Morgunblaðið - 29.03.1980, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1980
Hótel Loftleiðir:
Brejtlands-
og Ítalíu-
kynning
HÓTEL Loftleiðir munu í apríl
og maí í vor gangast fyrir
kynningum á Bretlandi og Ítalíu
í samvinnu við Flugleiðir, Ferða-
málaráð Bretlands og Ferða-
skrifstofuna Útsýn.
Matreiðslumenn munu koma frá
viðkomandi löndum og hafa þeir
yfirumsjón með matseldinni. Þá
verða fengnir skemmtikraftar að
utan og fleira verður gert sem
minnir á viðkomandi lönd.
Bretlandskynningin verður í
heila viku, frá 25. apríl til 2. maí,
en ítalska kynningin frá 8. til 11.
maí.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur fengið hjá
Hótel Loftleiðum verður
Vínlandsbar innréttaður í stíl
breskrar vínkrár, og þar mun
breskur listamaður leika
„cockneytónlist“ á píanó. Mat-
reiðslumaðurinn verður frá May-
fair í London. Þá verða breskar
ferðamyndir sýndar í ráðstefnusal
og ferðamálasýning verður f
Kristalsal. Ennfremur er væntan-
legur hingað til lands svonefndur
„city crier“, eða kallari, og mun
hann ganga um helstu götur
borgarinnar og minna á kynning-
una á Hótel Loftleiðum.
í haust verða síðan aftur teknar
upp landakynningar af þessu tagi
og verður byrjað á „Tékkneskri
viku“ í lok október, og síðan er
„Ungversk vika“ í nóvember.
Lyf við
magasári
ALLMARGIR læknar hafa
haft samband við Morgun-
blaðið vegna fréttar á for-
síðu hlaðsins í fyrradag, sem
sagði frá því að nýtt lyf geri
það nú að verkum að ekki
þurfi lengur að skera maga-
sárssjúklinga upp við maga-
sári.
I fréttinni, sem var frá
AP-fréttastofunni, segir að
lyfið heiti „cimetidine". Hér á
landi hefur þetta sama lyf
hins vegar verið notað í
fjögur til fimm ár, undir
nafninu „tagamet", og hefur
það gefið allgóða raun í
baráttu við magasár. Ekki er
þó um það að ræða að það
hafi leyst uppskurði af hólmi
í viðureigninni við sjúkdóm-
inn, og einnig hefur þótt bera
á því að magasárið taki sig
upp aftur þegar er notkun
lyfsins er hætt.
FIB um bensín-
hækkunina:
„Látum heyra
frá okkur
fljótlega“
„VIÐ munum láta heyra frá
okkur mjög fljótlega vegna
bensínhækkunarinnar,“ sagði
Sveinn Oddgeirsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, í samtali við
Mbl.
„Við höfum skipað sérstaka
nefnd sem mun fjalla um málið á
næstu dögum. Varðandi aðgerðir
er einkum um tvennt að velja,
annars vegar mótmælaaðgerðir og
hins vegar þungan áróður," sagði
Sveinn ennfremur.
Hamrahtíðarkórinn ásamt Þorgerði Ingólfsdóttur stjórnanda. Ljósmyndir Mbi. Kristján Einarsson.
Marzvítamín
í Hamrahlíðarskólanum
Þessar brosmildu stúlkur úr MH munu selja
kvartett MH mun syngja í Marzvítamíninu.
Þorgerður
stjórnar.
i
„Margt er sér til gamans gert
geði þungu að kasta.
Það er ekki einskisvert
að eyða tíð án lasta.
Beri maður létta lund
linast raunatetur.
Eigi hann bágt um eina stund
aðra gengur betur,“ söng
Hamrahlíðarkrórinn úr
Tímarímu Jóns Dalakolls á
blaðamannafundi þar sem
kynnt var skemmtiskrá sem
kórinn stendur fyrir í Hamra-
hlíðarskólanum á laugardag, en
þar sýndi kórinn það andlit sem
hann er löngu landskunnur
f fyrir, skemmtilegan söng og
lífsglatt fólk. Opið hús verður í
skólanum fyrir borgarbúa þar
sem boðið verður upp á fjöl-
breytt skemmtiatriði og veit-
ingar gegn vægu verði.
1 Fer þar fram fjölþætt dagskrá
J með söng, veitingum, skemmti-
atriðum í ýmsum dúrum, blóma-
sala og sitthvað fleira við hæfi
fólks á öllum aldri. Laugar-
dagsskemmtun þessi er eins kon-
ar marzvítamín sem félagar í
Laugardags-
skemmtun
fyrir gesti
og gangandi
Hamrahlíðarkórnum, undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur,
bjóða upp á. Fer hún fram með
þeim hætti að dagskráin stendur
yfir allan laugardaginn, en ekk-
ert atriði verður endurflutt. Vill
kórinn með þessum hætti bjóða
borgarbúum, gestum og gang-
andi, upp á tilbreytingu með lífi
og fjöri jafnhliða því að dagar I
lengjast nú óðum. Skólinn verð-
ur sem sagt opinn og hvetur
kórinn fólk til þess að líta inn J
sér til gagns og gamans.
Marzvítamínið fer fram með
þeim hætti að Hamrahlíðarkór- J
inn syngur mismunandi efnis- |
skrá kl. 2, 4 og 6. Sungnir verða §
madrígalar, íslenzk lög, þjóðlög, |
tónsmíðar eftir kunnustu meist- |
arana, negrasálmar og sitthvað |
fleira. Hver konsert tekur innan J
við klukkutíma í Hátíðarsal |
Hamrahlíðarskólans.
Þá verða ýmis létt atriði í |
tilefni dagsins. í matgarði skól- |
ans selja kórfélagar veitingar og j
á milli konserta skólans verða J
þar skemmtiatriði eins og kvart- J
ettsöngur, þjóðlagatónlist, |
hlutavelta, einn handlaginn kór- j
félagi mun klippa gesti, unnt j
verður að fá teikningar í léttum j
dúr af þeim sem vilja, töfra- j
brögð verða framin, spilabrögð J
og blómasölustúlkur fara um.
Það verður sem sagt sitt lítið af |
hverju til þess að lífga upp á j
mannlífið og tilveruna.
Þjódlagasöngur veröur í trallinu
á laugardaginn og stiginn verö-
ur írskur dans af miklum móð.