Morgunblaðið - 22.09.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.09.1979, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979 HLAÐVARPINN íslenzkar systur í Daily Express „Viljirðu komast á toppinn þá starfaðu með systur,“ sagði í fyrirsögn Daily Express, eins útbreiddasta dagblaðs Breta. Þar eru birtar myndir af sex ljós- myndafyrirsætum, systrum, tveim og tveim saman. Það sem gerir greinina forvitnilega fyrir okkur hér heima á íslandi er, að tvær þessara stúlkna eru islenzk- ar, systurnar Sigrún Ámund- adóttir, 24 ára gömul, og yngri systir hennar, Kristín, 22 ára gömul. Þær starfa nú i Bretlandi sem ljósmyndafyrirsætur. Þetta er spennandi starf, mikið um ferðalög og vel borgað, sagði Kristin þegar Mbl. sló á þráðinn til hennar. — Ég vann í Bretlandi i fyrra- sumar en var við nám við Há- skóla íslands í vetur. Ég fór siðan aftur út i sumar og hef alfarið snúið mér að þvi að sitja fyrir. Sigrún hefur verið tvö ár í Bretlandi og er mjög ánægð. Við ferðumst mikið, talsvert farið til Ítalíu, Þýzkalands og Bandarikj- anna. Er ekki samkeppnin hörð? — Jú, hún er gifurlega hörð. Það er mikið framboð af stelpum sem vilja komast í þetta. Stelpur, sem ekki hafa nennt að vera i skóla og hætt. Farið út i þetta. Launin eru góð — fyrir þær sem gengur vel en því miður er svo ekki um allar og margar verða undir i baráttunni. Er erfitt að sitja fyrir? Þetta er ákaflega lýjandi starf. Þetta er ekki bara að sitja fyrir framan ljósmyndavél og brosa. Oft stöndum við klukkutimum saman i erfiðum stellingum, en þurfum ávallt að vera ferskar og það er oft erfitt. Af hverju fórstu út í hina hörðu samkeppni? — Hér heima er svo lítið að gera, og launin sáralitil. Eins eru myndirnar lélegar, þó með undantekningum en því miður of fáum. Úti eru möguleikarnir, launin góð og ferðalög, sem gera starfið spenn- andi. MODEL SISTERS r.mma l picluwl tnp lcft l’urrty puir. Sui iin.| Kíir ritfht >: «nil lr. an.li ■ t« CiWt ivho toddled to the top together___ Pálmi Gíslason — nýr formaður VMFÍ 31. ársþing Ungmennafélags íslands var haldið í byrjun mánaðarins og á þinginu var kjörinn nýr formaður UMFÍ, Pálmi Gíslason. Hann tók við af Hafsteini Þorvaldssyni. Pálmi er útibússtjóri í Samvinnubankanum á Suðurlandsbraut. „Það eru ekki fyrirhugaðar neinar breytingar, að minnsta kosti fyrsta kastið. Hafsteinn var formaður UMFÍ í tíu ár og hann stóð fyrir geysilegri uppbyggingu,“ sagði Pálmi þegar blaðamaður sló á þráðinn til hans. En hvað er helst á döfinni? „UMFÍ á gersemi, stórt land í Þrastarskógi og við vinnum að uppbyggingu þar. Það er draumur okkar að koma þar upp góðri aðstöðu og íþrótta- velli. Nú svo er það félags- málaskólinn, og eins gefur UMFÍ út Skinfaxa. Það er ljóst að það er mikið starf framundan. Ég mun ferðast mikið, og fara á þing héraðssambandanna til að kynnast starfsemi þeirra nán- ar. Úr hvaða héraðssambandi kemur þú? „Ég er nú Hún- vetningur, en þegar ég fluttist suður í Kópavog þá starfaði ég í Breiðablik, síðan UMSK og var framkvæmdastjóri þar í eitt ár. Ég var í stjórn UMFÍ frá 1969—73 og síðustu sex Viðurkenndi ekki útlendinga sem íslandsmeistara Árni