Morgunblaðið - 22.09.1979, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
39
Umsjón: Anders Hansen.
Heimdallur er fyrst og
fremst pólitískt félag
en einnig á að leggja áherslu á aðra þætti starfsins
Flokksstarfsemi
Sjálfstæðisflokksins er
nú að fara í gang á
nýjan leik með haust-
inu, eftir að hafa legið
meira og minna niðri
yfir sumarmánuðina
eins og oftast áður.
Meðal þeirra sem nú
eru að skipuleggja
vetrarstarfið eru
Heimdallarfélagar í
Reykjavík, og því
sneri Umhorfssíðan
sér til formanns fé-
lagsins, Péturs Rafns-
sonar og spurðist fyrir
um hvernig starfinu
yrði háttað í vetur.
Vetrarstarfið
nú skipulagt
fyrr en áður
„Stjórn Heimdallar hefur
raunverulega verið að vinna
að undirbúningi vetrarstarfs-
ins allt frá því í júlímánuði"
sagði Pétur, „en eitt af því
sem mælir með því að aðal-
fundur samtaka eins og
Heimdallar sé haldinn að
vori til, er einmitt það að þá
gefst þess kostur að skipu-
leggja vetrarstarfið með
meiri fyrirvara en ella.
— Aðalfundirnir hafa
hingað til oftast verið haldn-
ir á haustin, og má því segja
að nú sé verið að kanna það,
hvor tilhögunin gefist betur.
Vissulega gæti það gerst að
erfitt yrði að fá fólk til starfa
við undirbúningsvinnu á
sumrin, og þá er ef til vill
ekkert sem mælir með því að
aðalfundurinn fari fram að
vori frekar en að hausti. Mér
virðist þó enn sem komið er
að ekki sé ástæða til að ætla
annað en þetta nýja fyrir-
komulag gefist vel.
Nú í sumar hafa til dæmis
hópar félagsmanna unnið
markvisst að því að bæta og
styrkja fjárhag Heimdallar,
svo að þannig verðum við sem
best undir öflugt vetrarstarf
búin. Þó sumum kunni að
virðast fjáröflunarstarf
óskemmtilegt félagsmála-
starf er það nú einu sinni svo
að án þess verður harla lítið
gert á öðrum sviðum. En auk
þess sem við reynum þannig
að treysta hinar fjárhagslegu
stoðir, þá höfum við hafið
undirbúning vetrarstarfsins
á fjölmörgum sviðum öðrum,
og hefur stjórn félagsins
verið skipt niður í nokkur
svið eða nokkra hópa með það
fyrir augum að sem mest
starf fáist út úr hverjum og
einum einstaklingi. Helstu
nefndir sem þegar hafa hafið
störf eru þessar: Stjórnmála-
nefnd, áróðursnefnd, rit-
nefnd, félaganefnd, skóla-
nefnd og fjáröflunarnefnd
sem fyrr er á minnst.
Einstakir stjórnarmenn
skipta með sér störfum í
þessum nefndum, og starfa
þannig sem driffjaðrir í við-
komandi nefndum og sem
tengiliðir milli stjórnarinnar
og nefndanna. Stjórn Heim-
dallar vill kappkosta að hafa
sem best samstarf við allar
nefndirnar, auk þess sem vilji
er fyrir hendi til að aðstoða
hverja og eina þeirra eftir því
sem ástæða er til hverju
sinni.
Ríkt verður gengið eftir því
af hálfu stjórnar Heimdallar
að allar þessar nefndir starfi,
enda er það að okkar áliti
staðreynd að nefndarstörf af
þessu tagi eigi að vera grund-
völlur alls hins pólitíska
starfs sem unnið verður. Þeir
sem stjórna viðkomandi
nefndum eiga því að vera
ábyrgir fyrir því að nefndirn-
ar skili einhverju starfi, og
ekki verður hikað við að leysa
nefndarformenn frá störfum
ef ekki verður hjá því kom-
ist!“
Fleiri
hverfafélög?
