Morgunblaðið - 28.08.1979, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 28.08.1979, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979 31 Evrópumót íslenskra hesta í Hollandi: Ragnar Hinriksson Evrópumeistari Frá Valdimar KrÍBtinasyni fréttarltara Mbl. á EM í Hollandi, 27. igúst. RAGNAR Hinriksson varö stiga- hæstur keppenda á Evrópumóti íslenskra hesta í Hollandi um heigina á stóðhestinum Fróöa frá Ásgeirsbrekku og hlaut titilinn Evrópumeistari 1979. Aörir ís- lensku knapanna voru ekki meöal þeirra fimm efstu en þýska keppnissveitin varö stigahæst á mótinu. Kom sigur Ragnars nokkuö á óvart og sérstaklega vakti þaö athygli aö hann skyldi bera sigurorö af knöpum sem þarna kepptu á hrossum, sem þeir höföu um árabil þjálfaö og áöur staðiö í fremstu röö á Evrópumótum. Ragnar gat ekki keppt á þeim hesti, sem hann kom meö aö heiman, þar sem sá hestur veiktist og fékk hann Fróöa aö láni rétt í þann mund, sem mótiö hófst. Ekki liggja enn fyrir endanlegar upplýsingar um stigafjölda kepp- enda en úrslit í fimmgangi uröu þau aö efstur varö Ragnar Hin- riksson á Fróöa frá Ásgeirs- brekku, annar Jens Iversen Dan- mörku á Vindskjóna frá Álfsnesi, þriöji Walter Schimtz, Þýskalandi, á Baldri frá Stokkhólma, fjóröi Walter Feldmann yngri, Þýska- landi á Hákoni, f. í Þýskalandi, í fjóröa sæti varö Reynir Aöal- steinsson á Pöndru, f. ytra og í fimmta sæti varö Jóhannes Hoyos, Austurríki, á Ljóra frá Eiríksstööum. í töltkeppninni varö efst Christ- iane Mathiesen, Þýskalandi, á Gammi frá Hofsstööum, annar varö Bernd Vith á Fagra-Blakk frá Hvítárbakka, þriðji Walter Schimtz, Þýskalandi, á Baldri frá Stokkhólma, fjóröi Walter Feld- mann yngri, Þýskalandi, á Há- koni, og í fimmta sæti varö Danieia Stein, Þýskalandi, á Trítli frá Leirulækjarseli. Af íslending- unum, sem þátt tóku í töltkeppn- inni er þaö aö segja aö Siguröur Sæmundsson varö í áttunda sæti á Fjalari, í níunda sæti Aöalsteinn Aöalsteinsson á Grákolli og í tíunda sæti Ragnar Hinriksson á Fróöa. Úrslitin í 250 metra skeiði uröu þau aö þrír fyrstu hestarnir náöu sama tíma, 25,4 sek., en þaö eru Ljóri frá Eiríksstööum, knapi Jó- hannes Hoyos, Austurríki, Víking- ur, tuttugu vetra hestur, sem oft hefur keppt á Evrópumótum en ekkert er vitaö um ætt hans, knapi Barla Balandum, Sviss og Fróði frá Ásgeirsbrekku, knapi Ragnar Hinriksson. í skeiöinu keppti Ragnar Hinriksson einnig á Gretti frá Svarfhóli og varö í sjötta sæti. Þá keppti Reynir Aöalsteinsson í skeiöinu á Pöndru en varö aftarlega. í fjórgangi uröu úrslit þau aö í fyrsta sæti varö Bernd Vith á Fagra-Blakk frá Hvítárbakka, annar Walter Schmitz á Baldri frá Stokkhólma, í þriöja sæti Christ- anna kom fram óánægja meö umhiröu hestanna í hesthúsinu og töldu þeir húsiö ekki uppfylla þau skilyröi, sem gera þyrfti til sóttkvíar eins og hestarnir heföu átt að vera í. — Þetta var þaö eina sem ég gat gert, sagöi Sigurbjörn Bárðarson er hann var spurður, hvort þaö hefði ekki verið frumhlaup hjá honum aö fara meö Garp í keppnina. Hann bætti því líka viö aö þáttur Garps í mótinu hefði sýnt hversu léleg- um hestum aörar þjóöir tefldu fram í fimmgangi og sýning Garps heföi greinilega glatt áhorfendur, sérstaklega landann. Fram kom í samtalinu