Morgunblaðið - 22.05.1979, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1979
Eftirgjöf tolla og söluskatts:
Lán úr ríkissjóði
- viðhaldskostnað-
ur ráðherrabíla
Ólafur Ragnar Grímsson (Abl) kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í efri deild Alþingis
í gær og gerði að umræðuefni fríðindi ráðherra, varðandi kaup á nýjum bifreiðum.
eftirgjöf innflutningstolla og söluskatts, lán úr ríkissjóði til bifreiðakaupa og
ríkisviðhald á einkabílum þeirra. Það er krafa okkar til ráðherra, sagði Ól. R. Gr.. að
þeir láti í té forystu. ekki aðeins í stefnumálum heldur einnig í siðferðilegum efnum.
A sama tíma og launafólk verður að leggja á sig margvíslegar fórnir: byrðar í
kjaramálum. samdrátt í félagslegum framkvæmdum og rýrari fjárveitingar í
menntamálum. er óhófseyðsla ráðherra í bifreiðamálum ekki við hæfi.
Rannsókn
ól.R.Gr. sagði bæði fjármála-
ráðherra og ráðuneytisstjóra
fjármálaráðuneytis hafa neitað
að gefa fjárhags- og viðskipta-
nefnd efri deildar umbeðnar upp-
lýsingar um lán úr ríkissjóði til
bifreiðakaupa. Ráðuneytis-
stjórinn hefði tjáð nefndinni að
ríkið hefði keypt 5 bifreiðar til
afnota fyrir ráðherra, sem ríkið
sjálft ætti og ræki, 1 ráðherra
hefði nýtt heimild til eftirgjafar
á innflutningstollum og sölu-
skatti og 1 hefði fengið 3ja m. kr.
lán úr ríkissjóði til bifreiða-
kaupa. Hverjir hefðu nýtt eftir-
gjöf og lán hefði hinsvegar ekki
fengist upplýst hjá ráðuneytis-
stjóranum.
Ól.R.Gr. sagði að reglur þær,
sem nú giltu um þessi mál, að
tillögu fjármálaráðuneytis, væru
þessar: 1) Ríkið eigi og reki
bifreiðar, sem nýttar væru í þágu
embættis og vera ættu sérmerkt-
ar, 2) Ráðherra leggi til bifreið
með starfi sínu, sem ríkið bæri
allan rekstrarkostnað af, auk
\0'7> fyrningarfjár (miðað við
endurkaupsverð). í því tilfelli
ætti ráðherra og kost á 3 m. kr.
láni til 10 ára með 19% vöxtum,
skv. ákvörðun fjármálaráðherra
um lánakjör. Síðar hafi upp-
lýsingar um lánakjör breytzt í
22% , sem enn væru þó 11% lægri
en lánakjör, sem almenningur
mætti almennt lúta að.
Upplýsingar frá
forsætisráðuneyti
Ól.R.Gr. sagði Gísla Árnason,
ftr. í forsætisráðuneyti, hafa
verið samvinnufúsari við þing-
nefndina. Hann hafi upplýst að
keyptar hafi verið bifreiðar til 5
ráðuneyta, sem ríkið ætti: utan-
ríkisráðuneytis, sjávarútvegs-
ráðuneytis, félagsmálaráðuneyt-
is, auk þess sem pantaðar hafi
verið bifreiðar til viðskiptaráðu-
neytis og dómsmálaráðuneytis.
Bifreiðarnar væru í verðflokkum
frá 5.5 m.kr. upp í 8.5 — 9 m.kr.
Dýrastur væri bíll ætlaður dóms-
málaráðherra, enda hafi hann
lýst því yfir, sagði Ól.R.Gr. að
vegakerfið íslenzka væri með
þeim hætti, að ekki væri leggj-
andi á það í bíl úr lægri verð-
flokki. Hvað má þá almenningur
segja, spurði ól.R.Gr. en hér er
um fimmfalt verð skódabifreiðar
að ræða.
ÓI.R .Gr. sagði forsætisráð-
herra hafa nýtt heimild til eftir-
gjafar á innflutningstollum. Það
er skv. reglum þar um, sem núv.
ríkisstjórn hefði þó ætlað að
breyta. Það er hinsvegar ekki í
samræmi við þá siðferðilegu for-
ystu, sem við væntum af þessari
ríkisstjórn.
ól.R.Gr. vék síðan að láni
ríkissjóðs til bifreiðakaupa og
leiddi að því líkur, að sá, sem í
hlutverki lánþegans væri, færi
með embætti fjármálaráðherra.
Sá sami ráðherra hafi ákveðið
lánakjörin sem væru í samræmi
við lágvaxtastefnu, miðað við
lánakjör hins almenna borgara.
Nú vil ég spyrja hæstv. -fjár-
málaráðherra, hvorrt svo sé, sem
ég hefi getið mér til, að hann sé
viðkomandi lántakandi? Eg nýti
mér rétt til slíkrar spurningar á
þingi, þar eð upplýsingar hafa
ekki fengist með öðrum hætti hjá
réttum embættisaðilum.
