Morgunblaðið - 22.05.1979, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1979
Kjaradómur um kaup verzlunarmanna:
Samkomulag um breytta flokka-
skipan fyllt út með kauptölum
NIÐURSTAÐA kjaradóms varðandi laun verzlunarmanna var kynnt í
gær, en dómurinn var upp kveðinn 17. maí sl. í samningum, sem
undirritaðir voru 10. apríl sl., komu verzlunarmenn og viðsemjendur
þeirra sér saman um skipan í launaflokka og skýringar við þá og að
kjaradómur skyldi ákveða kaupið þannig að hann lyki störfum eigi síðar
en 15. maí og að úrlausn hans skyldi gilda frá 10. apríl 1979 til 1.
desember n.k.
í niðurstöðum kjaradómsins segir að dómurinn hafi litið á það sem
sitt eina hlutverk að ákveða kaup í launaflokkum þeim, sem aðilar hefðu
komið sér saman um, en sú launaflokkaskipan gæfi einnig rúm fyrir
starfsaldurshækkanir.
Síðan segir: (Millifyrirsagnir eru Mbl.)
„Eftir að hafa yfirfarið gögn aðila rækilega og rætt málið sín á milli á
mörgum fundum og utan funda komast dómarar að eftirfarandi
niðurstöðu:
Mánaðarkaup í hverjum flokki verði:
FI. Byrj.l. Laun eftir:
2 ár 4 ár 6 ár 7 ár
1. 163.000
2. 168.400
3. 173.700 180.600 187.800 196.300 206.000
4. 182.200 189.500 197.100 206.000
5. 190.500 198.100 206.000
6. 197.200 207.100 217.500
7. 209.100 219.600 230.600
8. 221.100 232.200 243.800
9. 233.200 244.900 257.100
10. 245.200 257.500 270.400
11. 257.300 270.200 283.700
12. 270.200 283.700 297.900
13. 282.400 296.500 311.300
14. 299.300 314.300 330.000
Auk be»s skulu Htarfsmenn eftir 15 ára störf skv. samningi verslunarmanna hjá sama
vinnuveitanda hækka um einn launaflokk midad við röðun starfa þe«8, sem þeir gegna þá.
beir nkuli síðan taka laun eftir efsta þrepi þess launaflokks. Retfla þessi skal að því er varðar
3.-5. launaflokk vera framkvæmd þannÍK að starfsfólk. sem tekur laun samkvæmt þessum
fiokkum. skal þá taka laun eftir efsta þrepi 6. launafiokks.
beir er taka laun samkvæmt 14. launaflokki skulu eftir 15 ára starfsaldur hjá sama
vinnuveitenda fá kr. 348.700.- f mánaðarkaup.
Líta verður á þessa ákvörðun í
því ljósi að hér er verið að ákveða
kaup í launaflokkum eftir áður
gerðu samkomulagi um breytta
gerð flokkaskipunar.
Samkvæmt yfirlýsingu, sem
fylgdi samningi aðila frá 10. apríl
s.l. (og rakin er hér að framan) eru
þeir sammála um að hækkanir,
sem verða á kauptöxtum við þessa
niðurstöðu, m.a. vegna breyttrar
flokkaskipunar, gefi ekki tilefni til
hækkunar á greiddu kaupi til
þeirra, sem fyrir samningsgerðina
fengu greitt jafnhátt kaup eða
hærra en hinn nýi launataxti
tilgreinir fyrir viðkomandi störf.
Þá benda framlögð gögn til þess
að verulegar yfirborganir eigi sér
stað hjá mörgum fyrirtækjum
einkum í efstu launaflokkunum.
Málflutningur aðila hnígur einnig
í þá átt. Samkvæmt þessu er hér
verið að færa kaup samkvæmt
launatöxtum til samræmis við
raunverulegt greitt kaup og er
þetta aðalforsenda dómsins.
Við ákvörðun um kaup í hverj-
um flokki launastigans hefur verið
reynt að hafa hliðsjón af því sem
greitt er samkvæmt taxta BSRB
fyrir sambærileg störf. Taka
verður fram að mat á því hver
störf séu sambærileg hjá ríkinu og
vinnuveitendum, sem eru aðilar
þessa samnings, er miklum erfið-
leikum bundið þar sem hlutverk
stofnana ríkisins og fyrirtækja
almennt er í mörgum tilfellum
ólíkt. Þá ber þess ennfremur að
gæta, að eins og segir í yfirlýsingu
aðila, sem fylgdi samningi þeirra
og getið er hér að framan, þá er
það ágreiningslaust að starfsheiti
eru notuð á mjög mismunandi
hátt, eftir aldri, verkefnum og
umsvifum fyrirtækja. Þetta á sér
einnig stað hjá hinu opinbera.
