Morgunblaðið - 28.08.1979, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979
23
Ævintýralegt
sjálfsmark færði
Selfossi sigur
Selfoss — Æ O
Þ6r 4:3
SELFOSS vann hálfgerðan
Pírrosarsigur á Akureyrarþór í
2. deild ísiandsmótsins í knatt-
spyrnu. Lokatölur leiksins urðu
4—3 Selfoss í vil, en það varð til
að skyggja á sigurgleði Selfyss-
inga, að skæðasti sóknarmaður
liðsins, Sumarliði Guðbjartsson,
var borinn af leikvelli fótbrotinn
í fyrri hálfleik. Verður Sumarliði
örugglega frá það sem eftir er
keppnistímabilsins. Staðan í hálf-
ieik var 3—3.
Fyrri hálfleikurinn var opinn i
báða enda, spennandi og mikið um
færi. Heimaliðið átti mun fleiri,
en gestirnir á hinn bóginn nýttu
sín færi betur. Þór náði jafnan
forystunni í fyrri hálfleik. Hafþór
Helgason skoraði fyrst fyrir Þór á
5. mínútu, eftir að hafa fengið
stungusendingu jnn fyrir vörn
Selfoss.
Stefán Larsen jafnaði 6 mínút-
um síðar, en sú dýrð stóð aðeins í 7
STAÐAN
STAÐAN í 2. deild
íslandsmótsins í knatt-
spyrnu er nú þessi.
UBK 16 11 3 2 36- -11 25
FH 16 11 2 3 47- -17 24
Fylkir 16 8 2 6 26- -20 18
Selfoss 16 7 3 6 25- -20 17
Þrótt. Nk. 16 6 3 7 12- -21 15
Þór 16 6 2 8 20- -25 14
ÍBÍ 16 4 6 6 26- -34 14
Austri 16 5 4 7 15- -24 14
Reynir 16 3 5 8 14- -28 11
Magni 16 3 2 11 15- -37 8
Markhæstu leikmenn:
Sigurður Grétarsson UBK 14
Pálmi Jónsson FH 13
Andrés Kristjánsson ÍBÍ 11
mínútur, eða þar til Nói Björnsson
skoraði annað mark Þórs af stuttu
færi. Þórarinn Ingólfsson, besti
maður Selfoss, skoraði annað
mark Selfoss á 29. mínútu en
Hafþór svaraði enn fyrir Þór á 31.
mínútu. Heimir Bergsson átti
stangarskot áður en að Tryggvi
Gunnarsson skoraði þriðja mark
Seifoss á 41. mínútu og var það
síðasta mark fyrri hálfleiks.
• Sigtryggur Guðlaugsson,
handknattleiks- og knattspyrnu-
kappi í Þór skoraði furðulegt
sjálfsmark í leiknum gegn Sel-
fossi og unnu Selfyssingar leik-
inn á þessu „glæsimarki“.
Snemma í síðari hálfleik kom
sigurmark Selfoss og var þar um
ævintýralegt sjálfsmark Sigtryggs
Guðlaugssonar að ræða. Hann var
með knöttinn rétt fyrir miðju á
eigin vallarhelmingi er hann
hugðist senda knöttinn allar götur
aftur til markvarðar síns. Hann
gætti þó ekki að því, að markvörð-
urinn stóð heldur framarlega í
markinu og boltinn sveif í falleg-
um boga yfir hann og undir
þverslána! Þetta reyndist vera
sigurmark leiksins, því að hvorugt
liðið bætti við mörkum úr þessu,
en Þórsarar sóttu öllu meira undir
lokin. Á síðustu mínútunni lá
knötturinn í neti heimamanna,
sem síðan önduðu léttar, þegar
markið var dæmt af vegna þess að
einhver Þórsaranna hafði hand-
leikið knöttinn.
bg/gg.
Magni fallinn
niður í 3. deild
Magni — fl»l
Fylkir U. I
Á LAUGARDAGINN léku í 2.
deild Magni og Fylkir og fór
leikurinn fram á Grenivík.
Fylkismenn voru mun ákveðnari
í upphafi og sóttu þeir stfft að
marki Magna, fyrstu 25. mín.
Þeir áttu 2 hættuleg skot sem
Einar Kristjánsson markvörður
Magna varði mjög vel. Eftir þetta
jafnaðist leikurinn og skiptust
liðin á um að sækja án þess þó að
veruleg hætta skapaðist við
mörkin.
Magnamenn komu mjög
ákveðnir til leiks í seinni hálfleik
og sóttu þeir lengst af stíft að
marki Fylkis og Ögmundur mark-
vörður Fylkis varði oft vel. Sér-
staklega varði hann einu sinni
hörkuskot Hrings Hreinssonar.
Þegar 4 mín. voru eftir af leiknum
fengu Magnamenn innkast á
vallarhelmingi Fylkis en misstu
knöttinn upp úr því.
Gefinn var
fastur bolti fram á Hilmar
Sighvatsson, hættulegasta
sóknarmann Fylkis, sem komst
einn og óvaldaður inn í vítateig
Magna og skoraði með góðu skoti
framhjá Einari markverði sem
kom á móti honum.
