Morgunblaðið - 11.08.1979, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1979
19
Olíubandalag EBE
og Arabaríkja?
New York, 10. ágúst. AP.
RÍKI Efnahagsbandalags Evr-
ópu, EBE, og sex olíuframleiðslu-
ríki við Persaflóa hafa að undan-
förnu staðið í samningaviðræðum
um að koma á nánu sambandi
þessara aðila með langtfma olíu-
sölusamning f huga, að því er
segir f nýútkomnu hefti vikurits-
ins Business Week.
EBE-ríkin bjóða ýmsa tækni-
lega aðstoð, auk þess að þau
myndu hugsanlega koma Araba-
ríkjunum til aðstoðar ef til hern-
aðar kæmi, segir ennfremur í frétt
blaðsins.
Þessi frétt blaðsins hefur ekki
fengist staðfest, hvorki í höfuð-
stöðvum EBE í Brussel né hjá
olíuframleiðsluríkj unum.
Danifínnst drep-
inn í Ródesíu
Salisbury 9. ág. AP. Reuter.
SUNDURSKOTIÐ lík hálfþrí-
tugs Dana fannst f kvöld á svæði
f austurhluta Zimbabwe Ródes-
íu, þar sem skæruliðar hafa
verið atkvæðamiklir.
í frétt herstjórnarinnar í Sal-
isbury sagði að Daninn hefði
heitið Dan Pedersen og unnið við
landbúnaðarstörf í Chipingahér-
aði. Skæruliðar hafi rænt honum
þaðan og farið með hann til
stöðva sinna ekki ýkja langt frá
landamærunum við Mósambik,
en þar hafast við flokkar sem
lúta Mugabe.
Dan Pedersen var hálf þrítug-
Veður
víða um heim
Akureyri 9 skýjaó
Amslerdam 18 skúrir
AÞena 33 heióskírt
Barcelona 26 lóttskýjaó
Berlín 18 rigning
BrUssel 18 skýjað
Chicago 31 rigning
Feneyjar 24 skýjaó
Frankfurt 20 rigning
Genf 22 skýjað
Helsinki 18 skýjað
Jerúsalem 28 léttskýjað
Jóhannesarb. 25 lóttskýjað
Kaupmannah. 19 rigning
Las Palmas 24 lóttskýjað
Lissabon 28 lóttskýjað
London 19 léttskýjað
Los Angeles 32 heiðskírt
Madríd 31 léttskýjað
Mallorca 31 lóttskýjað
Miami 30 skýjað
Mœkva 19 léttskýjað
New York 31 heíðskfrt
Ósló 17 lóttskýjað
Parfa 19 skýjaö
Reykjavík 12 skýjað
Rio De Janeiro vantar
Rómaborg 32 heiöskírt
Stokkhólmur 20 skýjað
Tel Aviv 29 léttskýjað
Vancouver 24 léttskýjað
Vfnarborg 24 skýjaö
ur Kaupmannahafnarbúi en ekki
var vitað hversu lengi hann hefði
verið við störf í Ródesíu.
Einnig segir í fréttum frá
Salisbury að herflokkar Zimb-
abwe Ródesíu hafi í morgun gert
atlögu úr lofti að Francistown í
Na Botswana og hafi komið til
loftbardaga við flugvélar frá
Botswana.
Sjálfsmorðs-
sveitir PLO
Tel Aviv, 10. ágúst. AP.
EZAR Weizman varnarmálaráð-
herra ísraels sagði á ríkisstjórnar-
fundi í morgun að nú stæðu yfir
æfingar PLO skæruliða í Lýbíu með
það fyrir augum að fara sjálfs-
morðs árásarferðir á litlum flugvél-
um inn í ísrael. að því er ísraelska
útvarpið sagði í dag.
Útvarpið sagði að ísraelsmenn
væru þegar farnir að undirbúa
ýmsar varnaraðgerðir gegn þessum
„ófögnuði" eins og útvarpið nefndi
fyrirhugaðar árásarferðir skæruliða.
Hermt var í dag að ísraelskir
hermenn og hermenn úr röðum
hægrimanna í S-Líbanon hefðu í
morgun sprengt í loft upp bækistöð
skæruliða PLO í námunda við borg-
ina Týrus í S-Líbanon.
• •
Oflug sprenging
í miðborg Aþenu
Aþenu, 10. ágúst. AP.
GEYSILEGA öflug sprengja
sprakk í miðborg Aþenu f morgun
og olli miklum skemmdum á mann-
virkjum, en ekkert manntjón varð.
Nokkrir munu þó hafa slasast
lítillega að sögn lögreglunnar.
Tímasprengjunni hafði verið kom-
ið fyrir í aðalstöðvum strætisvagna
borgarinnar, en til allrar hamingju
var mjög fámennt í stöðinni á
þessum tíma.
