Morgunblaðið - 22.09.1979, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979
47
r
Framgángama fortsatter
för höststarka Grimsás:
Frán nedflvttningsplats
till kamp om bronset???
Eirikur grejade
ny Grimsásseger
ockU brwgra GAIS pi lon-
verklig tiUgáng förGrimsás
Eiríkur er lykil-
maður hiá Grimsás
STÖÐUGT berast fréttir af
islenzkum knattspyrnu-
mönnum, sem gera garðinn
frægan erlendis. Oftast er Þá
verið að greina frá góðri
frammistöðu þeirra Teits í
Svíþjóð, Ásgeirs í Belgiu eða
Péturs i Hollandi. En það eru
fleiri, sem standa sig vel og
vekja athygli. Einn í þessum
hópi er Eirikur Þorsteinsson,
Vikingurinn, sem fyrir tveimur
árum hélt til Grims&s i Svíþjóð.
Þá lék liðið i þriðju deild, en
fluttist upp í 2. deild síðastliðið
haust. Eiríkur þótti standa sig
vel með liðinu i fyrra, en
frammistaða hans hefur verið
enn betri í ár. Þessi duglegi
leikmaður, sem m.a. lék bak-
vörð í landsliði íslands er
fræikilegt jafntefli náðist í
Magdeburg fyrir nokkrum ár-
um, hefur hvað eftir annað
verið fyrirsagnaefni á íþrótta-
siðum sænskra blaða upp á
siðkastið.
Grimsás byrjaði afleitlega
síðastliðið vor, en snar þáttur í
aukinni velgengni liðsins var
fólginn í því að setja aukið
traust á Eirík fjölhæfni hans
hefur verið mikill styrkur fyrir
liðið. Þannig hefur Eiríkur leikið
fleiri en eina stöðu á vellinum,
þó svo að yfirleitt sé hann
tengiliður. í miðframherjastöð-
unni hefur Eiríkur leikið nokkra
leiki með góðum árangri og
skoraði t.d. 2 mörk í sínum
fyrsta leik í þeirri stöðu. Ekki
sízt upp á síðkastið hefur Eirík-
ur verið atkvæðamikill og skorað
mikið af mörkum á mikilvægum
augnablikum fyrir lið sitt. Eftir
dapra byrjun leit út fyrir að
Grimsás félli á ný niður í þriðju
deild, en síðan kom mikill fjör-
kippur í leikmenn liðsins og þeir
fóru að skora mörk, sem ekki
hafði gengið vel áður þrátt fyrir
mörg færi. Á þeim tíma átti liðið
möguleika á þriðja sæti í deild-
inni, en eins og staðan er núna er
útlit fyrir að liðið endi um
miðbik deildarinnar. í vikunni
lék Grimsás gegn Örgryte, sem
sýnt hefur íslendingunum Sig-
urði Björgvinssyni, Guðmundi
Steinssyni, Erni Óskarssyni og
e.t.v. fleiri mikinn áhuga.
Grimsás tapaði þeim leik 2:1 og
var það fyrsta tap liðsins eftir
sumarleyfi leikmanna.
En fyrst farið er að tala um
íslenzka leikmenn í Svíþjóð er
ekki úr vegi að minnast á
Jönköping, sem leikur í sama
riðli í 2. deildinni. Þar leika þeir
félagar Árni Stefánsson og Jón
Pétursson og hefur Jönköping
átt misjöfnu gengi að fagna.
Liðið er þó með einu stigi meira
en Eiríkur og félagar, 21.
Draumur forráðamanna félags-
ins um flutning upp í 1. deild
verður þó greinilega ekki að
veruleika í ár. Fimm efstu liðin í
riðlinum eru með frá 31 stigi
niður í 24, en síðan koma 5 lið
með 21 og 20 stig, Grimsás hefur
20 stig. Fjögur lið berjast síðan
um fallið.
