Morgunblaðið - 22.09.1979, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
Greinargerð frá STEFI
vegna ummæla popphöfunda um starfsemi félagsins
Að gefnu tilefni m.a. vegna
fréttatilkynningar, sem nýstofnuð
„Samtök alþýðutónskálda og tón-
listarmanna" hafa látið frá sér
fara um illa meðferð á sér af hálfu
STEFs og FÍH, þykir stjórns
STEFs rétt að gera nokkrar at-
hugasemdir við þann þáttin, sem
að félaginu snýr.
Fagna ber því, að nokkur áhugi
virðist kviknaður hjá popphöfund-
um fyrir höfundaréttarmálum.
Framlag þeirra til þeirra mála
hefur sannast sagna nánast ekk-
ert verið til þessa og hefur það
algerlega komið í hlut annarra að
berjast fyrir viðurkenningu og
lögfestingu þessa réttar öllum
íslenskum tónhöfundum til hags-
bóta þ. á m. popphöfundum, sem
margir hverjir eru með allra
launahæstu rétthöfum í STEFi.
Eftir 30 ára harða baráttu STEFs
er nú svo komið, að um 600
rétthafar njóta góðs af starfsemi
félagsins. I þessum stóra hópi
rétthafa eru aðeins um 20 popp-
höfundar, sem eitthvað hafa sam-
ið að marki, þannig að hér koma
fleiri hagsmunaaðilar við sögu en
þeir einir, og fráleitt er, að megin-
hluti tekna STEFs sé tilkominn
vegna flutnings verka íslenskra
popphöfunda, eins og ofangreind
samtök hafa haldið fram. Auk
mikils flutnings verka annarra
íslenskra höfunda en popphöfunda
í tekjuöflum STEFs er því óveru-
legur og eins og samningum
STEFs við tónlistarneytendur er
háttað mundi það engu breyta um
tekjur félagsins þótt flutningur
íslenskra popplaga félli alveg nið-
ur.
Athygli vekur, að popphöfundar
hefja baráttu sína í fjölmiðlum en
ekki með viðræðum við þá, sem
þeir telja sig eiga vantalað við, og
er slíkt óvenjulegt með öllu. Er
þessi málsmeðferð aðeins til þess
fallin að veikja réttarstöðu allra
höfunda og er vatn á myllu and-
stæðinga höfundaréttarins. Þá
vekur það einnig sérstaka athygli,
að af þeim málum, sem samtökin
telja að skoða þurfi, er ekki
minnst einu orði á þá geigvænlegu
hættu, sem höfundarétti er nú
stefnt í vegna undirboða á höf-
undaréttargjöldum fyrir útgáfu
verka á hljómplötum. Er hér átt
við þá nýtilkomnu háttsemi
margra helstu íslenskra popphöf-
unda að semja framhjá STEFi við
hljómplötuframleiðanda um 50%
eða helming höfundalauna eins
og þau eiga að vera skv. töxtum og
samningum STEFs (þ.e. 4% í stað
8% af útsöluverði hljómplatna).
Höfundalaun fyrir hljómplötuút-
gáfu hafa verið mjög drjúg tekju-
lind fyrir popphöfunda sérstak-
lega, og má öllum ljóst vera, hve
alvarlegt réttindaafsal er hér um
að ræða án þess að hin nýju
samtök sjái nokkra ástæðu til að
gera þar við nokkra athugasemd,
ert beinir í þess stað spjótum
sínum eingöngu að eigin stéttar-
samtökum. Bendir þetta til óeðli-
legrar linkindar við atvinnuveit-
endur „alþýðutónskálda", en
nokkrir þeirra eða menn tengdir
þeim munu reyndar vera meðlimir
í „SATT“-samtökunum og hvata-
menn að stofnun þeirra.
Er skorað á hin nýju samtök að
taka höndum saman við STEF um
að hrinda þessari háskalegu aðför
að höfundaréttinum og þá sér-
staklega hagsmunum popphöf-
unda. Um það og önnur atriði eru
forráðamenn STEFs fúsir til að
ræða við forsvarsmenn hinna nýju
samtaka, ef þess verður óskað.