Viðgerðar-
kostnaður
:.bá vék ÓI.R.Gr. að umtali
um óeðlilegan viðhaldskostnað,
sem ríkið hafi greitt fyrir einka-
bíla ráðherra, er þeir hafi átt
fyrir en síðan endurnýjað og
jafnvel selt með auknu verðmæti,
er slíkri endurnýjun fylgdi. Las
hann af því tilefni upp svohljóð-
andi bréf til yfirskoðunarmanna
ríkisreiknings, dags. í gær (21/5):
„Ég undirritaður, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, alþingismaður, óska
eftir þvi að yfirskoðunarmenn
ríkisreikninga, sem sérstakir
trúnaðarmenn Alþingis, kanni
ítarlega allan rekstrarkostnað
ríkisins vegna bifreiða ráðherra á
árinu 1978 og fyrstu fjórum
mánuðum þessa árs ásamt öllum
fylgiskjölum. Sérstaklega verði
athugaður viðgerða- og endur-
nýjunarkostnaður þeirra bif-
reiða, sem nokkrir ráðherrar í
núverandi ríkisstjórn áttu áður
en þeir urðu ráðherrar, létu
endurnýja á ýmsan hátt á kostn-
að ríkisins og seldu síðan þannig
uppgerða nokkrum vikum síðar.
Söluverð hinna gömlu einkabif-
reiða var þá vegna endurpýjunar-
innar orðið mun hærra og kom
allur söluhagnaður í hlut þessara
ráðherra sem svo létu flestir ríkið
kaupa handa sér nýjar bifreiðar.
Það er nauðsynlegt að athugun á
endurnýjunarkostnaði hinna
gömlu einkabifreiða taki til allra
fylgiskjala, þ.m.t. viðgerðarreikn-
inga frá bifreiðaverkstæðum.
Um leið og ég óska eftir því að
yfirskoðunarmenn ríkisreikninga
framkvæmi nú þegar slíka athug-
un á öllum gögnum, fer ég þess
formlega á leit að þeir sendi síðan
öllum alþingismönnum niður-
stöðurnar, svo að unnt sé að meta
hvort, og þá í hve ríkum mæli,
hér sé á ferðinni umframkostnað-
ur hins opinbera sem hafi við
sölu einkabifreiðanna fært við-
komandi ráðherrum umtalsverð-
an hagnað.“
Reglur sem
gilt hafa
Tómas Árnason,
fjármálaráðherra. sagði m.a. að
þær reglur hefðu gilt um langan
aldur, fram til 1970, að ríkið hefði
lagt ráðherrum til bíla og greitt
allan rekstur þeirra. Með reglu-
gerð, sem birt væri í stjórnartíð-
indum 8/1. 1970, hafi þetta
breytzt. Þá hafi ráðherrar haft
tvo valkosti: 1) Að ríkið legði
þeim til bifreið, eins og áður hafi
tíðkast. 2) Að ráðherrar keyptu
eigin bíla, með eftirgjöf innflutn-
ingstolla og söluskatts, auk láns,
sm svarað hafi til innkaupsverðs
(þá 350 þús.) til 10 ára. — Síðan
1970 hafa ráðherrar, og aðrir,
sem undir hliðstæð fríðindi hafi
fallið, nýtt síðari valkostinn.
Þær reglur, sem nú gilda, voru
ræddar í ríkisstjórn í vetur, og
ekki ágreiningur um þær. Lána-
kjör eru 22% og ákvarðaði ég
þau. TÁ sagði það reglu fjármála-
ráðuneytis að gefa allar umbeðn-
ar upplýsingar varðandi málefni,
en hinsvegar ekki um menn, þ.e.
einkahagi. Þeirri reglu hafi hann
fyigt. Hinsvegar geti hann upp-
lýst það sem að honum persónu-
lega snúi, en hann hafi nýtt
heimild, sem í gildi sé, og ágrein-
ingur hafi ekki staðið um, til3
mkr. láns, varðandi bílakaup.
Þegar allt kemur til alls þá hygg
ég það hagkvæmara og ódýrara
fyrir ríkið, að ráðherrar eigi sína
bifreiðar en ríkið leggi þeim þær
til.
TÁ sagðist hafa átt bifreið,
þegar hann varð ráðherra, en
hinsvegar ekki fjármálaráðu-
neytið. Ég notaði því þessa eigin
bifreið í starfi mínu. Þetta var
nýleg bifreið í góðu ástandi sem
haldið hefur verið við með venju-
legum hætti, án þess að nokkur
óeðlilegur kosnaður hafi komið
til.
