Morgunblaðið - 28.08.1979, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1979
45
ða&t u k J í ; %
I.r k [ ? H !
HTwTv;
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
0100 KL. 10 — 11
FRÁ MÁNUDEGI
innar. Þetta þjóðar-krabbamein
hefur nú loks verið úrskurðað sem
sjúkdómur og er það vonum
seinna, því hvað er það annað en
sjúkdómur og hann bráðsmitandi
líkt og berklarnir voru, því þarf að
leggja fram alla þá orku er
fáanleg er til þess að fá hann
læknaðan. Áfengissjúkdóminn
mætti nefna svarta dauða og er sú
nafngift vel við hæfi. Ef við ætlum
að lifa frjálsu lífi í landi okkar,
verður tafarlaust að herða sjúk-
dómsvarnir með lækningu og
fyrirbyggjandi aðgerðum. En mitt
í svartnætti svartadauðans sér í
sólskinsblett. Samtök A.A. manna
er fyrsti vísir að samhjálp er
mynduð er hér. Síðar
koma S.Á.Á. menn fram á sjón-
arsviðið og loks Freeportklúbb-
urinn. Samtakamáttur þessara
þriggja aðila hefur kveikt vonarn-
eista hjá þeim er þjáðir eru, því
þarna er á ferð nokkuð sem vert er
að veita athygli. Sólarbletturinn
hefur stækkað í höndum og huga
þessara aðila og á vonandi eftir að
verða lýsandi stjarna allra þeirra
er sjá vilja. Þökk sé þeim er opnað
hafa þessa útgönguleið og biðjum
þess að allir er þess þurfa megi
ganga mót geislanum og inn í
betra og hamingjuríkara líf. Opn-
ið aðaldyr heimila ykkar og hleyp-
ið inn friði og hamingju kærleika,
en um bakdyrnar ættuð þið að
hleypa út öllu því er angrað hefur
hug og hjarta. Eftir þessar að-
gerðir væri gott að hugleiða hvort
betra er það sem inn kom eða það
sem út fór. 14. ágúst voru okkur
sýndar í sjónvarpi myndir af
nokkrum húsgrunnum í Reykjavík
er voru á fyrsta byggingarstigi en
stóðu óhreyfðir í sumar sökum
fjárskorts. Er ég leit myndir
þessar varð mér hugsað til þeirra
gífurlegu fjármuna er runnið
höfðu út í sandinn um verslun-
armannahelgina, áreiðanlega
hefði mátt ljúka byggingu á einu
eða jafnvel tveimur af þessum
húsum fyrir það fé sem þá eyddist.
Þá leitar á hugann sú spurning,
kemur ferðafólkið heim hvílt og
ánægt eða þreytt og vansælt?
Einnig birtist þennan sama dag
grein í Morgunblaðinu er bar
yfirskrift-
ina „Nokkur orð til íhugunar"
eftir sr. Sverri Haraldsson. Teng-
ist hún þeim hugleiðingum um
áfengisvandann er hér hefur verið
sett á blað.
Næsti ógnvaldur er í hlaðvarp-
anum, eiturlyfin. Bregðumst
skjótt við, látum hann ekki fella of
mikið af æskufólki okkar.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Laufey Tryggvadóttir
Þessir hringdu . . .
• Leikaraskapur
Kona hringdi til Velvakanda
og vildi koma eftirfarandi þremur
atriðum á framfæri:
„Ég furða mig oft á því að nú á
tíma olíukreppu eru strætisvagn-
ar SVR oft í gangi langtímum
saman þótt þeir standi kyrrir og
eyða þar af leiðandi olíu þar sem
ekki þyrfti. Ég tala nú ekki um
þetta rall sem var haldið. Maður
furðar sig á svoleiðis leikaraskap
gagnvart orkuneyslu og mengun.
Ég bý nálægt sjó og alltaf ef áttin
stendur frá bænum má vel finna
þvílíka mengun leggur af bílunum
þar sem loftið er mun tærara ef
vind leggur af sjó.
