Morgunblaðið - 28.08.1979, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979
11
Mikið byggt
á ísafirði
Mikið áiag er nú á mönnum í byggingariðnaði á ísafirði. Er jafnvel
svo að sumir iðnaðarmenn eru hættir að taka við verkbeiðnum og er
margra mánaða bið eftir að fá jafnvel smá verk unnin. bó er
eftirspurn eftir húsnæði óskapleg og er nánast slegist um hvern
fermetra sem losnar.
Fréttaritari Morgunblaðsins
leit við hjá byggingarfulltrúanum
á ísafirði Bjarna Jenssyni og fékk
hjá honum þær upplýsingar, að nú
væru í smíðum rúmlega 100 íbúðir
auk 15—20 húsa undir alls konar
atvinnu- og þjónustustarfsemi. Á
fjarðarsvæðinu eru nú í smíðum
42 einbýlishús, auk þess sem
nýlega var úthlutað 4 lóðum við
Sunnuholt og er þar með búið að
úthluta öllum einbýlishúsalóðum
á þvi svæði. Þá eru þar í smíðum
16 íbúðir í fjölbýlishúsum og 13 í
raðhúsum. Áætlað er að i þessu
hverfi fullbyggðu búi um 550
manns.
Næsti áfangi á fjarðarsvæðinu
er svokallað Seljalandshverfi milli
Seljalands og Tunguskógar.
Reiknað er með, að byrjað verði á
byggingum þar næsta sumar. Þar
hefur verið skipulagt hverfi fyrir
1000 manns. I hlíðinni upp af
eyrinni er verið að byggja 4
einbýlishús og 12 raðhús og í
Hnífsdal eru í smíðum 9 einbýl-
ishús 8 íbúðir í fjölbýlishúsi og
þrjú raðhús.
Stærstu byggingarnar í smíður^
auk íbúðarhúsnæðis eru 27.000 m
sjúkrahús, sem nú er fokhelt,
skólahús fyrir menntaskólann,
sem er verið að byrja á, 5 hæða
hótelbygging á vegum Hótels Isa-
fjarðar h.f., 12.000 m3 hafnarhús
þar sem 5—6 fyrirtæki verða til
húsa, lokaáfangi húss Vestra h.f.
(ísfirðingshúsið), fiskvinnsluhús
Niðursuðuverksmiðjuna h.f.
og Rækjustöðina h.f., 32 íbúða
fjölbýlishús fyrir aldraða við
gamla blómagarðinn, dagheimili,
bensínstöð o.fl. Þá er unnið við
byggingu íþróttavallarhuss við
íþrottasvæði á Torfnesi, en þar
eru jafnframt í vinnslu tveir
fótboltavellir, annar gras- hinn
malarvöllur.
Nú er verið að undirbúa lagn-
ingu olíumalar á margar götur hér
og gert er ráð fyrir að á næsta eða
þarnæsta ári verði lagt malbik á
meiriháttar umferðargötur. Þá
fengust þær upplýsingar hjá Ein-
ari Árnasyni skrifstofustjóra hjá
Vesttaki h.f. sem rekur steypu-
stöðina hér að mikil vinna væri
hjá þeim. Steypustöðin er nú orðin
vel búin tækjum, með 5 steypu-
bíla, kranabíl og steypudælubíl, en
hann var tekinn í notkun í vor.
Á síðasta vori tóku þeir í notkun
sementssíló það fyrsta utan Faxa-
flóasvæðisins. Tekur það 700—800
tonn af sementi, er það mjög til
bóta að geta fengið Skeiðfaxa að
uppfyllingu við stöðina þar sem
sementinu er dælt beint í sílóið.
Allt malarefni sem notað er í
byggingar er tekið af sjávarbotni í
Pollinum. Var dæluskipið Perla
hér í vor og dældi þá upp 18.000 m3
af möl. Hefur efni þetta reynst
vel. Steypustöðin þjónar einnig
nágrannabyggðunum s.s. Bolung-
arvík, Súðavík, Suðureyri og Flat-
eyri.
Úlfar.
Ágústbifreiðin í
Happdrætti D.A.S.
Ágústbifreiðin í Ilappdrætti D.A.S. Mazda 929 L
Station, kom á miða nr. 889 og er eigandinn Katrín
Elíasdóttir að taka hér við bíllyklinum úr hendi
framkvæmdastjóra happdrættisins Baldvini Jónssyni.
Bretar státa
sigaf Nimrod
Wooford, 23. ágúst
—AP.
Brezki flugherinn fékk í dag
fyrstu vélina af 32 lengdum
Nimrodþotum. Þotunum hefur
verið breytt og flugherinn heldur
því fram að um borð í þotunum
séu fullkomnustu kafbátarleitar-
tæki í heiminum. Tæki Nimrod
geta fundið kafbáta í mun meiri
fjarlægð en nú tíðkast. Nimrod-
þoturnar munu meðal annars
gæta brezku landhelginnar, bæði
olíuborpallana á Norðursjó og
fiskimiða undan ströndum Bret-
lands.
Nokkur þeirra húsa, sem eru í byggingu í Holtahverfi, en það er nú að verða
fullbyggt. (Ljósm. Úlfar).
ÞANYR
MAZDA818
STATION
ÁRGERD1973...
... var bensíneyðsla 6,9 I per 100 km. Nú 6 árum og
200 þús km. síðar er eyðsla 7,4 1 per 100 km. og vél
aldrei tekin upp.
Þetta er ekkert einsdæmi. Allir Mazda bílar nýir og
gamlir eyða mjög litlu bensíni. En það er ekki nóg að
bílar eyði litlu bensíni, Mazda bílar hafa lágmarks
bilanatíðni allra bíla á Islandi.
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 81299.