Morgunblaðið - 22.09.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
5
HróiHöttur eða
Makki hnífur
Nú dynja daglegar verðhækkanir
á alþýðu manna. Allar líísnauð-
synjar þjóta upp i prisum. í gær
varð ég vitni að því í kjörbúðí
miðborginni, að kona ein varð að
tina upp úr poka sinum mjólkur-
fernu og heilhveitibrauð og biðja
afgreiðslustúlkuna að reikna á
nýjan leik. Hana vantaði talsvert
á vörukaupin. Það er ekkert
léttbærara að verða fyrir sliku
þótt í ríkisstjórn sitji menn sem
léku Hróa hött, Litla-Jón og
munkinn i siðustu kosningum.
Við jnum því ekki betur ef þeir
reynast þegar allt kemur til alls
vera Breddubeitir, Svarti Donald
og Makki hnifur. Formaður
BSRB sagði okkur er hann lagði
til að við gæfum eftir umsamda
kauphækkun, að við fengjum alla
kjaraskerðinguna bætta á einu
bretti, bara ef við vildum gera
hitt fyrir rikisstjórnina. Bæjar-
starfsmenn á Húsavik, Sauðár-
króki og Neskaupstað urðu við
tilmælum forystumanna BSRB
og ríkisstjórnarinnar.
Nú ætti forysta BSRB að láta
reyna á hreysti sína. Biðja bæjar-
starfsmenn á fyrrgreindum stöð-
um að notfæra sér þann verkfalls-
rétt er þeir öðluðust með því að
gjalda jákvæði við samningi
Kristjáns og Tómasar. Neita að
taka við útsvari líffræðingsins. og
annarra, sem eru svo viðkvæmir
fyrir lífríki austan Ódáðahrauns,
en bregða hnífnum á brauðhleif
alþýðuheimilanna og skerða
mjólkurdreitilinn.
Það trúir ekki nokkur maður
þruglinu um baráttu gegn verð-
bólgunni. Verðbólgan er komin
með minnst þrjá hringi á undan
ráðamönnum. Eða eins og hjá
Hamburger Sportverein og Val 3
gegn 0.
Látum nú reyna á samtaka-
mátt bæjarstarfsmanna og snilli
forystumanna BSRB.
Nú þurfum við skeyti frá Nes-
kaupstað.
Pétur Pétursson þulur
„Þar eldar aldrei slokkna,>
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Ásgerður Búadóttir afhenti
listaverk sitt „Þar aldrei eldar slokkna“ forstjóra Norrænu
menningarmálastofnunarinnar í Kaupmannahöfn, Klas Olofs-
son. Listaverkið er unnið á vegum Menningarsjóðs Norðurlanda
til skreytingar á fundarsal menningarmálastofnunarinnar í
Kaupmannahöfn.
í tengslum við opnun annarrar norrænu listvefnaðarsýningar-
innar. sem Menningarmálasjóður Norðurlanda hefur styrkt, var
islenzkur listvefnaður kynntur fyrir dönskum fréttamönnum.
Ásgerður Búadóttir sýnir einnig nokkur verk á vefnaðarsýning-
unni.
Kristján Jóhannsson tenór-
söngvari
Söngtón-
leikar á
Bolungarvík
KRISTJÁN Jóhannsson
tenórsöngvari mun halda
tónleika í félagsheimilinu
á Bolungarvík á morgun,
sunnudag kl. 4. Á efn-
isskrá verða erlend og
innlend lög auk óperuaría.
Faðir Kristjáns, Jóhann
Konráðsson, mun einnig
syngja nokkra dúetta með
Kristjáni.
Bæiarstiórn Seltiarnarneskau pstaðar;
Skorar á Alþingi að leiðrétta
strax misvægi atkvæðaréttarins
að íbúar Reykjaneskjördæmis og
Reykjavíkur hafa allt að sexfallt
minni vægi atkvæða, en íbúar
sumra annarra landshluta. í þjóð-
félagi lýðræðis verður ekki unað
við slíkt lengur. Hin nýskipaða
Leggur til að Reykjaneskjördæmi
verði skipt í tvö eða fleiri k jördæmi
„Bæjarstjórn Seltjarnar-
neskaupstaðar ályktar að
skora á háttvirt Alþingi
að leiðrétta í tæka tíð,
fyrir næstu alþingiskosn-
ingar, þann hróplega mun,
sem nú er á vægi atkvæða
eftir því í hvaða kjördæmi
landsins kjósandi býr.