Um einstök atriði í fréttatil-
kynningu samtakanna og öðru því,
sem fram hefur komið í fjölmiðl-
um að undanförnu af hálfu popp-
höfunda þykir að öðru leyti rétt að
taka fram eftirfarandi:
í umræddri fréttatilkynningu
segir svo m.a.:
„Hlutur alþýðutónskálda er með
eindæmum lakur, þar sem þau
hafa frá upphafi verið svipt
stærstum hluta tekna sinna
sinna af höfunda- og flutnings-
rétti (svonefndum STEF-gjöld-
um). Meginhluti tekna STEFs er
sprottinn af verkum alþýðutón-
skálda, sem ekki nema að smá-
vægilegu leyti njóta þeirra,
enda eru alþýðutónskáld nánast
réttindalaus í STEFi."
Áður er bent á, að ekki verður
séð, að nema óverulegan hluta
tekna STEFs megi rekja til flutn-
ings umræddra verka. í annan
stað hefur STEF, sem hefur einka-
rétt samkvæmt lögum til samn-
inga og innheimtu flutningsrétt-
argjalda, í hvívetna farið eftir
löglega settum úthlutunarreglum
sínum, sem að grunni til eru
byggðar á samþjóðlegum reglum
og auk þess staðfestar af íslensk-
um stjórnvöldum. Popphöfundar
hafa því ekki verið sviptir neinum
þeim tekjum sem þeir eiga löglegt
tilkall til.
Að sjálfsögðu má ávallt um
slíkar úthlutunarreglur deila og
þá flokkaskiptingu eftir tegundum
tónlistar, sem þær byggjast á.
Skipting tónlistar í verðflokka
eftir tegund tónverks tíðkast
hvarvetna og má segja, að mis-
munur sá á greiðslum fyrir svo-
nefnda „létta" og „alverlega" tón-
list, sem hér tíðkast, sé mjög í
samræmi við þær reglur sem gilda
annars staðar á Norðurlöndum. í
Noregi er þessi munur enn meiri
en hér, þ.e. allt að 12-faldur. í
Danmörku er hann 5-faldur og í
Sviðþjóð og Finnlandi 3-faldur. í
Þýskalandi er munurinn enn meiri
og getur þar orðið allt að 20-fald-
ur. Mestur mismunur hér er í
framkvæmd 4-faldur.
Forsendur umræddrar flokka-
skiptingar eru m.a. þær, að samn-
ing vissra gerða (tegunda) tón-
verka krefst mun meiri vinnu og
þekkingar en annarra og liggur
það reyndar í augum uppi og er
hvergi umdeild atriði.
Hitt er svo annað mál, að engar
reglur eru einhlítar og fráleitt
væri að neita alfarið að ræða
nokkrar breytingar á þeim regl-
um, sem nú gilda hjá STEFi.
I viðræðum fjölmiðla við popp-
höfunda hefur þeirri skoðun verið
haldið fram, að greiðslur fyrir
tónverk hjá STEFi fari eftir því,
hver höfundurinn sé, t.d. hvort
hann sé meðlimur Tónskáldafé-
lags íslands. Þetta er alrangt. Hér
er það gerð verksins (tegund) ein,
sem skiptir máli. Semji t.d með-
limur Tónskáldafélags íslands
dans- eða dægurlag fær hann
eingöngu greitt fyrir það sem
slíkt. A sma hátt fá menn utan
þess félags, sem semja verk ann-
arrar gerðar, að sjálfsögðu
greiðslur fyrir þau sem slík.
í útvarpsviðtali við popphöfund
nú nýverið, var því haldið fram, að
úthlutanir STEFs færu fram 2
árum eftir afnot verka. Hér er um
mjög villandi upplýsingar að
ræða. Fyrir það fyrsta fara út-
hlutanir fyrir fjölföldunarrétt
(tekjur vegna útgáfu verka á
hljómplötum) fram 4 sinnum á ári
og á sama ári og tekjurnar koma
inn. Hinsvegar fer úthlutun tekna
vegna flutningsréttar fram á
næsta ári eftir öflun þeirra, ein-
faldlega vegna þess, að uppbygg-
ing íslenska félagsins og annarra
STEFja er með þeim hætti, að
annað er ekki framkvæmanlegt.
Eðli máls samkvæmt getur sú
úthlutun ekki farið fram fyrr en
reikningar undangengins árs
liggja fyrir og séð er hver úthlut-
unarfjárhæðin verður. Þetta getur
dregist nokkuð vegna þess, að
STEFgjöld eru að allmiklum hluta
greidd eftir á, auk þess sem
dráttur á greiðslum hlýtur ævin-
lega að verða nokkur. Síðan þarf
að vinna úr úthlutunargögnum,
sem er mjög tímafrekt og vanda-
samt starf. Loks bætast vextir af
innistæðufé STEFs á hverjum
tíma við úthlutunarfjárhæðina og
koma höfundum þannig til góða.
