Morgunblaðið - 22.09.1979, Side 1
48 SIÐUR
207. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Muzorewa gengur
að skilyrðum Breta
Lundúnum. Salisbury — 21. september.
AP. Reuter.
ABEL Muzorewa, forsætisráð-
herra Zimbabwe-Ródesiu, sagði á
blaðamannafundi í Lundúnum i
dag, að stjórn hans væri reiðubú-
in að gangast í meginatriðum að
skilyrðum Breta um nýja stjórn-
arskrá í landinu. Muzorewa setti
það skilyrði, að Bretar afléttu
viðskiptabanni á landið. „Við
krefjumst þess nú, til frekari
framgangs viðræðna hér, að
Bretar aflétti viðskiptabanni
þegar í stað,“ sagði Muzorewa.
Samkvæmt tillögum Breta er
gert ráð fyrir, að hvítir menn
haldi þingstyrk sínum á þinginu í
Salisbury, það er einum fimmta
þingsæta. En að hvítir menn missi
neitunarvald sitt til stjórnlaga-
breytinga og að þeir víki, á 10 ára
tímabili, úr æðstu stöðum í her og
lögreglu landsins, jafnframt því
að þeir víki úr dómarastétt.
Carrington lávarður, utanríkis-
ráðherra Breta, sagði að þetta
væri „stórt skref í átt til lausnar".
Talsmaður brezku stjórnarinnar
neitaði að segja hvort þetta þýddi
að viðskiptabanni yrði aflétt.
Muzorewa sagði, að greidd hefðu
verið atkvæði í sendinefnd Zim-
babwe-Ródesíu um málið og að 11
hefðu greitt atkvæði, einn verið á
móti. Sá sem var andvígur er
talinn, án nokkurs vafa, vera Ian
Smith, fyrrum forsætisráðherra
landsins.
Þrátt fyrir þessa tilhliðrun
stjórnarinnar í Salisbury, sögðu
taismenn brezku stjórnarinnar og
skæruliðafylkinganna, að enn
væri langt í land með að friður
kæmist á í landinu. „Friður kemst
þá einungis á, að skæruliðafylk-
ingarnar taki þátt í samkomulagi
um lausn deilunnar. „Sérfriður
Muzorewa og Breta leiðir ekki til
friðar", sagði talsmaður skæru-
liðafylkinganna.
Skæruliðar í Zimbabwe-Ródesíu
skutu í dag til bana hvítan þing-
mann, Theunis de Klerk. Þeir
skutu eldflaug að bifreið hans og
lét hann þegar lífið. De Klerk er
annar þingmaðurinn, sem lætur
lífið á sex dögum en fyrir tæpri
viku var einn helsti leiðtogi flokks
Muzorewa myrtur.
1103 flýðu „sæluna
í austri” í ágúst
Sfmamynd AP
Björgunarmenn leita i rústum eftir að herþota
brezka flughersins hrapaði til jarðar eftir að hafa
rekist á aðra herþotu. Samkvæmt nýjustu fréttum
létust þrír — tveir fullorðnir menn og drengur.
Panama hótar að taka
við stjóm skurðarins
Vln, 21. september — Reuter
FJÖLDI flóttamanna frá Tékkó-
slóvakiu sexfaldaðist í síðasta
Bokassa rekinn
frá Frakklandi
Parfa, 21. sept. — Reuter, AP.
BOKASSA, fyrrum keisari
Mið-Afrikukeisaradæmisins,
Ienti í kvöld á herflugvelli um
100 kilómetra fyrir austan
Paris. Honum var steypt af stóli
i byltingu i gær. Frönsk stjórn-
völd neituðu Bokassa um dval-
arleyfi i Frakklandi og hann
mun fljúga til Lýbiu þegar i
fyrramálið, að því er heimildir
sögðu.
Sjá frétt um byltinguna i
Mið-Afrikukeisaradæminu
á bls. 22.
mánuði að þvi er innanrikisráðu-
neytið í Vín skýrði frá. Tala
flóttamanna frá A-Evrópu til
Austurríkis var 1103, þar af voru
612 Tékkar. Meðaltal flóttafólks
frá V-Evjrópu til Austurrikis
siðustu árin hefur verið á bilinu
400 til 500 i ágústmánuði.
Skýringin á þessari miklu aukn-
ingu liggur í þeirri ákvörðun
Rúmena að krefjast vestræns
gjaldmiðils fyrir bensín í landinu.
Tékkar ákváðu þá, að þeir ferða-
menn sem færu til Svartahafsins
færu um Júgóslavíu. Landamæri
Júgóslavíu eru ekki jafn lokuð og
annarra landa í A-Evrópu og fólk
hefur notfært sér þennan nýja
möguleika til að komast vestur
yfir járntjald.
Panama, 21. september — Reuter.
PANAMASTJÓRN segist
munu taka við stjórn
Panamaskurðarins þrátt
fyrir að fulltrúadeildin
bandaríska hafi í gær fellt
samkomulag stjórnarinn-
ar í Washington og
Panama. Talsmaður utan-
ríkisráðuneytisins í
Panama sagði við frétta-
menn, að Panamabúar
myndu taka við stjórn
skurðarins þann 1. októ-
ber hvort sem samkomu-
lagið verður samþykkt eða
ekki.