Þá langar mig til að þakka
útvarpinu fyrir það að hér um
daginn flutti það góða íslenska
tónlist í stað þess poppgargs sem
oft á tíðum hljómar þar. Og að
lokum vildi ég þakka Hilmari
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á heimsmeistaramóti unglinga
í Skien í Noregi um daginn kom
þessi staða upp í skák þeirra
Wiedenkellers, Noregi, og Ma
Hong Dings, kínverska alþýðulýð-
veldinu, sem hafði svart og átti
leik. Kínverjinn, sem hafði haft
gjörtapað tafl lengst af, sá sér nú
skyndilega leik á borði.
37.... Re3+!, 38. Dxe3 (eina leiðin
til þess að forðast mát, því að eftir
38. Hxe3, Hcl+, 39. Ke2, H8c2 er
öllu lokið.) dxe3, 39. Hxe3, Hcl+
og hvítur gafst upp.
Jónssyni fyrir að bera skjöld fyrir
Árna Helgason."
• Hvaða upp-
lýsingar
B.B. hringdi til Velvakanda:
„Mig langar til að spyrja
ríkisútvarpið hvað það er sem við,
sem borgum afnotagjöld sjón-
varps og útvarps, förum á mis við.
Það er sífellt verið að auglýsa að
þeir sem ekki hafi borgað afnota-
gjöldin í Borgarfirði séu beðnir að
gera það nú þegar og að fulltrúi
ríkisútvarpsins sé til viðtals á
Hótel Borgarnesi. Mig langar til
að vita hvaða upplýsingar það eru
sem þetta fólk fær en við sem
borgum fáum ekki.“
• Leiðrétting
Sú villa slæddist inn í pistil
sem hafður var eftir Valgeiri
Þormar s.l. sunnudag að missagt
var að Bessastaðaá hefði aldrei
verið farin á bílum. Mun það ekki
vera rétt og eru hlutaðeigendur
beðnir velvirðingar á þessari villu.
HÖGNI HREKKVÍSI
Minning:
Árni Björn Árnason fyrrum
héraðslœknir í Grindavík
Fæddur 18. október 1902
Dáinn 15. ágúst 1979
Þegar vinur okkar, Árni læknir,
er horfinn, langar okkur til þess
að minnast hans nokkrum orðum.
Raunar er undarlegt að tala um
það, að hann sé farinn, því hann
var alltaf á sínum stað eins og
Kaldbakurinn eða Höfðinn, sem
standa traustan vörð og skýla
þessu byggðarlagi.
Hér var hann ávallt reiðubúinn
að hlýða kallij ef einhver veiktist
eða slasaðist. I Höfðahverfislækn-
ishéraði hafði hann starfað í
meira en fjörutíu ár og héðan vildi
hann alls ekki fara. Það hefur
alltaf verið tilhlökkunarefni, þeg-
ar við höfum fengið að fara með
pabba og mömmu í messuferðir út
í Grenivík. Eftir messu var okkur
ævinlega boðið inn á læknissetrið.
