Morgunblaðið - 28.08.1979, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979
29
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guómundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson
Ritstjórn og skrifstofur Aöalstræti 6, sími 10100.
Auglýsingar Aöalstræti 6, sími 22480.
Afgreiðsla Sími 83033
Áskriftargjald 3500.00 kr. á mónuöi innanlands.
í lausasölu 180 kr. eintakiö.
Reykjavik
er stjórnlaus
Fyrir ári náðu vinstri flokkarnir loksins því lang-
þráða takmarki sínu að komast til valda í höfuð-
borginni. Að þessu höfðu þeir unnið um áratugi, svo að
við því var að búast, að mikið kapp yrði á það lagt, að
þeim færist stjórnin sæmilega úr hendi og að sam-
starfið yrði þokkalegt, a.m.k. á yfirborðinu. Þess vegna
er það, að vinstri menn hafa haft vakandi auga á stjórn
borgarmálefna síðustu misserin. Og óneitanlega hafa
þeir orðið fyrir miklum vonbrigðum. Hvergi bryddar á
nýjungunum sem lofað var en miklu frekar er hitt, að
slakað hafi verið á og látið danka.
Á síðustu áratugum hefur Reykjavíkurborg undir
forystu Sjálfstæðisflokksins tekið frumkvæðið í félags-
legri þjónustu við borgarana og vísað öðrum veginn, ríki
og sveitarfélögum. Þessi starfsemi var komin í fastar
skorður og hafði farið vaxandi frá ári til árs. Hinn nýi
meirihluti hafði fyrir kosningar þótzt bera þennan
málaflokk sérstaklega fyrir brjósti. Eftir kosningar
hefur annað komið upp úr dúrnum. Þannig hefur verið
dregið úr ýmsum þáttum hinnar félagslegu þjónustu og
starfsmenn borgarinnar hafa lýst óánægju sinni í
fjölmiðlum vegna lélegra starfsskilyrða og brigðmæla
meirihlutans.
Á hinn bóginn hefur mikill vöxtur færst í yfirbygg-
ingu borgarkerfisins, svo að öll stjórnun er orðin þyngri
í svifum. Þetta er ekki undarlegt þegar þess er gætt, að
áður hélt samstilltur meirihluti eins flokks um
stjórnartaumana, en borgarstjórinn bar pólitíska
ábyrgð á því, hvernig til tækist. Nú eru flokkarnir þrír.
Engin ákvörðun, sem máli skiptir, er tekin, nema þeir
hafi áður komið sér saman. Og það vill ganga upp og
niður, hvernig það tekst. Þannig er stefna þeirra ólík á
ýmsa lund. Og svo hefur það farið vaxandi, að annarleg
sjónarmið hafa orðið ráðandi um afstöðu einstakra
flokka meirihlutans eða þeir beinlínis klofnað. Þess
vegna hefur raunin orðið sú, að Sjálfstæðisflokkurinn
hefur orðið að taka af skarið, þegar út í óefni hefur verið
komið.
Það er ekki einungis, að ágreiningur meirihlutaflokk-
anna verði um afgerandi mál eins og tekjuöflunarleiðir,
heldur hafa smámálin oft reynzt þeim örðugust
viðureignar. Frægar eru deilurnar um Kjarvalsstaði og
persónulegar heitingar einstakra bæjarfulltrúa vinstri
flokkanna af þeim sökum vöktu mikla athygli. Og nú
síðast varð ráðning framkvæmdarstjóra Æskulýðsráðs
Reykjavíkur til þess að afhjúpa það flokkspólítíska og
persónulega reiptog, sem stöðugt á sér stað innan
vinstri meirihlutans og tekur á sig hinar furðulegustu
myndir. Bókanir einstakra borgarráðsmanna sýna, að
samstarfið er ekki byggt á heilindum, heldur logar allt,
um leið og komið er undir yfirborðið.
