Morgunblaðið - 22.05.1979, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ1979
47
Kanada
Trudeau
Joe Clark
Ed Broadbent
inf;abaráttu og hamrað á nauðsyn
þjóðareiningar sem hann telur sig
geta tryntít vegna tengsla sinna
við Quebec og hreyfingu frönsku-
mælandi aðskilnaðarsinna þannig
að hann geti haldið henni í skefj-
um. Trudeau segir að einungis
styrk alríkisstjórn undir forystu
sinni geti átt fylgi að fagna í
Quebec og haldið hreyfingu að-
skilnaðarsinna í skefjum.
Clark hefur einbeitt sér að
efnahagsmálunum og gagnrýnt
8%. atvinnuleysi og 10% verðbólgu
sem Kanadamenn búa við. Hann
hefur sakað frjálslynda um
eyðslusemi og gagnrýnt „kerfið“
sem hann telur þungt í vöfum.
Trudeau hefur lofað sparnaðar-
ráðstöfunum og telur sig hafa
staðið sig vel með tilliti til ríkj-
andi efnahagsástands í heiminum.
Broadbent vill skipa nefnd til að
koma í veg fyrir ósanngjarnar
verðhækkanir.
Clark vill efla atvinnufyrirtæki
með skattaívilnunum og ný lög um
skattafrádrátt handa íbúðareig-
endum. Trudeau segir að það
mundi kosta þjóðina 17,5 millj-
arða dollara á ári og stingur upp á
hóflegri skattalækkun. Broadbent
vill skattafrádrátt handa láglaun-
uðum.
Trudeau hefur sagt að Clark sé
„lítilfjörlegur" og „hafi enga
stefnu", og að hann mundi beygja
sig fyrir vilja forsætisráðherra
aðskilnaðarsinna í Quebec, Rene
Levescue, eða annarra ráðríkra
fylkisleiðtoga. íhaldsmenn hvetja
til þess að dregið verði úr miðstýr-
ingu og að völd fylkjanna verði
aukin, en Clark segir að Quebec—
búar þurfi ekki að vera óánægðir
með þessi áform. Levesque hefur
heitið því að efna til þjóðarát-
kvæðis í Quebec í haust eða næsta
vor til að fá umboð til að semja
um sjálfstæði fylkisins.
Clark hefur lagt á það megin-
áherzlu að undir stjórn Trudeaus
á þessum áratug hafi Kanada siglt
í strand í efnahagsmálum og
Kanadamenn hafi snúizt gegn
öðrum Kanadamönnum. Vígorð
íhaldsmanna er: „Það er kominn
tími til að breyta til.“ Stjórnmála-
sérfræðingar telja að margir og
kannski flestir Kanadamenn séu
þessu sammála, en hiki við að fela
völdin Clark, sem er atvinnu-
stjórnmálamaður frá smábæ í
Alberta og hefur vakið litla hrifn-
ingu enda er hann bæði loðinn og
hikandi í flóknum stórmálum og
þetta hefur valdið kjósendum
áhyggjum.
Búizt er við að 75%. kjósenda
sem eru 14,5 milljónir greiði at-
kvæði í kosningunum. Frjálslynd-
ir hafa unnið síðustu fimm kosn-
ingar, þrjár þær síðustu undir
forystu Trudeaus, og stjórnað
landinu 36 af síðustu 43 árum.
Parfs. KIkhII Rwanda. 21. maf AP — Rrutrr
FRANSKA blaðið L’humanite hafði eftir vitni, að Bokassa keisari
hefði sjálfur verið viðstaddur fjöldamorðin á börnum, sem fram áttu
að hafa farið 18. aprfl. L'humanite gaf ekki upp nafn vitnisins, konu
sem ekki vildi láta nafn sfns getið en var nýkomin frá
Mið-Afrfku-keisaradæminu. Vitnið kvaðst ekki sjálft hafa verið
viðstatt en hafði sögur sínar eftir ættingjum barnanna og þeirra sem
komust lífs af. „Börnunum var staflað á vörubfla og síðan sett í litla
fangelsisklefa á milli 50 og 60 í hvern. Mörg barnanna dóu í klefunum
og ég hitti ungling, scm komst einn Iffs af en meö honum voru 25 börn.
Bokassa keisari skipaði börnunum að leggjast á götuna og síðan
skipaði hann bflstjóra að keyra yfir þau. Bflstjórinn féll saman og þá
barði Bokassa hann. Sfðan skipaði hann vörðunum að grýta börnin.
Lfk barnanna er dóu voru sfðan grafin skammt frá fangelsinu, ekki
langt frá franska sendiráðinu“.
„Engin börn voru myrt“, sagði
Bokassa, keisari í Kigali en þar
eru leiðtogar frönskumælandi
þjóða í Afríku samankomnir á
ráðstefnu.