Þegar síðast fréttist höfðu engin
samtök eöa einstaklingar lýst þessu
sprengjutilræði á hendur sér, en
þetta er fyrsta tilræðið i nokkuð
langan tíma.
Áttatfu þúsund bflar óseldir á geymslusvæðum Chrysler vfða um heim.
Chrysler er á
barmi gjaldþrots
Hafa Chrysler bflaverksmiðj-
urnar nú runnið sitt skeið? —
Þetta er spurning sem brennur á
vörum margra. ( vikunni til-
kynnti stjórn fyrirtækisins að tap
þess fyrstu sex mánuði þessa árs
næmi 207 milljónum dollara, eða
um 75 milljörðum fslenzkra
króna. og ætla mætti að tap þess á
árinu færi upp í a.m.k. 500
milljónir dollara. eða um 180
milljarða íslenzkra króna.
í kjölfar tilkynningar stjórnar
fyrirtækisins um þetta mikla tap
skýrði John Riccardo stjórnar-
formaður þess frá því, að að
fyrirtækið hefði farið fram á eins
milljarða dollara lán frá rfkis-
stjórninni til að fleyta fyrirtæk-
inu yfir erfiðustu hjallana næstu
tvö árin.
Sérfræðingar telja að grípa
verði til aðgerða alveg á næstu
grösum eigi fyrirtækið ekki að
verða gert upptækt því að á næstu
vikum falli lausaskuldir upp á um
500 milljónir dollara i gjalddaga,
en fyrirtækið eigi aðeins um 200
milljónir dollara upp í þá upphæð.
Að mati sérfræðinga er það
einkum þrennt sem hefur þrengt
mjög að Chrysler að undanförnu:
Hin mikla hækkun á benzíni. í
flestum borgun Bandaríkjanna er
gallonið af benzíni komið i einn
dollar, en var um hálfur fyrir
rúmu ári síðan. Þetta hefur valdið
því að nýir kaupendur snúa sér að
minni og sparneytnari bílum.
Chrysler hefur ekki haft undan að
framleiða sína smábíla, sem eru
Horizon og Omni. Þá hefur fyrir-
tækið marga lykilvélarhluti frá
Volkswagen, en nú eru Volkswagen
ekki aflögufærir lengur, og vegna
benzínhækkunarinnar liggur fyrir-
tækið nú með um 80 þúsund bíla að
verðmæti um 700 milljóna dollara,
Tap fyrirtækisins
fyrstu sex mánuði árs-
ins var 75 milljarðar
króna
Lausaskuldir þess
nema um 180 milljörð-
um króna
Ilafa beðið ríkið um
360 milljarða lán til
að sleppa lifandi
eða um 250 milljarfla íslenzkra
króna.
Fyrirtækið hefur yfir mjög litlu
reiðufé að ráða til aö standa
straum af kostnaði við hönnun
nýrra gerða í samræmi við ráða-
gerðir stjórnvalda um að minnka
bílana og vélarstærð þeirra. Ef
fyrirtækið hefði nægilegt fé handa
á milli er talið líklegt að það gæti
tekið þátt í hinni hörðu samkeppni
„af einverju viti“. Markaðshlut-
deild fyrirtækisins hefur á síðustu
12 mánuðum minnkað um 1,3% og
er nú komin niður í 11,8%. Að mati
sérfræðinga er hvert prósentustig
metið á um 700 milljónir dollara
eða sem nemur um 250 milljarða
íslenzkra króna. Sú yfirlýsta
stefna stjórnvalda, að stefnt skuli
að smíði öruggari, hreinlegri og
sparneytnari bíla hefur komið
mjög illa niður á Chrysler. Á
meðan aðalkeppinauturinn, Gener-
al Motors, framleiðir um 6 milljón-
ir bíla á ári og hefur þegar lokið
við hönnun nýrri og sparneytnari
bíla framleiðir Chrysler aðeins um
1,4 milljónir bíla og á eftir að eyða
stórum fjárupphæðum í hönnun
nýrra ef þeir ætla ekki að detta
upp fyrir. Til þess að mæta kröfum
stjórnvalda telja sérfræðingar að
GM þurfi að greiða um 340 dollara
með hverjum bíl, en Chrysler aftur
á móti um 620 dollara.
Þrátt fyrir slæma stöðu fyrir-
tækisins, nú telja sérfræðingar að
John Riccardo hafi unnið hrein
kraftaverk á undangengnum árum
með því að halda fyrirtækinu á
floti. Hann seldi verksmiðjur
fyrirtækisins í Tyrklandi til inn-
lendra aðila. Fyrirtækið fékk 230
milljónir staðgreiddar fyrir
verksmiðjur þess í Evrópu, en þær
keyptu Peugeot-Citroen samsteyp-
an. Helmingur hlutabréfa Chrysler
í Argentínu var seldur innlendum
aðilum, Volkswagen yfirtók fram-
leiðsluna í Brasilíu og verksmiðj-
urnar í Venesúela voru sendar
aðalkeppinautnum GM. Og nú
stendur fyrir dyrum að loka einni
verksmiðju fyrirtækisins í Banda-
ríkjunum.
