Morgunblaðið - 29.03.1980, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 29.03.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1980 47 • Þessir tveir kappar gætu reynst Vaismönnum eríiðir í Evrópu- meistaraleiknum i kvöld. Þetta eru þeir Kurt Kluhspies íyrirliði Grosswaldstadt og Manfred Hofmann markvörður. Báðir hafa þrívegis orðið Evrópumeistarar í handknattleik. Tekst þeim að vinna í f jórða sinn i dag? Skíðalandsmótið hefst á þriðjudag LANDSMÓT íslands á skíðum hefst á Akureyri á þriðjudaginn kemur. Mótið verður sett við Skíðastaði kl. 13.00 og keppni hefst síðan kl. 14.00 í fjórum greinum samtimis. Dagskrá Landsmótsins er að öðru leyti birt hér á síðunni. Að sögn ívars Sigmundssonar, forstöðumanns Skíðastaða, verða keppendur u.þ.b. 70 og er reiknað með öllum bestu skíðamönnum landsins til keppni. Undirbúning- ur allur hefir gengið svo sem best verður á kosið, enda Akureyringar vanir að halda stórmót á skíðum, og skemmst að minnast Vetrar- hátíðarinnar sem haldin var á dögunum fyrir norðan. Það er ósk allra að veðurguðirnir setji ekki strik í reikninginn á Landsmótinu svo sem var á Vetrarhátíðinni, sem þó tókst vonum framar miðað við aðstæður. Ivar Sigmundsson sagði nægan snjó vera í fjallinu, þó svo gjarnan mætti vera meira, en færi væri gott og ástandið allt annað og betra en þegar Vetrar- hátíðin fór fram fyrir mánuði síðan. Búist er við miklum fjölda gesta til Akureyrar í sambandi við Landsmótið og öll hótel munu fullbókuð fyrir löngu. Keppendum á Landsmótinu og fararstjórum er búin gistiaðstaða í Lundarskóla og er kappkostað að hafa allan að- búnað sem bestan. Mbl. mun birta öll úrslit eins fljótt og auðið er og þannig munu úrslit úr fyrstu greinum mótsins að öllu óbreyttu birtast í blaðinu á miðvikudag. Sigb. G. Skíðamót fslands 1980 Dagskrá Endurskoðuð tímasetning Mánudagur 31. mars kl. 20.30 Fararstjórafundur í Lundarskóla, útdráttur. Þriðjudagur 1. apríl kl. 13.00 Mótið sett við Skíðastaði, kl. 14.00 10 km ganga 17—19 ára, kl. 14.00 15 km ganga 20 ára og eldri, kl. 14.00 5 km ganga kvenna, kl. 14.00 3,5 km ganga 16—18 ára stúlkur, kl. 18.00 Fararstjórafundur, út- dráttur. Miðvikudagur 2. apríl kl. 13.00 Stökk 17-19 ára, kl. 13.00 Stökk 20 ára og eldri, kl. 13.00 Stökk norræn tvíkeppni, kl. 18.00 Fararstjórafundur, út- dráttur. Fimmtudagur 3. apríl kl. 12.00 Stórsvig karla, kl. 13.00 Stórsvig kvenna, kl. 13.00 Boðganga 3x10 km, kl. 18.00 Fararstjórafundur, út- dráttur. Föstudagur 4. apríl kl. 9.00 Skíðaþing í fundarsal Bæjarstjórnar Akureyrar Laugardagur 5. apríl kl. 12.00 Svig karla, kl. 13.00 Svig kvenna, kl. 18.00 Fararstjórafundur, út- dráttur. Sunnudagur 6. apríl kl. 12.00 Flokkasvig karla, kl. 13.00 Flokkasvig kvenna, kl. 13.00 30 km ganga karla, kl. 13.00 15 km ganga 17—19 ára, kl. 20.00 Verðlaunaafhending og mótsslit. Réttur áskilinn til breytinga á dagskrá ef veður eða aðrar ástæð- ur hamla keppni. Keppni fer öll fram í Hlíðarfjalli. Alpagreinar í Reithólum, ganga við Stórhæð, stökk við Ásgarð. Verðlaunaafhending og mótsslit fara fram í íþróttaskemmunni. Mótsstjórn. Fylkir sigraði KA örugglega EKKI tókst KA-mönnum að tryggja sig í 1. deild í gærkvöldi eins og góðir möguleikar voru á ef þeir hefðu sigrað lið Fylkis. Eftir að KA hafði verið yfir 12—9 i hálfleik og sýnt góðan leik fyrir fullu húsi áhorfenda datt leikur liðsins mjög niður i siðari hálfleiknum er aðaldrif- fjöður KA Alfreð Gíslason var tekinn úr umferð. Alfreð hafði átt stórgóðan leik í fyrri hálf- leiknum og hélt þá öllu spili KA gangandi. Fylkir byrjaði síðari hálfleikinn af miklum krafti og skoraði þrjú fyrstu mörk leiksins og jafnaði metin 12—12. Og á 43. mínútu. leiksins tókst Fylkismönnum að ná forystunni í leiknum 15—14. Þegar staðan var orðin 18—16 Fylki í hag misnotuðu KA menn tvívegis vítaköst. Jón Gunnarsson markvörður Fylkis varði snilldar- lega. Alls varði Jón þrjú vítaköst í síðari hálfleiknum. Fylkir leiddi KA—Fylkir 18:21 leikinn svo til loka og sigraði nokkuð sannfærandi. Nú er mikil spenna komin í 2. deild. í dag leika Þór og Fylkir og verða Fylkis- menn að sigra í þeim leik til að vinna 2. deild. Tapi þeir hins vegar eru lið Þróttar og KA efst og jöfn að stigum með 20 stig hvort lið. Bestu menn hjá KA í leiknum í gær voru Alfreð Gíslason sem skoraði 7 mörk og Jóhann Ein- arsson. Hjá Fylki átti Ragnar Hermannsson bestan leik og skor- aði 9 mörk. SOR/.