Morgunblaðið - 29.03.1980, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1980
145 milljónir króna
til dönskukennslu i
útvarpi og sjónvarpi
Á aðalfundi Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, sem haldinn var siðastliðið fimmtudagskvöld, var lýst
stjórnarkjöri. Magnús L. Sveinsson, nýkjörinn formaður félagsins. tók við formennsku af Guðmundi H.
Garðarssyni, sem gegnt hefur formannsstörfum i félaginu i 23 ár. Á myndinni er Magnús L. Sveinsson að
sæma Guðmund H. Garðarsson gullmerki félagsins. Guðmundi var á fundinum þökkuð traust og heillarík
forysta i máiefnum verzlunar- og skrifstofufólks.
Sigurður Helgason:
Þarf að ná betri nýt-
ingu út úr flugliðinu
Nýtingin batnar þegar við förum að fljúga
fyrir Air Bahama, segir Baldur Oddsson
— EITT af þeim atriðum,
sem við verðum að koma
til leiðar er að ná betri
nýtingu út úr flugliðinu,
sagði Sigurður Helgason
Aðalfundur
Iðnaðarbankans
IÐNAÐARBANKINN heldur að-
alfund sinn kl. 2 í dag i Súlnasai
Hótels Sögu.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verður fjallað um breyt-
ingar á samþykktum bankans og
tekin ákvörðun um útgáfu jöfnun-
arhlutabréfa.
forstjóri Flugleiða í sam-
tali við sjónvarpið í gær-
kvöldi.
Sigurður sagði ennfremur: —
Sannleikurinn er sá, að við
náum ekki nýtíngu nema sem
svarar % á við samkeppnisflug-
félögin á Atlantshafsleiðinni.
Það skiptir meginmáli, að þessi
starfsemi haldi áfram, en eng-
inn á meiri hagsmuna að gæta
en starfsfólkið. Við verðum því
að ná um sömu nýtingu og aðrir,
það er gífurlegt kostnaðaratriði
fyrir okkur.
Þegar Sigurður var að því
spurður, hvers vegna Flugleiðir
næðu ekki svipaðri nýtingu út
úr sínu starfsliði og önnur
flugfélög svaraði hann því til, að
samningar, sem í gildi væru
milli félagsins og flugliða, væru
á þann veg að í þeim væru hvers
konar fyrirbyggjandi atriði, sem
leiddu af sér lakari nýtingu en
hjá keppinautum Flugleiða.
— Nýtingin verður betri þeg-
ar við förum að fljúga á leiðum
Air Bahama, sagði Baldur Odds-
son formaður Félags Loftleiða-
flugmanna, þegar Mbl. bar und-
ir hann ummæli Sigurðar
Helgasonar.
— Við höfum fyrir löngu bent
á það, sagði Baldur, að ef við
yrðum jafnframt látnir fljúga á
flugleiðum Air Bahama mynd-
um við auðveldlega ná hámarks-
flugtíma á mánuði. í dag seljum
við Flugleiðum 80 tíma á mán-
uði en vegna þess hve flug-
leiðirnar eru stuttar er mjög
erfitt að fylla upp í þann tíma.
Þetta myndi br.eytast ef við
færum á Air Bahama-flugleið-
irnar en einhverra hluta vegna
hafa stjórnendur Flugleiða hf.
alltaf hafnað þessum hugmynd-
um okkar, sagði Baldur.
Atlantshafsflugið:
STJÓRN Flugleiða ákvað í gær
að í sumar verði þrjár DC-8-63
þotur í flugi á Norður-
Atlantshafsleiðinni. Þriðja vél-
in mun koma inn í áætlun í
síðari hluta maimánaðar.
Með þessari viðbót fjölgar
áætlunarferðum yfir Atlants-
haf um fjórar og verða í sumar
16, þ.e. 12 milli Luxemburgar og
Bandaríkjanna og 4 milli Lux-
emburgar og Bahama. Heildar-
DANIR og íslendingar munu sam-
eiginlega vinna að gerð útvarps-
þátta fyrir dönskukennslu og
verða þættirnir væntanlega fluttir
i isienska rikisútvarpinu og i
sjónvarpinu á þessu ári.
Að sögn Harðar Lárussonar hafa
dönsk yfirvöld ákveðið að verja 1.8
milljónum danskra króna eða 125
milljónum íslenskra króna til
dönskukennslunnar, og í fjárlaga-
frumvarpi því sem nú liggur fyrir
Alþingi er gert ráð fyrir að Islend-
ingar leggi 20 milljónir króna fram,
en að gerð þáttanna munu standa
fyrir íslands hönd
Sáttafundur
á þriðjudag
SÁTTAFUNDUR hefur verið
boðaður næstkomandi þriðjudag
í kjaradeilu Sjómannafélags
ísfirðinga og Útvegsmannafélags
Vestfjarða, en verkfall á fjórum
skuttogurum tsfirðinga hófst 20.
marz og á morgun, 30. marz hefst
verkfall 30 sjómanna á línubát-
um, sem gerðir eru út frá ísa-
firði.
Það er Guðmundur Vignir Jós-
epsson, varasáttasemjari ríkisins,
sem boðar til sáttafundarins á
ísafirði, sem ætlað er að hefjist
klukkan 13 á þriðjudag. Enn hefur
aðeins einn ísfirzku skuttogar-
anna stöðvazt, Guðbjartur, en
hinir þrír munu langt komnir með
að fá fullfermi. Guðbjartur er að
landa 160 tonnum af fiski. Hinir
togararnir eru: Guðbjörg, Júlíus
Geirmundsson og Páll Pálsson.
