Morgunblaðið - 28.08.1979, Qupperneq 16
Lesarkir
Náttúruverndarráðs 1.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. AGUST 1979
Flóraoggróður
HerðuDreiðar-
friðlands
90 manns gista á nóttu hverri í
Herðubreiðarfriðlandi að meðaltali
Að meðaltali gista um 90
gestir í Herðubreiðarfriðlandi á
hverri nóttu yfir sumartímann.
Ferðamannastraumur um ná-
Krenni Herðubreiðar hefur far-
ið ört vaxandi hin síðari ár og
var þessi aukni ferðamanna-
straumur ein megin ástæðan
fyrir því að árið 1974 var
Ilerðubreiðarfriðland stofnað.
Tekur friðlandið til Herðu-
breiðar. Herðubreiðarlinda og
Grafarlanda. Þegar gripið var
til friðlýsingarinnar var víða
farið að bera á gróðurskemmd-
um vegna aukinnar umferðar
1 fcrðamanna og auk þess var
umgengni ábótavant að sögn
IÁrna Reynissonar, fram-
kvæmdastjóra Náttúruvernd-
arráðs.
Við stofnun friðlandsins var
komið á landvörslu í samvinnu
við Ferðafélag Akureyrar, sem á
skála í Herðubreiðarlindum, og
starfa nú tveir menn við eftirlit
á svæðinu. Afmörkuð voru bíla-
stæði og tjaldsvæði, komið upp
brennsluofni, sorpgrindum og
náðhúsum. Tjaldflatir eru
styrktar með fræi og áburði, eða
hvíldar með friðun. Ferðafélag
Akureyrar hefur veitt Náttúru-
verndarráði dyggan stuðning við
þessi störf með sjálfboðavinnu
félagsmanna að sögn Árna
Reynissonar.
Þá hefur Náttúruverndarráð
gefið út ýmiss konar upplýsinga-
og fræðsluefni um friðlandið og
nágrenni. í vor komu út tvö
upplýsingaspjöld, annað um
Herðubreiðarfriðland og hitt um
náttúruvættið Öskju í dyngju-
fjöllum, sem afhent eru gestum
við komuna. Þá var einnig gefinn
út yfirlitsbæklingur um náttúru
friðlandsins, helstu gönguleiðir
og verndun svæðisins. Á síðasta
ári kom út lesörk um gróður og
flóru Herðubreiðarfriðlands, eft-
ir Eyþór Einarsson, formann
Náttúruverndarráðs.
Helgina 6.-8. júii s.l. unnu
sjálfboðaliðar frá Ferðafélagi
Akureyrar m.a. að því að leggja
vatnsleiðslu austur fyrir hraun-
Írimann í Herðubreiðarlindum og
opna þar nýtt tjaldsvæði. Er
i þetta gert í þeim tilgangi að
létta ágangi af bökkum Herðu-
breiðarlinda, sem hafa látið
i nokkuð á sjá. Af öðrum verkefn-
um sem unnið var að í þessari
ferð má nefna að lagðir voru
Sjálfboðaliðar frá Ferðafélagi Akureyrar hlaða steinum meðfram veginum til að hindra að ekið sé á
gróðri.
Félagar úr Ferðafélagi Akureyrar fá sér kaffisopa að afloknu góðu dagsverki.
steinar meðfram veginum upp í
Herðubreiðarlindir, þar sem
hann liggur um gróið land nærri
Lindá, en undanfarin ár hefur
það alltaf öðru hverju borið við
að ökumenn hafi í hugsunarleysi
valdið spjöilum á hinum grónu
fiötum meðfram veginum. í
framtíðinni kemur til greina að
opna þarna tjaldsvæði og eru nú
í gangi tilraunir með áburð og
fræ á þessum gróðurflötum.
Landverðir í Herðubreiðar-
lindum í ár eru Reynir Arn-
grímsson og Anna Elísabet Ól-
afsdóttir. Er starfi þeirra ærinn
því undanfarin ár hefur fjöldi
gistinátta verið frá tæplega 4000
og komist hæst í 6700 árið 1977.
Herðubreið
Náttúr -ndarráð hefur að undanförnu gefið út ýmisiegt
fræðsluelr um Herðubreiðarfriðlandið.