Ef á heildina
er litið hefðu sanngjörnustu úrslit
þessa leiks verið jafntefli. Bestu
menn liðanna voru markverðirnir
Einar Kristjánsson hjá Magna og
Ögmundur Kristinsson hjá Fylki.
-SOR.
• Þeir stóðu sig bezt í „Icelandic open** golfmótinu í Grafarholti. Frá vinstri:
Sigurður Hafsteinsson, Ragnar Ólafsson og Jóhann Kjærbo sigurvegari í
forkeppninni. Björgvin Þorsteinsson, Geir Svansson, | og Einar L. Þórisson
(Ljósm.: óskar Sæmundsson).
Miklar sviptingar í „opna íslenzka meistaramótinu“
Geir hafði betur
í spennandi keppni
við Einar Þórisson
EFTIR gífurlega spennandi úrslitaleik á milli þeirra Geirs Svanssonar og Einars L.
Þórissonar í „Icelandic-open** golfmótinu í Grafarholti, stóð Geir uppi sem
sigurvegari í keppninni. Geir fer því ásamt Ilannesi Eyvindssyni á heimsbikarkeppn-
ina í golfi í Aþenu í október — þ.e.a.s. verði íslendingum boðin þátttaka, sem reikna
má með.
Miklar sviptingar voru í keppn-
inni, sem var hin skemmtilegasta
J og fór fram við góðar aðstæður.
Spennan var þó aldrei meiri en í
| úrslitaleiknum. Aldrei munaði
| meiru en einni holu á úrslitaköpp-
■ unum og hvorugur gaf eftir um
þumlung. Ef við lítum á fjórar
síðustu holurnar þá átti Geir 1
holu eftir 14. Bolti Einars lenti
| utan brautar eftir upphafshögg,
| en Geirs var á góðum stað. Einar
sló annað högg inn á miðja braut,
en bolti Geirs lá rétt við flötina
eftir annað högg. Mikil pressa var
I á Einari að ná góðu þriðja höggi
| og drengurinn lét sig muna um að
| „leggja við pinna" þannig að það
reyndist honum auðvelt að fara
holuna á 4 höggum, einu undir
pari. Geir þurfti hins vegar að
| tvípútta og fór því á parinu.
| Staðan orðin jöfn.
Á 16. brautinni fóru báðir á 4
höggum, en á 17. braut réðust
J úrslitin í rauninni. Báðir áttu góð
upphafshögg, sérstaklega Einar.
| Bloti hans stefndi á flagg allan
| tímann, en var aðeins og stuttur
og lá í flatarkanti. Geir var aðeins
og mikið til hægri, en í niðurkom-
unni snerist blotinn til vinstri og
lá í kantinum, þó heldur lengra
| frá holunni en bolti Einars. Geir
gerði sér lítið fyrir og setti niður í
t 3 höggum, en Einar missti tæp-
lega metra pútt og fór í fjórum.
Geir 1:0 yfir.
Einar lenti utan brautar eftir
upphafshögg á 18. en lá þó á
ágætum stað og sló inn á flöt, þó
talsvert neðan við holuna. Geir
var á góðum stað eftir upphafs-
högg, en í 2. höggi brást honum
bogalistin og hitti boltann illa.
Geir hafði þó heppnina með sér og
boltinn rúllaði eftir endilangri
flötinni og lenti innan við metra
frá holu. Báðir fóru á 4 höggum og
Geir því sigurvegari í keppninni,
1:0 í úrslitaleiknum.
Einar L. Þórisson hefur fram til
þessa yfirleitt ekki verið í hópi
þeirra albeztu, en í þessari keppni
sýndi hann hæfileika sína og að
þessu sinni rétt keppnisskap. Geir
er lengi búinn að vera í fremstu
röð og á það fyllilega inni að fá
rétt til þátttöku í „World cup“.
Keppnin hófst á föstudag með
forkeppni og þar sigraði Jóhann
Kjærbo eftir bráðabana við Ragn-
ar Ólafsson, en báðir léku á 74
höggum, Sigurður Hafsteinsson
lék á 76 höggum og þeir Björgvin
Þorsteinsson, Einar Þórisson og
Óskar Sæmundsson á 77 höggum.
í holukeppninni á laugardag fóru
leikar þannig, en 16 þeir beztu í
höggleiknum komust áfram:
Ragnar Ólafsson, GR —
Júlíus R. Júlíusson, GK 4:2
Einar Þórisson, GR —
Óli Laxdal 1:0 eftir 21 holu
Sigurður Hafsteinss. GR —
Jónas Kristjánss. GR 3:2
Hannes Eyvindsson GR —
Sigurður Sigurðss. GS 1:0
Jóhann Kjærbo GS —
Geir Svansson 0:1 eftir 19 holur
Óskar Sæmundsson GR —
Óttar Yngvason GR 6:5
Björgvin Þorsteinsson GA —
Sigurjón Gíslas. GK 6:4
Þorbjörn Kjærbo GS —
Hilmar Björgvinss. GS 1:2
Einar Þórisson —
Ragnar Ólafsson 3:1
Hannes Eyvindsson —
Sigurður Hafst.ss. 2:1
Geir Svansson —
Óskar Sæmundsson 3:2
Björgvin Þorsteinss. —
Hilmar Björgvinss. 3:2
Einar — Hannes 1:0
Geir — Björgvin 5:4
Geir — Einar 1:0
- áij