Morgunblaðið - 22.05.1979, Page 1

Morgunblaðið - 22.05.1979, Page 1
48 SÍÐUR 114. tbl. 66. árg. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins MENNTASKÓLINN við Hamrahlíð útskrifaði síðastliðinn laugardag föngulegan hóp stúdenta, en próf standa enn yfir í flestum menntaskóianna. Þessa hressilegu fimmmenninga hitti ljósmyndarinn glaða og reifa á förnum vegi um helgina. Frá vinstri: Bjarni Guðmundsson, Iðunn Leifsdóttir, Gunnlaugur Snædal, Brynja Birgisdóttir og Björn Blöndal. Sjá fréttir um brottskráningu stúdenta úr MH og Flensborgarskóla í Hafnarfirði á bls. 20 og viðtal við dúxinn úr MH á bls. 2 Ljósm. Mbl. Kristinn. Bandaríkm vltt á olíur áðstefnu París, 21. maí. Reuter. AP. VESTRÆN iðnríki voru í dag hvött til að spara olíu í tvöfalt ríkari mæli en hingað til í ljósi þess að olíuverð hækkaði um tuttugu og fimm af hundraði á síðasta ári og sérfræðingar spá enn frekari skorti og verðhækkunum á að minnsta kosti næstu átján mánuðum. Þá gagnrýndu fulltrúar Evrópuþjóða Bandaríkjamenn fyrir ráðdeildarleysi og sóun eldsneytis. Orkumálaráðherrar tuttugu orkufrekustu Vesturlandaþjóða funduðu í París til að ræða árangur sinn í tilraunum til að draga úr eftirspurn eftir olm umfimmaf hundraði einsogsömuaðilar höfðu áður ákveðiðað stefnt skyidi að. Völd Trudcaus virðast hanga á hláþraði. Kosið íKanada ÞINGKOSNINGAR fara fram í Kanada í dag, þriðjudag, og er mjög tvísýnt um úrslitin er marka má nýjustu skoðanakann- anir. Flokkur Trudeaus forsætis- ráðherra, Frjálslyndi flokkurinn hefur átt síminnkandi vinsæld- um að fagna frá þvi að þing var rofið 26. marz og gera íhalds- menn, undir forystu Joe Clarks, sér góðar vonir um að hnekkja veldi frjálslyndra sem stjórnað hafa landinu lengst af í 43 ár. Sjá „Hnffjafnt f Kanada* bls. 46-47. Ráðherra orkumála hjá Efnahagsbandalaginu, Guido Brunner, var hvassyrtur í ræðu sinni og benti á að Bandaríkjamenn eyddu tvöfalt meiri olíu á mann heldur en Evrópuþjóðir. Veittist hann að bandarísku öldungadeildinni fyrir að hafna sparnaðaráætl- un Carters forseta. í svari sínu sagði bandaríski olíumálaráð- herrann James Schlesinger að Evrópumenn yrðu að hafa biðlund unz Bandaríkjamenn hefðu gert upp við sig „hvort olían er verulegt vandamál eða ekki“. Það kom m.a. fram í ræðu hans að byltingin í íran hefði minnkað framboð olíu á heimsmarkaði um 1,5 til 2 milljónir tunna á dag. Schlesinger svaraði þeirri við- vörun Brunners að hvorki heimsmarkaðurinn né al- þjóðagjaldeyriskerfið gæti staðið undir núverandi inn- Khomeini hótar N. Y. þmgmanni New York, Tcheran, 21. maí. Reuter. AP. BANDARÍSKA öldungadeildarþingmanninum Jacob Javits og konu hans hefur verið séð fyrir traustum lögregluverði eftir að Ayatollah Khomeini og aðrir íransleiðtogar lýstu þau glæpaþý og sögðu þau hafa verið kölluð fyrir byltingardómstól í íran. íranska stjórnin sagði Javits Gyðingaleiðtoga og meðreiðarsvein íranskeisara. Þingmaðurinn er einn þeirra sem forgöngu höfðu um að öldungadeiidin