TÁ sagðist geta tekið undir
það, að fríðindi beri að endur-
skoða, hjá prófessorum eins og
ólRGr jafnt sem ráðherrum,
þann veg að laun í þjóðfélaginu
miðuðust við eðli og ábyrgð
starfa, en væru án allra sérfríð-
inda. Ef slíkt ætti þá að spanna
allt ríkiskerfið, sem væri löðrandi
í fríðindum.
Með ryðgati
Kjartan Jóhannsson,
sjávarútvegsráðherra, kvaðst
hafa átt bifreið af Volvógerð, sem
hann hefði gert upp á eigin
reikning og látið skoða sérstak-
lega, áður en hún var nýtt í þágu
núverandi starfs síns. Bifreið
þessi hefði alls ekki verið gerð
upp fyrir sölu, eins Qg skilja
mætti af blaðafrásögn, heldur
seld með ryðgötum og beyglu.
Vonandi reyndist þó þessi 8 ára
bifreið nýjum eiganda vel, enda
af beztu tegund. KjJ taldi rétt og
eðlilegt að yfirskoðunarmenn
færu ofan í þessi mál öll, enda oft
hyggilegra að skoða mál áður en
fullyrðingum væri slegið fram.
Merkt ríkinu
Benedikt Gröndal (A) sagð-
ist í 7 mánuði hafa notað í
ráðherraembætti 9 ára eigin bíl,
amerískan, unz ráðuneytið hefði
lagt honum til nýjan. Bifreiðin
hafi verið nokkuð viðhaldsfrek.
Hin nýja bifreið sé merkt ríkinu í
bak og fyrir. Sú gamla sé enn
einkabíll hans og að sjálfsögðu
rekin af honum sjálfum. Hún var
hinsvegar lánuð ríkinu í 7 mánuði
og við henni tekið í svipuðu
standi. I þessu efni er ekkert að
fela, enda engar athugasemdir
gerðar af forsætisráðuneyti, sem
fer með bílamál ráðherra.
Leyndin verst
Agúst Einarsson (A) taldi þá
hlið versta í þessu máli, að
þingnefnd var neitað um upplýs-
ingar í embættiskerfinu, er
snertu meðferð ríkisfjármála.
Hamla bæri hinsvegar nafnbirt-
ingu í þessu máli, meðan það væri
enn á athugunarstigi
þingnefndar.
Hvers vegna
ekki frumvarp?
Tómas Arnason.
fjármálaráðherra. sagði aðeins
hafa fylgt hefð og reglum um
þessi mál. Ef þingmenn vildu
haga málum á annan veg væri
þeim í lófa lagið að flytja frum-
varp um skipan mála. Það hefðu
þeir ekki gert þó að þinglausnum
vaeri senn lokið.
Ráðherra veiti
fordæmi
ólafur Ragnar Grímsson
(Abl) sagði ráðherra hafa getað,
ef vilji hefði verið fyrir hendi,
gefið fordæmi um að nýta ekki
fríðindi. Síðan hefði mátt fylgja
þeirri afstöðu eftir og flytja
frumvarp um framtíðarskipan, í
jöfnunarátt í þjóðfélaginu. Ráð-
herra ætti t.d. ekki að njóta 11%
betri vaxtakjara en skattborg-
arar.
Ýmsir fleiri tóku til máls, m.a.
Stoingrímur Hermannsson,
landbúnaðarráðherra, sem tók í
svipaðan streng og fyrri ráð-
herrar, varðandi bílamál sín.
Alexander Stefánsson (F) sagði
misnotkun bifreiða í ríkiskerfinu
ná út um kerfið allt og væri hægt
að nefna mörg dæmi þar um.
Gott væri ef viðkomandi þing-
nefnd kannaði þau mál öll ofan í
kjölinn, og hefði tillögur um
bætta skipan tiltæka fyrir þing-
byrjun næsta haust.
Verktakastarfsemi á vellinum:
Rökstudd dag-
skrá samþykkt
í G/ER var samþykkt í
sameinuðu þingi. að viðhöfðu
nafnakalli, rökstudd dagskrá
varðandi tillögu til þingsálykt-
unar um úttekt á verktaka-
starfsemi á Keflavfkurflugvelli.
Tillagan var svohljóðandi:
„Með því að utanríkisráðu-
neytið hefur þegar stofnað til
athugunar og endurskoðunar á
fyrirkomulagi framkvæmda á
vegum varnarliðsins og í trausti
þess, að greinargerð ráðuneytis-
ins um slíka athugun verði lögð
fyrir utanríkismálanefnd tekur
Alþingi fyrir næsta mál á dag-
skrá.“
Með tillögunni greiddu at-
kvæði 30 þingmenn Fram-
sóknar- og Sjálfstæðisflokks.
Gegn tillögunni 23 þingmenn
Alþýðubandalags og Alþýðu-
flokks, 1 sat hjá (utanríkisráð-
herra) og 6 voru fjarverandi.
Fjármálaráðherra:
Þjóðfélagið löðr-
andi í fríindum