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ Snót
hefur í ályktun gagnrýnt Verka-
mannasamband tslands fyrir slæ-
leg vinnubrögð og linkind i bárátt-
unni fyrir bættum kjörum verka-
fólks. Morgunblaðið hafði í gær
samband við formann félagsins,
Jóhönnu Friðriksdóttur og bað
hana um að skýra nánar frá þeim
aðfinnslum, sem félagið hefði fram
að færa.
Jóhanna sagði að félaginu fyndust
kröfur VMSÍ allt of lágar, þessi 5%
grunnkaupshækkun, sem farið væri
fram á, næði því ekki að endur-
heimta kaupmáttinn frá 1977. Þá
kvað hún félagsmenn í Snót vera
mjög óánægða með að saltfisk-
vinnsla skyldi fara í sama launa-
flokk eftir síðustu kjarasamninga
og almenn fiskvinna, en áður hefði
saltfiskur verið einum launaflokki
ofar sökum erfiðis vinnunnar. í
saltfiski kvað hún einnig ekki hægt
framboð sæta verður þriðjungi
minna en sumarið 1979.
Margt stuðlar að því að æski-
legt er að hafa þriðju flugvélina
í áætlun á þessum flugleiðum að
sögn Flugleiða. Auk meiri
ferðatíðni verður auðveldara að
forðast röskun á áætlunarflug-
inu.
Vegna breyttra viðhorfa mun
áður gerði áætlun um viðkomur
á Keflavíkurflugvelli endur-
skoðuð.
menntamálaráðuneytið og ríkisút-
varpið. Hörður kvað hins vegar
ekkert hafa verið ákveðið nánar um
hvernig aðgerð kennsluþáttanna
verður unnið, og yrði það ekki gert
fyrr en fjárlög hafa verið afgreidd,
en það verður að öllum líkindum
gert fyrir páska.
Ráðinn aðstoð-
armaður for-
sætisráðherra
FORSÆTISRÁÐHERRA, Gunnar
Thoroddsen, hefur ráðið sér sem
aðstoðarmann Jón Orm Halldórs-
son stjórnmálafræðing, Neshaga
15, Reykjavík.
Jón er fæddur 5. mars 1954 í
Reykjavík. Hann hefur starfað er-
lendis undanfarin ár, og síðustu
mánuði hjá Sjálfstæðisflokknum.
Jón er varaformaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna.
að koma við bónusvinnu. Þannig
væri margt smáræði, sem menn
væru óánægir með, en margt smátt
gerði eitt stórt.
Þá kvað Jóhanna meðal margra
kvenna mikla óánægju með brott-
hvarf 50% skattafrádráttar eig-
inkvenna. Hefðu komið upp hug-
myndir, að fólk í fiskvinnslu fengi
10% frádrátt í líkingu við frádrátt
sjómanna. Undir það hefði þó á
engan hátt verið tekið.
Nýttfíkni-
efnamál í
rannsókn
RANNSÓKN er hafin á
nýju fíkniefnamáli hjá
fíkniefnadeild lögregl-
unnar í Reykjavík.
Maður á þrítugsaldri var
handtekinn vegna þess
máls í vikunni og var hann
úrskurðaður i allt að 14
daga gæzluvarðhald vegna
rannsóknar málsins.
Miðnætursýn-
ing á Þorláki
TVÆR sýningar verða á leikritinu
Þorláki þreytta fyrir páska, sú
fyrri í kvöld klukkan 23.30 og sú
seinni á mánudagskvöld klukkan
20.30.
Leikfélag Kópavogs hefur sýnt
leikinn 15 sinnum í Kópavogsbíói og
vegna mikillar aðsóknar verða sýn-
ingar teknar upp aftur eftir páska.
___
Ofeigur Eiríksson
bæjarfógeti látinn
Hann fæddist 14. ágúst 1927 á
Breiðagerði í Lýtingsstaðahreppi,
sonur hjónanna Ruthar Ófeigsdótt-
ur og Eiríks Einarssonar. Árið 1937
fluttist fjölskyldan til Akureyrar
og hér tók Ófeigur mikkin þátt í
félags- og íþróttalífi. Hann varð
stúdent frá MA 1947 og lauk
lögfræðiprófi frá Háskóla Islands
1953. Sama ár varð hann fulltrúi
bæjarfógeta á Siglufirði og oft
settur bæjarfógeti þar. Hánn átti
sæti í bæjarstjórn og bæjarráði
Siglufjarðar nokkur ár. Haustið
1960 var hann skipaður bæjarfó-
geti í Neskaupstað og 1966
skipaður sýslumaður Eyjafjarðar-
sýslu og bæjarfógeti á Akureyri.
Eftir að Dalvík varð kaupstaður
var hann einnig bæjarfógeti þar.
Þessum embættum gegndi hann til
æviloka.
Hinn 10. júní 1950 kvæntist
Ófeigur Ernu Sigmundsdóttur frá
Siglufirði og lifir hún mann sinn
ásamt fjórum börnum þeirra
hjóna.
Sv.P.
Þr jár DC-8 þotur
notaðar í sumar
Akureyri, 28. mars.
ÓFEIGUR Eiríksson sýslumaður
og bæjarfógeti andaðist i gær í
Flórída i Bandarikjunum, þar sem
hann dvaldist sér til heiísubótar.
ófeigur var 52 ára gamall.
Formaður Snótar í Eyjum:
Krafan um grunnkaups-
hækkun er allt of lág