Morgunblaðið - 01.09.1979, Side 28

Morgunblaðið - 01.09.1979, Side 28
Hempum skattana — lækkum útqpöldin MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1979 2 7 festingarsjóða atvinnuveganna. Við mat á hagnaði þarf að leyfa færslu taps milli ára, láta fyrningar fylgja verðlagi og fyrningartímann fylgja áætluð- um endingartíma. Er þá ekki óeðlilegt, að söluhagnaður verði skattskyldur eins og er í núgild- andi lögum um tekju- og eignar- skatt (nr. 40/1978). vörunotkun þarf að gjaldfæra á verðlagi hvers árs með leiðréttingu á matsverði vörubirgða í ársbyrj- un í samræmi við verðlagsbreyt- ingar á árinu. Hagnaður er þannig leiðrétt- ur í ljósi verðlagsbreytinga, en einnig þarf að endurmeta eignir og skuldir árlega: Fastafjár- muni í samræmi við verðlag, en fjárskuldbindingar í samræmi við verðtryggingarákvæði bréf- anna sjálfra. Útgáfa jöfnunar- hlutabréfa gæti þá miðazt að fullu við árlegar breytingar á hreinni eign. Öll rekstrarform atvinnu- rekstrar á að skattleggja með sama hætti (hlutafélög, sam- eignarfélög, samvinnufélög). Einstaklingsfyrirtækjum á að heimila að vera sjálfstæðir skattaaðilar, ef fjárhagur þeirra er sjálfstæður, og mynda t.d. hlutafélag um reksturinn. í öll- um tilvikum eiga svo opinber fyrirtæki að vera skattlögð eins og annar atvinnurekstur. Tekjuskatt einstaklinga á að útfæra sem frádrægan tekju- skatt, sem grundvallast á einni og sömu skattprósentunni og einum frádráttarlið frá skatti, sem miðast við fjölskyldustærð og kemur til útborgunar, þegar hann er hærri en reiknaður skattur. Lægstu tekjur fá því uppbót, af ákveðnum tekjum greiðist enginn skattur, en skattur greiðist úr því. Innheimtu tekjuskatts og út- svars ætti að sameina alfarið. Tekjutilfærslur til heimila vegna heilbrigðisþjónustu og trygginga verði lækkaðar í sam- ræmi við auknar beinar greiðsl- ur til heimila í gegnum skatt- kerfið. Allar tekjur einstakl- inga: Laun, hagnaður, vextir, leiga o.s.frv. verði skattskyldar og eins skattaðar. Skattur verði greiddur af tekjum, þegar þeirra er aflað, en einfalt lokaframtal framkvæmt fyrir 15. apríl árið eftir. Gjald af nýtingu auðlinda. í kaflanum hér að framan um utanríkis- og gjaldeyrisviðskipti var lagt .til að afnema aðflutn- ingsgjöld algjörlega og gefa gjaldeyrisviðskiptin frjáls. Mið- að við jafnvægi t utanríkisvið- skiptum mundi verð erlendra gjaidmiðla við það hækka að meðaltali um sama hlutfall og aðflutningsgjöld eru nú sem hlutfall af verði innfluttra vara. Verðlag innanlands ætti því til jafnaðar að verða óbreytt. Hins vegar skapar þessi æskilega breyting tvenns konar vanda, sem verður að leysa. Ríkissjóður missir stóran hluta tekna sinna, en tekjur í sjávarútvegi aukast gífurlega. Þótt nauðsynlegt sé, að at- vinnuvegirnir hagnist eðlilega í venjulegu árferði, mundi þessi skyndilega tekjuaukning í sjáv- arútvegi auka verulega sókn í þegar ofnýtta fiskistofna. Væri því aukið á þann vanda, sem fyrir er. Nú þegar er mikil þörf á framtíðarlausn á því, hvernig og í hve ríkum mæli nýta beri þá takmörkuðu auðlind, sem fiski- miðin eru. Verzlunarráðið telur, að hag- kvæm og skynsamleg lausn á þessum vanda væri að ákveða hámarksafla einstakra fiskiteg- unda en útgerðaraðilum yrði síðan seld veiðileyfi á almennu uppboði miðað við það afla- magn, sem nýta skal. Verð veiðileyfa ræðst þannig við frjálsar aðstæður af afkomu veiða og vinnslu, fiskverði og verði erlendra gjaldmiðla. Við slíkar aðstæður mundu þeir aðilar, sem reka hagkvæmustu útgerðina annast veiðarnar og veiðileyfin rynnu til þeirra án opinberra afskipta. Jafnframt mætti útfæra uppboðið þannig, að afla ákveðinna tegunda á ákveðnum veiðisvæðum bæri að landa í tilteknum landshlutum. Verð veiðileyfa fylgdi þá einnig svæðisbundnum afkomuskilyrð- um veiða og vinnslu. Ef tekjur af veiðileyfum renna í ríkissjóð leysist fjár- hagsvandi hans vegna brottfall- inna aðflutningsgjalda að mestu. Það sem á vantar næst vegna minni þarfar á útflutn- ingsuppbótum á landbúnaðar- vörur og auknar skatttekjur koma frá öðrum atvinnuvegum. Verzlunarráðið álítur að þessi kerfisbreyting gæti orðið ein- hver mesta lyftistöng fyrir alla atvinnustarfsemi