Morgunblaðið - 22.09.1979, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 22.09.1979, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979 33 Verður Reykjaneskjördæmi skipt? f Kjördaémak. þingmervrt Uppbðtarþingsæti KJÓSEIMDUR Á KJÖRSKRÁ EFTIR KJÖRDÆMUM I % 5-6% 6,2% 8,4% 10,6% 18,2% Geirar hringanna sýna (ylgi þingflokkanna í hverjtr kjördæmí, en radíusinn vaagi atkvæða eftir úthlutun uppbótarþingsæta 1. Sjálfstæðisflokkur 2. Framsóknarflokkur 3. Alþýðubandalag 4. Albýðuflokkur 5. Samt. frj. og vinstrí ALÞINGISKOSNINGARNAR 1974 Vægí atkvæða fyrir ag eftir úthtutun uppbótarþlngsæta landsmeðaltal — 54 | vægi H X i 2*1—... Á þessu korti sem birtist í fjármálatiðindum 1. hefti 1977, er sýnt vægi atkvæða í hinum einstöku kjördæmum við alþingiskosningarnar 1974. Radius hringanna sýnir hlutföllin innbyrðis en hæð „karlanna14 (sem gilda jafnt fyrir kjósendur af báðum kynjum) sýnir hlutföllin milli vægis atkvæða í kjördæmunum. Hvað segja sveitarstjórnarmenn í kjördæminu um þær hugmyndir? MEGINBREYTINGIN sem gerð var á kjördæmaskipan- inni árið 1959 var svo sem kunnugt er sú. að þingmönn- um var fjölgað í 60, kjördæmum var fækkað niður í átta, hlutfallskosning var lögrekin í öllum kjördæmum og föst tala uppbótarþingmanna var ákveðin. Samkvæmt lýðveldisstjórnarskránni var Alþingi skip- að allt að 52 þjóðkjörnum þingmönnum. 21 einmennings- kjördæmi var við lýði, 6 tvimenningskjördæmi og eitt átta manna kjördæmi, Reykjavík. Kosning var hlutbund- in í Rcykjavík og tvímenningskjördæmunum, en einföld meirihlutakosning í einmenningskjördæmunum. Kjördæmabreytingin 1959 Segja má að sú leiðrétting sem varð á kjördæmaskipan- inni við breytinguna 1959 hafi verið tvíþætt í eðli sínu. Annars vegar milli hinna einstöku landshluta og hins vegar milli stjórnmálaflokkanna. Þannig skiptist atkvæða- magn flokka eftir sumarkosningar 1959, að Alþýðubanda- lagið fékk 15.3% atkvæða og 7 þingmenn, Alþýðuflokkur- inn fékk 12.5% og 6 þingmenn, Framsóknarflokkurinn fékk 27.2% og 19 þingmenn og Sjálfstæðisflokkurinn fékk 42.5% og 20 þingmenn. Eftir haustkosningarnar sama ár þegar hin nýju lög voru komin til sögunnar fékk Alþýðubanda- lagið 16% atkvæða og 10 þingmenn, Alþýðuflokkurinn fékk 15.2% og 9 þingmenn, Framsóknarflokkurinn fékk 25.7% og 17 þingmenn og Sjálfstæðisflokkurinn fékk 39.7% og 24 þingmenn. Einna mesti munur milli kjördæma var sá fyrir breytinguna 1959 að í minnsta kjördæminu, Seyðisfirði, var Björgvin Jónsson kjörinn á þing með 190 atkvæðum til samanburðar við 3396 atkvæði þingmanns Gullbringu- og Kjósarsýslu, Ólafs Thors. Og frá því er skýrt í Morgunblað- inu eftir sumarkosningarnar 1959 að 25 uppbótarmenn hefði þurft til að ná jöfnuði milli flokkanna eftir þær kosningar. Kjördæmabreytingin var við það miðuð að ná jöfnuði í atkvæðamagni stjórnmálaflokkanna og fjölda þingmanna þeirra. Jafnframt því sem reynt var að jafna vægi atkvæða milli landshluta. Stefnir í sama farið Síðustu árin hefur þróun mannfjöldans enn sett strik í reikninginn og við síðustu alþingiskosningar hefur misvægið náð því að verða einn á móti sex milli tveggja kjördæma. Eftir kosningarnar 1974 hafði Vestfjarðakjör- dæmi þannig með uppbótarmönnum 7 alþingismenn, en Reykjaneskjördæmi 8 þingmenn með uppbótarmönnum. Á kjörskrá í Reykjaneskjördæmi árið 1974 