Morgunblaðið - 22.09.1979, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
26 tonna bátur
tekinn í landhelgi
SÆHRÍMNIR, 26. tonna togbát-
ur frá Þingeyri, var tekinn að
meintum ólöglegum veiðum 1
mílu innan við 12 milurnar við
Barða á Vestfjörðum i gær, en
það var varðskipið Ægir sem tók
bátinn. Mál skipstjórans var tek-
ið fyrir hjá bæjarfógetanum á
ísafirði í gær og lauk rannsókn
málsins seint i gærkvöldi, en það
verður tekið til dóms i dag
samkvæmt upplýsingum Þor-
varðar K. Þorsteinssonar bæjar-
fógeta.
FIS mótmælir
bráðabirgðalöguniim
FÉLAG íslenzkra storkaup-
manna mótmælir bráðabirgða-
lögum frá 10. september síðast-
liðnum um hækkun á sérstöku
timabundnu vörugjaldi og hækk-
un söluskatts, segir í fréttatil-
kynningu frá Félagi islenzkra
stórkaupmanna. Enn er verið að
leysa vanda ríkissjóðs með aukn-
um sköttum — segir i ályktun
félagsins, þ.e. 10% hækkun sölu-
skatts og 33% hækkun sérstaks
timabundins vörugjalds flestra
þeirra vara sem slikt gjald er
lagt á.
Hér er um verulega hækkun á
vöruverði til neytenda að ræða eða
um 6 til 7% að meðaltali á þeim
vörum, sem hið sérstaka „tíma-
bundna" vörugjald og söluskattur
leggst á. Það er t.d. búsáhöld,
teppi, verkfæri, heimilistæki,
hljómflutningstæki o.fl. Vörur
sem undanþegnar eru söluskatti
hækka um 4 til 5% en þar er um
að ræða ýmsa matvöru svo sem
ýmsa pakkavöru, kex, niðursoðna
ávexti, grænmeti o.fl.
Þar sem vörugjald greiðist við
tollaafgreiðslu auka þessar
skattahækkanir mjög fjár-
magnsþörf innflytjenda á sama
tíma og gífurleg verðbólga gerir
fyrirtækjum sífellt erfiðara að
fjármagna nauðsynlegan vörulag-
er og viðhalda góðri þjónustu við
neytendur. Þessar álögur auka
fjármagnskostnað heildverzlunar
og skerða enn stöðu fyrirtækj-
anna.
Hækkun söluskatts eykur þann
vanda sem mörg fyrirtæki eiga í
vegna þess að þau þurfa að greiða
söluskatt af vöru sem þau hafa
ekki fengið greidda m.a. vegna
vaxandi vanskila, ekki sízt ríkis-
fyrirtækja.
Með tyggigúmmi í kjölfarNA TO-flotans
Hluti af flota Atlantshafsbandalagsins, sem kom i heimsókn til Reykjavíkur i vikunni, er nú farinn til
hafs á ný, en þessi mynd var tekin frá varðskipi fyrir austan land þar sem herskipin voru á siglingu
með oliuskipi sem flutti þeim oliu. 1 kjölfar NATO-herskipanna sigldu rússnesku verksmiðjutogararn-
ir sem komu einnig i heimsókn til Reykjavikur til þess að hvila áhafnir sinar frá veiðum þessa sömu
daga og NATO-herskipin voru hér. Þess má geta, að áhafnir rússnesku skipanna flykktust i miðbæ
Reykjavikur og keyptu viðast upp birgðir af tyggigúmmii og i Hafnarfirði, þar sem einn togaranna
var í fyrstu, er orðið litið um mohair-garn.