viö Sigur- björn aö hann taldi aö ástæöa þess aö íslensku keppnishestarn- ir hefðu sýkst af hestainflúensu heföi verið skipulagsleysi af hálfu þeirra, sem fyrir mótinu heföu staöið. Þeir heföu átt aö fá einangruö beitarhólf, þar sem ekki heföi veriö beitt hestum nýlega eins og Þjóöverjarnir fengu. Þjóðverjarnir voru með sérstakt beitarhólf enda féll eng- inn hestur út úr keppnisveit þeirra. Veðriö hér yfir mótsdagana hefur verið heldur leiðinlegt og helst minnt á íslenska sumar- veðráttu eins og hún gerist leiöin- legust, rigning og hálfgerö nepja. Evrópumeistarínn 1979, Ragnar Hinriksson 29 éra gamall tannsmíður og kunnur tamningamaöur, nú búsettur í Borgarnesí, situr hór Fróöa frá Ásgeirsbrekku. Fróöi er stóöhestur, brúnn að lit, fæddur 1970 að Ásgeirsbrekku undan Lýsingi 409 frá Voðmúlastöóum og Dögg frá Kyöjuholti en Dögg er undan Sörla frá Brunnum í Hornafiröi. Hér heima var Fróöi í eigu Vatnsleysubúsins og síöar í eigu Sigurbjörns Eiríkssonar en nú er hann í eigu Þjóðverja. Fróði var sýndur á Vindheimamelum 1974 og fókk Þá 8,12 í einkunn og góöa umsögn. Ljósm. Sig. Sigm. TOPPURINN FRA FINNLANDI Tæki sem má treysta Serstakt kynningarver kr. 629.980 Staðgr. kr. 598.000 Greiðslukjör frá 200.000 kr. út og rest á 6 mán. 3ara ábyrgö a myndlam 50 ara • 26 tommur • 60% bjartari mynd • Ekta viöur • Palesander, hnota • 100% einingakerfi • Gert fyrir f jarlasgöina • 2—6 metrar S Fullkomin Þjónusta Verslid isérverslun með LITASJÓNVÖRPog HUÓMTÆKI 29800 BUÐIN Skipholti19 á Fróða frá r Asgeirs- brekku iane Mathiesen á Gammi frá Hofsstöðum en þau þrjú eru öll frá Þýskalandi. í fjóröa sæti varö Aöalsteinn Aöalsteinsson á Grá- kolli og í fimmta sæti Daniela Stein, Þýskalandi á Trítli. Sigurö- ur Sæmundsson varö í sjöunda til áttunda sæti á Fjalari en af íslendingunum kepptu aöeins Reynir og Siguröur í þessari grein. ísiensku knaparnir kepptu ekki í víöavangshlaupi mótsins né hlýðniæfingum en í parareiöinni var Reynir Aöalsteinsson ásamt Walter Feldmann yngri í ööru sæti. í íslensku tvíkeppninni, sem er samanlagöur árangur úr tölti og Hestar fjórgangi eöa fimmgangi uröu úrslit þau aö efstur varö Fagri- Blakkur frá Hvítárbakka, knapi Bernd With, Þýskalandi, en ís- lensku knaparnir komust ekki í fyrstu fimm sætin í tvíkeppninni og aöeins einn þeirra, Ragnar Hinriksson, var eins og áöur sagöi í hópi fimm stigahæstu keppenda á mótinu, en þar var aöeins miöað viö þau stig, sem hann fékk, er hann keppti á Fróöa. Einn íslensku knapanna Trausti Þór Guömundsson, gat ekkert keppt á mótinu vegna veikinda en nokkuö var um að íslensku feröalangarnir legöust í flensu. Eyjólfur ísólfsson, sem átti aö sitja varahest íslensku sveitar- innar keppti ekki heldur á mótinu. Eins og áður hefur komiö fram keppti Sigurbjörn Báröarson á Garpi á fyrsta degi mótsins en hann var dæmdur úr leik þar sem Garpur var meö hrossainflúensu. Var Sigurbirni einnig vísaö frá frekari keppni á mótinu vegna bessa. Af íslensku hestunum uröu Skelmir, Jökull og Penni mest veikir af flensunni og voru þeir enn með hita á sunnudag. Garpi versnaöi ekki viö aö taka þátt t keppninni og var hitalaus á sunnudag. í samtölum við íslensku knap-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.