Reykvíkingar hafa um áratugi notið sterkrar og
samhentar stjórnar, eins og vöxtur og viðgangur
höfuðborgarinnar ber glöggt vitni. Þeir verða nú um
skeið að una því, að þrír flokkar fari bæði með stjórn
landsins og borgarinnar og ferst hvort tveggja jafnilla
úr hendi. Þess er að vænta, að fyrsta tækifærið, sem
gefst, verði notað til þess að losa sig undan þessari
vinstri ringulreið eins og þeim manni er sagt upp, sem
illa dugir í starfi.
MOUNTBATTEN
- herkænska hans og pólitískt
raunsæi hafa skipaó honum á
bekk meðal öndvegismanna
brezku þjóóarinnar á þessari öld
Mountbatten jarl var dáöur á
Bretlandi fyrir herkaensku sína og
pólitískt raunsæi. Hann hefur
skipaö sér á bekk mikilmenna
brezkrar sögu á þessari öld. En
ekki aöeins Bretar báru viröingu
fyrir Mountbatten. Indverjar mátu
starf hans á Indlandi mikils þegar
hann leiddi þjóöina til sjálfstæðis
1949. Hann var gagnrýndur þá,
en sagan hefur dæmt geröir hans
þar sem viturlegar, og pólitísk
framsýni hans hefur veriö rómuö.
Hann leiddi heri bandamanna til
sigurs í Suöaustur-Asíu gegn
Japönum og í kjölfar þess hlaut
hann titilinn Mountbatten jarl af
Burma. Hann var frábær her-
stjórnandi, pólitískur raunsæis-
maður og eins og öll mikilmenni
var hann umdeildur. En jafnt vinir
hans sem óvinir viöurkenna hann
sem eitt af stórmennum 20. aldar.
Hann haföi flest til aö bera,
tengdur inní ýmsar virtustu aöals-
ættir Evrópu, nátengdur Elísabetu
II, Bretadrottningu og frændi
Filipusar prins. Ungur gekk hann í
sjóherinn, — tók þátt í fyrri
heimsstyrjöldinni. í upphafi síöari
heimsstyrjaldarinnar stjórnaöi
hann tundurspillinum HMS Kelly,
var síðan geröur yfirmaöur hinna
frægu Víkingasveita, lagöi á ráöin
um innrásins í Normandy, og í lok
stríðsins var hann yfirmaöur
bandamanna í Suðaustur-Asíu og
vann þar frækna sigra. Dýröar-
Ijómi stafaöi um nafn hans og
barmur hans var beinlínis þakinn
viöurkenningum, meöal annars
æöstu heiöursmerkjum ýmissa
ríkja.
Enginn efaöist um herkænsku
Mountbattens en hann, ólíkt
mörgum hershöföingjum, hafði til
aö bera ríkt pólitískt ráunsæi.
Eftir stríöiö var hann gerður aö
varakóngi í Indlandi. Þessi staöa
var gífurlega vandasöm, framund-
an blasti óhjákvæmilega sjálf-
stæöi Indlands, brezka heims-
veldið var aö liöast í sundur.
Indverjar voru klofnir í tvær fylk-
ingar — múhameöstrúarmenn er
voru í minnihluta og Hindúa.
Þessar andstæöu fylkingar voru
ósættanlegar og þaö reyndi á alla
stjórnkænsku Mountbattens.
Hann skipti þessari þrezku ný-
lendu upp í Pakistan og Indland.
Þegar heim kom hlaut hann litla
þökk þeirra Breta er enn dreymdi
stórveldisdrauma. Meö Winston
Churchill í fararbroddi litu margir
íhaldsmenn á Mountbatten sem
svikara viö málstaöinn. Hann var
maöurinn er leysti heimsveldiö
upp. Churchill neitaöi aö tala viö
hann viö komuna til Englands og
ekki bætti úr, aö skipting Ind-
lands haföi átt sér staö undir
stjórn Verkamannaflokksins —
Mountbatten hafði svikiö eigin
stétt. Indland haföi veriö púöur-
tunna, er kviknað gat í hvenær
sem var og raunar létust þúsundir
í átökum hinna stríðandi fylkinga
En skiptingin var óhjákvæmileg,
rétt eins og sjálfstæöi Indlands
var óhjákvæmilegt. „Ég sá enga
aöra lausn en skiptinguna —
stofnun Indlands og Pakistans.