„Verd á gærum ákveðið án
samráðs við skinnaiðnaðinn”
— segir Jón Ásbergsson hjá Loðskinni
„ÞEGAR sexmannanefnd tók ákvörðun um þessa miklu
hækkun á gærum var ekkert samband haft við þau
fyrirtæki, sem starfa í skinnaiðnaðinum. Nefndin mun
hins vegar í vor hafa skrifað Útflutningsmiðstöð
iðnaðarins og farið fram á, að hún kannaði verð á
gærum erlendis. Hjá Útflutningsmiðstöðinni fékk Ingi
Tryggvason, starfsmaður við skinna- og ullarverkefni
stofnunarinnar og jafnframt bóndi og einn fulltrúa
bænda í sexmannanefnd, þetta verkefni. Við áteljum að
þarna er tekin verðakvörðun án þess að nokkurt
samband sé haft við þau fyrirtæki, sem starfa í þessari
iðngrein, og viljum í framtíðinni vera eiginlegur aðili
að verðakvörðuninni en fá hana ekki bara í blöðum,“
sagði Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri sútunarverk-
smiðjunnar Loðskinns h.f. á Sauðárkróki.
Sexmannanefnd ákvað í þessum iðnaðarins og Búvörudeild Sam-
mánuði að hækka verð á hverju
kílói af gærum úr 359 krónum í
846 krónur. Gunnar Guðbjartsson,
formaður Stéttarsambands bænda
og fulltrúi í sexmannanefnd, sagði
að nefndin hefði byggt verð-
akvörðun sína á gærum á upplýs-
ingum frá Útflutningsmiðstöð
ur gæruverðið til verksmiðjanna
hér innanlands samkvæmt
ákvörðun sexmannanefndar verið
hækkað um 63% miðað við erlend-
an gjaldeyri og um 109% miðað
við íslenskar krónur. „Við teljum
að þessi verðakvörðun sé óraun-
veruleg og þá sérstaklega þegar
litið er til þess að innlendu
fyrirtækin verða að greiða gær-
urnar í tvennu lagi, í nóvember og
í janúar. Þetta mun því auka
vaxtabyrði fyrirtækjanna gífur-
lega. Við gerðum ráð fyrir tals-
verðri hækkun á gæruverðinu en
þetta er skot yfir markið," sagði
Jón.
Jón sagði, að í skýrslu Útflutn-
ingsmiðstöðvarinnar kæmu fram
ýmsar tölur varðandi verð á gær-
um erlendis, sem íslensku iðnfyr-
irtækin hefðu gjarnan viljað fá að
segja sitt álit á áður en þær væru
teknar hráar til viðmiðunar. í
þessum tölum væri yfirleitt verið
að bera saman verð á völdum
fyrsta flokks lambaskinnum er-
lendum, sem eru stærri en
íslensku skinnin. „Sérstaklega er
þetta ankannalegt í ár þar sem
ljóst er að dilkarnir verða mun
rýrari og einnig er okkur gert að
greiða jafnaðarverð fyrir allar
gærur óvaldar. Það er alveg ljóst,
að þau fyrirtæki, sem sauma úr
íslensku skinnunum, eru ekki til-
búin til að mæta þessari hækkun á
hráefni sínu,“ sagði Jón.
bands ísl. samvinnufélaga. „Upp-
lýsingum þessara tveggja aðila
bar saman og við höfum litið á
útflutningsmiðstöð iðnaðarins
sem sameiginlegan aðila fyrir
iðnaðinn í þessu máli,“ sagði
Gunnar.
Að sögn Jóns Ásbergssonar hef-
Herstöðvaandstæðingar:
Aðgerðir á Keflavíkur-
urflugvelli, gönguferð
og lögreglan kærð
Bankamenn krefjast nýs
kjarasamnings strax
FYRSTI samningafundur Sam-
bands islenzkra bankamanna og
samninganefndar bankanna um
nýjan kjarasamning, var haldinn
miðvikudaginn 19. september
siða8tliðinn. Samningar SÍB eru
lausir frá næstu mánaðamótum,
en þeim var sagt upp með þriggja
mánaða fyrirvara, miðað við 1.
júli i sumar og kröfugerð sam-
bandsins jafnframt lögð fram,
segir í fréttatilkynningu, sem
Morgunblaðinu barst í gær frá
SÍB.
