Morgunblaðið - 28.08.1979, Síða 19

Morgunblaðið - 28.08.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979 19 Gjöf til sjúkrabif- reiðar Reyð- firðinga ReyAarflrði, 27. áKÚst. ÁTTATÍU og sex ára gamall maður á Reyðarfirði, Jón Stefánsson. gaf Slysavarna- deildinni Ársól til sjúkrabif- reiðarinnar kr. 50 þús. til minningar um konu sína, Elínu Dómhildi Benedikts- dóttur. Þetta er stærsta fram- lag sem einstaklingur hefur gefið til sjúkrabifreiðarinnar, en deildin keypti bflinn fyrir einu og hálfu ári síðan. Færir deildin Jóni kærar þakkir fyrir framlagið. — Gréta. Reyðfirðingar fóru úr úlpunum Reyðarfirði, 27. ágúst. ÞAÐ óvænta bar við hér í dag á þessum síðustu tímum að það skall á með þrettán stiga hita og gátu Reyðfirðingar því í fyrsta skipti í sumar brugðið sér úr úlpunum sem fólk hefur orðið að klæðast vegna kuldanna í allt sumar. Var ekki seinna vænna að fá einn sumardag og kominn 27. ágúst. — Gréta. valdamanna. Þessar skörpu línur geta valdið stórhættulegu ástandi innan flokksins og jafnvel klofn- ingi, ef frekari tilraunir verða gerðar til að færa út áhrifasvæðið hjá hinum síðarnefndu. Framboð flokkseigenda I eina tíð var það svo, að framboð til alþingiskosninga var ekki talið ráðið nema svokallaður hópur flokkseigenda réði þar ráð- um. Ekki virðist Svarthöfði vita að þetta heyrir til liðnum tíma. Það er liðin tíð að þegnir séu fram- bjóðendur „sendir að sunnan". Áhrif þess þrönga hóps sem stýrir fjölmiðlum og hefur komið gæð- ingum inn á gafl í valdastofnunum í þjóðfélaginu eru næg þó lands- byggðarfólkið láti ekki glepjast til þess að taka við sendisveinum sem byrja mega sinn pólitíska feril fyrir dreifbýlið en færa sig síðan í skjólið í einu af mörgum fram- boðssætum Reykjavíkur þegar takmarkinu er náð. Hinir sterku menn kjördæmis- ins sem Svarthöfði nefnir vita að engir eru jafn dauðir úr öllum æðum í kjördæmapólitíkinni og þeir sem fátt þekkja annað í landsbyggðamálum en Esjuna nær og Snæfellsjökul langt í fjarska. Hugrenningar Svarthöfða má eflaust túlka á marga vegu og m.a. þannig að með því að senda Reykvíkinga og Reyknesinga í framboð vestur og norður megi leysa svokallað kjördæmamál svo slegið sé á léttari strengi. Ekki fer á milli mála að hags- munabarátta landshluta fer vax- andi. Með því að færa löggjafar- og framkvæmdavald stöðugt á herðar þröngs hóps í Reykjavík er verið að vinna gegn þeirri vald- dreifingu sem Sjálfstæðismenn hafa lagt áherslu á auk þess sem staðarþekking og tilfinning fyrir landinu öllu er þurrkuð út af Alþingi. Glöggt dæmi um miðstýr- ingu valdsins er bankakerfið í landinu. Af framan greindum ástæðum má Svarthöfði bera þau boð að framboðsmál Vestlendinga eru ekki lengur ráðin á ritstjórnar- skrifstofum í Reykjavík eða í hinum háu hlíðum. Mikill skortur á leiguhúsnæði: Dæmi um allt að 1200 þús. kr. fyrirframgreiðslu — segir starfemað- ur Leigjenda- samtakanna „Mjög erfitt er að fá íbúðarhúsnæði á leigu nú, og hefur raunar verið svo um eins árs skeið,“ sagði Guðmundur J. Guð- mundsson starfsmaður Leigjendasamtakanna 1 samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, er hann var spurður hvernig fólki gengi að fá húsnæði á leigu um þessar mundir. Guðmundur sagði að lang mest eftirspurn væri eftir einstak- lingsíbúðum og tveggja herbergja íbúðum, og jafnframt væri minnst framboð á húsnæði af þeirri stærð. Sagði hann að helst losn- uðu stórar íbúðir, fimm til sex herbergja, eða heil einbýlishús. Alla vega væri það það húsnæði sem einna helst