„Það voru stúdentar við
háskólann í Jean-Bedel, sem mót-
mæltu skólagjöldum og neituðu
síðan að kiæðast skólabúningi. Ég
sagði við þá: „Allt í lagi, ef þið
viljið ekki vera í skólabúningi þá
gleymum við þessu". En raunar
klæðast þau núna skólabúningi",
sagði Bokassa. Hann neitaði þó
ekki ásökunum um, að stúdentar
við háskólann hefðu verið líf-
látnir. „í mínu landi kalla allir
mig pabba", sagði Bokassa við
blaðamenn.
Forseti Frakklands, Valery
Giscard d‘Estaing neitaði að eiga
fund með Bokassa fyrr en hann
hefði hrakið allar staðhæfingar
um fjöldamorð. Þá var tilkynnt að
tekið yrði fyrir efnahagsaðstoð
Frakka við Mið-Afríkukeisara-
dæmið þangað til skýringar hefðu
komið frá Bokassa.
Amnesty samtökin sögðu frá
fjöldamorðum í Mið-Afríku-
keisaradæminu í síðustu viku og í
dag tilkynntu samtökin að frekari
Flóttamenn
íkúlnaregní
Chantaburl. Thallandi. 21. mal. Reutrr.
KAMBÓDÍSKIR flóttamenn flýðu aftur til Thailands í kúlnaregni í
dag þegar thailenzkir landgönguliðar höfðu hrakið þá yfir landamær-
in að því er skýrt var frá í dag.
Landgönguliðarnir reyndu að
framfylgja þeirri stefnu ríkis-
stjórnarinnar að takmarka flótta-
mannastrauminn og senda
kambódíska borgara og hermenn
hliðholla ríkisstjórn Pol Pots
aftur yfir landamærin.
En þegar flóttamennirnir voru
reknir aftur yfir landamærin voru
hermenn nýju stjórnarinnar undir
forystu Víetnama aðeins um þrjá
km frá landamærunum. Skothríð
heyrðist og flóttamennirnir komu
aftur.
Thailenzk yfirvöld stóðu í dag
fyrir brottflutningi fólks frá
þremur þorpum og einangruðu-
svæðið til þess að reyna að ráða
við vandann sem er orðinn geysi-
mikill, bæði í pólitísku og mann-
legu tilliti. Yfirmenn hersins
héldu fund í Bangkok um málið,
en engin ákvörðun var tekin og
fleiri fundir eru boðaðir.
Thailendingar hafa ekki
viðurkennt ríkisstjórn Hen
Samrin sem Víetnamar styðja og
segjast fylgja algeru hlutleysi
gagnvart atburðum í Kambódíu.
En stjórnin i Phnom Penh hefur
sakað Thailendinga um að styðja
Rauðu Khmerana og hefur hert á
mótmælum sínum síðan 50.000 til
80.000 Kambódíumönnum var
hleypt inn í Thailand í síðasta
mánuði. Og leyft að fara til annars
hluta Kambódíu.
I síðasta hópnum eru um 40.000
flóttamenn, þar af nokkur þúsund
Bokassa vitni að
fj öldamorðunum?
gögn um fjöldamorðin hefðu bor-
ist. Samtökin sögðu að milli 50 og
100 börn hefðu verið myrt.
Þetta gerðist
1968 — Reynt að víta stjórn De
Gaulles á þingi — 10 milljónir
Frakka í verkföllum.
1967 —Óeirðir gegn Bretum í Hong
Kong.
1945 — Truman-kenningin um við-
nám gegn kommúnisma tekur gildi:
Bandaríkjaþing samþykkir 400
milljón dala fjárveitingu til Grikkja
og Tyrkja.
1913 — Þriðja Alþjóðasamband
kommúnista leyst upp.
1911 — Rahid Ali flýr frá írak.
1939 — Hitler og Mussolini undir-
rita „stálsamninginn“ um bandalag
Þjóðverja og ítala.
1929 — Konungur Afghanistans flýr
úr landi.
1923 — Stanley Baldwin myndar
stjórn íhaldsmanna í Bretlandi.
1918 — Þýzkar herflugvélar ráðast
á París.
1917 — Tisza greifi, forsætisráð-
herra Ungverja, segir af sér.
1882 — Bandaríkin og Kórea semja
um frið og vináttu.
99
Allir
vilja
gull”
London. 21. ma(. AP.
GULL seldist á nýju metverði
á peningamörkuðum í Evrópu
í dag vegna spákaupmennsku
og vaxandi kvíða vegna olfu-
skorts f heiminum.
Verð Bandaríkjadollars hélzt
stöðugt þrátt fyrir mikla sölu
Englandsbanka, vestur-þýzka
landsbankans og svissneska
landsbankans sem reyndu að
verja gjaldmiðla sína.
