til að hlusta á hann, en nú brá svo við að um leið og hann gengur fram hjá hátalaranum kveikir hann á honum og um leið er sagt: „Skip á sömu slóðum og Elliði eru beðin að veita honum aðstoð." Þetta var sem sé niðurlag neyðartilkynningu og hefði Bjarni opnað hálfri mínútu síðar eða alls ekki, er alveg óvíst, hvenær Júpitersmenn hefðu heyrt til- kynninguna, kannski ekki fyrr en þeir fóru að hlusta á veðrið og fréttirnar um kvöldið og þá hefði allt verið um seinan. Það er náttúrulega ekki að orðlengja það, að Júpitermenn náðu sambandi við Elliða og fengu upplýsingar um, hversu komið væri ásamt staðarákvörðun. Það reyndust 25 sjómílur á milli skip- anna. Þrátt fyrir að það væru 10 vindstig og stórsjór, var sett á fulla ferð og keyrt með öllum vélarkrafti og aldhei slegið af, hversu djúpt sem skipið fór í verstu ólögunum. Það var byrjað að keyra kl. 18.00 en tveimur og hálfum tíma síðar eða um kl. 20.30, var Elliði í augsýn og af því má sjá, að það hefur ekki verið dregið úr ferð þótt gutlaði á Júpiter. Tæpara mátti heldur ekki standa, Elliði var að sökkva. Það björguðust í þessu hafróti 26 menn og þetta þótti frækileg og giftusamleg björgun og hafði Bjarni þau orð um í blaðaviðtali: „Þetta tókst með guðs hjálp.“ Margt á ég enn ósagt um þennan skipstjóra minn og síðar samstarfsmann í útgerð. Eftir að Bjarni hætti til sjós 1964 tók hann að starfa við útgerðina í landi. Hann varð meðeigandi í Júpiter h.f. 1946 og í stjórn félagsins. Minna fannst mér þessi maður ekki eiga skilið en eignast hlut í því fyrirtæki, sem hann hafði svo vel unnið, ef hann kysi það. Það verk, sem kom í hans hlut að sinna var umsjón með skipunum og hefur farið úr hendi sem vænta mátti af honum. í 44 ár höfum við Bjarni starfað saman til sjós og lands. Það er engum skyldara en mér að senda honum afmæliskveðju og votta af glöðu geði hversu mikils ég met hann. Hinnar ágætu konu Bjarna, Elísabetar Hjartardóttur Guðmundssonar skipstjóra í Hnífsdal, minnist ég ekki hér sem vert væri né barna hans ágætra, en Bjarni hefur verið gæfumaður í heimilislífi sínu. Vonandi gefst mér tækifæri til að minnast betur konu hans á öðrum stað. Hér læt ég nægja að óska Elísabetu og börnunum til hamingju með afmælisbarnið og þakka Elísabetu það heimili sem hún hefur búið þessum afreksmanni. Tryggvi Ófeigsson. Ljósin. Bæring Cecilsson Aðalfundur Sparisjóðs Eyrarsveitar í Grundarfirði. Grundarfjarðar- kirkju gefin gjöf Nýlega átti Sparisjóður Eyrar- sveitar 25 ára afmæli. Sparisjóðurinn hefur í aldar- fjórðung annast fyrirgreiðslu í lánamálum Grundfirðinga. Með tilkomu sjóðsins var lagður snar þáttur til þeirrar öru uppbygging- ar sem þar var hafin. í tilefni afmælisins var ákveðið að færa Grundarfjarðarkirkju 500 þús. að gjöf í byggingarsjóð henn- ar. Kemur gjöfin sér vel þar sem enn hefur ekki verið lokið við smíði kirkjunnar. ÍOO ára afmæli Það kann að þykja ókurteisi að láta í ljós þá skoðun, að margan annan kostnað skuli fyrr lagt út í hjá Ríkisútvarpinu og Sinfóníu- hljómsveit Islands en að halda upp á afmæli erlendra kóra. Slíkt væri vitanlega mjög við hæfi ef um meiri háttar listviðburð væri að ræða. Því miður var því ekki til að dreifa að þessu sinni þó allt færi þokkalega fram. Það heyrð- ist á nokkrum hljómleikagestum að ekki væri hægt að sjá mikinn áhuga hjá kórsöngvurum í Reykjavík og kenndu þeir um fámenni á þessum tónleikum. Það vill svo til að undirritaður þekkir marga í þeim hópi og heldur því fram að söngáhugamenn hafi. fjölmennt á tónleikana. Aftur á móti vantaði marga, sem frekar hefðu mátt votta Norðmönnum og verndara hljómleikanna, Hans Hátign Ólafi konungi V., virðingu sína eins og t.d. stjórnmálamenn, embættismenn og annað há- menningarfólk. Tónleikarnir hóf- ust á Hjalarljóði eftir Eivind Groven, ekki óskemmtilegu verki en sennilega of sérstæðu fyrir norska menningu til að ná að flytja mál sitt til íslenskra hlust- Tónllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON enda. Annað verkið á efnis- skránni var Inngangur og Passa- caglia eftir Pál ísólfsson. Það mátti greinilega heyra að stjórn- andinn, Arnulf Hegstad, hafði ekki á valdi sínu að hleypa lífi í verkið því það streymdi fram í litleysi og jöfnum hraða og ekki bætti úr skák, að meðlimir sveit- arinnar skiluðu sínum hlut ekki af glæsileik. Forvígismaður ís- lenskrar tónmenntar og einn af skapendum Sinfóníuhljómsveitar íslands, Páll Isólfsson, á inni betri flutning hjá Sinfóníuhljóm- sveit Islands en hlustendur upp- lifðu á þessum tónleikum. I næsta verki sýndi það sig að hljómsveit- in getur gert vel og einnig að stjórnandinn var nú heima og stýrði flutningnum á norska listahátíðarforleiknum eftir Johan Svendsen af þó nokkrum myndugleik. Síðasta verkið á tónleikunum var svo Völuspá, eftir David Monrad Johansen. Fræðimenn halda því fram að Völuspá hafi verið ort í Noregi nokkrum öldum fyrir landnám Islands og er það einkennilegt að sá flýjandi lýður skuli hafa varð- veitt verkið, þrátt fyrir að átrún- aður sá er verkið nærist af, ætti sér rétt rúmlega 100 ára tilvist í landinu. Nú koma afkomendur höfundar kvæðisins og syngja það í þýðingu og þó verkið sé á köflum ekki óskemmtilega unnið, er það einn allsherjar misskiln- ingur á innihaldi kvæðisins. Ceciliaforeningen söng verkið þokkalega en án allra tilþrifa. Einsöngvarar voru Elísabet Er- lingsdóttir, Sólveig Björling og Kristinn Hallsson og fóru þau vel mað það litla sem ætlað er ein- söngvurum. Jón Ásgeirsson. Morgunhanínn f rá PHIUPS Góðan dag. Eg er morgunhaninn frá Philips. Ég er bæði útvarp og klukka og get því vakið ykkur hvort sem er með hringingu eða morgunútvarpinu (sef aldrei yfir mig). Ég get líka svæft ykkur með útvarpinu á kvöldin, sé sjálfur um að slökkva þegar þið eruð sofnuð og geng alveg hljóðlaust. y Es. Þar fyrir utan, þótt ég segi sjálfur frá, er ég svo geðugur og fallega byggður að það er blátt áfram gaman að vakna með mig w við hlið sér. _ PHILIPS heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.