Morgunblaðið - 22.09.1979, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
23
Kýrin
illvíga
Bonn, 20. september. AP.
LÖGREGLUMENN skáru í dag
kú er komist haíði inn á hrað-
brautina milli Kölnar og Bonnar
og neitaði að fara þrátt fyrir
margar tilraunir lögreglunnar
til að koma henni þaðan með
góðu móti. Er lögreglumennirnir
reyndu að stjaka við kúnni lagði
hún til atlögu við þá og var hin
versta.
Var gripið til þess ráðs að
skjóta hana, en margar kúlur
þurfti áður en yfir lauk. Og ekki
tókst betur til en svo, að helsærð
kýrin tók undir sig stökk og rauk á
lögreglumennina. Hné hún niður
er hún stangaði einn lögregluþjón-
anna, en við það hljóp skot í fót
lögreglumannsins úr skammbyssu
hans. Atvikið átti sér stað á
Kölnarflugvelli.
ísótt-
hreinsuðu
umhverfi
í átta ár
Houston, 21. september. AP.
DAVÍÐ litli, sem reyndar er
ekkert lítill lengur, hélt í gær
áttunda afmælisdaginn sinn
hátiðlegan í sótthreinsaða
plastbúningnum sinum, sem
hefur verið heimilihans frá
fæðingu. Læknar sem hugsa
um hann segja, að ekki sé að
vænta breytinga á högum
hans fyrr en í fyrsta lagi eftir
tvö til þrjú ár.
Dr. William T. Shearer pró-
fessor í veirufræði við lækna-
háskólann í Houston sagði í
dag, að enn væri ekkert svar
til, en hann ætti von á því að
læknavísindin gætu hjálpað
Davíð innan fárra ára.
Sjúkdómur Davíðs lýsir sér
þannig, að líkami hans hefur
enga mótstöðu gegn sýkingu,
hvers eðlis sem hún kann að
vera.
Hann vegur í dag 25 kíló og
þroskast á eðlilegan hátt and-
lega og er við nám í barnaskóla
í borginni. Hann sækir að vísu
fáa tíma en les þess meira
heima fyrir.
Einn af yfirmönnum viðhaldsdeildar Eastern Airlines skoðar
vegsummerki í DC-9 þotunni sem missti hiuta af stélinu.
Giscard d’Estaing
nýtur mest fylgis
París, 21. september. AP.
SAMKVÆMT skoðanakönnun,
sem birt var í dag í París, yrði
Valery Giscard d’Estaing ef kosn-
ingar yrðu haldnar nú, hver svo
sem mótframbjóðandi hans væri.
í skoðanakönnuninni voru eitt
þúsund Frakkar eldri en 18 ára
spurðir og samkvæmt því fengi
d'Estaing 38% atkvæða í fyrstu
umferð kosninganna gegn
Francois Mitterand Ieiðtoga
sósíalista, en Mitterand fengi
27%. Ef sósialistinn Michel
Rocard færi hins vegar á móti
d'Estaing fengi forsetinn núver-
andi 39% á móti 24%.
Frambjóðandi gaullista,
Jacques Chirac, fengi samkvæmt
skoðanakönnuninni 15% í hvoru
tilfellinu sem væri.
Samkvæmt niðurstöðunum
fengi d’Estaing 53% atkvæða í
seinni umferð gegn Mitterand en
52% gegn Rocard.
Ef svo ólíklega vildi til, að
forsetinn berðist við leiðtoga
kommúnista, Georges Marchais,
fengi hann 64% atkvæða sam-
kvæmt skoðanakönnuninni.
Landgrunn við
Jan Mayen?
Ó8ló. 18. septomber. Frá fráttaritara Mbl.
Jan-Erik Laurá.
NORSK stjórnvöld hafa í sumar
gengist fyrir jarðeðlisfræðilegum
rannsóknum við Jan Mayen og
benda niðurstöður þessara rann-
sókna til þess að eyjan hafi sitt
eigið landgrunn. Eru þessar niður-
stöður í samræmi við niðurstöður
segulmælinga, sem gerðar voru
við eyna í fyrra. Tilvist land-
grunns er talin nauðsynleg for-
senda þess að hugsanlegt sé að við
eyna finnist olía eða gas. Rann-
sóknum verður haldið áfram við
Jan Mayen og reynt að kanna gerð
landgrunnsins og þær bergtegund-
ir, sem þar kunna að finnast.
Veður
víða um heim
DC-9 þoturnar: --------
Enn sjást sprungur
New York. 21. september. AP.
LITLAR sprungur hafa
fundizt í tveimur DC-9
flugvélum flugfélagsins
Republic og sex flugvélum
Eastern Airlines síðan stél
DC-9 flugvélar Air Canada
datt af yfir Atlantshafi á
mánudaginn.
Bandaríska loftferðaeft-
irlitið íhugar að skylda
eigendur DC-9 flugvéla til
að gera nauðsynlegar
breytingar til að forðast
vandræði í framtíðinni.
Rúmlega 100 DC-9 flug-
vélar hafa verið skoðaðar í
Bandaríkjunum og Kanada
og önnur flugfélög segja
annaðhvort að ekkert
óvenjulegt hafi komið í ljós
eða að skoðun sé ekki lokið.
Viðgerð fer fram á
Moskvu, 21. september. AP.
TALSMAÐUR General Motors,
bandarisku bílaverksmiðjanna,
sagði í Moskvu í dag, að samn-
ingaviðræður stæðu nú yfir milli
fyrirtækisins og sovézkra yfir-
valda um hugsanlegan innflutn-
ing á bilum verksmiðjanna til
Sovétrikjanna.
sprungum í þremur DC-9
flugvélum Air Canada þar
á meðal þeirri sem missti
stélið.