Verðið fyrir gullúnsuna
komst í 263.25 dollara, mesta
verð allra tíma, í London, og
hækkaði því um 6.875 dollara
síðan á föstudag.
„Allir vilja gull,“ sagði kaup-
sýslumaður í London.
Rauðir Khmerar og hann fór yfir
landamærin um helgina um 60 km
suður af Poipet, sem sýnir að
herliðið sem Víetnamar stjórna
sækir hratt og örugglega fram til
að binda enda á mótspyrnuna í
Vestur-Kambódíu.
Thailendingar óttast meðal
annars að herliðið sem Víetnamar
stjórna veiti flýjandi óvinum
sínum eftirför yfir landamærin.
Forsætisráðherra Thailands,
Kriangsak Chomanan, sagði
nýlega að Thailendingar mundu
ekki leyfa erlendu herliði að sækja
vfir austurlandamærin.
Fangaskipti
Tokyo. 21. maf. AP.
HANIHUA, hin opinbera frétta-
stofa Kína, tilkynnti í dag að
Kina og Víetnam hefðu hafið
fangaskipti. Skipst hafi verið á
særðum og veikum hermönnum.
Fréttastofan sagði að 120 víet-
nömskum hermönnum hefði ver-
ið sleppt lausum og að Víetnam
hefði sleppt 43 föngum.
Sendiherra
Venezúela
komst undan
San Salvador. 21. maí. AP. Reuter.
SENDIHERRA Venezúela og sjö
gfslar, sem hafa verið f haldi f
sendiráði Venezúela sfðan 11.
maf, sluppu úr sendiráðinu f gær.
Uppreisnarmennirnir, níu, sem
tóku sendiráðið, eru nú einir f
sendiráðinu. Uppreisnarmenn
halda einnig sendiráði Frakk-
lands og franska sendiherranum,
og nokkrum kaþólskum kirkjum.
Þeir krefjast að fimm leiðtogar
þeirra, sem eru f haldi. verði
látnir lausir.
1819 — „S.S. Savannah“, fyrsta
gufuskipið sem siglir yfir Atlants-
haf, fer frá Savannah, Georgíuríki,
til Liverpools, Englandi.
1810 — Uppreisn hefst í Nýju-Gran-
ada gegn Spánverjum.
1762 — Hamborgar-friður Svía og
Prússa undirritaður.
1706 — Orrustan um Ramillies:
Bretar aflétta umsátri Frakka um
Barcelona.
1629
1693 — Frakkar eyða Heidelberg
enn og fara ránshendi um Rínarhér-
uð.
1629 — Kristján IV neyddur til að
undirrita Lýbikku-friðinn.
1216 — Innrás Loðvíks VIII af
Frakklandi í Englandi við Stonor.
Afmæli: Richard Wagner, þýzkt
tónskáld (1813-1883) - Sir Arthur
Conan Doyle, brezkur rithöfundur
(1859—1930) — Olivier lávarður,
brezkur leikari (1907--).
Andlát: Martha Washington, for-
setafrú, 1802 — Augustin Thierry,
Ceausescu
í Madrid
Madríd. 21. maí. Reuter.
MICOLAE Ceausescu Rúmenfu-
forséti kom f dag f opinbera
heimsókn til Spánar og er fyrsti
þjóðhöfðingi kommúnistarfkis
sem hefur komið til landsins f
heimsókn.
Heimsóknin er talin sýna vax-
andi tengsl Spánverja við komm-
únistaríki síðan Franco einræðis-
herra lézt 1975. Heimsóknin sýnir
líka sérstöðu Rúmena meðal Aust-
ur-Evrópuríkja gagnvart Spán-
verjum.
22. maí
sagnfræðingur, 1856 — Ferdinand II
Sikileyjarkonungur 1859 — Victor
Hugo, rithöfundur, 1885 — Sir John
French, hermaður, 1925.
Innlent: Norðurreið Skagfirðinga
1849 — d. Sæmundur Sigfússon fróði
1133. Fógetinn á Bessastöðum,
Tómas Nikulásson drukknar við
sjöunda mann 1665 — Konungur
skipar nefnd til áð vinna að söfnun
og viðhaldi fornrita 1807 — Síðasti
fundur Kveldfélagsins, leynifélags í
Re.vkjavík, 1874 — Lög um kosninga-
rétt kvenna til hreppsnefnda og
sóknarnefnda 1882 — Fornritafélag-
ið hefur útgáfu íslendingasagna 1933
— Stjórnarskrárbreyting samþykkt
og leiðir af sér stjórnarskipti &
tvennar kosningar 1942 — Brezkt
herskip siglir á „Þór“ 1959 — f.
Lárus Sigurbjörnsson 1903 — Agnar
Kofoed Hansen 1869.
Orð dagsins: Ég geng hægt, en ég
geng aldrei aftur á bak — Abraham
Lincoln, bandarískur forseti
(1809-1865).