Þaö var ekki nokkur von aö koma
á sáttum hinna stríöandi afla og
lausn varö aö fást áöur en viö
létum af völdum", sagöi Mount-
batten síöar í viötali og hann
bætti við: „Innan 20 ára mun
enginn skilja þá gagnrýni, sem
beint hefur veriö gegn mér.“ Hann
haföi rétt fyrir sér og Churchill tók
hann síöar í sátt. Heimafyrir var
framsýni hans lofuö en ýmsir litu
hann ávallt sem „vinstrisinna og
svikara viö stétt sína“.
Mountbatten var framar öllu
raunsæismaöur er áttaöi sig á
breyttum tímum og vaxandi þjóð-
ernisstefnu í Asíu. Hann hvatti
Frakka á sínum tíma til aö semja
friö viö Víetnama undir stjórn Ho
Chi Minh án árangurs og í kjölfar-
iö fylgdi 30 ára stríö sem lauk
meö ósigri Bandaríkjamanna.
„Reyniö ekki aö berjast", varaöi
hann LeClerk, franska hershöfö-
ingjann í Víetnam, „þaö mun enda
í ósigri og allt tapast", sagöi hann.
Mountbatten jarl fæddist 25.
júní aldamótaáriö 1900. Hann var
skíröur Louis Francis Albert
Nicholas Battenberg. Meöal vina
gekk hann ávallt undir nafninu
Dickie. Langamma hans, Viktoría
drottning, hélt honum undir skírn.
Móöir hans, Viktoría prinsessa,
var dóttir Louis IV, hertogans af
Hesse. Faöir hans var fæddur í
Austurríki og gerðist brezkur
borgari. Hann varö flotamálaráö-
herra en þegar fyrri heimsstyrj-
öldin braust út varð hann að
segja af sér vegna tengsla sinna
viö Þýzkaland. í kjölfar þess
afsalaði hann sér öllum þýzkum
titlum sínum og tók upp fjöl-
skyldunafnið Mountbatten. Þetta
var fjölskyldunni mikiö áfall og
Dickie var staöráöinn í aö vinna
fjölskyldu sinni viröingu á ný.
Aöeins sextán ára hóf hann feril
sinn í brezka sjóhernum. Var
hann þar í tvö ár og eftir lok
heimsstyrjaldarinnar fyrri hóf
hann nám viö Cambridge. Þar
urðu þeir Edward VIII konungur
miklir mátar. Mountbatten var
mjög á móti þeirri ákvöröun
Edwards VIII aö afsala sér völdum
en hélt engu aö síöur tryggö viö
hann. Áriö 1920 fór hann í heims-
reisu og Ijómi fór aö stafa af nafni
hans. Hann var sérlega glæsilegur
ungur maöur og tengsl hans viö
þekktustu kvikmyndastjörnur
samtíðarinnar köstuöu enn frekar
frægöarljóma á nafn hans. Hann
var dáöur af kvenfólki og þegar
oröinn einn eftirsóttasti pipar-
sveinn í brezka heimsveldinu.
Glæsileiki hans heillaöi konur og
hann liföi hátt á þessum árum.
Hann hitti Edwinu Cynthiu Ashley
og þau felldu hugi saman, giftu
sig 1922. Heimanmundur hennar
var ríkulegur, 24 milljónir dollara.
Þau þóttu sérlega glæsilegt par
— brúökaupsferö þeirra var heit-
iö til Hollywood. Þar dvöldu þau
hjá Douglas Fairbanks og Mary
Pickford — dáöustu kvikmynda-
stjörnum samtíöarinnar. Charlie
Chaplin tileinkaöi þeim kvikmynd,
sem hann framleiddi og þau léku
minniháttar hlutverk í henni.
