Morgunblaðið - 22.05.1979, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
114. tbl. 66. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins
MENNTASKÓLINN við Hamrahlíð útskrifaði síðastliðinn laugardag föngulegan hóp stúdenta, en próf standa enn yfir í flestum
menntaskóianna. Þessa hressilegu fimmmenninga hitti ljósmyndarinn glaða og reifa á förnum vegi um helgina. Frá vinstri: Bjarni
Guðmundsson, Iðunn Leifsdóttir, Gunnlaugur Snædal, Brynja Birgisdóttir og Björn Blöndal. Sjá fréttir um brottskráningu stúdenta úr MH og
Flensborgarskóla í Hafnarfirði á bls. 20 og viðtal við dúxinn úr MH á bls. 2 Ljósm. Mbl. Kristinn.
Bandaríkm vltt
á olíur áðstefnu
París, 21. maí. Reuter. AP.
VESTRÆN iðnríki voru í dag hvött til að spara olíu í tvöfalt ríkari mæli en
hingað til í ljósi þess að olíuverð hækkaði um tuttugu og fimm af hundraði á
síðasta ári og sérfræðingar spá enn frekari skorti og verðhækkunum á að
minnsta kosti næstu átján mánuðum. Þá gagnrýndu fulltrúar Evrópuþjóða
Bandaríkjamenn fyrir ráðdeildarleysi og sóun eldsneytis.
Orkumálaráðherrar tuttugu orkufrekustu Vesturlandaþjóða funduðu í
París til að ræða árangur sinn í tilraunum til að draga úr eftirspurn eftir olm
umfimmaf hundraði einsogsömuaðilar höfðu áður ákveðiðað stefnt skyidi að.
Völd Trudcaus virðast hanga á
hláþraði.
Kosið íKanada
ÞINGKOSNINGAR fara fram í
Kanada í dag, þriðjudag, og er
mjög tvísýnt um úrslitin er
marka má nýjustu skoðanakann-
anir. Flokkur Trudeaus forsætis-
ráðherra, Frjálslyndi flokkurinn
hefur átt síminnkandi vinsæld-
um að fagna frá þvi að þing var
rofið 26. marz og gera íhalds-
menn, undir forystu Joe Clarks,
sér góðar vonir um að hnekkja
veldi frjálslyndra sem stjórnað
hafa landinu lengst af í 43 ár.
Sjá „Hnffjafnt f Kanada*
bls. 46-47.
Ráðherra orkumála hjá
Efnahagsbandalaginu, Guido
Brunner, var hvassyrtur í
ræðu sinni og benti á að
Bandaríkjamenn eyddu tvöfalt
meiri olíu á mann heldur en
Evrópuþjóðir. Veittist hann að
bandarísku öldungadeildinni
fyrir að hafna sparnaðaráætl-
un Carters forseta. í svari sínu
sagði bandaríski olíumálaráð-
herrann James Schlesinger að
Evrópumenn yrðu að hafa
biðlund unz Bandaríkjamenn
hefðu gert upp við sig „hvort
olían er verulegt vandamál
eða ekki“. Það kom m.a. fram í
ræðu hans að byltingin í íran
hefði minnkað framboð olíu á
heimsmarkaði um 1,5 til 2
milljónir tunna á dag.
Schlesinger svaraði þeirri við-
vörun Brunners að hvorki
heimsmarkaðurinn né al-
þjóðagjaldeyriskerfið gæti
staðið undir núverandi inn-
Khomeini hótar
N. Y. þmgmanni
New York, Tcheran, 21. maí. Reuter. AP.
BANDARÍSKA öldungadeildarþingmanninum Jacob Javits og
konu hans hefur verið séð fyrir traustum lögregluverði eftir að
Ayatollah Khomeini og aðrir íransleiðtogar lýstu þau glæpaþý og
sögðu þau hafa verið kölluð fyrir byltingardómstól í íran.
íranska stjórnin sagði Javits Gyðingaleiðtoga og meðreiðarsvein
íranskeisara. Þingmaðurinn er einn þeirra sem forgöngu höfðu
um að öldungadeiidin fordæmdi grimmdarlegar blóðsúthellingar.
