Morgunblaðið - 28.08.1979, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. AGUST 1979
íslendingar fundu Jan
Mayen fyrstir manna
— kemur fram í annálum ársins 1285
íslendingar fundu Jan Mayen fyrstir manna, en það voru bræðurnir Aðalbrandur og
Þorvaldur Helgasynir prestar á Vestjförðum. bessar upplýsingar er að finna í bók Guðmundar
Guðna Guðmundssonar rithöfundar, Vaskir menn, en hún kom út árið 1968. Heimildir fyrir
þessu er að finna í bók Jóns Dúasonar Landkönnun og landnám í Vesturheimi Heimildir þær
sem Jón byggir á eru annálar ársins 1285, en einmitt það ár áttu bræðurnir að hafa komið til
Jan Mayen.
I bók Jóns Dúasonar segir
m.a.: „Við árið 1285 segja 2 ísl.
annálar: „Fundu Helga synir
nýja land, Aðalbrandr ok
Þorvaldr." 2 annálar segja:
„Fundust Dúneyjar." 4 annálar
segja: „fannst land vestur und-
an íslandi," og einn þessara
fjögurra bætir við, að það var
Nýjaland." Síðan segir Jón:
„Fyrir vestan eða suðvestan
ísland var ekkert ófundið land
til 1285. Þessi upplýsing um
hnattstöðu Nýjalands og hin
vestlæga siglingastefna þang-
að í Landnámu er sprottin af
samruglun við „Nýey“ eða
„Nýja land“, ey eða eyjar, er
skotið hefur upp í eldsumbrot-
um út af Reykjanesi. Hvar
„Nýjaland“ Helgasona var,
sést ekki beint, en í Trölla-
botninum eða við hann var um
þessar mundir ekkert annað
ófundið land til en Jan Mayen.
Að landið sem Helgasynir
fundu, var Jan Mayen, mætti
styðja með stefnunni sem gef-
in er í Höyers annál, að þeir
sigldu í „Grænlandsóbyggðir",
tn Grænlands óbyggðir voru
löngu fundnar 1285 og engum
hefði til hugar komið að kalla
þær nýtt land, en á þessari leið
hlýtur Nýjaland að hafa fund-
ist“. Einnig segir í bók Jóns:
„Þar sem Norðmenn tóku eng-
an þátt í landaleit, þarf ekki að
furða sig á því að við árið 1289
segja ísl. annálar: „Eríkr kon-
ungr sendi Rólf til íslands að
leita Nýjalands," og við árið
1290: „Fór Rólfr um ísland og
krafði menn til Nýjalandsferð-
ar.“
Greinilegt er á þessari frá-
sögn Jóns Dúasonar að hann
hefur talið sig hafa nokkuð
áreiðanlegar heimildir fyrir
þessum landafundi og reynir
að renna undir það stoðum að
hið svokallaða „Nýjaland" hafi
raunverulega verið Jan Mayen.
Tveir menn
ráðgera að helga
íslandi eyjuna
í bók Guðmundar Guðna
Guðmundssonar segir m.a. frá
útgerðarfélagi nokkru sem
stofnað var á ísafirði árið
Guðmundur Guðni
son rithöfundur.
Guðmunds-
1909. Félagið var stofnað um
kútter sem hét „Elliði.“ Meðal
þeirra sem stóðu að útgerðini
voru þeir Árni Gíslason og
Hrólfur Jakobsson, en þeir
voru báðir stórhuga og fram-
farasinnaðir menn. Sem dæmi
um stórhug þessara manna má
nefna að þeir ráðgerðu að sigla
„Elliða" til Jan Mayen og
stunda selveiðar í Norðurís-
hafinu. Fór sú ráðagerð út um
þúfur af þeim sökum að Hrólf-
ur, en hann átti að stýra
skipinu, fórst veturinn áður en
fara átti til Jan Mayen. Vetur-
inn sem Hrólfur fórst var
unnið að því að búa „Elliða" ut
til selveiða í íshafinu. Hrólfur
Jakobsson átti að vera skip-
stjórinn, eins og áður sagði, en
Jan Mayen var á þessum tíma
einskismanns land, svo sem
kunnugt er. Talið er að menn
þeir sem stunda áttu selveið-
arnar og fara áttu til Jan
Mayen, hafi átt að helga ís-
landi eyjuna, sem eitt sinn
fannst af íslendingum rúmum
600 árum áður. Guðmundur
Guðmundsson rithöfundur
segir einnig frá því í bók sinni
„Vaskir menn“ að það hafi
aldrei komið beint fram hver
ætlan þeirra Árna og Hrólfs
raunverulega var, þ.e. að helga
íslandi Jan Mayen, en hins
vegar hefur Guðmundur það
eftir gömlum ísfirðingi að
„hann hafi aldrei heyrt annað
en að „Elliði“ hafi átt að fara
til Jan Mayen og löghelga
íslandi eyjuna." Guðmundur
telur einnig að þeim Árna og
Hrólfi hafi verið kunnugt um
að eyjan fannst árið 1285 og
hafi því ætlað að fullkomna
verk þeirra bræðra, Aðal-
brands og Þorvalds.