Bæjarstjórn telur, að sem
liður í þeirri leiðréttingu
hljóti að vera skipting
Reykjaneskjördæmis í tvö
eða fleiri kjördæmi.“
Þannig hljóðar ályktun
sem bæjarstjórn Seltjarn-
arness samþykkti einróma
á fundi sínum fyrir
skömmu, að frumkvæði
sjálfstæðismanna í
bæjarstjórninni.
I greinargerð með ályktuninni
segir svo: „Vart þarf mikinn rök-
stuðning með þessari ályktun.
Atkvæðarétturinn er grundvallar-
mannréttindi og nú er svo komið
stjórnarskrárnefnd Alþingis verð-
ur því að láta mál þetta hafa
algjöran forgang, því lýðræðinu í
landinu stafar hætta af óbreyttu
ástandi. Þingmenn allra flokka í
Reykjaneskjördæmi hafa margoft
á undanförnum árum bent á leiðir
til úrlausnar og nú er svo komið,
að ákvarðanataka þolir ei lengur
neina bið.
Haraldur kaupmað-
ur í Bárunni látinn
HARALDUR Kr. Gíslason kaup-
maður í Bárunni, Grindavík, er
nýlega látinn. Hann var fæddur
9. júlí 1915 að Hverfisgötu 86 í
Reykjavík, sonur Gísla Krist-
jánssonar bátasmiðs og konu
hans, Styrgerðar Jóhannsdóttur.
Hann var húsasmíðameistari að
mennt, en lét af þeim starfa
vegna heilsuleysis og sneri sér að
verzlunarstörfum, sem hann
stundaði í um 40 ára skeið og
síðustu 10 ár ævi sinnar í félagi
við Björn son sinn í Grindavík.
Eftirlifandi kona hans er Sig-
ríður Björnsdóttir og eiga þau
fjögur uppkomin börn.
Nóg að gera
á Akranesi
Akranesi 21. september.
I fyrradag, gær og í dag
komu Akranestogararnir í
höfn hver á eftir öðrum
með afla sem hér segir:
Óskar Magnússon 60 lestir
af þorski, Haraldur Böðv-
arsson með 100 lestir af
karfa, Krossvíkin með 120
lestir af karfa. Víkingur
AK 100 er á leiðinni með
fullfermi af loðnu frá Kol-
beinseyjarsvæðinu.
— Júlíus.
Athugasemd
frá Veru Roth
Ég undirrituð vil taka fram,
vegna fréttar í Morgunblaðinu
þann 21. sept. þar sem Bjarki
Elíasson yfirlögregluþjónn segir
mig hafa blóðgast af völdum
nagla á priki því sem ég var með,
að hvorki var nagli né þorskhaus
á priki þessu.
Atvik voru þau að þegar lög-
reglumenn tóku að beita kylfun-
um, hörfaði ég ásamt fjöldanum,
drulluhrædd við þvílíkar aðfarir.
Þegar svo einn þessara ungu
lögregluþjóna þrífur í prikið og
reynir að slíta það af mér, þá
rígheld ég í það í þeirri góðu trú
að ég hafi þó þann rétt að halda
mínu priki. Reiðir manngarmur-
inn þá kylfuna til höggs og lætur
ríða á höndunum á mér, uns ég
missti takið, og hefur þá sprung-
ið fyrir í lófanum svo sauma
þurfti sex spor.
Ekki get ég ímyndað mér hvað
Bjarki þykist hafa fyrir sér í
þessu máli og þó svo ég hafi
reynst óbrotin (þökk sé guði) þá
er ekki þar með sagt að ég sé
óbarin. Þegar ég kom á Borgar-
spítalann, var ég mikið marin á
vinstri framhandlegg svo og
marin og bólgin á hægri þumal-
fingri og úlnlið. Enda hef ég ekki
vitað til þess að fólk væri sent í
röntgenmyndatöku að ástæðu-
lausu.
Fyrir myndatökuna þurfti ég
að borga kr. 4000 og kr. 2000 fyrir
aðgerðina. Finnst mér helvíti
hart að þurfa að borga fyrir að
vera barin.
Virðingarfyllst,
Vera Roth.
INNLENT
NÝ UPPSKERA AF RAUÐUM
AMERISKUM EPLUM, KOMIN
Eggert Kristjánsson, h.f. Sundagörðum 4, sími 85300.