Morgunblaðið - 28.08.1979, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979
Fyrsta
síldin til
Hafnar
Hornafirðl. 27. ágúat.
GISSUR hvíti kom með 30 tunnur
af síld til Hafnar í morgun og er
það fyrsta síldin, sem berst hingað
á þessari vertíð. Hornafjarðarbát-
ar byrja almennt ekki strax á
síldveiðunum, en nokkrir eru J>ó að
undirbúa sig fyrir reknetin. Ágæt-
ur afli hefur verið að undanförnu i
fiskitroll og sömuleiðis ágætt
kropp á humarnum. Bátarnir, sem
komu inn fyrir helgina, voru með
einna skásta humarinn sem komið
hefur á land í sumar. Síldin, sem
Gissur hvíti kom með í morgun,
verður fryst og síldarsöltun hefst
varla strax á Höfn. Hingað vantar
nú stúlkur til að vinna við síldar-
frystingu og í fiskvinnu. — Jens.
Lítið vatn
og treg
veiði i
Miðfjarðará
Stadarbakka, Miðfirði, 27. ágúst.
Laxveiðimenn kvarta
nú yfir því að vatnslítið sé
í Miðfjarðará og að laxinn
sé daufur með að taka. Þó
má telja að sæmilega
veiðist. Vertíðinni lýkur 1.
sept. og þegar sex dagar
voru eftir af tímanum
voru komnir á land 1996
laxar, sem er líklega held-
ur minna en á sama tíma í
fyrra. — Benedikt.
Tveggja hæða strætisvagn Vörusýningarinnar í Laugardalshöll lenti í árekstri í gær í
borginni eins og sjá má á meðfylgjandi mynd þar sem verðir laganna eru að kanna
málið með tilheyrandi tækjum.
Fyrirframsala á saltsíld:
Svíar og Finnar kaupa
allt að 70 þús. tunnur
SAMNINGAR hafa nú tekist um
fyrirframsölu á 55 — 60.000 tunn-
um af saltaðri sfld til Svfþjóðar
og Finnlands og er söluverðið frá
11,5—15,7% hærra í erl. gjaldeyri
en selt var fyrir til þessara landa
á síðustu vertíð.
Mbl. hafði samband við Gunnar
Viðræðunum frest-
að fram í október nk.
VIÐRÆðUM íslendinga og Norð-
manna um Jan Mayen hefur verið
frestað að beiðni Norðmanna, en
þær áttu að hefjast á morgun.
Benedikt Gröndal utanríkisráð-
herra sagði í gær. að þær myndu
varla hefjast fyrr en í október, enda
þótt ekki hefði verið rætt um nýjan
tíma fyrir fyrirhugaðar viðræður.
Ráðherrann sagði að Knut Fryd-
enlund utanríkisráðherra Noregs
hefði haft samband við sig á sunnu-
dag og óskað eftir frestun á viðræð-
unum og í gærmorgun hefði síðan
borizt formleg ósk frá Norðmönnum
um ótímabundna frestun viðræðn-
anna. Sagði Benedikt, að í samskipt-
um þjóða væri það föst venja, að ef
önnur þjóðin óskaði eftir frestun á
viðræðum sem þessum þá veitti hin
það.
— Ég tel ekki að lengur liggi á, að
viðræðurnar hefjist í þessum mán-
uði, sagði Benedikt. — Ég geng út
frá því sem vísu að loðnuveiðum
Norðmanna á Jan Mayen svæðinu sé
lokið og því sé ekkert sérstakt, sem
ýti sérstaklega á eftir viðræðunum
Boða verkfall á
yfir- og vaktavinnu
þegar ekki er um að ræða nema
örfáar vikur, sagði utanríkisráð-
herra.