kæmi á skrá hjá Leigendasamtökunum. Sagði hann sem dæmi um hve erfitt væri að fá tveggja herbergja íbúðir á leigu, að Leigjendasamtökin hefðu ekki fengið eina einustu íbúð af þeirri stærð á skrá í allt sumar. Verðið sagði Guðmundur vera mjög misjafnt, og mætti raunar skipta því í tvo hluta. Annars vegar væri það verð sem upp væri sett þegar fólk leigði ættingjum, vinum eða kunningjum. Hins veg- ar væri svo það verð sem upp væri sett þegar leigt væri á frjálsum markaði og lögmál framboðs og eftirspurnar réðu verðinu. í fyrra tilvikinu sagði hann verðið „vera mjög skikkanlegt" og væri meiri- hluti íbúðarhúsnæðis leigður á því verði. Þá kostaði tveggja her- bergja íbúð á bilinu 40 til 60 þúsund krónur á mánuði, þriggja herbergja íbúðir kosta um 50 til 70 þúsund, og fjögurra herbergja íbúðir eru leigðar á 60 til 80 þúsund krónur á mánuði. Verð á frjálsa markaðnum sagði hann vera mun hærra, og hefði hann heyrt um að tveggja her- bergja íbúðir séu leigðar á 100 til 120 þúsund krónur á mánuði, og hærra fyrir stærri íbúðir. Hæsta verð sem hann kvaðst hafa heyrt um sagði hann vera 200 þúsund krónur á mánuði fyrir fimm her- bergja íbúð, og árs fyrirfram- greiðsla. Svo hátt verð sagði Guðmundur að heyrði til algerra undantekninga, og sagði hann meirihluta alls íbúðarhúsnæðis vera leigðan á lægra verðbilinu. Verð á íbúðarhúsnæði sagði Guðmundur ekki endilega vera hærra í Reykjavík og nágrenni en úti á landi, og kvaðst hann til dæmis vita að mun verra væri að fá húsnæði á ísafirði en í Reykjavík, og þar væri verðið einnig hærra. Þá hefur Morgun- blaðið fregnað að erfitt sé að fá ieiguhúsnæði á Akureyri, Akra- nesi og víðar, og að þar ráði framboð og eftirspurn mestu um verðið. Guðmundur J. Guðmundsson sagði að Leigjendasamtökin væru nú með einn starfsmann í hálfu starfi. Síma- og skrifstofukostn- aður sagði hann að væri greiddur af árgjöldum félaga, en riki og borg hafa síðan hlaupið undir bagga með launagreiðslur þegar illa hefur gengið. Að meðaltali sagði hann eina til tvær íbúðir leigðar fyrir milligöngu samtak- anna í viku hverri. Að lokum sagði Guðmundur, að hann vildi benda bæði leigusölum og leigutökum á, að óheimilt væri samkvæmt lögum að taka fyrir- framgreiðslu nema fyrir einn fjórða þess tímabils sem leigt væri. Það þýddi að ef íbúð væri leigð út til eins árs væri leigusala óheimilt að taka fyrirfram- greiðslu nema sem næmi þremur mánuðum. Á sama hátt sagði Guðmundur, getur leigutaki sem greitt hefur eitt ár fyrirfram, krafist þess að fá að búa í húsnæðinu í allt að fjögur ár. Gáfu þeim mynd af Hvallátrum MEÐLIMIR þyrlubjörgunarsveitar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli fram hefur komið í fjölmiðlum hefur sveitin unnið mörg frækileg og fjölskyldur þeirra heimsóttu Slysavarnafélag íslands s.l. laugardag. björgunarafrek hér á landi á undanförnum árum og hafa margir látið í Við það tækifæri afhenti Jón bóndi á Hvallátrum sveitinni áritaða ljós þakklæti sitt til sveitarinnar með gjöfum. litmynd af Hvallátrum frá sér og Jóhönnu konu sinni, sem liggur nú á Myndin sýnir bandarísku sjúkrahúsi hér í borginni. Þyriusveitin hefur á undanförnum árum farið þyrlumennina og halda Jón bóndi og foringi sveitarinnar á myndinni. þrjú sjúkraflug til Hvallátra, tvisvar sótt Jóhönnu veika og einu sinni Lengst til hægri í fremstu röð er Hannes Þ. Hafstein framkvæmdastjóri Jón og nú síðast sótti þyrla Jóhönnu fyrir fáum dögum síðan. Eins og SVFÍ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.