Ráðagerðin sýnir
best stórhug
þessara manna
í tilefni þessara upplýsinga
sem er að finna í bók Guð-
mundar, ræddi Mbl, stuttlega
við Guðmund og innti hann
eftir hvaðan þær upplýsingar
væru komnar að þeir félagar
Árni og Hrólfur hafi ætlað að
helga Islandi Jan Mayen.
„Þessi ráðagerð þeirra Árna
og Hrólfs var ekkert leynd-
armál, þetta var altalað meðal
sjómanna í þropinu," sagði
Guðmundur. „Auk þess voru
menn almennt því kunnugir að
íslendingar fundu Jan Mayen
fyrstir, eins og annálar greina
frá, en þeir voru viðlesnir á
þessum tíma. Náttúrulega er
alls ekki öruggt að þarna hafi
verið um Jan Mayen að ræða,
A15III. l'annst Jaiul (I, nýja lan<l) voslr
ímilan íslamli. CF, Fundu H(*l«;a svnir nvja
land, Alalbrandr ok þorvaldr. DG. Fundust
Dúnc\ jar.
l'JSí), , l//r (nwd l ’i/tftaf/r/sr nf' EM); Jxirtr liisk-
nj) íor lil (jranlands. A, Eiríkr kunúngr srndi
l'«»ir til íslands at leita Nyjalands.
Hju lorHolfr um Island, ok kraíti mcnn til
Eall l’ilippi Kiv/ika l<o,///s. O
|Asgrmii- Puns son. I5ion/ Sirmuinl.u- s/m( Alftinyr-
H*"v- w/d.in .IsJa/fcií. ^
rndí Jorundrtr c‘i*<*111 b//n/»//1»s.
[a n. C/vstz ar m. co. lxxxx. Eir/7,r Xom/s kðíir/r bar koronu
lionla ilair pasclia. \uuin lircmii uk Iián;xa l/i/nl a ]>/(/ ari
ak Suina a Fioni o/, Fulstr. yt///il/ril .lortiml/ir 1 >//-
s/.v/ps, aml«///> jumtr/’ M/irgrot dntt/r Far/7,.« Nnr/js ko////s.
aml//(//> Majn/zs Suia Uo////r Birfiisso/i. tolli vctr mikill. va/al
Porlakr Narfaso/i logm ndr. moiddr ok <lr«*pin/i AVlfr
Krliiifisso/;. for Rolfr v»/ Islaml ok k/v/fdi mcnn t/7 Nyia
( l////dz frrdar. ti//s7,v/pa p/ng i Nid/irosi.
I-*>*.>. \ ir '.irftr H.moiius papa. I'.all Pliilippi Kraoka konungsjl
(> licrra Asi/rims Porstoins sonar. Itiarnar Sa niundar sonar. ]
Andros hiskuji at Oslo kom i laml mcð jiajia lircfum.
Hclca synir sigldu i Gra'idandz oliygðir.
■ . \ l ír ll.'muius iiii" p///i//. full l’liilíppi Kr//kka k/i///'////s^
(I .\s!.'/'/nir kt. Iclirvarii. P/i/iinr Ii/s7,/|i al' Ha///ri. D/vk-
’i.tði P/i/'\alldr Stcinnuiðs svu t'uni s/'/v/s' sr/s .4. N. fciirv-
■irii. O Pvrið |>r/or t.'t kl. Maij. taml/. l/(//d vcstr vndani
1 N/z/«l". Sott mik/7 vtn icst I /•>/)’
1>. a. Ho/fcrd Kircks Nom/s ko////s t/7 Danmrkr (!). Po/dr 1>//s/,'/íj>I
for t/7 Grcnlío/dz. andrt/te Rafu Oddzso//. Kir/7,r ko////r[
scndi ltolf t/7 Islrtmlz at lcita Nyia l/o/dz. .lorumlr Holaj
V hynkup for v/zz syslu Arna l>//s7,v(]>s at licimta aptr stadi ad|
\’igdr Hoiiorirts scjitiniT/.S' \Hifi. tall l'hilijipí!) Frrtnka kontjs,
andrt/f/> Po/tin/íf Ii//s7,/(p af Hain/v. Andrcs bysí'rtp af
Oslo kom i l«//d mcd po/d liref/zin. and«d/> herra Asgr/mr
Porstc.HisSo//. olc líiorn Sæm/(//darso//. druknadi Porualldr
Htcinmodsso// nied nockurum mo/i/wm. andm/f* Purid ji/vor.