Aðspurður um ástæður fyrir ósk
Norðmanna um frestun sagði Bene-
dikt að Norðmenn hefðu gert grein
fyrir tveimur ástæðum. Önnur væri
sú að þeir vildu forðast að viðræð-
urnar blönduðust inn í kosningabar-
áttuna í Noregi, en sveitarstjórna-
kosningar fara fram í Noregi í næsta
mánuði. Hin væri sú, að þeir teldu
nú æskilegt að ræða þessi mál betur
við nefndir norska Stórþingsins áður
en viðræður byrjuðu.
Boðaður haföi verið fundur með
fulltrúunum í íslenzku viðræðu-
nefndinni klukkan 14 í gær, en þeim
fundi var aflýst þar sem þessi mál
voru öll mjög óljós um hádegi í gær.
í dag verður fundur með fulltrúum
stjórnmálaflokkanna í nefndinni.
Flóvenz, framkvæmdastjóra
Síldarútvegsnefndar og spurði
hann nánar um þessa síldarsölu.
Gunnar sagði að um 8.000—8.800
tonn af fersksíld þyrfti til að
framleiða upp í þessa samninga en
síldarkvótinn í haust væri ákveð-
inn 35.000 tonn, þannig að þessir
samningar tryggðu ekki sölu nema
á rúmlega fjórðungi veiðikvótans.
Hann sagðist þó búast við að
sölumagnið til Svíþjóðar og
Finnlands myndi hækka eitthvað
og gæti jafnvel orðið um 70.000
tunnur. Þá sagði Gunnar að þau
svör hefðu borist fyrr í þessum
mánuði frá Rússum að þeir væru
reiðubúnir að taka upp viðræður
um kaup á 60.000 tunnum af
heilsaltaðri síld og að formlegar
viðræður við þá myndu hefjast í
lok þessarar viku.
Gunnar Flóvenz sagði að í
morgun hefði borizt staðfesting á
því frá Pólverjum, að þeir væru
reiðubúnir að ræða um saltsíldar-
kaup í næstu viku og viðræður við
V-Þjóðverja myndu hefjast fyrri
hluta september, en þangað er
einkum ráðgert að selja ediks-
söltuð síldarflök og e.t.v. fleiri
nýjar tegundir af saltaðri síld.
Gunnar Flóvenz sagði að lokum
að samningaumleitanir héldu
áfram við kaupendur í ýmsum
öðrum markaðslöndum saltsíldar.
Framkoma
Norðmanna
ekki
traust-
vekjandi
— segir Matthías
Bjarnason
nMÉR FINNST það vera undar-
legt að óska eftir frestun þegar
komið er að því, að viðræður eiga
eð hefjast,“ sagði Matthías
Bjarnason fyrrverandi sjávarút-
vegsráðherra og einn fulltrúanna
í viðræðunefndinni við Norð-
menn um Jan Mayen-máiið,
þegar Mbl. spurði hann í gær
álits á ósk Norðmanna um frest-
un á viðræðunum.
„Norðmenn sjálfir fengu að
ráða þessum tíma og út af fyrir
sig var það undarleg ákvörðun að
Matthías Bjarnason.
ætla viðræðunum ekki nema einn
dag. Enn undarlegra finnst mér þó
að óska nú eftir frestun á viðræð-
unum. Mér finnst þessi framkoma
Norðmanna ekki vera traustvekj-
andi nema síður sé.
Ég held að það eigi alls ekki að
veikja stöðu norsku ríkisstjórnar-
innar þó hún gangi til viðræðna
við íslendinga um þetta mál. Ef
þeir ætla að sýna sanngirni, sem
maður verður að vona, er ekki
eftir neinu að bíða,“ sagði
Matthías Bjarnason.
Heyannir
í Miðfírði
Stadarbakka, MiðfirAI, 27. ágúst.
BEZTA veður hefur verið hér
síðustu daga og mikið verið hirt
inn af heyjum. Margir bændur
eru langt komnir með heyskap,
en þó eru ýmsir sem eiga alímikið
eftir. Grasspretta á túnum er
mjög misjöfn, allt frá því að vera
allgóð og niður í helmingsupp-
skeru. Hey eru þó yfirleitt mjög
góð, en verða áreiðanlega fyrir
neðan meðallag að vöxtum. —
Benedikt.