fordæmdi grimmdarlegar blóðsúthellingar. Byltingarstjórnin í Teheran eftir byltinguna. Mæltist brást heiftarlega við gagnrýni íranska utanríkisráðuneytið Bandaríkjamanna á sunnudag m.a. til þess að Bandaríkjamenn og líkti Khomeini bandarískum gerðu ekki út sendiherra til stjórnvöldum við „særðan snák“ Irans á næstunni og sagði um að ræða „grófleg afskipti" af írönskum innanríkismálum Utanríkisráðherra írans, Ibrahim Yazdi, reyndi hins vegar að draga broddinn úr ágauð stjórnarinnar í dag og sagði yfirlýsingu öldunga- deildarinnar ekki geta skoðast sem ögrun við þjóð sína. „Stjórn- málasamband við Bandaríkin veltur á Bandaríkjamönnum," sagði ráðherrann. flutningi Bandaríkjamanna á olíu með því að segja að þrátt fyrir að Samtök olíuinnflutn- ingsríkja (OPEC) og Alþjóða- orkustofnunarinnar (IEA) gerðu sér grein fyrir sam- drættinum hefði hvorki öld- ungadeildin né bandarískur almenningur skilið það enn. Fulltrúar Dana og Svía hvöttu til þess að orkumála- ráðherrar framfylgdu neyðar- áformum IEA um olíujöfnuð meðal aðildarríkjanna, færi eftirspurn verulega fram úr framboði. Töldu þeir slíka alþjóðakvöð gera stjórnvöld- um auðveldara fyrir í fram- kvæmt sparnaðaráætlana heimafyrir. í dag virtist þó fátt benda til að tillagan fengi hljómgrunn á ráðstefnunni. Carstens fœr loks keppinaut Bonn. 21. maí. Reuter. VESTUR-ÞÝZKI Jafnaðar- mannaflokkurinn mun útnefna frambjóðanda á elleftu stund úr eigin röðum til að keppa við forsetaefni kristilegra demó- krata. dr. Karl Carstens. að því er talsmaður flokksins sagði á mánudagskvöld. Svo virtist sem Carstens yrði einn um hituna eftir að jafnaðarmönnum mis- tókst í dag að afla stuðnings tillögu sinni um ópólitískan frambjóðanda. Aðalritari jafnaðarmanna- flokksins, Egon Bahr, sagði í sjónvarpsviðtali að flokkur sinn hefði ákveðið frambjóðandann en nafn hans yrði hins vegar ekki kunngert fyrr en á þriðjudag. Tilkynning Bahrs kom stuttu eftir að vísindaheimspekingurinn .Carl-Friedrich von Weizsácker hafnaði áskorun um að gefa kost á sér. Kosið verður á miðvikudag. Prófessor dr. Karl Carstens. Bítlar léku 3 saman London. 21. maí. AP. ÞRÍR félagar hinna gamal- kunnu popphljómsveitar „The Beatles“. Ringo Starr. Paul McCartney og George Harri- son. komu saman og léku f giftingarsamkvæmi gítarleik- arans Eric Claptons um helg- ina að því er brezka blaðið „Daily Express“ sagði í dag. Fjórði Bítillinn, John Lennon. var fjarstaddur. Blaðið segir þá félaga hafa sungið gömul og vinsæl lög í samkva'minu þar sem voru um tvö hundruð gestir. Þá herma fréttir að Paul McCartney hafi í dag undirrit- að stærsta plötusamning sem tónlistarmaður hefur nokkru sinni gert við útgáfufyrirtæki. McCartney mun hafa samið við „Columbia Records" um að gera níu breiðskífur á næstu þremur árum og fær hann um sex hundruð og sjötíu milljónir íslenzkra króna fyrir vikið að viðbættum allt að tuttugu og átta af hundraði söluhagnaðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.