Byltingarstjórnin í Teheran eftir byltinguna. Mæltist
brást heiftarlega við gagnrýni íranska utanríkisráðuneytið
Bandaríkjamanna á sunnudag m.a. til þess að Bandaríkjamenn
og líkti Khomeini bandarískum gerðu ekki út sendiherra til
stjórnvöldum við „særðan snák“ Irans á næstunni og sagði um að
ræða „grófleg afskipti" af
írönskum innanríkismálum
Utanríkisráðherra írans,
Ibrahim Yazdi, reyndi hins
vegar að draga broddinn úr
ágauð stjórnarinnar í dag og
sagði yfirlýsingu öldunga-
deildarinnar ekki geta skoðast
sem ögrun við þjóð sína. „Stjórn-
málasamband við Bandaríkin
veltur á Bandaríkjamönnum,"
sagði ráðherrann.
flutningi Bandaríkjamanna á
olíu með því að segja að þrátt
fyrir að Samtök olíuinnflutn-
ingsríkja (OPEC) og Alþjóða-
orkustofnunarinnar (IEA)
gerðu sér grein fyrir sam-
drættinum hefði hvorki öld-
ungadeildin né bandarískur
almenningur skilið það enn.
Fulltrúar Dana og Svía
hvöttu til þess að orkumála-
ráðherrar framfylgdu neyðar-
áformum IEA um olíujöfnuð
meðal aðildarríkjanna, færi
eftirspurn verulega fram úr
framboði. Töldu þeir slíka
alþjóðakvöð gera stjórnvöld-
um auðveldara fyrir í fram-
kvæmt sparnaðaráætlana
heimafyrir. í dag virtist þó
fátt benda til að tillagan fengi
hljómgrunn á ráðstefnunni.
Carstens
fœr loks
keppinaut
Bonn. 21. maí. Reuter.
VESTUR-ÞÝZKI Jafnaðar-
mannaflokkurinn mun útnefna
frambjóðanda á elleftu stund úr
eigin röðum til að keppa við
forsetaefni kristilegra demó-
krata. dr. Karl Carstens. að því
er talsmaður flokksins sagði á
mánudagskvöld. Svo virtist sem
Carstens yrði einn um hituna
eftir að jafnaðarmönnum mis-
tókst í dag að afla stuðnings
tillögu sinni um ópólitískan
frambjóðanda.
Aðalritari jafnaðarmanna-
flokksins, Egon Bahr, sagði í
sjónvarpsviðtali að flokkur sinn
hefði ákveðið frambjóðandann en
nafn hans yrði hins vegar ekki
kunngert fyrr en á þriðjudag.
Tilkynning Bahrs kom stuttu eftir
að vísindaheimspekingurinn
.Carl-Friedrich von Weizsácker
hafnaði áskorun um að gefa kost á
sér.
Kosið verður á miðvikudag.
Prófessor dr. Karl Carstens.
Bítlar
léku
3 saman
London. 21. maí. AP.
ÞRÍR félagar hinna gamal-
kunnu popphljómsveitar „The
Beatles“. Ringo Starr. Paul
McCartney og George Harri-
son. komu saman og léku f
giftingarsamkvæmi gítarleik-
arans Eric Claptons um helg-
ina að því er brezka blaðið
„Daily Express“ sagði í dag.
Fjórði Bítillinn, John Lennon.
var fjarstaddur. Blaðið segir
þá félaga hafa sungið gömul
og vinsæl lög í samkva'minu
þar sem voru um tvö hundruð
gestir.
Þá herma fréttir að Paul
McCartney hafi í dag undirrit-
að stærsta plötusamning sem
tónlistarmaður hefur nokkru
sinni gert við útgáfufyrirtæki.
McCartney mun hafa samið við
„Columbia Records" um að
gera níu breiðskífur á næstu
þremur árum og fær hann um
sex hundruð og sjötíu milljónir
íslenzkra króna fyrir vikið að
viðbættum allt að tuttugu og
átta af hundraði söluhagnaðar.