Á FUNDI, sem vinnuveitendur í prentiðnaði efiidu til í gær var
ákveðið að vísa kjaradeilu Grafíska sveinafélagsins til sáttasemjara
en félagið hefur boðað til vinnustöðvunar á alla vakta- og aukavinnu
félgsmanna frá og með 3. september n.k. í gær og dag fer fram
allsherjar atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna um heimild til
vinnustöðvunar til handa stjórn félagsins. Á félagsfundi í Grafíska
sveinafélaginu í júní var samþykkt að óska eftir samningaviðræðum
við FÍP en launaíiðir samnings, sem undirritaðir voru í júní 1977 var
sagt upp frá og með 1. marz 1978. Kjarasamningnum sjálfum var sagt
upp í maí, þannig að allir samningar verða lausir frá 1. september
1979.
í byrjun júlí kom boð frá Félagi
prentiðnaðarins, þar sem Grafíska
sveinafélaginu var boðin sama 3%
launahækkunin og aðrir launþeg-
ar höfðu fengið gegn því að samn-
ingar yrðu framlengdir til 1.
janúar n.k. Á félagsfundi Grafíska
sveinafélagsins var þetta tilboð
vinnuveitenda fellt.
Grafíska sveinafélagið lagði
kröfur sínar síðan fram á samn-
ingafundi í byrjun ágúst og námu
þær 17% umfram það, sem aðrir
launþegar höfðu fengið en samn-
ingstími hins vegar til 1. septem-
ber 1980. Félag Prentiðnaðarins
hafnaði kröfum Grafíska sveina-
félagsins um aðrar breytingar á
samningnum frá júní 1977 en 3%
kauphækkun til áramóta, og gáfu
Grafíska sveinafélaginu frest til
að ganga að 3%, ella yrðu þau
dregin til baka. Engir fundir hafa
verið haldnir frá 2. ágúst.
„Eg er himinlifandi”
segir Guðrún Helgadóttir um nið-
urstöðu Björgvins Guðmundssonar
MORGUNBLAÐIÐ hafði sam-
band við Guðrúnu Ilelgadóttur
borgarfulltrúa Alþýðubandalags-
ins í gær og innti hana eftir því
hvort hún væri ánægð með þá
niðurstöðu Björgvins Guðmunds-
sonar að úrskurða Sjöfn Sigur-
björnsdóttur borgarfulltrúa
varamann Kristjáns Benedikts-
sonar fulltrúa framsóknar-
manna, en til þess kom f borgar-
ráði f sfðustu viku þegar ákveðin
var ráðning framkvæmdastjóra
Æskulýðsráðs. Þá mættu bæði
Sjöfn og Guðrún, en borgarstjóri
og Björgvin Guðmundsson for-
maður borgarráðs úrskurðuðu
Sjöfn sem varamann Kristjáns.
„Ég er himinlifandi," sagði Guð-
rún, „samkvæmt þessum úrskurði
verður Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
ekki boðuð framvegis til borgar-
ráðsfundar í forföllum Bjögvins
Guðmundssonar, heldur Adda
Bára Sigfúsdóttir, sem fyrsti
varamaður borgarráðs. Það þykja
mér góð skipti fyrir þá bæjarbúa
sem taka störf okkar í borgar-
stjórn alvarlega. í sannleika sagt
er þetta ekkert mál, heldur
klaufaleg afgreiðsla formanns
borgarráðs og lögmenn borgar-
skrifstofunnar virðast ófærir um
að skera úr þessu. Meira er ekki
um það að segja, enda önnur
brýnni mál á stundatöflu þeirra
borgarfulltrúa sem nenna að gera
eitthvað af skynsemi."