A,ð mati sérfróðra manna er
líklegt að Carter muni reyna með
einhverjum hætti að koma til móts
við þarfir Chrysler og er í því
sambandi aðallega talað um
skattaívilnanir, en ekki beinan
fjárstuðning eins og farið er fram
á. Þetta mun þó ekki ganga
átakalaust fyrir sig því að nokkur
andstaða er við málið á þingi.
Carter mun hins vegar leggja
ofurkapp á að fá þessu framgengt
því hann hefur engan áhuga á að
fá 250 þúsund atvinnulausa „fyrr-
verandi" starfsmenn Chrysler út á
göturnar aðeins ári áður en for-
setakosningar fara fram í landinu.
í siðustu fréttum er svo haft eftir
William Miller, fjármálaráðherra,
að stjórnin muni veita fyrirtækinu
næga aðstoð til þess, að það geti
haldið áfram út árið.
Þetta gerðist
Mótmælend-
um stuggað
úr sendiráði
Mexikó, 10. ÚKÚNt. AP.
UM eitt hundrað sérþjálfaðir lög-
reglumenn rýmdu í dag svissneska
sendiráðið hér, sem hefur verið á
valdi manna, sem hafa mótmælt
pólitískum handtökum mexí-
kanskra yfirvalda. Alls voru 27
mótmælendur handteknir og verða
leiddir fyrir dóm innan tíðar.
Þegar lögreglan eftir viku tíma
loks lagði til atlögu við sendiráðið
var henni ekki veitt nein mótspyrna
enda kom í ljós að mótmælendur
voru vopnlausir með öllu.
1978: Enn á ný brjótast út
bardagar í Beirut milli hersveita
Sýrlendinga og kristinna hægri
manna þrátt fyrir vopnahlé.
1977: Moshe Dayan segir að
ísraelar séu bjartsýnir á að geta
að minnsta kosti náð friðar-
samningum við Egypta, Jórdani
og Líbani.
1976: Sautján svertingjar eru
drepnir og fimmtíu særðir í
kynþáttaóeirðum í útborgum
Höfðaborgar í Suður-Afríku.
1970: Willy Brandt, kanzlari
Vestur-Þýzkalands, kemur til
Moskvu til að undirrita vináttu-
og samstarfssamning við Sovét-
ríkin.
1964: Chile slftur stjórnmála-
sambandi'við Kúbu og eru þá
aðeins eftir í Suður-Ameríku
þrjú ríki sem viðurkenna
Kastró-stjórnina á þeim tíma,
Mexico, Bólivía og Uruguay.
1954: Formlegur friðarsamning-
úr í Indókína skal binda enda á
sjö ára bardaga milli hersveita
Frakka og Víetminh.
1952: Hussein konungur
Jórdaníu.
1941: Churchill forsætisráð-
herra Breta og Roosevelt Banda-
ríkjaforseti hittast um borð í
herskipi á Atlantshafi.
1937: Bakr Sidqi, einræðisherra
íraks, myrtur.
1936: Sveitir þjóðernissinna
Chaing Kai Sheks koma inn í
Kanton í Kfna.
1935: Stormsveitir nazista
skipuleggja fjöldamótmæli
geegn Gyðingum í Þýzkalandi.
1929: íran og írak undirrita
vináttusamning.
1900: Viktor Emanúel verður
konungur Ítalíu.
Afmæli: Angus Wilson, brezkur
höfundur, Lloyd Nolan, banda-
rískur leikari.
Andlát: Andrew Carnegie, iðn-
rekandi og mannvinur, 1919.
Innlent: d. Jón Steingrímsson
prófastur 1791 — Þingvallafund-
ur 1852 — Dómur í hrossarekstr-
armáli Öxndæla og Skagfirðinga
1871 — d. Brynjólfur Oddsson
bókbindari 1887 — Linuveiðar-
inn „örninn” talinn af 1936 —
Baden-Powell til íslands 1938 —
„Frekjan" kemur til Vestmanna-
eyja frá Danmörku 1940 —
Skömmtun hefst 1947 — íslandi
boðið í Evrópuráðið 1949 — 11
farast í eldsvoða á Norðfirði
1949 — Tfunda íslandsmet Guð-
mundar Hermannssonar á árinu
(17,83) 1967 — Austurstræti gert
að göngugötu 1973.
Orð dagsins: Vilt þú að menn
tali vel um þig? Gæt þess þá að
tala aldrei vel um sjálfan þig. —
Pascal, franskur vísindamaður
og heimspekingur 1623—1662.