— En ef við víkjum þá að
einstökum nefndum, hver eru
að þínum dómi brýnustu
verkefnin sem bíða þeirra?
„Ég held, að auk fjáröflun-
arinnar verðum við að leggja
mikla áherslu á að fjölga
Heimdallarfélögum nú í byrj-
un vetrar, auk þess sem önn-
ur störf verða undirbúin.
Það er ekkert launungar-
mál, að Heimdallur er póli-
tískt félag, með það að aðal-
stefnumáli að vinna sjálf-
stæðisstefnunni aukið fylgi
meðal þjóðarinnar. Á það
verður auðvitað lögð höfuð-
áhersla þegar ungt fólk er
hvatt til að ganga til liðs við
félagið. — Það þarf svo alls
ekki að þýða það að ekki megi
fjalla um annað en harðsoðna
pólitík innan Heimdallar,
þvert á móti, þar á að vera
rúm fyrir öll þau áhugamál
sem ungt fólk kann að hafa á
hverjum tíma; skiptir þar
ekki máli hvort fólk vill
hlusta á tónlist með John
Travolta eða kynna sér kenn-
ingar Miltons Ériedman. Það
segir Pétur
Rafnsson
formaður
Heimdallar
ætti ekki að þurfa að rekast
hvað á annað.
Við viljum þannig reyna að
ná til ungs fólks á sem allra
fjölbreytilegastan hátt, og
við viljum teggja áherslu á,
að það þarf að vera gaman að
starfa í Heimdalli, um leið og
þar er unnið að stjórnmála-
starfi fyrst og fremst. Meðal
þess sem við viljum gera er
að koma á starfi meðal fólks í
skólum, að vinna að auknum
tengslum við fólk í launþega-
hreyfingunni, og hugsanlega
getur verið æskilegt eða jafn-
vel nauðsynlegt að koma á fót
fleiri hverfafélögum ungra
sjálfstæðismanna víðs vegar
um borgina til að efla tengsl-
in við fólk í öllum borgar-
hverfum. En slík hverfafélög
hafa starfað um skeið í sum-
um hverfum og gefist þar vel.
Fleira mætti nefna af störf-
um Félaganefndar, en þetta
verður látið duga að sinni.“
Starf í fram-
haldsskólunum
„Þá er einnig heilmikið að
gerast í skólanefndinni, og
margt af því fer að sjálfsögðu
saman við störf félaganefnd-
ar og ritnefndar, auk þess
sem allar þessar nefndir eru
meira og minna tengdar inn-
byrðis eðli málsins sam-
kvæmt.
Sjálfstæðisfólk og annað
frjálslynt fólk í framhalds-
skólunum hefur talsvert
samband sín á milli, þar sem
fara fram ræðunámskeið,
störf í ritnefndum og fleira.
Innan framhaldsskólanna
fær ungt fólk oft þá þjálfun
sem verður því að ómetan-
legu gagni í öllu öðru félags-
starfi síðar, ekki hvað síst í
stjórnmálalegu starfi. Því
ber að leggja mikla áherslu á
að efla starfið í skólunum, og
það fólk er sérstaklega vel-
komið í raðir Heimdallarfé-
laga í vetur.
Ritnefnd
Undir störf ritnefndar eiga
að falla öll útgáfumál sem
félagið stendur fyrir. Von-
andi fáum við inni með síðu í
dagblaði í vetur, og fleira er
einnig á döfinni.
Gjallarhorni erum við til
dæmis staðráðin í að koma
út, og verður ef til vill um
nokkra breytingu að ræða á
því hvernig útkoma þess
verður grundvölluð. Viljum
við að útgáfan verði látin
standa undir sér. — Alla
vega er það okkar stefna að
ekki verði gefið út blað Heim-
dallar sem verði eins mikill
fjárhagslegur baggi og því
miður hefur oft verið.
