Morgunblaðið - 28.08.1979, Side 4

Morgunblaðið - 28.08.1979, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979 Hópferðabílar 8—50 farþega Kjartan Ingimarsson sími 86155, 32716. Verið tilbúin vetrarakstri með vel stillt Ijós, það getur gert gæfumuninn. Sjáum einnig um allar viðgerðir á Ijósum. Höfum til luktargler, spegla. samlokur o.fl. í flestar gerðir bifreiða. BRÆÐURNIR ORMSSON HÁ LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820 Varahlutir ibílvélar Stimplar, slífar og hringir Pakkningar Vélalegur Ventlar Ventilstýringar Ventiigormar Undirlyfiur Knastásar Tímahjól gg ko* ' ir Olíudælur Rokkerarmar ÆvarR.Kvaran flytur erindi í útvarpi kl. 19.35: „Er dauðinn endir allr- ar tilveru mannsins?,, „Ég mun flytja í útvarpið þrjú erindi um dauðann, fyrsta erindið heitir „Er dauðinn end- ir allrar tilveru mannsins?“, annað heitir „Höfum við lifað áður?„ og það þriðja ber nafnið „Allt bendir til lífs að þessu loknu,“ sagði Ævar R. Kvaran í spjalli við Mbl. „Það er enginn spíritismi í þessum erindum eða þess háttar, heldur er aðeins fjallað um staðreyndir. Læknum og hjúkrunarkonum hefur verið kennt öldum saman, að þegar menn deyja sem kallað er, þ.e. þegar hjartað hættir að slá, þá tekur það ekki nema stundarfjórðung, eða þar um bil, þar til heilinn fær ekki næga næringu og byrjar að skemmast. I öllum vísindaritum læknis- fræðinnar er því lýst að þetta sé endir tilverunnar. Við eigum öll eftir að ganga í gegnum þetta, en þegar þetta á sér stað þá eru yfirleitt læknar og hjúkrunar- fólk í kringum hinn deyjandi, þannig að hinn deyjandi getur ekki búist við mikilli huggun frá þeim, enda hefur þeim verið kennt að dauðinn sé endirinn," sagði Ævar. „Það sem ég er að gera í þessum erindum er að sýna það að þessi kenning sem búið er að hamra á öldum saman sé ákaf- lega hæpin. Til þess að sýna fram á það styðst ég eingöngu við það sem læknar hafa upp- götvað. Sem dæmi má nefna fólk sem læknar hafa lýst dáið, en hefur lifnað við aftur, oft vegna þess að það hefur verið beitt lífgunaraðferðum. Stundum hef- ur sjúklingurinn verið lýstur dáinn af viðkomandi lækni en af einhverjum ástæðum vaknað til lífsins á ný, eftir ákveðinn tíma. Einnig má nefna fólk sem lent hefur í miklum slysum og virðist hafa fundið til þess að vera dáið um tíma, en vaknað aftur. Læknar hafa hingað til af- greitt þetta þannig að um ofsjónir sé að ræða, óskhyggju eða annað þessháttar. En nú kemur það fyrir að maður sem liggur dauður samkvæmt yfir- Ævar R. Kvaran. lýsingu spítalalæknis, hann vaknar til lífsins aftur eftir ákveðinn tíma og getur þá lýst því sem farið hefur fram í kringum hann, á meðan hann hefur verið dáinn, þ.e.a.s. sagt frá því sem á milli hjúkrunar- fólks og lækna hefur farið. Lýs- ing hins látna fólks er á þá leið að það hverfi úr líkamanum, sem ekki skipti lengur neinu máli, og geti fylgst með læknunum og hjúkrunarfólkinu, samtölum þeirra og athöfnum. Þessu ástandi fylgir mjög mikil vellíð- an og sælutilfinning og þeir sem hafa komist þetta langt að vera lýstir dánir, þeir hafá yfirleitt alls ekki viljað hverfa aftur í líkamann að ákveðnum tíma liðnum. Af einhverjum ástæðum hefur lífi þeirra ekki verið lokið hér og þetta fólk hefur orðið að hverfa aftur í líkamann og lifa lengur eða skemur. I sumum tilfellum sér þetta fólk látna ástvini sína, meðan það er í þessu ástandi en í öðrum tilfell- um hefur það komið fyrir að viðkomandi lýsir ættingja sem hann veit ekki betur en að sé lifandi. Þetta er ekki hægt að afgreiða að um ofsjónir sé að ræða, því þarna sér hinn deyjandi ekki það sem hann langar til að sjá heldur það sem hann á ekki von á að sjá,“ sagði Ævar. „Ég nota yfirleitt í þessum erindum niðurstöður sem lækn- ar hafa fengið við rannsókn á fólki sem er að deyja. Þessu fólki ber öllu saman, það hefur allt svipaða sögu að segja og mun ég greina frá þessari