Hvað úthlutun að þessu leyti
viðkemur sitja allir rétthafar við
sama borð.
I sambandi við ofangreinda
starfshætti STEFs má geta þess,
að sami háttur er á hafður hjá
hinum erlendu systurfélögum
þess. Þá er ekki úr vegi að geta
þess, að réttindasamtök skyld
STEFi, sem nýlega hafa verið
stofnuð, þ.e. SFH (Samband flytj-
enda og hljómplötuframleiðenda)
haga starfsemi sinni mjög á sama
hátt og STEF. Úthlutun fyrir
flutningsrétt fer fram á næsta
fjárhagsári eftir innheimtu, byggt
er einvörðungu á útvarpsflutningi
af hagkvæmnisástæðum, og einnig
er gerður greinarmunur á tegund-
um listflutnings þannig, að greitt
er lægrá gjald til flytjenda fyrir
skemmtitónlist en til að mynda
fyrir flutning sinfóniskra verka.
íslenskir popphöfundar hafa
fundið að því, að úthlutun STEFs
væri alfarið byggð á útvarpsflutn-
ingi en ekki tekið tillit til tón-
flutnings utan útvarps svo sem á
dansleikjum og þá látið að því
liggja, að tekjur félagsins af
dansleikjum væru einvörðungu
sprottnar af flutningi íslenskra
poppverka og því „séreign"
íslenskra popphöfunda. Hið rétta í
málinu mun vera, að lítið sé um að
íslensk poppverk séu flutt á dans-
leikjum, nema í þeim tilvikum
þegar hljómsveitir halda sjálfar
dansleiki og flytja verk eftir eigin
meðlimi, enda eru STEF-gjöld
gefin eftir fyrir slíkar samkomur.
Lög flutt á dansleikjum eru að
langmestu leyti eftir erlenda höf-
unda. Þá er þess að geta, að
popphöfundum, jafnt og öðrum, er
greidd sérstök aukaúthlutun
vegna flutnings utan útvarps, þeg-
ar fyrir liggur, að sá flutningur
hafi verið sérstaklega mikill og
útvarpsnotkunin gefi ekki rétta
mynd af heildarflutningi verka
viðkomandi höfundar, en slíkt er
gert aðeins í undantekningartil-
vikum. Ástæður þess, að STEF
byggir úthlutun sína að mestu á
útvarpsflutningi eru þær, að
kostnaður við skrásetningu og
úthlutun allra verka fluttra á
dansleikjum og öðrum skemmti-
stöðum yrði óviðráðanlegur, þann-
ig að lítið yrði til skipta þegar upp
væri staðið. Einföldun sem þessi
er ekkert séríslenskt fyrirbrigði
heldur hafa erlendu STEFin orðið
að taka upp svipaðar aðgerðir í
meira eða minna mæli.
Leiðrétta þarf þann leiða mis-
skilning, sem oft kemur fram hjá
popptónlistarmönnum, að STEF
hafi skyldum við þá alla að gegna,
jafnt flytjendur sem höfunda.
STEF gætir aðeins hagsmuna
hinna fáu höfunda í þessum stóra
hópi, en er hagsmunabaráttu
popptónlistarmanna að öðru leyti
algerlega óviðkomandi, en lang-
stærsti hluti popptónlistarmanna
eru eingöngu eða fyrst og fremst
hljóðfæraleikarar.
Loks vill STEF ítreka vilja sinn
til viðræðna við popphöfunda um
áhugamál þeirra og telur að öll
ágreiningsmál, sem upp kunna að
koma innan hins stóra hóps rétt-
hafa STEFs, eigi að ræðast og
leysast innan félagsins sjálfs en
ekki á vettvangi fjölmiðla.
19. september 1979.
Karlakór Reykjavíkur
í söngferð til Kína
„Hlökkum til að syngja fyrir Kínverja og setjast að matborðum með prjóna í höndum”
KARLAKÓR Reykjavikur leggur
upp i söngferð til Kina hinn 10.
nóv. n.k. i boði menningarmála-
ráðuneytis kinverska alþýðulýð-
veldisins. Kórinn mun syngja þar
á sex til átta hljómleikum i
mörgum af stærstu borgum Kina.
Þetta er ellefta söngför kórsins til
útlanda, alls hefur kórinn haldið
yfir 150 hljómleika i þessum
utanlandsferðum.