Fundir
Þá ætlum við að halda
margvíslega fundi í vetur
eins og jafnan hefur tíðkast
hjá Heimdalli, bæði smáa og
stóra. Ég vil leggja mikla
Valhöll víð Háaleitisbraut. Þar hefur Heimdallur aðstöðu.
áherslu á að fulltrúaráðs-
fundir Heimdallar verði
haldnir oftar en áður hefur
tíðkast, allt upp í einu sinni í
mánuði. Þá verða haldnir
sameiginlegir stjórnarfundir
Heimdallar og hverfafélag-
anna, stjórn Heimdallar hef-
ur áhuga á að hafa meira
samstarf við félögin úti á
landi, haldnir verða fundir
með nefndunum, þar sem
þær gefa skýrslu um störf sín
og fleira og fleira.
Þá munum við einnig halda
opna fundi þar sem ræðu-
menn munu koma og ræða
ákveðin mál sem efst verða á
baugi hverju sinni. Enn má
nefna að við viljum leggja
enn meiri áherslu á kapp-
ræðufundi við önnur félög en
gert hefur verið, enda er það
skemmtilegt fundarform sem
er heldur til að draga fólk að
hinu pólitíska starfi en hitt.“
Félags-
heimili
Heimdallar
— Hvar verður starfsemi
Heimdallar til húsa í vetur, á
félagið sitt eigið félagsheim-
ili?
„Áður fyrr átti Heimdallur
félagsheimili í gömlu Valhöll,
við Suðurgötu, en það var selt
eins og aðrir hlutar þess húss
eins og kunnugt er. Fyrir
hendi er miðstjórnarsam-
þykkt fyrir því að Heimdall-
ur fái að hafa sitt aðsetur í
kjallara nýju Valhallar, en
nú er hins vegar um það rætt
að kjallarinn verði aðsetur
allra þeirra flokkssamtaka
sem aðsetur hafa í húsinu.
Verði það, er augljóst, að
kjallarinn mun ekki verða
eiginlegt félagsheimili Heim-
dallar eins og vænst hafði
verið.
Því er það að sú hugmynd
hefur skotið upp kollinum,
hvort ekki megi fá aðstöðu
fyrir Heimdall á þriðju hæð
hússins, sem nú er lítið notuð
og á að leigjast út. Þar væri
hægt að koma upp aðstöðu
fyrir félagið og búa þannig
um hnútana að ungt fólk
kæmi í Valhöll í frístundum
sínum og fyndi sér þar eitt-
hvað að gera í vistlegum
húsakynnum. — Nú þetta er
hins vegar allt í athugun
núna, en ég vænti þess þó alla
vega að við fáum inni á
þriðju hæðinni fyrir sann-
gjarna leigu, ef á annað borð
verður farið út í að leigja
hana út!“
Virkur
þátttakandi
í þjóðmála-
umræðunni
— En hvernig mun Heim-
dallur beita sér í þjóðmála-
baráttunni, í hinni pólitísku
stefnumörkun og stjórnmála-
starfi frá degi til dags í
vetur?
„Heimdallur á að mínu viti
að vera virkur þátttakandi í
þjóðmálaumræðunni á hverj-
um tíma. Það á að gera með
því að álykta um ýmis mál,
halda fundi um einstök mál,
gefa út blöð og bæklinga með
stefnu félagsins og með því
að mæta skoðanaandstæðing-
um í rökræðum hvenær sem
tækifæri gefst til.
Þá finnst mér að náið
samstarf eigi að vera við
þingflokk sjálfstæðismanna,
þar sem báðir aðilar veiti
hinum gagnrýni og stuðning,
og eins á Heimdallur að hafa
sem best og mest samskipti
við öll önnur félög og samtök
innan Sjálfstæðisflokksins.
Þannig verður best unnið að
þeim hugsjónum sem við og
aðrir sjálfstæðismenn berj-
umst fyrir.“
- AH.