Morgunblaðið - 29.03.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1980
7
Skattar og
lífskjör
Viöskiptakjöf okkar út
á við hafa versnað með
haakkandí olíuverði og
veröfalli á freðfiski. Þjóö-
artekjur hafa lækkað.
Verðbólga, sem ekki á
sinn líka á Vesturlöndum,
krefst aöhalds í þjóöar-
búskapnum, ef bata á að
ná. Nauðsynlegt er aö
tella stjórnun ríkisfjár-
mála að æskilegri þróun í
launa-, gengis- og verð-
lagsmálum. Þetta á ekki
sízt við um festu í ríkis-
útgjöldum og skattamál-
um.
Gengið er út frá því í
forsendum fjárlagafrum-
varps og málflutningi
fjármálaráðherra, að
kaupmáttur launa rýrni
milli 4 til 5% á árinu 1980,
til viöbótar þeirri rýrnun
sem varð á liðnu ári. Við
þessar aðstæður var
mjög nauðsynlegt aö
ríkisstjórnin fylgdi fram
aðhaldsstefnu í ríkisút-
gjöldum og ekki síöur
skattheimtu, til að rýra
ekki enn á ofan kaupmátt
ráðstöfunartekna; þess
hluta aflafjár, sem eftir er
til frjálsrar ráðstöfunar
þegar skattheimtan hefur
tekið sitt. Skattastefna
hefur sum sé afgerandi
áhrif á kjarastöðu ein-
staklinga og heimila í
landinu.
Vinstri stefna
hert
Samkvæmt upplýsing-
um Þjóöhagsstofnunar
hefur skattbyrði einstakl-
inga hækkað um 30.000
milljónir króna á þremur
árum. Enn er höggvið í
sama knérunn. Nýjasta
dæmið er frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um álagn-
ingarkerfi og skattstiga.
Þar er beinlínis tekiö
fram aö „innheimtur
tekjuskattur muni verða
ívið meiri en fjárlaga-
frumvarpið gerði ráð fyrir
— sem var þó æriö nóg.“
Um þetta efni segir Vísir í
leiðara í gær:
„En skattar af meðal-
tekjum og þaðan af
hærri, þ.e. skattar á því
fólki, sem ber raunveru-
lega uppi þetta þjóðfélag,
munu þyngjast verulega.
i fyrrnefndu frumvarpi er
það berum oröum sagt
að heildarskattgreiðslur
hjóna hækki um 9% og
nú er jaðarskattur af
hærri tekjum 65%, sem
þýðir einfaldlega að tvær
af hverjum þremur krón-
um af tekjum heimilis
ganga til hins opinbera."
Hér viö bætist að útsvör
hækka upp í 12,1% af
brúttótekjum, sem hlut-
laus áætlun metur á 5,1
milljarð króna.
Vísir minnir og á ráð-
gerðan orkuskatt, hækk-
un eignaskatta, hækkun
flugvallagjalds og að
heildargjöld til ríkis og
sveitarfélaga séu komin í
45% af tekjum þjóðarinn-
ar. „Sósíalistar kunna aö
láta sér þessa þróun í
léttu rúmi liggja,“ segir
Vísir, „en hvað um hina?“
Hafa þeir einnig gengið í
björgin?"
Atkvæöa-
greiösla á
Alþingi
kvæðagreiðsla í Samein-
uðu þingi um 7,2 millj-
arða skattalækkun á ein-
staklingum og samsvar-
andi sparnað í ríkisút-
gjöldum 1980. Með þess-
ari tillögu greiddu at-
kvæði 25 þingmenn úr
Sjálfstæðisflokki og Al-
þýöuflokki. Ekki dugði
það til. Stjórnarliðið felldi
lækkunina. Allir þing-
menn Alþýöubandalags,
Framsóknarflokks, þrír
sjálfstæóisráðherrar og
Eggert Haukdal stóðu
vörð um skattpíningar-
stefnuna.
Sjálfstæðisflokkurinn
hét því að afnema 19
skattauka vinstri stjórn-
ar. Þeir ganga allir aftur í
fjárlagafrumvarpi stjórn-
arinnar. Sjálfstæðisflokk-
urinn hét því að lækka f
áföngum og stefna aö
afnámi tekjuskatta af al-
mennum launum. Fram-
angreind atkvæða-
greiðsla segir sína sögu
um framhaldið. Einnig
hækkun flugvallargjalds-
ins og fjöldi annarra hlið-
stæðra dæma, sem sam-
ansöfnuð mynda nýtt
íslenzkt skattamet. Það
er skondin byrjun á
„niðurtalningu verð-
bólgu" aö framlengja
hækkun vörugjalds, sölu-
skatts og annarra verð-
þyngjandi skatta, að
ógleymdu bensíngjald-
inu. Niðurtalning skatt-
heimtunnar hefði átt að
vera undanfari annarrar
niðurtalningar, ef eitt-
hvað var með henni
meint.
DODGEI
POUIER
UMGOn
Sýnum í dag yfirbyggöan DODGE
POWER WAGON. Komiö og skoöiö einn glæsilegasta
feröa- og torfærubíl sem sést hefur.
Opiö í dag kl. 10—18.
CHRYSLER
e
IIIK1SIKK
SIMCA OacJgo
Suðurlandsbraut 10. Símar 83330 - 83454
I3KXEK7132 2000 GLS
Höfum til sölu Fiat 132 2000 árgerö 1978. Bíllinn er
blásanseraður aö innan, Ijósbrúnn meö flauels-
áklæöi, sjálfskiptur meö GM skiptingu, powerstýri og
bremsum, rafeindakveikja, kraftmikill en sparneytinn
bíll. Sumar og vetrardekk fylgja.
Vel meö farinn úrvalsbíll á góöu verði.
Opiö í dág kl. 9—5.
FÍAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
DAVÍÐ SIGURÐSSON hf.
SÍÐUMÚLA 35. SlMI 85855
Nýtt Nýtt Sumarvörurnar eru komnar. Baömullarkjólar.
Baömullarblússur. Fjölbreytt úrval. Pils — Blúss- ur.
Glugginn, Laugavegi 49.
Kaffihlaðborð
veröur í félagsheimili Fáks, sunnudaginn 30. marz.
Húsiö opnað kl. 15.00. Borðið svignar undan
meölætinu. Fákskonur sjá um kaffihlaöboröið.
Hestamenn og hestaunnendur mætum í síðdegis-
kaffinu.
Fákskonur.
Kafarastörf
Hér meö er öllum þeim, er hlut eiga aö máli og
stunda köfun í atvinnuskyni, bent á aö lög nr. 12,
13. apríl 1976 um kafarastörf og reglugerö nr.
B-54/1979, eru til sérprentuö hjá Siglingamála-
stofnun ríkisins, Reykjavík.
Siglingamálastofnun ríkisins.
HVAÐ ER AÐ SJA I
GALLERÍ SUÐURGÖTU 7?
SkóliEmils
Vornámskeiö hefst 1. apríl.
Kennslugreinar:
Píanó, harmonika (Accordion), gítar, melo-
díka, munnharpa, rafmagnsorgel.
Hóptímar og einkatímar.
Innritun í síma 1 6239.
Emil Adolfsson,
Nýlendugötu 41.