Morgunblaðið - 29.03.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1980
3
Ljósm. Emilía.
óttarr Möller í ræðustóli, en vióstaddir athöfnina voru starfsfólk
spítalans og Oddfellowsystur.
Gáf u augndeild
Landakots augn
lækningatæki
ODDFELLOWSYSTUR í Re-
bekkustúkunni nr. 1, Bergþóru
afhentu í gær Landakotsspítala
að gjöf augnlækningatæki i til-
efni 50 ára afmælis stúkunnar er
var í maí á sl. ári. Hér er um að
ræða leysilækningatæki og augn-
botnamyndavél og sagði prófessor
Guðmundur Björnsson yfirlæknir
augndeildar Landakots að með
þessum tækjum yrðu þáttaskil i
augnlækningum hérlendis þar
sem ekki þyrfti lengur að senda
sjúklinga með ákveðna augnsjúk-
dóma til útianda.
Óttarr Möller stjórnarformaður
Landakotsspítala sagði m.a. er
hann veitti gjöfinni viðtöku að
þetta væri ekki í fyrsta sinn sem
Oddfellowsystur og Oddfellow-
reglan sýndu í verki skilning á
starfsemi spítalans, um það vitn-
uðu margar gjafir á liðnum árum.
Próf. Guðmundur Björnsson lýsti
tækjunum, en þau eru augnbotna-
myndavél frá Zeiss í Þýzkalandi og
leysilækningatæki frá Lasertek í
Finnlandi: Myndataka af augn-
botnum auðveldar greiningu
ýmissa augnsjúkdóma og er for-
senda þess að hægt sé að beita
leysigeislameðferð. Áður varð að
senda þá sem þurftu á leysigeisla-
meðferð að halda, til útlanda.
Blinda af völdum sykursýki er
orðin ein algengasta blinduorsök
meðal nágrannaþjóða og virðist
vera á hraðri uppsiglingu hérlend-
is og má búast við sjónskerðingu af
hennar völdum á komandi árum.
Munu nýju tækin koma í góðar
þarfir og eru viðbót við þá göngu-
deildarstarfsemi augndeildarinnar
sem fyrir hendi er, en hún býr nú
við þröngt húsnæði. Hefur tækjun-
um verið komið fyrir til bráða-
birgða, en fara síðar í framtíðar-
húsnæði. Tveir læknar augndeildar
þeir Guðmundur Viggósson og
Guðmundur S. Jónsson dósent út-
skýrðu síðan fyrir viðstöddum
notkun tækjanna.
#|®
Guðmundur S. Jónsson sýnir notkun augnbotnamyndavélarinnar.
Páskatónleikar Pólýfónkórsins:
Helgimessa Rossims
frumflutt hérlendis
PÓLÝFÓNKÓRINN æfir um
þessar mundir fyrir páskatón-
leika sína, en þeir verða á
föstudaginn langa og laugar-
dag fyrir páska kl. 14 báða
dagana í Háskólabíói. Verður
þar flutt verk Rossinis, Helgi-
messa, en það hefur ekki verið
flutt hérlendis áður.
Pólýfónkórinn hefur unnið
að æfingum messunnar i rúma
tvo mánuði, en hann er nú
skipaður 130 manns og er
Ingólfur Guðbrandsson stjórn-
andi, en hann hefur á æfingum
notið aðstoðar þeirra Elísabet-
ar Erlingsdóttur og Ástu
Thorstensen söngkvenna og
tónlistarkennarans Herdísar
Oddsdóttur.
Svo sem margir vita samdi
Rossini aðallega óperur, flestar í
léttum dúr og vinsælar, en mess-
an er síðasta stórverk hans,
frumflutt árið 1869 ári eftir lát
hans. I umsögn um höfundinn og
flutning verksins segir Pólý-
fónkórinn m.a.:
Ef til vill er það vegna þess
hve höfundurinn var veraldlega
sinnaður og gáskafullar óperur
hans nutu mikilla vinsælda, að
fáum datt í hug að Rossini gæti
gert tónlist um kirkjulegt efni og
messan vakti ekki verulega at-
hygli í fyrstu. En verkið býr yfir
einstæðum töfrum bæði í lag-
Ingólfur Guðbrandsson stjórn-
andi Pólýfónkórsins.
rænni byggingu og litauðgi,
snilldarlegri hljómsetningu, þótt
óperustíll hans gægist alls stað-
ar fram.
Nú er svo komið, að Messa
Rossinis er í tölu vinsælustu
kórverka heimsins, og flutningur
hennar telst hvarvetna til tón-
listarviðburða, enda víða flutt á
tónlistarhátíðum á seinni árum.