„Enginn getur stöðvað okkur í
að taka við stjórn skurðarins,"
sagði Diogenes de la Rosa, einn
Líbanon:
PLO sak-
ar Israel
• r
Tel Aviv, Beirut, 21. september
— AP, Reuter.
PLO, Frelsisamtök Palestínu,
sökuðu í kvöld ísraelsmenn um
að hafa ráðist inn í Libanon með
mikið herlið en hefðu verið hrakt-
ir til baka. Fréttastofa PLO,
sagði að ísraelsmenn hefðu reynt
að ná á sitt vald Khardalibrúnni
yfir Litaniá en verið hraktir til
baka.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins í Washington lýsti áhyggjum
sínum vegna innrásar Israels-
manna og sagði, að Bandaríkja-
stjórn teldi fréttir af árásinni í
meginatriðum réttar. Hins vegar
neitaði talsmaður ísraelsku her-
stjórnarinnar því alfarið, að
ísraelskar hersveitir hefðu ráðist
inn í Líbanon. „Enginn ísraels-
maður fór yfir landamærin né
höfum við skotið yfir landamærin.
Sagan er hugarburður einn,“ sagði
hann. Aðrar heimildir í ísrael
sögðu, að bardagar hefðu brotist
út milli palestínskra skæruliða og
kristinna hægrimanna.
helsti samningamaður Panama-
stjórnar og hann lagði áherzlu á,
að Panama myndi gera ráðstafan-
ir til að verja hagsmuni sína.
Samkomulag stjórnanna í
Washington og Panama gerði ráð
fyrir sameiginlegri stjórn skurð-
arins frá 1. október fram að
aldamótum en eftir það réði
Panama skurðinum. Aristides
Royo, forseti Panama, sagði á
fundi með fréttamönnum að þetta
mál væri „enn einn prófsteinninn
á það hvort Bandaríkin séu reiðu-
búin að láta réttlætið ná fram að
ganga".
Fulltrúadeildin felldi samkomu-
lagið með 203 atkvæðum gegn 192
en öldungadeildin hafði áður sam-
þykkt samkomulagið með yfir-
gnæfandi meirihluta, 60 gegn 35.
Jimmy Carter, forseti Bandaríkj-
anna, sagði að hann mundi gera
allt sem í hans valdi stæði til að fá
samningana samþykkta. Demó-
kratinn John Murphy sagði, að
samkomulagið hefði verið fellt
vegna ótta þingmanna við veru
sovéskra hermanna á Kúbu, ólgu í
Nicaragua og E1 Salvador.
Kóleraí Malaga
Madrid, 21. september — AP
FJÓRIR hafa látist af kóleru í
Malaga, að sögn heilbrigðisyfir-
valda í Madrid. Kólerufaraldur
braust út á Spáni í síðasta mánuði.
Að sögn ráðuneytisins hefur verið
tilkynnt um 69 tilfelli í Malaga og 32
í Barcelona. Enn eru 13 manns á
sjúkrahúsi í Malaga og tíu í Barce-
lona.
Bolshoiballe ttinn:
Kozlov var háttsettur
íkommúnis taflokknum
Moskvu, 21. september — AP.
LEONID Kozlov, sovéski dansarinn, sem bað um hæli
í Bandaríkjunum í vikunni, var fulltrúi kommúnista-
flokksins í Bolshoiballettinum. Vegna þessa kom
flótti hans bæði dönsurum og stjórnendum ballettsins
mjög á óvart. Sem meðlimur í kommúnistaflokknum
var Kozlov mjög óvinsæll meðal dansaranna. Hann
skýrði stjórnendum ballettsins oftar en einu sinni frá
„hliðarsporum“ dansara, að sögn heimildarmanna
AP í Moskvu.
Heimildir sögðu, að oftar en
einu sinni hefði Kozlov sagt
stjórnarmönnum ballettsins frá
því ef dansari hafði flóttaáætl-
anir á prjónunum. Hann átti
þátt í að velja dansara sem leyft
var að fara í ferðalög erlendis
með Bolshoiballettinum og hann
varaði stjórnarmenn við því að
stjarna ballettsins, Alexander
Gudunov, kynni að strjúka í
Bandaríkjunum. Gudunov
strauk og Kozlov fékk stóra
tækifærið sitt — hann tók við
hlutverkum Gudunovs það sem
eftir var ferðarinnar.
Kona Kozlovs, hin 25 ára
gamla Valentina Kozlov, átti
ekki þátt í uppljóstrunum Kozl-
ovs en hún strauk með honum.
Eftir síðustu sýningu Bolshoi-
baliettsins í Los Angeles létu
þau sig hverfa og báðu um hæli í
Bandaríkjunum.
Kozlov var meðlimur í æsku-
lýðssamtökum kommúnista og
varð síðar fullgildur meðlimur í
flokknum. Hvarf Kozlovs er ekki
talið meiriháttar áfall fyrir
Bolshoiballettinn, þar sem hann
þótti standa í skugga Gudunovs
en hins vegar kom það, að sögn,
mjög illa við stjórnarmenn þar
sem maður úr innsta hring
ákvað að flýja vestur fyrir járn-
tjald.