Morgunblaðið - 22.09.1979, Page 35
Verður Reykjaneskjördæmi skipt?
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
35
Hugsanlegt að
Reykjanesi verði
skipt i f jögur
kjördæmi
— segir Skúli Sigurgrímsson
„Þessi ályktun tekur af skarið um að
menn vilja ekki lagfæra þetta misvægi
með því að fjölga þingmönnum í kjör-
dæminu eins og það er. Menn vilja skipta
því og ég álít að það komi til greina að
skipta því upp í fleiri en eitt kjördæmi“,
sagði Skúli Sigurgrímsson, forseti bæjar-
stjórnar Kópavogs.
Hann sagði að rætt hefði verið um að
hugsanlegt væri að skipta Reykjaneskjör;
dæmi allt upp í fjögur kjördæmi. „í
framhaldi af þeim umræðum hljóta menn
að spyrja: hvað á þá að gera við Reykjavík,
á ekki að skipta henni líka? Það koma því
margir hlutir til álita þegar þessi mál eru
rædd“, sagði Skúli.
Hann var spurður að því hvort ein-
hverjar sérstakar ástæður hefðu legið
fyrir því að einmitt þessi tími var valinn
til þess að samþykkja ályktun af þessu
tagi. Skúli svaraði því til, að formaður
stjórnskipunarnefndar hefði nýlega skýrt
frá því að valkostir yrðu lagðir fyrir
þingflokkanan um stjórnarskrárbreyting-
ar í haust. „Við vildum því nota tækifærið
og minna á okkur," sagði Skúli
Sigurgrímsson.
Nánast mark-
leysa að fara á
kjörstað við nú-
verandi ástand
r
— segir Arni Grétar Finnsson
„Ég myndi telja þessa breytingu til
verulegra bóta. Eins og ástandið er i dag
er það í sjálfu sér nánast markleysa að
vera að fara á kjörstað á Reykjanesi þar
sem menn hafa aðeins 1/5 atkvæðisréttar
til móts við aðra,“ sagði Árni Grétar
Finnsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.
Hann sagðist telja heppilegast að skipta
kjördæminu þannig, að Suðurnesin yrðu
sérstakt kjördæmi, Hafnarfjörður, Garða-
bær og Bessastaðahreppur yrðu sérstakt
kjördæmi og síðan yrðu Kópavogur og það
sem þá væri eftir af Reykjaneskjördæmi
sérstakt kjördæmi.
„Ég myndi telja slíka skiptingu mun
heppilegri heldur en að fjölga þingmönn-
um í Reykjaneskjördæmi eins og það nú
er. Þetta eru byggðasvæði sem ekki eiga
neina sérstaka hluti sameiginlega umfram
aðra landsmenn. Annmarkarnir á þessu
eru þeir aðallega, að Seltjarnarnes og efri
hluti kjördæmisins eiga kannski ekki
mikið sameiginlegt með Kópavogi, en
miðað við ástandið eins og það er í dag þá
finnst mér þetta eðlileg skipting," sagði
Árni Grétar Finnsson.
Hann var þá spurður að því hve brýnt
væri að koma þessari skiptingu á og
svaraði hann því til að nauðsynlegt væri
að koma henni á strax. „Ég hef hins vegar
ekki neina trú á því að það verði strax. Það
er búin að vera stjórnarskrárnefnd á
stjórnarskrárnefnd ofan og aldrei látið
neitt frá sér fara. Endurskoðun stjórnar-
skrárinnar í heild er það viðamikið mál að
hún hlýtur að taka lengri tíma en lausn
kjördæmamálsins þolir. Því ber að taka
það mál eitt út úr störfum stjórnarskrár-
nefndar og finna lausn á því, enda eru
engir stórvægilegir annmarkar á stjórnar-
skránni, eins og hún er sem krefjast eins
brýnnar lausnar og misréttið í kjördæma-
skipaninni," sagði Árni Grétar Finnsson.
Kjördæmamálið
ekki leyst nema
með f jölgun
þingmanna
— segir Tómas Tómasson
„Hér á Suðurnesjum hefur mikið verið
rætt um þessi mál á undanförnum árum
og ég held að menn séu þvi almennt
fylgjandi hér, að Suðurnes verði sérstakt
kjördæmi“. sagði Tómas Tómasson bæj-
arfulltrúi í Kefiavík. En hann á svo sem
kunnugt er sæti í stjórnarsrkárnefnd-
inni.