Gegn innflutningi GM til Sovét-
ríkjanna vilja sovézk yfirvöld fá
sérfræðinga GM til þess að endur-
skipuleggja og koma í nýtísku-
legra form Moskvich-verksmiðj-
unum þarlendu sem hafa á seinni
árum dregist nokkuð aftur úr í
samkeppninni á erlendum mörk-
uðum.
Akureyri 4 heióskírt
Amaterdam 15 lóttskýjaö
Aþena 32 heiðskírt
Barcelona vantar
Berlín 16 skýjað
BrUssel 20 léttskýjaö
Chicago 25 skýjaö
Feneyjar 20 þokumóóa
Frankfurt 18 skúrir
Genf 14 rigning
Jerúsalem 29 léttskýjað
Jóhannesarborg 23 rigning
Kaupmannahöfn 18 skýjað
Las Palmas 25 skýjaö
Lissabon 25 skýjaö
London 16 heiöskírt
Los Angeles 33 skýjað
Madríd 24 skýjað
Malaga 28 skýjaö
Mallorca 23 skýjað
Miami 30 skýjaó
Moskva 14 heióskirt
New York 20 rigning
Ósló 11 léttskýjaö
París 19 léttskýjaó
Reykjavík 5 skýjaó
Rio De Janeiro 19 skýjaó
Rómaborg 24 rigning
Stokkhólmur 13 lettskýjaó
Tel Aviv 29 skýjaó
Tokýó 27 skýjaó
Vancouver 18 léttskýjaó
Vínarborg 20 skýjaö
General Motors
til Rússlands?
Þetía gerðist 22. september
1975 — Misheppnað banatilræði
við Ford forseta í San Francisco.
1974 — 5.000 taldir af í fellibyl í
Honduras.
1973 — Henry Kissinger tekur
við stöðu utanríkisráðherra
Bandaríkjanna.
1965 — Vopnahlé í ófriði Ind-
verja og Pakistana.
1949 — Rússar sprengja fyrstu
kjarnorkusprengju sína.
1918 — Mótspyrna Tyrkja í
Palestínu brotin á bak aftur.
1862 — Yfirlýsing Abraham
Lincolns forseta um frelsi þræla
— Bismarck verður kanzlari
Þýzkalands.
1830 — Venezúela verður sjálf-
stætt ríki með aðskilnaði frá
Kólombíu.
1789 — Austurríkismenn og
Rússar sigra Tyrki við Rimnik,
Valakíu.
1711 — Frakkar taka Rio de
Janeiro — Tuscarura-stríðið
hefst í Norður-Karólínu með
morðum Indíána á 200 landnem-
um.
1609 — 500.000 Márar reknir frá
Spáni.
1586 — Orrustan við Zutphen,
Niðurlöndum.
1550 — Floti Þýzkalandskeisara
tekur flotastöð sjóræningjans
Dragut í Mehedia í Túnis.
1499 — Tyrkir ræna Vicenza,
Ítalíu.
Afmæli. Anna Cleves Englands-
drottning (1515—1557) — Chest-
erfield lávarður, enskur rithöf-
undur (1694—1773) — Michael
Farady, brezkur vísindamaður
(1791-1867) - Louis Botha,
suður-afrískur hermaður &
stjórnmálaleiðtogi (1862—1919).
Andlát. Nathan Hale, ættjarð-
arvinur, hengdur, 1776.
Innlent. Utför Asgeirs Asgeirs-
sonar 1972 — Sighvatur Böð-
varsson andast á leið til Jórsala
1266 — d. Ólafur konungur kyrri
1093 — Einar pr. Hafliðason
1393 — Faxaflóabáturinn „Elín“
sekkur í Straumsfirði á Mýrum
1895 — „Esja“ kemur til Reykja-
víkur 1939 — Árbæjarsafn opn-
að 1857 — f. Sigurjón Friðjóns-
son 1867 — d. Agúst H. Bjarna-
3on 1952 — Ásgeir Sigurðsson
skipstj. 1961 — f. Helga Valtýs-
dóttir 1923.
Orð dagsins. Tilræði er ýktasta
mynd ritskoðunar — George
Bernard Shaw, írskur leikrita-
höfundur (1856-1950).
Ótrúleg gjöf til
tœknavtsindanna
AUÐUGASTI maður
Bandaríkjanna, Daniel
K. Ludwig, hefur ákveðið
að gefa öll auðæfi sín sem
eru að verðmæti 2.500
milljónir dollara til
krabbameinsrannsókna
að sögn brezka blaðsins
Daily Express.
Þetta verður mesta
peningagjöf sem lækna-
vísindin hafa fengið og
verður mikil lyftistöng
þeim vísindamönnum
sem reyna að finna lækn-
ingu við krabbameini,
segir blaðið.
Ludwig hefur stofnað sjóð í
Daniel Ludwig
Sviss sem þegar hefur verið
notaður til þess að styðja vís-
indarannsóknir í nokkrum lönd-
um. Nú vill Ludwig tryggja að
þetta starf verði stóreflt þegar
hann fellur frá.
Daniel Ludwig er 81 árs gam-
all og varð auðugasti Bandaríkj-
manna af eigin rammleik. Hann
á fasteignir, skip og atvinnufyr-
irtæki í 21 landi. Hann hefur
aldrei kvænzt og lifir einsetulífi
í Connecticut. Hann hefur aldrei
þjáðst af krabbameini sjálfur og
ekki er vitað um ástæðurnar
fyrir áhuga hans á krabbameins-
rannsóknum.
Honum er illa við að teknar sé
af honum ljósmyndir og líkist að
því leyti Howard heitnum
Hughes, segir Express.