Frú Kristín hafði búið kaffiborð
hlaðið ljúffengum kökum og hjón-
in gættu þess bæði, að enginn yrði
út undan. Þarna vorum við börnin
ekki látin bíða eða sett fram í
eldhús, heldur áttum við að vera
þátttakendur í borðhaldi og sam-
ræðum. Gamli læknirinn okkar
kunni þá list til hlítar að tala við
börn og tók því með undraverðri
þolinmæði, ef einhver varð óþarf-
lega hávær eða tiltektasamur. Þau
yngstu áttu það til að toga hann
með sér fram á lækningastofu. í
neðstu skúffunni á vinnuborðinu
þar var nefnilega stærðar súkku-
laðipakki, sem hafði þá náttúru,
að hann var aldrei búinn, hvernig
sem klipið var af. Oft voru mol-
arnir stórir og ekki síst, ef lítið
fólk var komið í alvarlegum
erindagjörðum. Þá gleymdist
töngin eða sprautan alveg, því
læknirinn opnaði skúffuna og
brosti þessu uppörvandi brosi,
sem allir góðir læknar hafa, þeir,
sem skilja fólk vel eins og Árni
Björn. í barnaskólanum á Greni-
vík var hann prófdómari á vorin
og hafði sín góðu áhrif á okkur,
svo skuggar prófkvíðans voru
hraktir á brott. Hann þekkti
hvern einasta mann í læknishér-
aði sínu og hefði því ekki þurft að
rita sjúkrasögu neins á spjald-
skrá. Þær varðveitti hann í höfð-
inu. En fullorðna fólkið segir
okkur, að hann hafi verið ná-
kvæmur embættismaður eins og
faðir hans, séra Árni í Görðum, og
gætt þess að hafa allar skýrslur í
lagi. Hann hafði verið þrekmenni
og afburða duglegur ferðamaður,
enda þjónaði hann afskekktum
byggðarlögum, sem nú eru komin í
eyði bæði Fjörðum og Látra-
strönd. Þá sá hann og um læknis-
þjónustu í Hrísey um árabil. Við
erum auðvitað ekki orðin nógu
gömul til þess að segja sögu þessa
athyglisverða manns, en vonum að
einhverjir kunnugir verði tií þess.
Hann átti til skálda að telja og við
kunnum fögur ljóð eftir móður-
bróður hans, Jóhann Sigurjóns-
son.
Árni hafði viðkvæma lund eins
og mörg skáld og listamenn, en í
hugum okkar er hann ímynd
læknisins, sem aldrei bregst þeirri
hugsjón sinni að vaka yfir lífi og
heilsu þeirra, sem hann er kallað-
ur til að þjóna. Við erum þakklát
fyrir að hafa fengið að kynnast
Árna Birni og biðjum góðan Guð
að hugga Kristínu og ástvini
þeirra alla, þegar stóllinn hans er
orðinn auður.
Börnin í Laufási
við Eyjafjörð.
Spælimennirnir leika í
Norræna húsinu í kvöld
SPÆLIMENNIRNIR frá Hoydöl-
um halda tónleika í Norræna
húsinu í kvöld, klukkan 20.30.
Kristian Blak stofnaði Spæli-
mennina í Hoydölum við mennta-
skólann í Hoydalar í Þórshöfn í
Færeyjum árið 1974. Upphaflega
var hljómsveitin aðeins tengd
skólanum , en smám saman
- kkaði hljómsveitin með þátt-
t öku tónlistarmanna utan skólans,
og nú er hún miðpunktur þjóðlegr-
ar danstónlistar í Færeyjum.
Spælimennirnir hafa haldið fjölda
tónleika og dansleikja í Færeyj-
um, Orkneyjum og á Hjaltlands-
eyjum. Á síðasta ári fór hljóm-
sveitin til Bandaríkjanna, og í ár
hefur hún meðal annars komið
fram á þjóðlegum tónlistarhátíð-
um í Hróarskeldu, Skagen og á
Bornhólmi í Danmörku.
Nú er flokkurinn á leið til
Bandaríkjanna, þar sem hann
mun dvelja í sex vikur við tón-
leika- og dansleikjahald. í þeirri
ferð skipa hljómsveitina þessir
einstaklingar: ívar Bærentsen,
sem leikur á gítar og fiðlu, Janne
Danielsson leikur á fiðlu, Sharon
Weiss leikur á flautur og slagverk,
og Kristian Blak á píanó.
Spælimennirnir í Hoydölum frá Færeyjum halda tónleika í Norræna
húsinu f kvöld, þriðjudagskvöld. Illjómsveitin sem nú er á leið til
tónleikahalds f Bandarfkjunum, hefur meðal annars gefið út tvær
stórar hljómplötur.