Tómas sagði að þeir, sem hefðu um þetta
mál fjallað í ræðu og riti á Suðurnesjum,
væru almennt þeirrar skoðunar að Suður-
nesin hefðu mikla sérstöðu vegna þess a?
atvinnulíf þar byggiðist nær eingöngu á
fiskveiðum og fiskvinnslu. Þeir atvinnu-
þættir væru. ekki eins afgerandi fyrir
byggðalögin nær Reykjavík. „Staðir eins
og Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður
og Seltjarnarnes eiga svo aftur sameigin-
lega nálægðina við Reykjavík", sagði
Tómas. Hann bætti því við að sér þætti vel
koma til greina að skipta Reykjaneskjör-
dæmi upp í fleiri en tvö kjördæmi og sagði
að hugsanlegt væri að Hafnarfjörður,
Garðabær og Bessastaðahreppur gætu
orðið sérstakt kjördæmi.
— En hvernig hafa menn þá hugsað sér
þingmannatöluna ef skipta á Reykjanesi
upp í smærri kjördæmi?
„Mér virðist það ekki verða gert örðuvísi
en þingmönnum verði fjölgað í heild á
Alþingi. Það gæti reynst erfitt að fjölga
þingmönnum á einum stað á kostnað
þeirrar þingmannatölu sem nú er annars
staðar".
— Telur þú réttlætanlegt að einhver
munur sé á vægi atkvæða eftir landshlut-
um?
„Ég verð að viðurkenna að ég tel alls
ekki óeðlilegt að það sé einhver munur.
Hve mikill munurinn má vera verð ég a&
viðurkenna að ég veit ekki. En eins og
ástandið er í dag, þegar við á Suðurnesjum
erum með allt að 6 atkvæðum á móti
hverju einu atkvæði í sumum öðrum
landshlutum,*þá er það hróplegt misvægi.
Ég get viðurkennt að þetta verður ekki
jafnað út í einu stökki, en með því að
nálgast jöfnuð og fjölga þingmönnum hér,
það tel ég fyrsta sporið sem þarf að stíga.“
Misvægi at-
kvæða ekki ein-
göngu leiðrétt á
kostnað sveit-
anna
— segir Karl G. Sigurbergsson
„Einhliða endurskoðun á kjördæma-
skipaninni með það eitt í huga að skipta
Reykjanesi upp í fleiri en eitt kjördæmi
er mér ekki að skapi“, sagði Karl G.
Sigurbergsson bæjarfulltrúi í Keflavík.
Hann sagði þó að hann væri hlynntur
slíkri breytingu ef hún^ væri híuti af
annarri og víðtækari. „Ég held að það
þurfi að endurskoða kjördæmaskipanina
i heild og á viðtækan hátt“, sagði Karl.
En hvernig verður misvægi atkvæðanna
leiðrétt að hans mati?
„Ég held að þetta verði ekki leiðrétt
eingöngu á kostnað sveitanna. Ég tel
réttlætanlegt að einhver munur sé á
atkvæðahlutfallinu, en það verða náttúru-
lega að vera takmörk á því eins og öðru.
Það má segja að mismunurinn sé orðinn of
mikill," sagði Karl og bætti því við, að það
eitt sér að skipta Reykjaneskjördæmi upp
væri ekki til mikilla bóta; „Það verður að
skoða þetta í víðara samhengi," sagði Karl
G. Sigurbergsson.
Lýðræðinu staf-
ar hætta af nú-
verandi ástandi í
kosningaréttar-
málum
— segir Richard Björgvinsson
„Tildrögin að þessari ályktun bæjar-
stjórnar Kópavogs voru þau að ég hóf
máls á því við bæjarstjórnarmenn að
timabært væri að Kópavogsbúar létu í sér
hcyra um kjördæmamál. Énginn flokkur.
félag né bæjarstjórnir í Kópavogi hefðu
nokkurn tima ályktað um málið. En þar
sem málið væri komið á það stig að talað
er um að stjórnarskrárnefnd leggi val-
kosti um stjórnarskrárbreytingar fyrir
þingflokkana í haust væri nú réttur tími
til að álykta." sagði Richard Björgvins-
son, bæjarfulltrúi í Kópavogi. Ilann v»r
spurður um tildrög þess að bæjarstjórn
Kópavogs sendi frá sér ályktun um
kjördæmamálið.