Samninganefnd bankanna fór
fram á frestun viðræðna um sinn
og að núgildandi samningur yrði
framlengdur um skeið. Samninga-
nefnd bankamanna kvað fram-
lengingu ekki koma til greina,
óskaði eftir að viðræður yrðu
þegar hafnar og benti á, að
samningar hefðu verið brotnir á
bankamönnum, þar eð 3% launa-
hækkun, sem koma átti til útborg-
unar 1. júlí í sumar, hefði ekki
verið greidd.
Tíu sækja
TÍU SÆKJA um starf fréttamanns i
erlendum fréttum sjónvarpsins. Um-
sækjendur eru: Elín Guðjónsdóttir,
Guðrún Halla TUlinius, Gunnar
Gunnarsson, Haraldur Jóhannsson,
Hildur Bjarnadóttir, Katrín Páls-
dóttir, óli Tynes Jónsson, Pétur H.
Snæland, Sigurveig I. Jónsdóttir og
ögmundur Jónasson.
Á samningafundinum lagði
samninganefnd SÍB fram eftirfar-
andi ályktun, sem samþykkt var á
stjórnarfundi sambandsins 18.
september:
„Kjarasamningum SIB var sagt
upp miðað við 1. júlí 1979, með
þriggja mánaða fyrirvara. SÍB
telur mjög brýnt að hefja samn-
ingaviðræður um nýja kjarasamn-
inga hið allra fyrsta á grundvelli
kröfugerðar sambandsins og gildi
væntanlegrar samningar frá 1. 9.
1979.
Nýjustu ráðstafanir ríkisstjórn-
arinnar, sem fela í sér stórauknar
álögur í formi aukinnar skatt-
heimtu og stórkostlegra búvöru-
verðshækkana, hafa gert að verk-
um, að SÍB sér sig knúið til þess að
kefjast þess enn einu sinni, að 3%
umsamin launahækkun frafl. júlí
1979 verði þegar í stað greidd."
Samninganefndir SÍB og bank-
anna sættust á að halda viðræðum
áfram og verður það gert innan
tíðar. Formaður SÍB er Árni
Sveinsson og framkvæmdastjóri
Vilhelm G. Kristinsson.
Herstöðvaandstæðingar
hafa tilkynnt í fréttatil-
kynningu, að þeir hyggist
höfða mál á hendur lög-
reglunni í Reykjavík „fyrir
fruntaskap og meiðingar" á
fundarmönnum í Sunda-
höfn 19. sept. s.l. Þá er
greint frá því, að samtökin
muni halda fjöldafund og
standa fyrir aðgerðum á
Keflavíkurflugvelli fyrir
framan flugstöðvarbygg-
inguna þar n.k. fimmtudag,
en hins vegar hefur ekki
verið beðið um leyfi hjá
lögreglustjóranum á Kefla-
víkurflugvelli til þess að
halda útifund bar.
Þá hyggjast samtök herstöðva-
audstæðinga efna til fjöldagöngu
frá Hvaleyrarholti í Hafnarfirði
til Reykjavíkur 29. sept. n.k.
Bukovsky-
bókin í bóka-
klúbbnum
BÖK Vladimir Bukovskys, „To
Build a Castle", sem vakið hefur
mikla athygli erlendis, hefur ekki
verið fáanleg í bókaverzlunum á
íslandi, enda þótt liðið sé tæpt ár
frá því að hún kom fyrst út.
Bókaklúbbur áhugamanna um
frjálshyggju hefur hins vegar pant-
að hana, en fyrsta sendingin er
uppseld. Að sögn Skafta Garðars-
sonar, forstöðumanns bóka-
klúbbsins, er ný sending væntanleg
á næstunni, og geta þeir sem vilja
afla sér bókarinnar haft samband
við Skafta í síma 85298.
F jórar um-
sóknir um
embætti
boigarfógeta
RUNNINN er út umsóknarfrestur
um embætti borgarfógeta við Borg-
arfógetaembættið í Reykajvík
Umsækjendur eru fjórir, Jónas
Gústafsson aðalfulltrúi við
embættið, Ragnar H. Hall, fulltrúi
sýslumannsins á Eskifirði, Volter
Antonsson hrl. og Þorkell Gíslason
fulltrúi við Borgarfógetaembættið.