Morgunblaðið - 22.09.1979, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
Barcelona mætir ÍA á miðvikudag:
Einn merkasti iþrotta
viðburður héríendis
Bikarmeistarar íslands
í knattspyrnu, Skaga-
menn, mæta bikarmeistur-
um Spánar og Evrópu,
Barcelona, í fyrri leik sín-
um í Evrópukeppni bikar-
hafa á miðvikudaginn og
hefst leikurinn klukkan
17.30. Barcelona sigraði í
þessari keppni á síðasta
keppnistímabili, vann
Fortuna Dússeldorf 4—2 í
æsispennandi úrslitaleik.
Þar þurfti framlengingu
áður en úrslit fengust.
Koma þessa fræga félags
hingað til lands hlýtur að
teljast hinn merkasti við-
burður í ísienskri knatt-
spyrnu. Jafnvel þó að veð-
ur verði ekki upp á það
besta, má ætla að margan
fýsi að sjá hina mörgu
snillinga Barcelona, þann-
ig að búast má með miklu
fjölmenni á völlinn.
Barcelona kemur hingað til
lands með einhverja skæðustu
framlínu sem fyrir finnst. Þar eru
valdar stórstjörnur í öllum sæt-
um, danski snillingurinn Alan
Simonsen, austurríski marka-
skorarinn mikli Hans Krankl og
argentínumaðurinn Juan Carlos
Heredia, sem kemst í liðið vegna
spænsks ríkisborgararéttar. Það
er ekki heiglum hent að komast í
framlínu þessa. Á bekknum sitja
kappar eins og Rexach, marg-
reyndur landsliðsmaður og
markaskorari mikill.
Alan Simonsen er ugglaust
þekktasti leikmaður liðsins, en
hann var valinn knattspyrnumað-
ur Evrópu árið 1977. íslenskir
áhorfendur hafa fengið að sjá
Simonsen í leik hér á landi. Hann
lék sinn fyrsta landsleik fyrir
Danmörku á Laugardalsvellinum
árið 1972 og lagði þa grunninn að
5—2 sigri Dana, með því að skora
tvívegis, auk þess sem hann lét sig
ekki muna um að tæta vörn
íslenska liðsins í sundur hvað eftir
annað. Hér á landi lék hann einnig
með fyrsta félagi sínu sem at-
vinnumaður, Borussia Mönchen-
gladbach, sem mætti ÍBV í
UEFA-bikarkeppninni. BMG vann
yfirburðarsigur á Eyjamönnum og
Simonsen skoraði enn tvö mörk.
Þetta var á þeim árum er Simon-
• Juan Carlos Heredia, einn af
helstu markaskorurum Barcel-
ona.
sen var að koma undir sig fótun-
um sem knattspyrnumaður. Nú á
dögum er hann mörgum sinnum
öflugri knattspyrnumaður, þannig
að varnarmanna ÍA bíður ærinn
starfi.
Hansi Krankl, austurríkismað-
urinn sterki, gengur sennilega
næst Alan Simonsen að frægð.
Hann hefur verið meðal mark-
hæstu leikmanna Evrópu mörg
síðustu árin, þó að segja megi að
hann hafi fyrst brotist fram á
sjónarsviðið með frábærri
frammistöðu með austurríska
landsliðinu á HM-keppninni í
Argentínu á síðasta sumri. Vel-
gengni hans þar náði hápunkti
þegar hann skoraði tvívegis er
Austurríki lagði erkióvininn,
Vestur-Þýskaland, að velli, 3—2.
Strax eftir HM var Barcelona á
höttunum eftir kappanum og
þangað fór hann loks, enda engin
smálaun sem í boði eru á því
heimili. Áhangendur Barcelona
voru mjög ánægðir með hinn nýja
mann, 8000 þeirra komu á fyrstu
æfinguna, bara til að sjá kappann.
Krankl lék áður með Rapid
Vienna í heimalandi sínu og skor-
aði ávallt mikið. Keppnistímabilið
1974—75 vann hann t.d. silfurskó
ADIDAS þeg ar hann skoraði 36
mörk. Hann var síðan iðinn við
kolann, en tók aðra rosalega
markarispu keppnistímabilið
1977—78, en þá hirti hann sjálfan
gullskóinn fyrir að skora 41 mark
í 36 leikjum í austurrísku deildar-
keppninni. Krankl var þá mark-
hæsti leikmaður Evrópu. Krankl
var einnig langmarkhæsti leik-
maður Barcelona á síðasta vetri,
en hefur farið rólega í gang í
haust. Vafalítið „finnur hann sig“
þó áður en varir og ef Skagamenn
verða óheppnir, verður það í leikn-
um gegn þeim á Laugardalsvellin-
um.