þr. Skúla boðið í „World CupM SKÚLA óskarssyni UÍA hefur borist boð um að taka þátt í „World Cup“ í kraftlyftingum í London 15. april. Keppni þessi fer fram nú í fyrsta skipti og er þremur bestu mönnum heims i hverjum flokki boðin þátttaka þeim að kostnaðarlausu. Upphaflega var þremur efstu keppendum i millivigt á siðasta heimsmeistaramóti boðið til London, þeim Bridges USA, De- Pasquala Canada og Backlund Svíþjóð, en nú hafa forráðamenn keppninnar munað eftii' kemp- unni Skúla, sem á betri árangur en Svíinn. íslandsmeistaramót í lyfting- um 1980 fer fram á senunni í Laugardalshöll 12. og 13. apríl n.k. og hefst báða dagana kl. 14.00. Þátttökutilkynningar skulu berast L.S.Í. í síðasta lagi 31. mars n.k. ásamt kr. 4.000.- i þátttökugjald. Keppt skal eftir reglum L.S.Í. Mikil gróska í körfuknattleiks- deild Hauka MIKIL gróska hefur verið í vetur i körfuknattleiksdeild Hauka i Hafnarfirði. Félagið hefur hlotið íslandsmeistaratign i 2. flokki karla og kvenna og meistara- flokkur félagsins á góða mögu- leika á að tryggja sér sæti í 1. deild. Mark Holmes, sem áður lék með Grindavik, hefur nú gengið til liðs við Hauka og þar bættist þeim góður liðsstyrkur. 3. flokk- ur félagsins er kominn i úrslit og 4. flokkur hafnaði í 1. til 2. sæti i sínum riðli. Ingvar Jónsson hefur þjálfað alla flokka félagsins i vetur með þessum góða árangri. Til þess að hressa aðeins upp á fjárhagshlið deildarinnar og reyna að vinna upp í þann mikla kostnað sem fer i að reka svona deild verða Haukar með stór- hlutaveltu á Reykjavíkurvegi 64 á sunnudag og hefst hlutaveltan kl. 14.00. Það eru vinsamleg tilmæli Hauka að Ilafnfirðingar styrki deildina þeð því að sækja hlutaveltuna þar sem margt góðra muna er og engin núll. Viggó í leikbann DÓMSTÓLL HSÍ hefur úr- skurðað að Viggó Sigurðs- son fái 3 leikja bann fyrir atvik er kom fyrir i ieik Vals og Víkings i Reykjavikur- mótinu 19. okt. 1978. Þá lenti Viggó í samstuði við Hannes Þ. Sigurðsson dóm- ara, og var það mál margra að Viggó hefði hlaupið Hannes viljandi um koll. Hannes kærði atvikið og nú fyrst er fallinn dómur í málinu. -þr. Fylkir til Skotlands KNATTSPYRNULIÐ Fylkis mun halda til æfinga i Skot- Iandi yfir páskana. Liðið mun dveljast í Glasgow i 11 daga og taka þar meðal annars þátt i knattspyrnu- móti áhugamanna. Alls munu 24 leikmenn taka þátt í förinni. Lið Fylkis mun leika þrjá leiki í ferðinni. Arsenal sigraði EINN leikur fór fram í 1. deild í ensku knattspyrnunni í gær- kvöldi. Arsenal sigraði Everton 1—0. í 2. deild sigraði Oldham lið Fulham 1—0. Leiðrétting SÚ VILLA var í frásögn af leik Víkings og ÍR að lið Vikinga hefði leikið 22 kapp- leiki á keppnistimabilinu og sigrað í þeim öllum. Það er ekki rétt. Liðið hefur leikið 22 leiki gegn islenskum lið- um og sigrað i 21 leik, tapaði gegn Haukum í bikarkeppni HSÍ. Þá tapaði liðið báðum leikjum sinum í Evrópu- keppni bikarhafa gegn sænska liðinu Heim. -Þr. Skíðadeild KR INNANFÉLAGSMÓT skíða deildar KR i stórsvigi verð- ur haldið i Skálafelli sunnu- daginn 6. aprii. Þátttaka tilkynnist í Skálafelli 1. aprll n.k. Stjórnin. íslandsmeistaramót í fimleikum 1980 fer fram í íþróttahúsi Kennaraháskóla íslands viö Stakkahlíö sem hér segir: Laugardag 29. marz kl. 14.00: Skylduæfingar karla og kvenna. Sunnudag 30. marz kl. 14.00: Frjálsar æfingar kvenna og karla. Norrænir keppendur í fyrsta sinn sem gestir á íslandsmeistaramótinu í frjálsum æfingum. KomiÖ og sjáiö spennandi keppni. Fimleikasamband íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.