Hann sagði að samkomulag hefði verið í
bæjarstjórninni um ályktunina en í henni
fælust tvö aðalatriði. Annars vegar að
leiðrétta mismun í vægi atkvæða milli
landsmanna, „það mikla misrétti sem
viðgengst er í raun mannréttindamál,"
sagði Richard. Hins vegar er það svo
tillaga um að Reykjanesi verði skipt upp í
að minnsta kosti tvö kjördæmi, helst fleiri.
„Ymsir bæjarstjórnarmenn voru með þá
hugmynd að Kópavogur yrði sérstakt
kjördæmi, en um hana varð ekki eining í
bæjarstjórninni. Aftur á móti er bent á
það í greinargerð með ályktun bæjar-
stjórnarinnar, að í Kópavogi eru nú fleiri
íbúar en í þremur núverandi kjördæmum
og þvi ekki óeðlilegt að mönnum komi
þetta í hug“, sagði Richard Björgvinsson.
— Hvaða hugmyndir gera menn sér um
það hvernig helst ætti að standa að slíkri
skiptingu ef að yrði?
„Um það liggja ekki fyrir fullmótaðar
tillögur eða hugmyndir. Hægt er að hugsa
sér að skipta Reykjaneskjördæmi á marga
vegu. Ibúar kjördæmisins munu vera
49—50 þúsund talsins og skiptast nokkurn
veginn í fjögur álíka fjölmenn svæði. Á
Suðurnesjum búa þannig 12—13 þúsund
manns, í Hafnarfirði um 12 þúsund
manns, í Kópavogi rúmlega 13 þúsund
manns og á því svæði sem þá er eftir að
nefna eins og Mosfellssveit, Garðabæ og
Seltjarnarnesi búa samtals um 12 þúsund
manns. Það eru því ýmsir möguleikar með
skiptinguna. Þessa möguleika þarf að
kanna og móta síðan endanlegar tillögur á
grundvelli þeirra.“
— I greinargerð ályktunar ykkar er sagt
að lýðræðinu stafi hætta af núverandi
ástandi, hvers vegna?
„Vegna þess að sá hluti landsmanna sem
býr á Suð-Vesturlandi getur ekki endal-
aust sætt sig við að hafa miklu minna að
segja um landsmálin en aðrir landsmenn.
Meirihluti landsmanna kýs þannig 17
þingmenn, að frátöldum uppbótar-
mönnum.
Munurinn er orðinn mjög mikill þegar
hlutfallið er orðið 1:5, svo mikill að
ógjörningur er að sætta sig við hann til
langframa. Lýðræðinu hlýtur að vera hætt
þegar helmingur þjóðarinnar kýs miklu
minna en helming alþingismanna."
Æskilegt að
breyta skipulag-
inu án þess að
fjölga þing-
mönnum
— segir Markús Sveinsson
„Það væri miklu æskilegra að skipta
kjördæminu í tvennt heldur en að f jölga
þingmönnum núverandi kjördæmis. Eins
og þróunin hefur verið í seinni tíð til
dæmis með stofnun landshlutasamtaka
sveitarfélaga á Suðurnesjum í vetur.
virðist stefna í þá átt að Reykjaneskjör-
dæmi verði skipt í tvö kjördæmi", sagði
Markús Sveinsson. bæjarstjórnarfulltrúi
i Garðabæ.
Hann sagði að þó gæti það vandamál
komið upp ef hin landfræðilega skipting
yrði látin ráða að misræmi verði aftur í
stærð kjördæmanna. „Höfuðborgin hlýtur
jú að halda áfram að hlaða utan á sig þó að
eitthvað hafi sljákkað á hraðanum undan- •
farin ár“, sagði Markús.
Hann sagði að slík skipting yrði þó
vonandi aldrei nema fyrsti áfangi, það
þyrfti að koma til ákveðnari umræða um
allt önnur kjördæmaskipunarkerfi. „Það
væri einnig æskilegt að breyta þessu án
þess að til kæmi fjölgun þingmanna a
Alþingi", sagði Markús Sveinsson.