voru 23.840, en 5.751 á Vestfjörðum. Eftir kosningarnar 1978 fengu Vestfirðingar aftur á móti 5 þingmenn, enga uppbótarmenn, en Reykjaneskjör- dæmi fékk 8 þingmenn, þrjá uppbótarmenn. Á kjörskrá í Reykjaneskjördæmi voru þá 27.840 en 6.007 á Vestfjörðum. Þess má og geta að íbúatalan á Reykjanesi í heild er um 50 þúsund manns, en 12—13 þúsund á Vestfjörðum. Tveir stærstu kaupstaðir Reykjaneskjördæmis, Hafnarfjörður og Kópavogur, eru hvor um sig fjölmennari en þrjú minnstu núverandi kjördæmin, Vestfirðir, Austurland og Norðurland vestra. Frumvarp Odds Ólafssonar Á síðustu árum hafa þær raddir því stöðugt gerst háværari, einkum á Reykjanesi og í Reykjavík að það mikla misvægi sem er á milli kjördæmanna varðandi styrk atkvæðanna, verði leiðrétt. Einn þingmanna Reykjanes- kjördæmis, Oddur Ólafsson, flutti þannig frumvarp á 99. löggjafar þinginu 1977—78 sem fól í sér að fjölga kjördæmum um eitt. Einnig lagði hann til að kjördæma- kosnum þingmönnum verði fjölgað úr 49 í 56, landskjörn- um fækkað úr 11 í 4, en heildartala þingmanna yrði áfram 60. Oddur lagði það sem sagt til að Reykjaneskjördæmi yrði skipt í tvennt, Suðvesturlandskjördæmi og Reykjanes- kjördæmi. Hið fyrra samanstæði af Garðabæ, Kópavogi, Seltjarnarnesi og Kjósarsýslu. Hið síðarnefnda saman- stæði aftur af Hafnarfirði, Gullbringu sýslu, Grindavík, Njarðvík og Keflavík. Þá lagði Oddur það til að kjördæma- kosnum þingmönnum í Reykjavík yrði fjölgað úr 12 í 14. Með frumvarpi Odds var því gert ráð fyrir sex fimm manna kjördæmum, í stað fimm áður og myndi Suðvestur- landskjördæmi þar bætast við. Hann gerði ráð fyrir tveimur sex manna kjördæmum áfram og einu 14 manna kjördæmi. Fjórir landskjörnir þingmenn yrðu síðan til jöfnunar milli þingflokka. Þessar hugmyndir Odds náðu ekki fram að ganga. Valkostir stjórnarskrárneíndar Þrátt fyrir að miklar umræður hafi átt sér stað um kjördæmamál og þá einkum fyrir kosningar á undanförn- um árum, hefur skipulaginu frá 1959 ekki verið brevtt. Þær stjórnarskrárnefndir sem starfað hafa á tímabilinu hafa oftast sprungið á limminu og þá ekki síst vegna kjördæmamálsins. Sú stjórnarskrárnefnd sem að störfum situr um þessar mundir virðist þó hafa tekið þessi mál fastari tökum en fyrri nefndir og í viðtali við Morgunblaðið 6. júlí síðastliðinn segir formaður hennar dr. Gunnar Thoroddsen að gert sé ráð fyrir því að nefndin leggi fyrir þingflokkana nokkra valkosti um kjördæmamálið í haust með upplýsingum, útreikningum og rökstuðningi. Þessi ummæli dr. Gunnars Thoroddsen urðu svo aftur í og með til þess að bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi sínum 17. ágúst eftirfarandi ályktun: „Bæjarstjórn Kópavogs ályktar að skora á háttvirt Alþingi að leiðrétta sem fyrst, í tæka tíð fyrir næstu alþingiskosningar, þann mikla mun sem nú er á vægi atkvæða eftir því í hvaða kjördæmi kjósandi býr. Bæjarstjórn lýsir ennfremur þeirri skoðun sinni, að sem liður í þeirri leiðréttingu hljóti að vera skipting Reykjanes- kjördæmis í að minnsta kosti tvö kjördæmi, helst fleiri.“ Þessi ályktun Kópavogsmanna varð síðan aftur til þess að Morgunblaðið leitaði til sveitarstjórnarmanna í helstu sveitarfélögum á Reykjanesi til að kanna hug þeirra í þessu efni og fara svör þeirra hér á eftir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.