Þessa verður þannig að gæta
þegar starfsheiti samnings þessa
eru skýrð og borin saman við
starfsheiti eftir öðrum samning-
um.
Þá hefur hér einnig verið höfð
hliðsjón af launum þeim sem gilda
á almenna vinnumarkaðinum yfir-
leitt, en þó haft í huga að verslun-
armenn búa yfirleitt ekki, frekar
en opinberir starfsmenn, við af-
kastahvetjandi launakerfi, sem
óneitanlega hefur mikil áhrif á
afkomu annarra la'unþega.
Reykjavík kaupir
Reynisvatn á nær
300 milljónir kr.
REYKJAVÍKURBORG heíur sam
þykkt að kaupa jörðina Reynisvatn.
sem liggur Reykjavfkurmegin á
miirkum Reykjavíkur og Mosfells-
sveitar. Kaupverðið er um 280
milljónir króna. Seljandi er Þóra
Jónsdóttir á Reynisvatni og börn
hennar. Reynisvatn sem horgin
kaupir. er liðlega 500 hektarar að
stærð. ásamt vatnasvæði, en áður er
huið að selja um 125 hektara af
jörðinni fyrir sumarhústaði og
annað.
Samkvæmt upplýsingum Björns
Friðfinnssonar fjármálastjóra
Reykjavíkurborgar er kaupverð húsa
á jörðinni samkvæmt brunabóta-
mati, sem er 36 milljónir króna, en
síðan er verð hvers hektara krónur
440 þúsund krónur. Jörðinni fylgir
samnefnt Reynisvatn og hluti af
Langavatni og 14% laxveiðiarður af
Ulfarsá.
— Jörðin er keypt til þess að
leggja í landbanka framtíðarinnar,
eins og Björn orðaði það, en hluti
jarðarinnar hentar fyrir byggð,
annað fvrir útivistarsvæði. Jörðin er
fyrir utan skipulagt byggingarsvæði
borgarinnar. Kaupin eru gerð með
þeim skilmálum að 40 milljónir
króna eiga að greiðast á árinu, en
afgangurinn á næstu 5 árum, þ.e.
1980-1984.
Þóra Jónsdóttir, sem er 88 ára
gömul, mun búa á jörðinni áfram svo
lengi, sem hún kýs.
Úrskurður
kynntur
Ljósm. Emilía.
Kjaradómsmenn kynna úrskurð dómsins í gær: (f.v.) Skuli J.
Pálmason, Sigríður Vilhjálmsdóttir, Hrafn Bragason formaður
dómsins, Magnús L. Sveinsson, Björn Þórhallsson og Einar
Árnason. Einn kjaradómsmanna, Torfi Ásgeirsson, var ekki
viðstaddur kynningu úrskurðarins í gær og ekki heldur Sveinn
Snorrason sem flutti málið fyrir hönd viðsemjenda verzlunar-
manna, en lengst til hægri á myndinni er Böðvar Pétursson, sem
flutti málið fyrir verzlunarmenn.
FLOKKA-
SKIPAN
1. Aðstoðarfólk f verlzunum
og skrifstofum innan 17 ára
aldurs.
2. Afgreiðslufólk og skrif-
stofuf. í 3 mán.
3. Afgreiðslufólk A
Símavörður II
Skrifstofufólk A
1. Afgreiðslufólk B
Bifreiðastjóri
Fólk við pökkun daghlaða
Miðasölufólk
Skrifstofufólk B
5. Afgreiðslufólk C
Innheimtumaður
Lagermaður
Símavörður I
Skrifstofufólk C
6. Tölvu- og skýrsluvélafólk II
Tryggingaritari III
7. Afgreiðsíufólk D
Skrifstofufólk D
Lagerstjóri II
Flugafgreiðslumenn II
Tryggingaritari II
8. Gjaldkeri II
Sölumaður II
Fluafgreiðslumaður I
Tölvu- og skýrsluvélafólk I
Fólk sem selur farmiða til
annarra landa
Tryggingasölumaður III
Tryggingaritari I
9. Lagerstjóri
Aðstoðarafgreiðslustjóri í
flugafgreiðsiu
Tjónaskoðunarmaður
Defectrice
10. Afgreiðslufólk E
Skrifstofufólk E
Kerfisfræðingur III
Verziunarstjóri III
Tryggingasölumaður II
Tjónauppgjörsmaður II
11. Sölumaður I
Tryggingasölumaður I
Tjónauppgjörsmaður I
Gjaldkeri I
Lyfjata>knir
Bókari I
Afgreiðslustjóri II í flug-
afgreiðslu
12. Deildarstjóri II
Verzlunarstjóri II
Fulltrúi II
Innkaupafulltrúi
Sölufulltrúi
Afgreiðslustjóri I í flug-
afgreiðslu
13. Kerfisfra“ðingur II
14. Aðalgjaldkeri
Deildarstjóri I
Kerfisfræðingur I
Sölustjóri
Aðalhókari
Verzlunarstjóri I
Við úrlausn þessa er miðað við
þau laun og launahlutföll, sem í
gildi voru á vinnumarkaðinum 11.