reynslu þess í erindunum," sagði Ævar R. Kvaran að lokum. Sjúnvarp kl. 20.30: Afríka Þriðji þáttur mynda- flokksins um Afríku verð- ur á dagskrá sjónvarpsins í kvöld. Þessi þáttur fjall- ar um Suður Afríku og er m.a. lýst aðskilnaðar- stefnu stjórnarinnar. Þá er lýst degi í lífi fjöl- skyldu í Pretoríu og áhrif- um þeim sem stefna stjórnarinnar hefur á daglegt líf fólksins. Þýð- andi myndarinnar og þul- i ur er Gylfi Pálsson. ÞRIÐJUDkGUR 28. ágúst MORGUNNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tón- leikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Margrét Guðmundsdóttir heldur áfram lestri sögunnar „Sumar á hein enda“ éftir Moniku Dickens (12). 9.20 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10. Veður- fregnir. Tónleikar. 11.00 Sjávarútvegur og sigling- ar. Umsjónarmaður: Jónas Ilaraldsson. Rætt við Hannes Hafstein framkvæmdastjóra Slysavarnafélags íslands um björgunarmál. 11.15 Morguntónleikar: Milan Bauer og Michal Karin leika Sónötu nr. 3 í F-dúr fyrir fiðlu og píanó eftir Handel/ Wilhelm Kempff leikur á píanó Húmoreskur op. 20 eftir Schumann. 12.00 Dagskráin. Tónieikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Á frívaktinni. Sigrún Sigurðardóttir kynnir óska- lög sjómanna. SÍDDEGID 14.30 Miðdegissagan: „Sorrell og sonur“ eftir Warwick Deeping. Helgi Sæmundsson þýddi. Sigurður Ilelgason les (2). 15.00 Miðdegistónleikar Fíiharmoníusveitin í Vínar- borg leikur „Hamlet“, fantasíuforleik op. 67 eftir Tsjaíkovský, Lorin Maazel stj./ Sama hijómsveit leikur tónaljóðið „Sögu“ op. 9 eftir Sibelius; Sir Malcom Sargent stj. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir.). 16.20 Þjóðleg tónlist frá ýms- um löndum. Áskell Másson kynnir ind- verska tónlist, fyrsti hluti. 16.40 Popp 17.20 Sagan: „Úlfur, úlfur“ eftir Farley Mowat Bryndfs Víglundsdóttir les þýðingu sína (19). 17.55 Á faraldsfæti Þáttur um útivist og ferða- mál í umsjá Birnu G. Bjarn- leifsdóttur (endurtekinn frá sunnudagsmorgni). 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Augiýsingar og dag- sk rú 20.30 Afrfka. Þriðji þáttur. Suður-Afríka. Þýðandi og þulur Gylfi Páisson. KVÖLDIÐ____________________ 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Er dauðinn endir allrar tilveru mannsins? Ævar R. Kvaran flytur fyrsta erindi sitt um dauð- ann. 20.00 Tónlist eftir César Franck og Gabriel Fauré Paul Crossley leikur á píanó. 20.30 Útvarpssagan: „Trúður- inn“ eftir Heinrich Böll. Franz A. Gíslason les 21.00 Tvísöngur: Guðrún Tómasdóttir og Margrét Eggertsdóttir syngja lög eftir Björn Jakobsson. Ólafur Vignir Albertsson leikur á píanó. 21.20 Dýrlingurinn. Svartur september. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 22.10 Umheimurinn. Um- ræðuþáttur um erienda við- burði og málefni. Umsjón- armaður Gunnar Eyþórs- son fréttamaður. 23.00 Dagskrárlok. 21.20 Sumarvaka a. Seint mun það sumar gleymast. Torfi Þorsteinsson bóndi í Haga í Hornafirði rifjar upp minningar frá vegavinnu á Austurlandi 1927; — fyrri hluti. b. Um ársins hring Nokkur kvæði eftir Gunn- laug G. Gunnlaugsson. Baldur Pálmason les. c. Hrakningar brezkra her- manna á Eskifjarðarheiði á stríðsárunum. Frásaga eftir Bergþóru Páis- dóttur frá Veturhúsum. Sigríður Ámundadóttir les. d. Kórsöngur: Stúdenta- kórinn syngur Söngstjóri: Jón Þórarinsson. 22.30 Fréttir. Veðurfregnir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Harmonikulög. Aimable leikur. 23.00 Á hljóðbergi. Umsjónar maður: Björn Th. Björnsson listfræðingur. „Jane Eyre“ eftir Charlotte Bronté. Helztu hlutverk og leikarar: Jane Eyre/ Claire Bloom, Edward Rochester/ Anthony Quayle, Mrs. Fairfax/ Cathl- een Nesbitt, Adéle Varens/ Anna Justine Steiger. Þriðji og síðasti hluti. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. ÞRIÐJUDAGUR 28. ágúst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.