í landinu, bæði í innanlands- og utanrík- isviðskiptum, án þess að skerða á nokkurn hátt afkomuskilyrði sjávarútvegs, veiða og vinnslu. Virðisaukaskattur. Virðis- aukaskattur er hlutlaus gagn- vart framleiðslu, dreifingu og neyzlu. Söluskatti ætti því að breyta í virðisaukaskatt, og eyða þannig uppsöfnunaráhrifum söluskattsins. Sá virðisauka- skattur, sem upp verður tekinn, verður að ná til allrar vöru og þjónustu og sama skatthlut- fallið verður að gilda alls staðar. Launaskattur mismunar nú at- vinnuvegunum. Sumir greiða 3,5% launaskatt, en aðrir engan. Launaskattinn ætti því að leggja niður, enda leggst virðis- aukaskattur á hluta virðisauk- ans, á launin, ög því á sama stofn. Fasteignaskattar. Aðstöðu- gjald á að afnema, enda mæla engin skynsamleg rök með til- veru þess. Hægt er að afla sömu tekna með fasteignasköttum á einfaldari og betri hátt. Rökin sem mæla gegn aðstöðugjaldi eru mörg: Lítið ef nokkuð samhengi er á milli aðstöðugjaldsstofns og þjónustu sveitarfélags við fyrir- tæki. Gjaldið hefur áhrif á skipu- lagningu atvinnustarfsemi. Um- boðssala er t.d. skattlögð lægra en sala af lager. Fyrirtækjum, sem selja með lágri álagningu en hafa mikinn veltuhraða, er refsað á kostnað annarra, sem hafa hærri álagningu en hægari veltuhraða. Gjaldið hefur uppsöfnunar- áhrif og leggst á öll dreifing- arstig, auk þess sem það hefur áhrif á verkaskiptingu fyrir- tækja og hvetur til hringamynd- unar. Mismunun í álagningu að- stöðugjalda milli sveitarfélaga kann að hafa áhrif á staðsetn- ingu fyrirtækja. Gjaldskyldan er mismunandi eftir atvinnuvegum. Fasteignaskatturinn er betri mælikvarði á veitta þjónustu en aðstöðugjald. Um landsútsvör gildir það sama og um aðstöðugjald. Því er lagt til, að það verði lagt niður, en í staðinn komi fasteigna- skattur, sem verði ákveðið hlut- fall af markaðsvirði allra fast- eigna. Hlutfallið þarf að vera það sama fyrir allar fasteignir og greiðast af einstaklingum jafnt sem atvinnurekstri. Fasteignaskattar hafa þann kost, að skattupphæðin getur verið nokkuð góður mælikvarði á veitta þjónustu sveitarfélags við eigendur fasteigna, sem síð- an færðist a.m.k. að nokkru yfir á notendur við leigu. Einnig hafa fasteignaskattar jákvæð áhrif á nýtingu fasteigna og fjárfestingu í fasteignum. Hjá fyrirtækjum kemur fasteigna- skattur í stað eignarskatts, að- stöðugjalds og landsútsvars, en hjá einstaklingum fellur eignar- skattur niður og útsvör lækka. Gjald af sölu áfengis og tóbaks. Hagnaður af rekstri Afengis- og tóbaksverzlunar ríkisins (Á.T.V.R.) er nú um 8—9% af tekjum ríkissjóðs. Hér er lagt til, að þessari tekjuöflun verði haldið, en með öðrum hætti. Óþarft er að verzlun með þessar vörur sé alfarið í höndum hins opinbera. Því er lagt til, að heildsölu- og smásöludreifing þessara vara verði gefin frjáls, þannig að einstakir söluaðilar selji þessar vörur með sömu skilyrðum og Á.T.V.R. og greiði til ríkissjóðs sama gjald og Á.T.V.R. gerir nú. Hér að ofan hefur ekki verið getið margvíslegra skatta, sem lagt er til að falli niður. Sú upptalning næði til hátt í 70 mismunandi skatta. Margir þeirra svara vart innheimtu- kostnaði, valda greiðendum verulegum kostnaði við framtal og leggjast auk þess á sama stofn og aðrir skattar. Sú skattalækkun, sem þessar tillögur ráðgera á þremur árum ætti fyrst að koma fram í afnámi eignarskatts og launa- skatts. Síðan ættu ýmsir óbeinir skattar af framleiðslu, bif- reiðum, skipum, sölu gjaldeyris o.fl. að falla niður. Samtals nema þessir skattar um 5% af þjóðartekjum. Einnig mætti fella niður sjúkratrygg- ingargjald á þessu tímabili og helminga virðisaukaskattinn, þ.e. færa hann úr 20% í 10%. Einnig þarf að endurskoða og lækka skattprósentur beinna skatta samfara samtíma- greiðslu þeirra. Þá er loks eðli- legt og reyndar mjög æskilegt, að opinber þjónustufyrirtæki selji í auknum mæli þjónustu sína á verði, sem stendur undir rekstrinum. Þegar ofangreindar lækkanir hafa komið til fram- kvæmda, ætti hlutfall skatt- tekna ríkis- og sveitarfélaga af vergum þjóðartekjum að hafa lækkað úr 45% í 33%. 35% 30% 25% 20%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.