Johnsen, blaðamaður á Morgunblaðinu, er mikill Eyja- maður eins og alþjóð er kunnugt. Hann var því að vonum kátur þegar Eyjamenn hrepptu íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu. Á Morgunblaðinu eru margir Valsmenn, en einna harðastur er Þorbjörn Guðmundsson, faðir Guðmundar í Valsliðinu. Þorbjörn fór af landinu í lok íslandsmótsins, í fellibylina á Florida. Og Árni sendi honum skeyti — þar stóð: ÍBV íslandsmeistarar Eyjafellibylurinn. Þorbjörn svaraði um hæl: Viðurkenni ekki útlendinga sem íslandsmeistara. Þorbjörn. Og ekki lauk skeytasendingum þar. Árni varð að eiga síðasta orðið, eins og honum er tamt og hann svaraði því; með því að vitna í Biblíuna. Orðskviðirnir 19—21. Mörg eru áformin í mannshjartanu en ráðsályktun Drottins stendur. ____________________________________ Árni. Leyfiö börnunum að koma til mín Samvinnustarfsmenn héldu nýlega landsþing sitt, það fjórða í röðinni. Sem vænta má bar þar margt á góma, og var mikið skrafað og rætt um samvinnuhreyfinguna í landinu. í fréttatilkynningu sem send var frá samtökunum eftir landsþingið segir svo meðal annars: „Samvinnuhreyfingin verði aðlaðandi fyrir börn.“ Landsþingið taldi æskilegt að samvinnuhreyfingin reyndi að laða til sín börnin, bæði með samvinnufræðslu á réttum stöðum, og að búa þeim þau skilyrði í starfi, menntun og leik, að þau þurfi ekki að tileinka sér skoðanir sem leiði til ádeilna á samvinnustefnuna í framkvæmd." — Svo mörg Voru þau orð. Sennilega er það barnaárið sem fer svona vel í samvinnumenn, að þeir vilji barnafræðslu „á réttum stöðum", svo ekki komi til „ádeilna á samvinnustefnuna í framkvæmd". Frá umræddri fiskræktarstöð i Færeyjum sem aflar mikils gjaldeyris fyrir Færeyinga með framleiðslu regnbogasilungs úr hrognum sem keypt voru frá Laxalóni Skúla Pálssonar. Sjávartjarnirnar tvær sem sjást á myndinni eru nokkur hundruð fermetrar. * Islenzkur regnbogasilungur blómstrar íFœreyjum í júlíhefti tímaritsins Norsk Fiskeoppdrett segir frá því að í tveimur litlum fiskeldistjörnum í sjó í Færeyjum rækti heimamenn 100 tonn á ári af um það bil 1 kg þungum regnbogasilungi, en verðmæti 100 tonna á Evrópumarkaði er um 100 milljónir ísl. kr. Hrognin í þessa færeysku fiskræktarstöð voru keypt frá Skúla Pálssyni á Laxalóni og hefur stöðin verið starfrækt um árabil, en sem kunnugt er fær Skúli ekki að rækta silung sinn til framleiðslu. Færeyingar gera nú stórátak í fiskræktarmálum sínum og miða þá við ræktun í sjávartjörnum. Pálmi Gíslason, hinn nýi for- maður UMFÍ. Mynd Mbl. Ól. K. M. árin hef ég verið í stjórn Landssambands íslenzkra samvinnustarfsmanna, og einnig í stjórn Sambands sam- vinnustarfsmanna á Norður- löndum." Pálma er margt til lista lagt. í þinggerð þings UMFÍ, sem haldið var að Stórutjarn- arskóla í S-Þingeyjarsýslu rákust við á þessar stökur sem hann mun hafa kastað fram á þinginu. Frá Gullu leggur geisla flóð, í gluggana á daginn í litla Jóni logar glóð, leitar oft um bæinn. Þrevetra að aldri Egill sterki áfengi drakk á við fullorðna menn Bindindistillagan ber þess merki að brennivín drekki menn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.