Samkvæmt fréttum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér,
mun Eiríkur Þorsteinsson ætla
að vera í Svíþjóð í að minnsta
kosti eitt ár enn og sömuleiðis
Árni Stefánsson hjá Jönköping.
Hins vegar hefur frétzt að Jón
Pétursson ætli að koma heim í
haust. Ekkert hefur frétzt af
þeim Karli Sveinssyni og Jó-
hanni Torfasyni, sem einnig
leika í Svíþjóð, en Stefáni
Halldórssyni, sem leikur í þriðju
deildinni þar, hefur gengið vel í
sumar.
Það er stutt frá Svíþjóð yfir til
Noregs og þar leika tveir Islend-
ingar með liðum í þriðju deild.
Helgi Benediktsson og félagar
hans í Lillehamn.jr eru í 2. sæti
í sínum riðli, en eiga varla
lengur möguleika á sigri í riðlin-
um. Jón Gíslason leikur með
Bærum, liði rétt utan við Ósló.
Eftir fyrri umferð hafði liðið
aðeins hlotið 4 stig, en eftir
sumarleyfi hefur ekkert lið í
deildinni fengið eins mörg stig
og er Bærum nú með 18 stig, en á
ekki möguleika á sigri í riðlin-
um.
Fyrst farið er að tala um
Noreg, þá hafa víkingarnir hans
Tony Knapp tveggja stiga for-
ystu í 1. deildinni, eru með 27
stig eftir 18 leiki, en í 2. sæti eru
Start og Moss með 25 stig eftir
19 leiki. Knapp á því einn leik til
góða og er sá gegn Lilleström á
heimavelli Víkinganna í Stav-
anger. Brann er fallið niður í 2.
deild og líklegast fara með
Bergenliðinu HamKam og
Mjöndalen eða Skeid, en hjá
síðastnefnda liðinu er þjálfari
Gmoch, fyrrum landsliðsþjálfari
í Póllandi.
-áij
Jón Alfreðsson leikur sinn
fimmtánda Evrópuleik
JÓN Alfreðsson, hinn trausti miðvallarleikmaður ÍA,
mun að öllum likindum leika sinn fimmtánda Evrópu-
leik með ÍA. Hér stendur að öllum líkindum vegna þess
að Jón á eftir að leika erfiðan leik gegn Val á
sunnudaginn, en komi hann heill heilsu úr þeirri
rimmu, mun hann örugglega leika gegn Barcelona.
Leiki Jón, hefur hann þá þarna skammt á eftir, hef-
leikið alla Evrópuleiki ÍA
frá upphafi og fleiri
Evrópuleiki heldur en-
nokkur annar íslendingur.
ur leikið þrettán leiki og
leikur sinn fjórtánda,
-Jóhannes Guðjónsson hef-
Jón Gunnlaugsson kemur ur leikið 12 Evrópuleiki.
Hilpert áfram á Skaganum
NOKKUÐ öruggt virðist. að Klaus Jurgcn Ililpert verði áfram
þjálfari Akraness í 1. deildinni í knattspyrnu. Að sögn forráða
manna IA vill Hilpcrt endilega koma aftur og Skagamenn eru aö
sama skapi ólmir að fá hann aftur.
Ekki er nokkur vafi á því að Skagamenn hafa verið afar heppnir með.
þjálfara, til að mynda leggja þeir fæstir á sig að læra íslensku eins og
Hilpert hefur gert, en hann mun geta bjargað sér á íslensku og vel það
meira að segja. Þá mun það mál manna á Akyanesi að hann hafi náð
meiru út úr liði ÍA heldur en vonir stóðu til, eftir þá blóðtöku sem varð
við brottför Péturs Péturssonar og Karls Þórðarsonar, þeirra tveggja
kappa sem voru hálft liðið.
Hættir Jón hjá ÍA?
