Morgunblaðið - 28.08.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979
3
S-
Agœt sala í
Þýskalandi
RÁNIN úr Haínaríirði seldi 147
tonn af karfa og ufsa í Cuxhaven
í gær. Ágætt verð fékkst fyrir
aflann, 47,6 milljónir, meðalverð
332 krónur.
Lítið að
hafa hjá
loðnu-
skipunum
LÍTIL veiði var hjá loðnuskip-
unum yfir helgina, en loðnu-
skipin eru nú flest úti af
Vestfjörðum. Þau skip, sem
héldu á Jan Mayen svæðið, eru
nú flest komin til baka, en
Andrés Finnbogason hjá
ioðnunefnd sagði í gær, að
eftir því sem hann vissi bezt
væru enn 3 skip á Jan Mayen
svseðinu. Hin skipin væru nú
öil innan 200 mflnanna.
Skipstjórarnir hafa orðið
varir við talsvert af loðnu á
þessu svæði, en hún stendur
djúpt og meðan svo er aflast
lítið. Heildaraflinn er nú um 27
þúsund tonn, en þar af fengust
um 23 þúsund tonn fyrstu tvo
sólarhringana eftir að veiðarn-
ar byrjuðu hinn 20. ágúst.
Ekkert skip tilkynnti loðnu-
nefnd um afla á mánudag, en á
laugardag og mánudag til-
kynntu eftirtalin skip um afla:
Laugardagur: Harpa 480, Eld-
borg 250, Hákon 300, Sæbjörg
270, Grindvíkingur 200.
Mánudagur: ísleifur 200,
Svanur 300, Faxi 100, Guð-
mundur 400.
Ólafur strikaði
yfir hjá
ráðherranum
Á FUNDI þingflokks og fram-
kvæmdastjórnar Framsóknar-
flokksins í gær upplýsti Ólafur
Jóhannesson að ráðherra Alþýðu-
bandalagsins hefði á vissu stigi
Jan Mayen málsins lagt það til í
ríkisstjórninni að farið yrði í
viðræður við Norðmenn á þeim
grundvelli að helmingaskipti yrðu
um fiskafla og auðæfi hafsbotns-
ins. Ólafur sagðist hafa strikað
yfir síðari liðinn þar sem réttur
okkar næði lengra og hafði við orð
— að þetta væri komið í blöðin ef
við hefðum komið með svona
tillögu —.
Vitni vantar
að árekstri á
Grensásvegi
Á LAUGARDAGINN klukkan
22.15 varð árekstur milli tveggja
bifreiða á mótum Grensásvegar
og Fellsmúla. Báðir bifreiðastjór-
arnir telja sig hafa ekið á móti
grænu ljósi og þarf lögreglan því
nauðsynlega að ná tali af vitnum
að árekstri þessum, sem varð
mjög harður og slasaðist þrennt
sem í bflunum var.
Málavextir voru þeir að
Toyota-bifreið ók norður Grensás-
veg og beygði vestur Fellsmúla en
Saab-bifreið ók suður Grensásveg
og skullu bílarnir saman. Vitni að
árekstrinum eru beðin að hafa
samband við lögregluna í síma
10200.
JNNLENT
TORGSINS
IÐNAÐARMANNAHUSINU
HALLVEIGARSTÍG
Barna-
fatnaður
• Gallabuxur
• Peysur
• Úlpur
• Skyrtur
Kven-
fatnaöur
• Kápur
• Pils
• Peysur
• Blússur
• Kjólar
• Síöbuxur
• Nærföt
Herra-
fatnaður
• Skyrtur
• Skinnjakkar
• Terelynebuxur
• Gallabuxur
• Úlpur
• Peysur
fatnaður
• Vinnuskór
• Inniskór
• Stígvél
• Kuldaskór
• Garn
Margar gerðir
og litir.
Hallveigarstig
Iðnaöarmannahusinu
p. s ...3*
■ f »4