Mountbatten var ekki einungis
maöur skemmtanalífsins — ann-
aö og meira beiö hans. Störf hans
í sjóhernum tóku við. Síöar er
heimsstyrjöldin braust út. Tund-
urspillirinn HMS Kelly varö fyrir
tundurdufli undan Noregi og lask-
aðist mjög. Og í Noröursjónum
varö hann fyrir tundurskeyti þýzks
kafbáts en þraukaöi samt. Kelly
sökk síöar í orustunni um Krít
1941. Stukaflugvélar steyptu sér
yfir skipiö og eftir haröa bardaga
Mountbatten jarl —
borðum skreyttur. Þessi
mynd var tekin þegar
hann var á leiö til útfar-
ar gamals vinar, Sir
Winston Churchill.
sökk skipiö. Helmingur áhafnar-
innar beiö bana í þelm hildarleik
en Mountbatten komst lífs af
ásamt 11 öðrum. Eftir þrekraun
þessa var Mountbatten gerður aö
yfirmanni hinna haröskeyttu Vík-
ingasveita brezka hersins og
dýröarljómi stafaði af frægöar-
verkum þeirra. Úrvalssveitir þess-
ar greiddu Þjóöverjum oftsinnis
þung högg aö baki víglínunnar.
Hann var síöan geröur aö yfir-
manni herja bandamanna í Suö-
austur-Asíu 1943. Þar vann hann
þrekvirki eins og annars staöar,
þar sem hann lagöi hönd á plóg-
inn. Undir stjórn hans hrundu
herir bandamanna stórsókn Jap-
ana, sem átti aö opna þeim
leiöina til Nýju Delhi. Þeir frelsuöu
síöan Mandaley og Rangoon. Aö
því er taliö er féllu um 100 þúsund
japanskir hermenn í þessum hild-
arleik og óhjákvæmilegur ósigur
blasti viö Japönum. Þaö var síöan
í september 1945 aö Japanir
gáfust upp. 730 þúsund japanskir
hermenn lögöu niöur vopn. Orö
fór af fyrirlitningu Mountbattens á
„þeim gulu“ og sagt var, aö hann
heföi hengt uppgjafarskjal Jap-
ana upp á vegg á klósettinu hjá
sér. Þessi fyrirlitning olli miklu
fjaðrafoki í Bretlandi 1971 þegar
Hirohito keisari kom í opinbera
heimsókn. Þá var Mountbatten
boöiö í veizlu til heiðurs keisaran-
Mountbatten var yfir-
maður víkingasveitanna
í síðari heimsstyrjöld-
inni. Hér kannar hann
liðssveitir. Mikið orð fór
af dirfsku og áræðni
víkingasveitanna.
um en hann hafnaöi því boöi.
Þessi ákvöröun olli miklu upp-
námi og hann var ásakaöur um
hatur í garö Japana. Hann friöaöi
þá gagnrýnendur stna meö því aö
halda einkafund meö keisaranum
í Buckingham-höll.
Stríöinu lauk og ný verkefni
tóku viö, heimurinn var ekki hinn
sami og brezka heimsveldið var
aö liðast í sundur. Mountbatten
var geröur aö varakonungi í Ind-
landi. Sjálfstæöi Indverja blasti
viö en vandséö var hvernig því
yröi komiö á. Þjóðin skipaði sér í
stríöandi fylkingar — múhameös-
trúarmenn og Hindúa. Þar reyndi
á raunsæi hans og framsýni og
hann reyndist vandanum vaxinn.
Ekkert mátti útaf bregöa — Ind-
iandsskagi var pólitísk sprengja
er gat sprungiö ef ekki væri rétt
að fariö. Skipting landsins var
óhjákvæmileg og þrátt fyrir haröa
gagnrýni knúði hann hana fram.