Manuel Asensi er fyrirliði
Barcelona og spænska landsliðs-
ins. Hann er með snjallari mið-
vallarleikmönnum veraldar og vel
efnaður eftir því. Asensi er for-
maður samtaka atvinnuknatt-
spyrnumanna á Spáni og í verk-
fallinu fræga síðastliðinn vetur,
fékk hann komið á slíkum kaup-
hækkunum, að talið er að sjálfur
fái hann hærri tekjur heldur en
sjálfur kóngurinn á Spáni. Líður
Ásensi og fjölskylda hans því ekki
skort ef að líkum lætur.
Auk Juan Carlos Heredia, eru
þessir menn sennilega þekktustu
leikmenn spænska liðsins. Þar er
þó valinn maður í hverju rúmi
eins og að líkum lætur. Má nefna
spænsku landsliðsmennina Rex-
ach, Sanchez, De La Cruz, Miguelli
og Francisko Martinez.
Spánverjar líta ekki á leik
þennan sem ómerkilegt fyrirbæri,
knattspyrnan skipar of háan sess í
lífi þeirra. Til marks um það má
minna á það sem þegar hefur
komið fram í Mbl. að um 400
manns koma hingað frá Spáni í
tveimur vélum, gagngert til að
horfa á leikinn og er það mikið á
sig lagt til að fylgjast með liði
sínu. I þessum hópi verða um 40
íþróttafréttamenn frá Spáni.
Hans Krankl með gullskó ADIDAS, sem hann laut 1977—78.
Gengið á ýmsu í
Evrópuleikjum ÍA
Skagamenn hafa leikið 14 leiki í Evrópukeppnunum til
þessa, leikur liðsins gcgn Barcelona á miðvikudaginn
verður leikur númer fimmtán. Árangur liðsins hefur
verið upp og ogan eins og gengur og gerist, en á
stundum afar góður miðað við að hér er á ferðinni
áhugamannalið frá íslandi.
T.d. gerði liðið jafntefli við
vestur þýska meistaraliðið IFC
Köln á Laugardalsvellinum í
fyrra, 1—1. Utileikurinn tapaðist
að vísu 1—4, en Skagamenn vöktu
óskipta athygli fyrir þá góðu
knattspyrnu sem liðið sýndi.
Árið 1975 léku Skagamenn gegn
Omonia Nikósía frá Kýpur í
Evrópukeppni meistaraliða. Úti
töpuðu Skagamenn 1—2, en
heimaleikur IA á Laugardalsvell-
inum er mörgum enn í fersku
minni. Það er einn skemmtilegasti
Evrópuleikur sem hér hefur farið
fram og þar vann íslenskt lið
stærsta sigur í Evrópukeppni sem
um getur, 4—0. Matthías Hall-
grímsson skoraði tvö mörk og þeir
Teitur Þórðarson og Karl Þórðar-
son eitt hvor, en lið ÍA náði
algerum toppleik og lék Kýpurbú-
ana upp úr skónum. Annars eru
leikir IA í Evrópukeppnunum í
gegn um árin þessir.
1970 UEFA—keppnin
ÍA—Sparta (Holl) 0—6
1970 UEFA—keppnin
ÍA—Sparta (Holl) 0—9
1971 Evrópukeppni meistaraliða
ÍA—Sliema (Möltu) 0—4
1971 Evrópukeppni meistaraliða
ÍA—Sliema (Möltu) 0—0
1975 Evrópukeppni meistaraliða
ÍA—Omonia (Kýpur) 1—2
1975 Evrópukeppni meistaraliða
IA—Omonia (Kýpur) 4—0
1975 Evrópukeppni meistaraliða
ÍA—Kinamo Kiev 0—3
1975 Evrópukeppni meistaraliða
ÍA—Dinamo Kiev 0—2
1976 Evrópukeppni meistaraliða
ÍA—Trabzonspor 1—3
1976 Evrópukeppni meistaraliða
ÍA—Trabzonspor 2—3
1977 Evrópukeppni meistaraliða
ÍA—Brann 0—1
1977 Evrópukeppni meistaraliða
ÍA—Brann 0—4
1978 Evrópukeppni meistaraliða
ÍA-Köln 1-4
1978 Evrópukeppni meistaraliða
ÍA—Köln 1—1
' y//y/y ’tm >•
• Alan Si monsen~-(lengs t tií vinstri) hieypur fagnandi frá isienska íandsliðsmarkinu, eftir að hafa skorað í sínum fyrsta landsleik fyrir
Danmörku árið 1972. Danir unnu 5—2 og skoraði hinn knái en smái Simonsen tvivegis.
Forsala
FORSALA aðgöngumiða á
leik ÍA og spænsku snilling-
anna frá Barcelona fer fram á
sunnudaginn á Laugardals-
vellinum á leik ÍA og Vals. Á
mánudag og þriðjudag heldur
forsalan sfðan áfram i and-
dyri veitingahússins Sigtúns
frá klukkan 14.00—19.00.
Sjálfan leikdaginn, miðviku-
daginn, verða miðar seldir i
tjaldinu góða við Útvegsbank-
ann og siðan að sjálfsögðu á
sjálfum vellinum.
'7