JÓN Þorbjörnsson mun að öllum likindum ekki leika með ÍA næsta
keppnistimabil. Jón. sem er markvörður og lék áður með Þrótti,
missti stöðu sína i liði ÍA i vor, náði henni aftur þegar Bjarni
markvörður Sigurðsson slasaðist. og stóð sig þá geysilega vel út
mótið.
Jón er mjög frambærilegur markvörður og það félag sem fær
hann í sínar raðir hreppir góðan mann.
Reykjavíkurmótið i hand-
bolta hefst á sunnudaginn
Reykjavíkurmótið í handknattleik hefst um helgina með leikjum í
meistaraflokki á sunnudaginn. Hefst fyrsti leikurinn í Laugardals-
höll klukkan 14.00.
í meistaraflokki taka þátt 8 lið og er þeim skipt í tvo riðla. í A-riðli
leika Valur, ÍR, Ármann og Þróttur, en í B-riðli leika Víkingur, Fram,
KR og Fyjkir. Tvö efstu liðin í hvorum riðli mætast síðan í 4-liða
úrslitakeppni. Keppni í meistaraflokki kvenna hefst 25. september, en
keppni í yngri flokkunum hefst 29. september.
Leikir helgarinnar eru eftirfarandi:
Sunnudagur:
Valur—ÍR meistarafl. karla kl. 14.00
Vík,—Fram meistarafl. karla kl. 15.15
Ármann—Þróttur meistarafl. karla kl. 16.30
KR—Fylkir meistarafl. karla kl. 17.45
ESSO-bikarslagur
í Hafnarfirði
Handknattleiksvertíðin er á næstu grösum. en hún hefst formlega
í Ilafnarfirði á sunnudaginn. þegar FII og Haukar keppa um
ESSO-bikarinn. sem árlega er glímt um. Hinn eftirsótta Tobbu-|
sjoppu-bikar, eins og brandarakarlar kalla gripinn.
„Glímt um hann“ er víst stundum réttnefni. í fyrra sigruðu
FH-ingar og tóku menn þá hver annan glímutökum þegar upp úr sauð.
Það er víst ekki ávallt hlýtt milli FH og Hauka, þannig að þyrsti menn
í slagsmál, er ekki útilokað að eitthvað verði fyrir þá gert í Hafnarfirði
á sunnudaginn.
Bikarkeppni í tugþraut
BIKARKEPPNI Frjálsíþróttasambands íslands 1 fjölþrautum verð-
ur háð nú um helgina og heíst keppni kl. I3i ðag á Laugardalsvelli.
Meðal keppenda verða fremstu frjálsiþróttamenn landsins. Þá
verður og keppt í einni aukagrein, 10 km hlaupi. sem fram fer á
sunnudag. '
Sigursælar Valsstúlkur
Valsstúlkur gerðu góða ferð til Skotlands eigi alls fyrir iöngu, þar
sem þær léku knattspyrnu gegn þremur af betri kvennaliðum Skota.
Kom þar í ljós. að islenskar dömur kunna ýmislegt fyrir sér í
boltasparki.
Sigruðu Valsstúlkurnar Clydebank og Motherwell 2—1 og 3—2, en
töpuðu síðasta leik sínum hins vegar 0—5, en það var þeirra þriðji
leikur á þrem dögum og stúlkurnar orðnar útkeyrðar af þreytu.
Erna Lúðvíksdóttir, sem einnig er ein af fremstu handboltakonum
Vals var markhæst í ferðinni með tvö mörk. Cora Barker og fleiri
skoruðu hin mörkin br.iú.
Knattspyrnu
þjálfarar
Knattspyrnudeild K.R. óskar eftir aö ráöa þjálfara
fyrir yngri flokka félagsins. Ráöningartími er til eins
árs í senn, frá okt. 1979. Fyrsta flokks þjálfunarað-
staöa. Umsóknum sé skilaö til Mbl. fyrir 28. sept.
merkt
„K.R. Knattspyrnuþjálfun: 673“.
Kam^mmammmimmmmmm^^^m^^^^