Hann sneri heim eftir sjálfstæöi
Indlands 1949 — og ekki liðu
mörg ár þar til Winston Churchill
haföi fyrirgefiö honum. Churchill
geröi hann aö yfirmanni flotans
1955 — þaö embætti var Mount-
batten mjög kært. Hann fylgdi þar
í fótspor fööur síns er haföi orðið
aö segja af sér embætti. Þá haföi
Mountbatten þjónaö í brezka
flotanum í 42 ár. Hann varð síðan
yfirmaöur alls herafla Breta og
sameinaöi flotamálaráöuneytið,
flugmálaráöuneytið og hermála-
ráðuneytið í eitt ráðuneyti —
varnarmálaráöuneytiö.
Mountbatten lét síöan af störf-
um 1962 — eftir liölega hálfrar
aldar þjónustu. Störfum hans í
þágu hins opinbera var þó ekki
lokiö. Hann fór í ferð á vegum
brezku stjórnarinnar til
S-Ameríku 1963 og eftir aö
sovézki njósnarinn George Blake
flúði úr brezku fangelsi var honum
faliö aö stjórna rannsókn fangels-
ismála á Bretlandi.
Fyrir fimm árum fór hann í
opinbera heimsókn til Kína —
fyrstur meðlima brezku konungs-
fjölskyldunnar eftir sigur komm-
únista 1949. Á litríkum æviferli
haföi Mountbatten skipaö sér á
bekk meöal öndvegismanna
Breta á þessari öld. Snjall her-
stjórnandi og framsýnn stjórn-
málamaöur er skynjaði breytta
tíma.
Tölvuviraisla Morgimblaðsins kynnt á vörusýningunni
Sýningargestum var gefinn kostur é aö sjá blaðiö é mismunandi vinnslustigum.
LJósm.: Kristlnn.
UM FIMMTÁN ÞÚSUND gestir höföu heimsótt AlÞjóðlegu
vörusýninguna 1979 í gær, er blaöamaöur og Ijósmyndari
Mbl. litu Þar við. Þá var fjöldi manns á sýningarbás
Morgunblaðsins, en Þar fór fram sérstök kynning á Því
hvernig Morgunblaðið er unnið.
í sýningarbásnum hefur veriö komiö fyrir Ijósmyndum, sem
sýna hvernig vinnsla blaösins fer fram, allt frá því aö
blaöamenn skrifa fréttir og greinar þangaö til blaðið berst í
hendur útburöarbarna og umboösmanna, sem sjá um aö
koma því til lesenda. Auk þess hefur þar verið komiö fyrir
setningarskermi og Ijósaboröi, til þess aö sýningargestir geti
betur gert sér í hugarlund, hvernig vinnsla blaösins fer fram.
Setningarskermurinn er hluti af mjög fullkomnu setningar-
kerfi, sem Morgunblaöiö tók í notkun í byrjun þessa árs, og
er hann tengdur móðurtölvu, sem staösett er í Aðalstræti.
Setningarskermurinn er notaður viö textasetningu og úr
Laugardalshöllinni er hægt aö senda texta niöur í Aöalstræti
og sömuleiöis ér hægt aö ná í texta þaðan. Auk þess, sem
setningarskermurinn gegnir mikilvægu hlutverki viö texta-
setningu, gefst fólki tækifæri til aö tefla viö hann og teflir
skermurinn á viö meðalskákmann. Margir sýningargestir
hafa notaö tækifæriö og reynt skákhæfileika sína á móti
hinum nýstárlega mótherja.
Á sýningarbásum hefur ennfremur veriö komiö fyrir litlum
turni, nokkurs konar blaöaturni, og þaöan fá sýningargestir
blaöiö ókeypis frá degi til dags, auk þess sem yngstu
gestirnir fá stundaskrá aö gjöf.
Sýningargestir viröa fyrir aér, hvernig unnið er é setningarskerminn.