Söngstjóri Karlakórs Reykja-
vikur i þessari ferð verður Páll
Pampichler Pálsson, píanóleik
annast Guðrún A. Kristinsdóttlr.
Einsöngvarar verða óperusöngv-
ararnir Sieglinde Kahman og
Sigurður Björnsson og tveir kór-
félagar, þeir Hreiðar Pálmason
og Hjálmar Kjartansson.
í tilefni af þessari för kórsins til
Kína boðaði stjórn hans til blaða-
mannafundar s.l. þriðjudag í hús-
næði sínu að Freyjugötu 14. For-
maður stjórnarinnar, Ástvaldur
Magnússon, sagði að boð þetta
hefði borist kórfélögum mjög
óvænt. „Þetta er að okkar áliti
mikill heiður, sem kórnum er
'sýndur, því félagsskapurinn er
ekki stór og fer kannski ekki mikið
fyrir honum, þó að hann hafi
starfað óslitið í 53 ár.“
Kórinn mun halda hljómleika í
mörgum af stærstu borgum Kína,
svo sem Peking, Schanghai og
Canton. Vegalengdirnar, sem kór-
inn ferðast innan Kína munu verða
nær 6 þús. kílómetrar. Kórinn fór
fyrst utan árið 1935 og hefur síðan
ferðast víða og m.a. sungið víða í
Evrópu, í Norður-Afríku, einnig í
Bandaríkjunum og Kanada.
Söngskrá hljómleikanna í Kína
mun verða blönduð og að sögn
stjórnarmanna verður helmingur
hennar íslenzk og norræn lög, en
að öðru leyti mjög blönduð.
Kínaförin mun standa yfir í
þrjár vikur. Þátttakendur verða
alls 65—66 manns. Kórfélagar eru
40 talsins en með þeim munu fara
nokkrar eiginkonur félagsmanna
og fleiri aðilar.
Söngæfingar fyrir förina eru
þegar hafnar og sagði Ástvaldur
að hópurinn væri mjög samstæður
og áhugasamur og þeir kviðu engu,
þótt í mörg horn væri að líta, til að
allt gengi heim og saman fyrir
förina. „Þetta verður okkur kostn-
aðarsöm för þrátt fyrir rausnar-
legt boð. Við höfum aldrei þegið
opinberan fjárstuðning og munum
nú sem fyrr standa sjálfir að
fjármögnun. Til fjáröflunar er
ætlunin að halda hina árlegu
styrktarhljómleika okkar fyrir för-
ina, en þeir hafa ævinlega verið
haldnir á vorin. Fá íslenzkir
áhugamenn þá tækifæri til að
hlýða á söngskrá þá, er við raunum
bjóða Kínverjum upp á.“
Karlakór Reykjavíkur hefur gef-
ið út margar hljómplötur með
talsvert á þriðja hundrað lögum á.
Margir kórfélaganna hafa starfað í
kórnum í fjölda ára og nokkrir í
allt að 30 ár. Söngstjórinn, Páll
Pampichler, hefur stjórnað kórn-
um í 15 ár. Kórinn hefur fengið
mjög góða dóma í fyrri utanlands-
ferðum sínum og má minna á
hljómleikaför hans til Mið-Evrópu
árið 1973, þar sem hann söng m.a. í
fæðingarbæ Páls Pampichlers,
Graz í Austurríki, við mjög góðar
undirtektir áheyrenda og góða
dóma fjölmiðla þar. Kórinn gaf út
tvær breiðskífur með upptöku frá
þessum hljómleikum í tilefni af 50
ára afmæli kórsins í janúar 1976.
Stjórnarmenn kórsins sögðu í
lok blaðamannafundarins, að þeir
hlökkuðu til að syngja fyrir Kín-
verja og setjast að matborðum með
prjóna í höndum.
Þessi mynd var tekin af stjórnarmönnum kórsins á blaðamannafundinum í vikunni. Var
blaðamönnum boðið upp á kínverskar pönnukökur, sem iistilega voru útbúnar og skreyttar af
eiginkonum kórfélaga. Formaður stjórnarinnar, Ástvaldur Magnússon, er þriðji frá hægri á
myndinni. Ljósm Mbl. Emilía.
s i i > 11) r 31.. i 9 j f 2 »■( fcni!8li its (i ir ðsl itiDov iOga .1 \n a i> ' t l'í íikiiciim mi i j ,h.„ . U4.i» u. 11 < <•«-.*