fanz lrtml vcstr vndan Islamli. sott mikil v»/ vcstliordu. \
f' c amlrtífó Alcxander Skota ko//,//r. Draip Bir/7,s’ (hricti-
jiliorrtsso/irtr Dana konr/s. Andrcs Ii//s7,//p at Oslo vigdi
vigdid) .lorund hyskup til Hanmrs. cni/ Dolgtnin li//s7./(p
t/7 Orkn. kon/u scmlihodrtr l'atrtra ko/z//s t// Kirck- Nor-
/7/s ko////s. Dr, j>in/i olc myrdr Kir/Vcr Dana k//////r. gerfir
jarlar i Nom// Alfr ok Audun. Scct s|>iot a liindi cinu»<
stamlaiida i lopti i R//rgrtrf/r'ó. Gudin/í//dr Hallzso// kom
vt iiu// vtrt/istcfninglia l>r/f/íin. amln'hz AdalIuainlr |»7.<7r.
Annálar þeir sem greina frá því að íslendingar fundu fyrstir Jan
Mayen, að því er talið er.
en eitthvað hljóta mennirnir
að hafa fundið, á því er enginn
efi. Sumir telja jafnvel að þeir
hafi fundið Kolbeinsey, en sú
skoðun hefur ekki fengið
hljómgrunn, að ég held. Það er
ljóst að þeir Hrólfur og Árni
gerðu sér fyllilega grein fyrir
því að Jan Mayen var ónumið
land og sýnir þessi ráðagerð
þeirra best stórhug þann sem
þeir hafa haft til að bera, að
ætla sér að koma eyjunni
undir ísland,“ sagði Guðmund-
ur Guðni Guðmundsson rithöf-
undur.
Korpa minni en
bæjarlækur
Það er engin lýgi, að korpa er
orðin svo vatnslítil að víða er
hægt að stíga yfir hana í einu
venjulegu skrefi og veiða í henni
á strigaskóm. Á laugardaginn
voru aðeins um 180 laxar komnir
á land úr ánni, sem er langt frá
því sem áin getur best gert. Enn
í dag, veiðist Iang mest niður í
fossunum við árósinn, eða um
100 laxar af fyrrgreindum 180
fiskum. Það er því mikið magn
sem aldrei kemst upp svo að
heitið geti.
Síðustu daganna hefur slatti
af grálúsugum laxi slæðst upp,
þannig veiddust á sunnudags-
morguninn 6 laxar, allir í Foss-
inum og Berghyl og allir svo
lúsugir að með ólíkindum var.
Voru taldar um 50 lýs á einum
og sama laxinum svo að dæmi sé
tekið. Þrátt fyrir þessa góðu
veiði á sunnudeginum, sást lítið
af laxi utan þeirra sem kusu að
snæða ánamaðka veiðimanna.
En hann sést enn stökkva tölu-
vert mikið úti á flóanum og má
því ætla að nokkuð magn af laxi
bíði enn eftir hagstæðum göngu-
skilyrðum.
Elliðaárnar daufar
Veiðin hefur verið frekar dauf
í Elliðaánum síðustu dægrin og
er um kennt hinu litla vatni og
björtu veðri, hvað svo sem hæft
er í því. Ógurlegt magn er af laxi
í ánum, bök og sporðar nánast
hvar sem litið er. Á sunnudaginn
voru komnir um 1100 laxar á
land með einu móti eða öðru, það
er minna en á sama tíma í fyrra,
en ekki svo slæmt þegar tekið er
með í reikningin hin slæmu
skilyrði lengst af í sumar. Með-
alþyngd er um 5 pund, en stærst
til þessa er 16 punda.
Leirvogsá góð
eftir atvikum
Leirvogsá er eins og lækjar-
sytra þessa daganna, en þó
veiðist jafnt og þétt, þó að
dagaskipti séu. Úr ánni hafa
veiðst um 340 laxar og eins og í
Korpu, hefur töluvert slæðst upp
af nýrunnum fiski upp á síðkast-
ið. Stærsta laxinn í sumar veiddi
Dagur Sigurðsson í Gljúfrinu og
var hann 16 punda þungur. Dag-
ur fékk boltann á flugu sem
nefnist Skúpparó og er heima-
smíði. Er hún eitruð fluga í
ýmsum ám, t.d. má Gljúfurár-
laxinn ekki sjá hana án þess að
bragða á henni.
- SK-