I verki Rossinis 'skiptast á
unaðslegir kórkaflar og aríur,
dúettar, terzettar og kvartett
sólista í óperustíl. Og einsöngv-
ararnir eru ekki af verri éndan-
um. JANET PRICE, ein dáðasta
sópransöngkona Bretlands flyt-
ur sópranhlutverkið, en hún hef-
ur einu sinni sungið hér áður,
þegar Pólýfónkórinn flutti
Messías Hándels hér í fyrsta
sinn fyrir 5 árum, en þá vakti
söngur hennar óvenjulega hrifn-
ingu. Með bassahlutverkið fer
ungur söngvari, DAVID
WILSON-JOHNSON, sem unnið
hefur til margs konar verðlauna
að undanförnu fyrir söng sinn og
kemur víða fram á listahátíðum
nú t.d. í Edinborg og Berlín. JÓN
ÞORSTEINSSON, sem nú er við
söngnám á Ítalíu, kemur einnig
heim til þátttöku í flutningnum,
en vafalaust fýsir marga að
fylgjast með stórstígum fram-
förum hans. Með alto-hlutverkið
fer hin kunna og þrautreynda
söngkona RUTH MAGNUSSON,
en þetta mun hafa verið eitt af
fyrstu stórhlutverkum hennar á
glæsilegum söngferli hennar er-
lendis. Undirleikarar kórs og
einsöngvara verða AGNES
LÖVE og ANNA MÁLFRÍÐUR
SIGURÐARDÓTTIR píanó og
HÖRÐUR ÁSKELSSON, organ-
leikari, sem leikur á harmoníum,
en þetta er frumgerð verksins
frá höfundarins hendi.
Hyggst reisa skála fyrir
búnað og til kvikmyndunar
ÍSFILM hefur á prjónunum að
reisa um 1000 fermetra skála í
Reykjavík, þar sem eignir félags-
ins verða geymdar. Gólf skálans
verður þannig úr garði gert, að
þar geti farið fram kvikmynda-
tökur.
— Það er of mikið að kalla þetta
kvikmyndaver, sagði Indriði G.
Þorsteinsson, einn eigenda ísfilms
í spjalli við Mbl. í gær. — Við
höfum eignast nokkuð af tækjum
og öðrum búnaði, m.a. þrjá bíla.
Það er mikil nauðsyn fyrir okkur
að koma upp geymslu fyrir búnað-
inn. Við höfum einnig hugsað
okkur að skálinn verði þannig úr
garði gerður að þar verði hægt að
taka upp kvikmyndir, en til þess að
svo verði þarf að ganga frá gólfinu
á sérstakan hátt, bætti Indriði við.
Indriði sagði að fjármögnun virt-
ist ætla að ganga vel og hann tók
sérstaklega fram að byggingin
myndi í engu raska áformum um
frekari kvikmyndaframleiðslu, en
það var sem kunnugt er Isfilm sem
framleiddi myndina Land og synir.
Félagsráðgjafar áfram í BSRB
ATKVÆÐAGREIÐSLA meðal fé-
laga í Stéttarfélagi islenzkra félags-
ráðgjafa um það, hvort félagið ætti
að vera áfram innan vébanda BSRB
eða sækja um aðild að BHM fór
þannig, að félagið verður áfram
aðili að Bandalagi starfsmanna
rikis og bæja. Þetta kom fram á
nýafstöðum aðalfundi, en þar kom
jafnframt fram að veitt voru á
síðasta starfsári 12 ný starfsieyfi
fyrir félagsráðgjafa og er félaga-
talan nú komin yfir 50.
Á fundinum voru samþykktar
ályktanir um kjaramál, þar sem
brýnt var fyrir BSRB, að standa við
kröfugerðina og jafnframt var sam-
þykkt stuðningsyfirlýsing við bar-
áttu farandverkafólks. Stjórn Stétt-
arfélags íslenzkra félagsráðgjafa
skipa nú: Þórunn Óskarsdóttir for-
maður; Helga Jóhannesdóttir vara-
formaður; Helga Ágústsdóttir ritari;
Guðlaug Magnúsdóttir gjaldkeri og
Sólveig Reynisdóttir varamaður.
Thorvaldsen
Kjarvalsstöðum
„VIÐ STEFNUM að því að hafa
hér Thorvaldsen-sýningu í sept-
ember 1981,“ sagði Dyveke
Helvsted, forstjóri Thorvald-
sens-safnsins i Kaupmannahöfn
í samtali við Morgunblaðið á
Kjarvalsstöðum í gær, en þar
var nýlokið fundi stjórnar
Kjarvalsstaða um málið. „Okk-
ur langar til að sýningin verði
ekki um of bundin við persónu
Thorvaldsens, heldur er ætlun-
in að reyna að varpa ljósi á það
umhverfi, sem hann lifði i —
þann jarðveg, sem hann er
sprottinn úr“.
Þóra Kristjánsdóttir listráðu-
nautur Kjarvalsstaða sagði að af
hálfu forráðamanna Kjarvals-
staða væri mikill áhugi á því að
koma þessari sýningu upp, en
hér væri um að ræða frábært
tækifæri til að kynna klassíska
list.
„Þessi sýning mun hafa mikið
menningarsögulegt gildi, um leið
og margir munu eflaust fagna
því að fá sílkt tækifæri til að
kynna sér klassíska höggmynda-
list," sagði Þóra.
Þegar spurt var að því hverjir
stæðu straum af kostanði við
sýninguna kváðu þær það mál
enn á algjöru byrjunarstigi, en
ætla mætti að slíkur stuðningur
kæmi frá bæði Danmörku og
Islandi, auk þess sem vonir
stæðu til að Norræni menning-
armálasjóðurinn legði til nokk-
urt fé.
Kostnaðarsamt væri að
flytja listaverk á milli landa,
ekki sízt svo verðmætar högg-
myndir, sem hér um ræddi, en
mikill liður í þeim flutnings-
kostnaði væru tryggingargjöld,
sem væru mjög há.
Þóra Kristjánsdóttir og Dyveke Helsted í anddyri Kjarvalsstaða í gær, en þar var þá verið að koma
fyrir heilum skógi vegna ráðstefnu á vegum samtakanna „Lif og land“ um trjárækt.