mars s.l.“
Þessi hluti dómsins er sam-
kvæmt tillögu þeirra dómara, sem
tilnefndir voru af yíirborgar-
dómaranum í Reykjavík, Hrafns
Bragasonar, Sigríðar Vilhjálms-
dóttur og Torfa Ásgeirssonar, en
dómarar þeir, sem tilnefndir voru
af málsaðilum, skrifuðu undir
dóm eftir tillögunni með bókun-
um, sem fara hér á eftir:
15 ára hækkunin réð
mestu
„Dómararnir Björn Þórhallsson
og Magnús L. Sveinsson lýsa því
yfir að þeir séu tilbúnir til að
skrifa undir dóm eftir tillögunni
með bókun sem þeir leggja fram.
Bókunin er svohljóðandi:
„Við teljum að dómurinn hafi
ekki nema að hluta litið til réttar
viðmiðunar við laun annarra sam-
bærilegra stétta í úrskurði sínum.
Á það sérstaklega við lokalaun í
3.-5. launaflokki þar sem m.a.
afgreiðslufólk, sem lokið hefur
prófi á viðskiptasviði á mennta-
skólastigi er staðsett.
Dómurinn miðar laun þessa
fólks við 5. launaflokk BSRB, en
enginn opinber starfsmaður stað-
næmist í lægri flokki, og er sá
flokkur því í raun lægsti launa-
flokkur BSRB eftir tiltekinn
starfstíma.
Afgreiðslufólk, sem vinnur hjá
ríkinu fær allt greidd laun skv. 7.
og 8. launaflokki BSRB og hefði
FÉLAGSFUNDUR í MjólkuríræA
ingafélagi íslands. scm haldinn var
í fyrradag, samþykkti tvær álykt-
anir. scm Morgunblaðinu hárust í
gær. Ályktanirnar cru svohljóð-
andi:
„Fundur haldinn í Mjólkurfræð-
ingafélagi íslands 20. maí 1979
styður þá ákvörðun stjórnar félags-
ins að samþykkja að sáttanefnd taki
að sér sáttaumleitanir í yfirstand-
andi kjaradeilu, ennfremur sam-
þykkir fundurinn að hafna frestun á
dómurinn átt að miða lokalaun í
3.-5. launaflokki verslunarfólks
við það, og laun í flokkunum þar á
eftir í því samræmi.
Einnig hefur dómurinn ekkert
tillit tekið til ýmissa kjaraatriða,
sem opinberir starfsmenn njóta
umfram verslunarfólk og eru
beint ígildi-peningalauna, svo sem
sérstakar orlofsgreiðslur, fæðis-
hlunnindi o.m.fl., og vísast í því
sambandi til greinargerðar
verslunarmanna með dómkröfum.
Launahækkun sú sem dómurinn
ákveður eftir 15 ára starf veldur
því þó, að við greiðum ekki at-
kvæði gegn úrskurði dómsins í
heild."
Nauðsyn að niðurstaða
fáist
„Dómararnir Einar Árnason og
Skúli J. Pálmason lýsa því yfir að
þeir séu tilbúnir til að skrifa undir
dóminn eftir tillögunni með bókun
sem þeir leggja fram. Bókun
þeirra er svohljóðandi:
„Við undirritaðir fulltrúar
vinnuveitenda í dómi þessum,
lítum svo á, að tillaga hinna
þriggja óháðu dómenda, sem
Borgardómur skipaði til setu í
dóminum, feli í sér meiri launa-
hækkanir til einstakra starfshópa
en leiðir af samræmingu launa-
taxta við raunverulega greidd
laun á því kjaramálasviði sem hér
er fjallað um.
Með hliðsjón af nauðsyn þess að
niðurstaða fáist í þessu máli
munum við ekki greiða atkvæði
gegn tillögunni".
verkfallinu. Hins vegar lýsir fundur-
inn yfir vilja félagsins til að ganga
til samninga."
„Félagsfundur í Mjólkurfræðinga-
félagi íslands haldinn 20. maí 1979
samþykkir að veita undanþágu til
sölu á helmingi þeirra mjólkurvara
sem að öðru jöfnu er til sölu.
Undanþága þessi gildir til mið-
nættis aðfararnótt 24. maí n.k. Er
þetta gert í trausti þess að samn-
ingsaðilar gangi í alvöru til samn-
inga fyrir þann tírna."
Samþykktu undanþágu